Lögberg - 03.02.1955, Page 8

Lögberg - 03.02.1955, Page 8
8 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 3. FEBRÚAR 1955 Úr borg og bygð — DÁNARFREGN — Marsibil Stefanía Helgason landnámskona frá Árnes, Man., lézt að Gimli laugardaginn 8. janúar, 77 ára að aldri. Hún var dóttir Jónatans Jónssonar frá Marðardjúpi í Vatnsdal og konu hans Marsibil Jónsdóttur frá Syðsta-Hvammi í V.-Húnavatns- sýslu. Fluttist Marsibil Stefanía með foreldrum sínum og bróður vestur um haf og til Nýja- íslands 1887. Hún giftist Þorfinni Helgasyni, bónda að Blómstur- völlum í Árnesbyggð og misti hann árið 1916. Þeim Jrjónum hjónum varð tólf barna auðið. Þau mistu eitt barn á unga aldri, en tvö dóu á bezta aldri, Helgi og Marsibil, Mrs. Barney Hjör- leifsson. Hin látna lætur eftir sig fjóra sonu: Jónatan í Prince Rupert; Þorfinn í Winnipeg; Jóhann og Guðmund Ágúst, báðir búsettir í Árnes; fimm dætur: Agnesi, Mrs. Gobbins, Ontario; Herdísi, Mrs. Stanley Einarsson, Gimli; Kristínu Helga son í Bandaríkjunum; Elísabet, Mrs. Jack Young, Selkirk og Guðnýju, Mrs. Geirhólm, Gimli. 29 barnabörn og 14 barnabarna- börn; ennfremur bróður sinn, Jóhann V. Jónatansson, Árnes, Man. Útförin fór fram á laugardag- inn 15. janúar. Séra Haraldur S. Sigmar flutti kveðjumál. Hin mæta landnámskona var lögð til hinztu hvíldar í Árnes-grafreit. ☆ Mr. Jónatan Helgason frá Prince Rupert kom að vestan til að vera viðstaddur útför móður sinnar, frú Marsibil í nokkrar vikur í heimsókn hjá syni sínum Sigurði í Winnipeg og dætrum, Heiðu og Láru að Gimli og Riverton, og öðru frændfólki. Hann mun og heim- sækja kunningja sína á fornum stöðvum, að Árnesi og 1 Mikley. ☆ Hinn 19. janúar síðastliðinn, lézt í Chicagoborg Mrs. William Riches, 63 ára að aldri, merk kona og vinsæl; heimili hennar var að 912 North La Salle St., Chicago 10. Hin látna hét fullu nafni Þor- björg Sesselja, og var hún dóttir hinna kunnu landnámshjóna Páls og Guðnýjar Kernested, er lengi bjuggu við Narrows, Man. Auk manns síns lætur Mrs. Riches eftir sig eina dóttur, Margréti, en fyrir ári síðan mistu þau hjón 17 ára gamlan son; við útförina voru tvö syst- kini hinnar látnu, þau Thordís Thorvardson, Winnipeg, og Mr. Joe Kernested að Narrows; önn- ur systkini á lífi eru Miss Katrín Kernested að Narrows og Mr. Karl Kernested póstmeistari að Oak View. ☆ The Annual meeting of the Jón Sigurdson Chapter I.O.D.E. will be held at the home of Mrs. E. A. ísfeld, 575 Montrose St. River Heights, on Friday even- ing February 4th at 7.30 p.m. ☆ Arni G. Eggertson, Q.C. og frú komu heim um síðustu helgi úr hálfsmánaðarferðalagi suður um Bandaríki. ☆ Fréttir herma, að lítill sem enginn fiskur hafi aflast á Win- nipegvatni í vetur og eru margir Eldur kom upp á þriðjudag- inn, 25. janúar, í hinum nýja íþróttaskála Gimlibæjar. Var lokið við þessa $25,000 byggingu í fyrra — mest af vinnunni gef- ins. Áætlað er að skemmdir nemi $10,000 en vátrygging var $9,000. Hófust viðgerðir strax og mun íþróttum haldið áfram í skálanum eftir sem áður. ☆ Mr. Peter Anderson, fyrrum kornkaupmaður, lagði af stað suður til Miami, Florida, ásamt frú sinni á þriðjudaginn og munu þaU hjón dveljast þar syðra um tveggja mánaða skeið. ☆ Þjóðræknisdeildin „FRÓN“ þakkar hér með fyrrverandi deild að Wynyard, Sask., fyrir bækur sendar til bókasafns Fróns að tilhlutan Gunnars Jó- hannssonar. Það er gömul sögn, að lengi taki sjórinn við. Sama má segja um bókasafn deildarinnar Frón. Ef um fleiri bókasöfn deilda er að ræða, sem ekki eru notuð, þá er þess vænst, að þau hafi sam- band við deildina Frón, því að þar verða bækurnar einhverjum til gagns og gamans. — Innilegt þakklæti til Wynyard. Fyrir hönd deildarinnar Frón, J. Johnson, bókavörður 735 Home St. Winnipeg 3, Man. ☆ — DÁNARFREGN — Laugardaginn 15. janúar s.l. andaðist á sjúkrahúsi í grend við Seattle, Wash., Guðrún Gott- sveinsdóttir, Kárason, 83 ára og 6 mánaða gömul. Hún var ekkja eftir Jóhann Kárason, sem hér dó fyrir tveim- ur árum síðan. Mrs. Kárason hafði verið biluð á heilsunni hin síðustu fjögur ár, en hafði verið ein af duglegustu starfskonum í íslenzkum félagsskap í mörg ár hér í Seattle, mjög vel látin á meðal Islendinga. Hún var tvígift og á einn son á lífi frá fyrra hjónabandi, hann heitir Þorsteinn Gíslason, starfs- maður hjá Hudson Bay Co. í Winnipeg, Man. Mrs. Kárason var jarðsungin laugardaginn 22. janúar frá út- fararstofu Wiggen and Sons, Seattle, Washington, og lögð til hinztu hvíldar í hinum fagra grafreit, Acacia Memorial Park. Séra Eric Sigmar og séra Guðm. P. Johnson jarðsungu. ☆ — LEIÐRÉTTING — Hr. Einar P. Jónsson, ritstjóri Lögbergs, Winnipeg, Man., Canada. Góði vinur! Þökk fyrir að birta þýðinguna á sálminum „Enn í trausti elsku þinnar“, í blaði þínu dagsettu 6. janúar 1955. En mig langar til að biðja þig að gjöra svo vel og leiðrétta tvær villur, sem slæðst hafa inn í prentun sálmsins: 1. Fyrsta línan í öðru versinu á að vera: “Thee I worship, Thee my haven." 2. Og í fimta versinu á fyrsta línan að vera: “All the fulness of Thy blessing.” Þakka þér fyrir að birta þessa leiðréttingu. Með kærri kveðju og beztu óskum. Þinn einlægur, Kolbeinn Sæmundsson ☆ The Women’s Association of the First Lutheran Church will hold their birthday meeting Tuesday Feb. 8th at 2 p.m. A film on Cancer research will be shown. ■íV Mr. Chris Halldórsson þing- maður St. George kjördæmis og frú, eru nýkomin heim sunnan úr Californíu, en þar höfðu þau dvalið frá því í nóvembermánuði síðastliðnum; hefir Mr. Hall- dórsson tekið sæti sitt í fylkis- þinginu og dvelja þau hjón hér í borginni fram yfir þingtímann. ☆ Mr. Páll S. Pálsson skáld frá Gimli var staddur hér í borg í fyrri viku. Helgason. Mun hann dvelja hér fiskimenn að hætta veiðum. KAUPENDUR LÖGBERGS Á ÍSLANDI Gerið svo vel að senda mér sem fyrst greiðslu fyrir yfirstandandi árgang Lögbergs, kr. 75.00. Dragið ekki að greiða andvirðið. Það léttir innheimtuna. Æskilegt að gjaldið sé sent í póstávísun. Þeir sem eiga ógreidda eldri árganga, eru vinsamlega beðnir að snúa sér til mín. SINDRI SIGURJÓNSSON LANGHOLTSVEGI 206 — REYKJAVIK EATON'S Stærsta smásöluverzlunin í brezka þjóðarsambandinu Smásöluverzlanir EATON’S ná yfir Canada frá strönd til strandar, auk þess sem hið risavaxna póst- pöntunarfyrirtæki, svo sem ráða má af verðskránni, nær til svo að segja allra vorra viðskiptavina í landinu. Hin óbrigðula reynsla vor í verzlunarsökum og hin ófrávíkj- anlega regla, að peningum sé skilað aftur sé fólk ekki ánægt með vöruna, hefir reynzt canadískum kynslóðum mikil hjálparhella. EATON'S of CANADA The Dorcas Society, First Lutheran Church, will sponsor the Dugald Women’s Institute Fashion Review on Thursday, February lOth, at 8.15 p.m., in the lower auditorium of the Church. This review features styles from 1825 to 1954 and is being presented for the 32nd time in Winnipeg and surround- ing districts. We would advise you not to miss seeing this very splendid collection of afternoon and evening gowns, sportswear, etc. Admission is fifty cents and tickets may be obtained from Dorcas members or at the door. ■ír Hinn 15. janúar síðastliðinn lézt í Huntington Park, Cal., Mrs. Ingibjörg Margrét Jame- son, en þar hafði hún átt heima síðustu sextán árin; hún var 97 ára að aldri. Kveðjumál voru flutt í Klinker Mortuary í Hunt- inton Park hinn 19. þ. m., en þaðan var líkið sent til greftr- unar í Spanish Fork, Utah, en þar hafði Mrs. Jameson verið búsett í sextíu ár, og í grafreitn- um þar hvíla þrír synir hennar. Bróðir Mrs. Jameson, Þorsteinn Davíðsson lézt í Canada í fyrra. Ofangreinda fregn sendi Mr. Skúli G. Bjarnason Lögbergi til birtingar. ☆ G. L. Johannson ræðismaður er nýkominn heim ásamt frú sinni úr hálfsmánaðar dvöl suður í Bandaríkjum. ☆ Mrs. Andrea Johnson frá Ár- borg dvaldi í borginni um helgina. — GIFTING — Guðbjörg, dóttir Friðriks heit- ins Kristjánssonar og eftirlifandi konu hans, Mrs. Kristjánsson, og Douglas F. Parkhill frá Ottawa, voru gefin saman í hjónaband í Fyrstu lútersku kirkjunni á laugardaginn 29. janúar. Dr. Valdimar J. Eylands gifti. Brúð- armeyjar voru Miss Shirley Stinson og Unnur Ann, systir brúðarinnar. James Parkhill frá Toronto aðstoðaði brúðgumann. Aðalsteinn F. Kristjánsson lög- maður leiddi systur sína til altarisins, og að lokinni vígsl- unni fór fram veizla á heimili hans. Brúðhjónin fóru í brúð- kaupsferð til Bermuda, en heim- ili þeirra verður í Ottawa. Brúð- urin er útskrifuð í Medical Technology frá General Hospi- tal, Winnipeg, en brúðguminn í Electrical Engineering frá To- ronto-háskólanum. Hafði verið nær blind, á því auga frá barnæsku Harla óvenjulegur atburður gerðist í Súðavík um jólin. Öldruð kona, er verið hafði að heita mátti blind á öðru auga frá barnæsku, fékk sjónina undir messu á annan í jólum hér í kirkjunni. Sjónin kom skyncLilega Konan, sem heitir Jóhanna Hallvarðsdóttir og er nú sextug að aldri, var í kirkju á annan dag jóla við guðsþjónustu hjá séra Sigurði Kristjánssyni frá ísa- firði, er nú gegnir prestsstörfum hér. Fann konan skyndilega, að sjónin á vinstra auganu, sem áður hafði verið nálega engin, skýrðist allt í einu, og leið ekki á löngu áður en hún sá betur með því auga en hinu. Sjón konunnar á hægra auga hafði verið farin að sljóvgast svo, að hún gat ekki lesið gler- augnalaust, en nú sér hún svo vel með vinstra auganu, er verið hafði nærri blint, að hún getur lesið gleraugnalaust. Telur hún, að sjónin á því auga sé jafnt og þétt að skýrast frá því að hin skyndilega breyting varð undir guðsþjónustunni á annan í jólum. Mr. Ólafur Hallsson kaupmað- ur frá Eriksdale var staddur í borginni í vikunni, sem leið. ■ír Mrs. Anna M. Jónasson, Gimli, Man., ekkja Einars heit- ins fylkisþingmanns, er á förum til Chicago. Hefir hún í hyggju að dvelja þar hjá dóttur sinni á vetrin, en á Gimli á sumrin. Gimli Women’s Intitute kvaddi hana með árnaðaróskum og gjöf- um við miðdegisverð á Falcon Cafe 20. janúar. Mrs. Jónasson er ein af stofnendum þessarar deildar H. I. á Gimli og hefir jafnan átt sæti í stjórnarnefnd- inni. ☆ Jóhanna Bjarnason, lézt að heimili Mrs. Elísabetar Ander- son, 259 Spence St., á þriðjudag- inn 25. jan. Hún var 94 ára, fædd að Dröngum á Skógar- strönd, 29. apríl 1859, dóttir Bjarna Ingvarssonar og Kristín- ar Helgadóttur. Hún fluttist vestur um haf snemma á árum, og dvaldi fyrst um hríð í Norður Dakota. Til Winnipeg kom hún 1904, átti heima um mörg ár á heimili séra Friðriks Bergman, og síðasta aldarfjórðunginn hefir hún dvalið í skjóli dóttur hans, Elísabetar, sem fyrr greinir. •— Jarðarförin fór fram frá útfarar- stofu Bardals á fimmtudaginn 27. janúar; séra Valdimar J. Eylands flutti kveðjumál. ☆ ^ Síðastliðið þriðjudagskvöld lézt að Reynistað í Mikley, Guð- jón Kristjánsson hálfníræður að aldri, austfirzkur að ætt; hann var skýrleiksmaður og dyggur við öll sín störf; hann var með beztu skákmönnum og um eitt skeið taflkappi Canada í bréfa- taflkepni; útför enn eigi ráð- stafað. ☆ Síðastliðinn fimtudag lézt á Betel að Gimli Thorbjörn Magnússon níræður að aldri, hinn mesti sæmdarmaður; hann stundaði jöfnum höndum tré- smíði og húsamálningu; hann var alllengi búsettur í Spanish Fork, Utah, einnig í Kewatin, Ont., og Selkirk. Útförin var gerð frá Elliheimilinu og flutti séra Sigurður Ólafsson þar kveðjumál. ☆ Aðfaranótt síðastliðins mið- vikudags lézt hér í borginni Mrs. Salome Backman, mesta dugn- aðar- og þrekkona, er tók mikinn þátt í kvenfélagsstarfsemi Fyrsta lúterska safnaðar og mál- efnum Goodtemplara. Missti sjónina fimm ára Jóhanna er fædd í Skjald- bjarnarvík á Ströndum. Hún giftist Guðmundi Kristjánssyni og bjuggu þau lengi að Horni. Síðasta áratug hefir hún átt heima hér í Súðavík, og er ekkja. Hún var aðeins fimm ára gömul, er hún missti sjónina á vinstra auganu. — Atburður þessi vekur að vonum stór- athygli hér. Hafa menn á honum engar skýringar. Sr. V. J. Eylands, Dr. TheoL Heimili 686 Banning Street. Sími 30 744. Guðsþjónustur á hverjum sunnudegi: Á ensku kl. 11 f. h. Á íslenzku kl. 7 e. h. ☆ Lúterska kirkjan i Selkirk Sunnud. 6. febr.: Ensk messa kl. 11 árd. Sunnudagaskóli kl. 12 íslenzk messa kl. 7 síðd. Fólk boðið velkomið. S. Ólafsson ☆ Messa í Árborg Sunnud. 6. febr., kl. 2 e. h. Prédikað á ensku. Robert Jack íslenzkur skipstjóri kennir Tyrkjum síldveiðar Þrír íslendingar kenna nýjustu fiskveiðiaðferðir úti um heim Landbúnaðar- og matvæla- stofnun Sameinuðu þjóð- anna hefir ráðið íslenzkan skipstjóra til að kenna Tyrkjum síldveiðar. Svo sem kunnugt er veitir stofnun þessi, sem venjulega er nefnd FAO í daglegu máli, þeim þjóðum ýmis konar aðstoð, sem skammt eru á veg komnar í tæknilegum efnum. Er þá leitað til þeirra þjóða, sem lengra eru komnar, og reynt að ráða þar menn, sem geta kenna öðrum nýtízku aðferðir á ýmsum svið- um atvinnulífsins. Þannig hafa til dæmis tveir íslenzkir skip- stjórar, báðir úr Hafnarfirði, Guðmundur Illugason og Jón Sæmundsson, báðir verið ráðnir til Indlands á vegum FAO til að kenna fiskimönnum þar nýjar aðferðir á sínu sviði. — Fiski- veiðiaðferðir Indverja eru hins vegar óralangt á eftir tímanum, en nægur fiskur í sjónum við strendur landsins til að marg- falda aflann. Hefir Guðmundur Illugason verið meira en ár á Indlandi, en Jón Sæmundsson fór utan seint á síðasta ári. Laust eftir áramótin fór þriðji skipstjórinn utan til þess að kenna útlendum fiskimönnum þær aðferðir, sem gefizt hafa bezt hér við land, og er það Jón Einarsson. Hefir hann lengi ver- íið skipstjóri á Fanneyju, skipi Fiskimálanefndar og Síldarverk smiðju ríkisins. Hefir hann verið ráðinn til að dveljast í Tyrk- landi, og mun þar kenna mönn- um síldveiðar með nýjustu að- ferðum. —Alþbl., 5. jan. —VÍSIR, 12. jan. Fullkomnasta . . . Úrvals aðbúð farþega Lægsta flugfargjald til íslands Fljúgið skemstu hringferBina til Reykjavíkur viÖ því lægsta flugfargjaldl, sem fáanlegt er. Hinar óviðjafnanlegu fjögra hreyfla Douglas Skymaster vélar, er skandinaviskir flugmenn, sem notið hafa U. S. æfingar stjórna, veita hina fullkomnustu flugferöatækni, þæglndi og ávalt lent á áætlunartima. Þér njótið ágætis máltíBa, hallandi sæta og fyrsta flokks afgréiðslu ferðina á enda. Roin sanilKÍnd við nlla Kvrópu og Sflð-Austurlönd. Frekari uppl.vsingar og verð fargjalda hjá ferðaskri i'stofu yðar n /7| n ICELAMDICl AIRLINES ulAal±j 15 Weit 47th St., N. Y. 36. PL 7-8585 Kona í Súðavík fékk sjón á öðru auganu undir messu á 2. jóladag

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.