Lögberg - 10.02.1955, Qupperneq 2
2
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 10. FEBRÚAR 1955
Áramótaræða forseta íslands
Herra forseli Ásgeir Ásgeirsson
Flutt að Bessaslöðum
1. janúar, 1955
Góðir íslendingar.
Við hjónin óskum yður öllum,
hverjum fyrir sig og þjóðinni í
heild gleðilegs nýárs og þökkum
gamla árið. Okkur hefir verið
það til mikillar ánægju að marg-
ir hafa heimsótt okkur hér á
Bessastöðum á hinu liðna ári af
öllum stéttum þjáðfélagsins.
Þá vil ég sérstaklega þakka
öllum þeim, sem komu, sendu
mér skeyti, kvæði og gjafir á
sextugsafmæli mínu síðastliðið
vor. Það var meiri mannfjöldi en
ég gat búizt við eða get náð til.
Oss er öllum svo farið, að fátt
gleður meira en góður hugur og
góðar óskir. Velvild og samúð
styrkir og hressir. Maður er
manns gaman. Hafið þér öll inni-
lega þökk.
Á síðast liðnu ári höfum við
einnig haft tækifæri til að ferð-
ast meir og víðar en áður, og vil
ég þá fyrst minnast á Norður-
landaförina. Hinn fyrsti forseti
fslands, Sveinn Björnsson, taldi
það skyldu að opinber heimsókn
væri gerð af hálfu hins nýstofn-
aða íslenzka lýðveldis til Norður
landa, þótt honum, sakir van-
heilsu, auðnaðist ekki að koma
því í framkvæmd. Ég var sömu
skoðunar, og hafi nokkuð vantað
á um fulla sannfæring um nauð-
syn þessarar farar, þá var það
horfið í ferðalok. Almenningi er
kunnugt um þessa för, og veit að
slíkar ferðir eru alþjóða venja,
og engum er nauðsynlegra en
nýstofnuðu ríki, að bregða ekki
þar af. Vér íslendingar höfum
skilið við Dani samkvæmt samn
ingi og fellt niður hið sameigin-
lega konungdæpii. Ég tel því vel
farið að það bjargaðist fyrir tíu
ára afmæli lýðveldisins, að þjóð-
irnar tókust í hendur, bróður-
lega og af heilum hug. Sama er
að segja um viðtökurnar í Sví-
þjóð og Finnlandi; vér fslending-
ar getum fagnað þeim með stolti
ungs manns, sem er nýorðinn
myndugur. Aldrei hefir meira
verið ritað í blöð um hið nýja
ísland og hið forna, atvinnulíf,
bókmenntir og þjóðmenning,
flest af nákvæmri þekking og
allt af mikilli velvild. Þjóðirnar
tóku þátt í þessum fagnaðar-
fundi og börnin teiknuðu ís-
lenzka fána í skólunum og veif-
uðu þeim, glöð og brosandi. Það
féll í hlut okkar hjónanna, að
vera fulltrúar íslands. En vissu-
lega giltu móttökurnar ekki
okkur persónulega. Þær voru
ávarp og kveðja til hinnar ís-
lenzku þjóðar og árnaðaróskir
til hins unga lýðveldis. Þjóð-
irnar eru einstaklingar hver
gagnvart annarri, og grasið má
ekki gróa í götunni. Ungt og fá-
mennt lýðveldi á að gera sér far
um, að knýta fastar vináttu-
böndin í allar áttir.
Þetta var skylduför, eins og
ég sagði, en þar fyrir sannarlega
ekki óljúf. Skylda og áhugi falla
oft saman, og því oftar því betur.
En ef ég á um að velja, þá ferð-
ast ég nú orðið heldur innan
lands en utan. Það ber margt til,
sem oflangt yrði upp að telja.
Meðal annars á ég enn ófarið
um nokkur héruð, þó víðast hafi
ég komið einhvern tíma. Það er
og ákvörðun okkar, að heim-
sækja öll lögsagnarumdæmi á
þessu kjörtímabili, sem er yfir
að ráða, þó viðkomustaðir verði
færri en skyldi. í sumar sem
leið gafst okkur tími til að fara
um mestallan Norðlendinga- og
Austfirðingafjórðung. Þ e s s a r
ferðir voru okkur til óbland-
innar ánægju. Og það er furða
hve mikið vinnst með stuttri
viðdvöl og skjótri yfirferð, þeg-
ar hægt er að byggja á gömlum
kynnum, víða hvar. Náttúran,
byggðin, fólkið, atvinnulífið og
afkoman blasir alstaðar við og
heildarsvipurinn verður furðu
skýr í endurminningunni. Ég
nota þetta tækifæri til að flytja
þessum héruðum og íbúum
þeirra innilegar þakkir fyrir
ógleymanlega daga.
Náttúra vors lands er býsna
sérstæð, barnið og unglingurinn
lítur á hana sem sjálfsagðan
hlut eins og móður og föður, mat
og drykk. En hún síjast inn í
sálina, og hugurinn kemur til
að bera „síns heimalands mót“.
En sá sem fer um önnur héruð
og lönd eða eldist, honum opn-
ast sýn þegar hann kemur aftur
á fornar slóðir. Ég hefi komið í
þau lönd, þar sem mér finnst
allt áþekkt, þó farið sé um lang-
ar leiðir. Og hvaða erindi er það
þá, að flytja sig úr stað? Máske
hraðinn og hreyfingin, sem allt
af er nokkuð — og svo auðvitað
að hitta nýtt fólk. En hér á Is-
landi skiptir um svip á skammri
leið og formin og litirnir taka
á sig allar myndir og blæbrigði.
Loftið er svo tært og svalt —
einkum eftir stórrigningu. Og
alltaf er gott að anda því að sér.
Loftið er ein sú guðsgáfa, sem
allir eiga jafnt og ekkert kostar,
og því stundum lítils metið. En
það hefi ég fundið við að koma
frá heitu landi og röku um þrjú
þúsund mílna veg á sautján
tímum, að slagveðursrigning á
íslenzkum flugvelli, var hrein-
asti lífgjafi og guðsblessun.
Þetta lofslag er heilnæmt fyrir
alla menningu, hugsaði ég. Og
þó veit maður það ekki fyrr en
maður hefir reynt annað. Og svo
er þetta loft svo blátært fyrir
augað, og sólin og skýin, ljósið
og skuggarnir gefa hinu stór-
brotna landslagi ótrúlega til-
breyting. Skáldin og málararnir
hafa fangað sumt, og verk þeirra
veita oss mikla nautn í skamm-
degi innan fjögra veggja. Þeir
auka oss skilning en gera þó ekki
betur en skaparinn. Vér eigum
ekki að bera listaverk saman við
ljósmyndina, sem missir margs,
heldur við náttúruna, og þá
verður flestra hlutur smár..
Margra heiður vex að vísu af
því, en sumra verður skömm að
meiri. Ég segi ekki meir um
náttúrú Islands að þessu sinni
og vísa til skálda og listamanna,
en gott þótti mér í sumar að sjá
aftur Herðubreið frá Möðrudal,
inn við öræfi og suður á Vatna-
jökul, og Hallormsstaðaskóg inn
á Snæfell yfir blómlega sveit.
Þessa naut ég með rentu frá
jjinglingsárunum. Ég er þakk-
látur fyrir það, að ég komst þá
langt og víða um landið í at-
vinnuleit, en í þá daga var það
bara velstætt fólk hér í Reykja-
vík, sem á sumrum fór austur
fyrir heiðar og þótti gott fyrir al-
menning, að fá einn útreiðartúr
upp í Mosfellssveit eða gangandi
í berjamó upp í öskjuhlíð. En
guði sé lof, hve margt hefir
breytzt. Fyrir flestum var þá
Hallormsstaðaskógur, Ásbyrgi,
Gullfoss og Geysir bara til í
kvæðum, að ég nú ekki nefni
hinar breiðu byggðir og afdali,
en nú þjóta bílar eftir öllum
vegum, sem teygja sig svo víða,
að það er næsta ótrúlegt hvað
þingmenn og þeirra starf er
stundum vanmetið. Aldrei hafa
fleiri íslendingar séð meira af
landi sínu en nú. Bændur og
bóndakonur fara á milli héraða,
að ég nefni ekki sumarferðir
kaupstaðafólksins. Þetta er gott
og hlýtur að tengja okkur fast-
ar saman. Ég er bara hræddur
um að bíllinn fari of hratt yfir.
Bíllinn er farartækið, og útsýnið
gott, en svo tilbreytilegt, að at-
hyglin og umhugsunin þolir
ekki heilan dag á hendingsferð.
Það má sakna hestsins, gæðing-
anna og gamalla daga, og margt
er rétt um það. En ég fyrir mitt
leyti sé ekki eftir gömlu Bleik
og hnakkpútunni. Það var ekki
heldur í þá daga öllum veitt það
bezta. En nú held ég að það
þurfi frekar að hægja á sér, nota
ekki öll hestöflin, heldur meir
áfangana. Náttúra íslands og
allar hennar minningar heimta
að vér setjumst niður á hverj-
um sólskinsblett. En sólskins-
blettirnir er öll náttúrufegurð-
in, býlin, fólkið og fortíðin,
sem rifjast upp.
En landið er ekki tómir gamlir
sögustaðir. Sagan gerist enn í
sveitum, þorpum og kaupstöð-
Um. Vér'sem nú lifum erum
ættjörðin. Gætum þess í öllum
okkar deilum, að ættjörðin
setur þeim takmörk. Forfeður
vorir, hinir elztu, kunnu grein á
drengilegri baráttu og berserks-
gangi, og þær hinar fornu reglur
myndu hrökkva oss langt í öllu
voru orðaskaki, ef vér héldum
þær í heiðri. Á bak við var ein-
hver óljós tilfinning um það, að
takmörk eru fyrir því, hve langt
má ganga án þess að þjóðfélag-
inir sé stefnt í hættu. Og þó ekki
einungis þjóðfélaginu, heldur og
einstaklingum og heimilum,
sem eru undirstaða frjáls þjóð-
félags. 1 þessu éfni höfum vér
Islendingar langa og merka
erfðasögu bæði að varðveita og
koma til meiri þroska.
Það er margt, sem vér þurfum
að varðveita, máske ekki sízt
vegna þess, hve miklar breyt-
ingar eru á orðnar. Margt er nú
breytt við sjávarsíðuna, og einn-
ig í sveitum. Ég gat þess, að ég
sá Herðubreið aftur í sumar. Þá
miklu fjallkonu vantar sitt
skáld. Hún er á við fossana og
öll firnindi, sem skáldin hafa
kveðið um. Þegar ég var í
Möðrudal, kaupamaður, við gott
atlæti og tólf krónur um vikuna,
auk víðáttunnar, stóðsins og
fjallasýnarinnar á hverjum
björtum degi, þá var þar ein
útlend rakstrarvél, sem við
beittum hesti fyrir, hið mesta
þing. Ekki man ég að ég hafi séð
aðra landbúnaðarvél, nema tað-
kvarnir, fyrr eða um langt skeið
síðan. Þá var vegalaust og
bændur töluðu um vegabætur,
svo hægt væri að flytja kol svo
ekki þyrfti lengur að brenna
taðinu, heldur væri hægt að
nota það til áburðar og nýrækt-
ar. Nú eru vegirnir komnir og
margs konar nýjar vélar til
margra hluta, húsagerð og aðrar
framkvæmdir eru bylting. Frið-
samleg sístarfandi bylting og
landnám. Ég hefi þar til saman-
burðar fjörutíu og fimm ár.
Austfirðir til dæmis fengu seint
góðar samgöngur, og víða vant-
ar rafmagn, en þetta er hvort-
tveggja höfuðstoðir framtíðar-
innar. Sveitir Islands eiga mikla
framtíð. Moldin er góð og menn-
irnir. En sárt svíður það hvað
bóndinn og konan eru viðbund-
in, og geta ekki tekið sér frí-
stund frá mjöltum og gegning-
um. Það er haftið á okkar sveita-
fólki, hvað sem við má gera.
Ekki get ég séð, að veruleg
barátta sé milli sjávar og sveita,
nema um fólkshald. Bæir eru
markaður fyrir afurðir sveit-
anna og framleiðendur iðnaðar-
varnings og útflytjendur sjávar-
afurða, báðum að gagni. En þó
að landbúnaðurinn, sjávarút-
vegurinn og iðnaðurinn sé allt
eðlileg verkaskipting frá gamla
tímanum, sem hét og var sveit
meðan engir kaupstaðir voru til,
þá er að minnsta kosti eina skuld
að gjalda fyrir alþjóð til allra
sem nú búa í sveitum. Þá skuld
þekki ég vel, það eru fóstur-
launin. Síðan um aldamót hefir
öll fólksfjölgunin lent í kaup-
túnum og kaupstöðum, og þó
heldur fækkað í sveitum. Fram-
leiðslan þar hefir þó aukist stór-
lega, og margir eru þeir enn,
sem í sveitunum slíta sínum
barnaskóm. Og fleiri þó, sem
eiga sveitunum að þakka gott
uppeldi. Ég fór í haust til að
sækja tvo drengi af fjalli — ég
má kalla það svo, því að kindur
eru reknar á fjall og kaupstaða-
strákar sendir í sveit. Annar pilt-
urinn sagði við mig: „Hvaða vit
er í þessu, að ég eigi að fara í
skóla í Reykjavík, en gæti gert
gagn hér í sveitinni? Ég hafði
ekki búist við þessu, en þótti
vænt um. Og það rifjaði upp fyr-
ir mér eitt vort vandamál.
Vor þjóð er á millistigi. Göm-
ul þjóð með nýjum kauptúnum
og stórbæjum. Ungt og fullorðið
fólk flytur í bæi. En börnin, sem
komast aftur í sveit, fá þar sinn
bezta leik — og starfsvöll. Þar er
heimilið heild, ekki bara til að
borða og sofa, heldur um allt dag
legt starf. Sú hin mikla verka-
skipting nútímans er góð fyrir
fullorðna og afkomu fjöldans. En
hún er ekki eins góð fyrir upp-
eldið. Bæjarlífið getur verið
gott, og þarf að vera það, nú
þegar vex upp kynslóð, sem
hvorki þekkir sveit eða sjó nema
eitthvað sé að gert. Sú kynslóð
er ný í okkar þjóðlífi, og mikils-
vert að hún geti fest rætur með
einhverju móti í gamla tíman-
um.
Ég er ekki hræddur við ungu
kynslóðina. Hún er ekki verri en
unga fólkið var áður, og raunar
hávaxnari og háleitari en sú
eldri var. Hin unga kynslóð gerir
alltaf nokkura uppreisn gagn-
vart þeirri gömlu. Því segja öld-
ungarnir, að heimur versnandi
fari og samt miðar áfram, og þó
bezt ef vér getum varðveitt nokk
uð af gömlum uppeldisvenjum.
Sveitin og stjórinn veitir það
bezta uppeldi við hliðina á skóla-
göngunni. Engin stofnun er ein-
hlít. Ekkert getur komið í stað-
inn fyrir heimilið, og þá helzt
það heimili, sem veitir þroskandi
starf við hliðina á leik. Leikur
barnanna er eftirlíking á störf-
um hinna fullorðnu, og þarf að
breytast yfir í raunhæft starf
svo lítið beri á, þar til unglings-
árin taka við og ábyrgðin. Því
stærri sem bæirnir eru, því meir
eru þeir hjálparþurfi um uppeld
ið. Það er líkast því, að uppvax-
andi kynslóð þurfi að lifa alla
þroskasögu mannkynsins áður
en vélaöld fullorðinsáranna tek-
ur við. Hér er mikið samstarf
nauðsynlegt milli bæja og sveita,
og skylt að gjalda sveitunum
fyllstu þökk fyrir uppeldi og
gestrisni. Það má vera að sveita-
fólki hafi stundum hin síðari ár
fundist að gildi sveitanna fyrir
þjóðarbúið og þjóðmenning,
væri vanmetið. En slíkt þarf
ekki að óttast, þegar til lengdar
lætur, og stundarvélgengni villir
ekki lengur sýn. Landbúnaður-
inn stendur föstum fótum í á-
liti, sögu og framtíð þjóðarinnar.
En vér lifum á vélaöld með
öllum þeim afleiðingum, sem því
fylgir að hverfa frá frumbýlings
hættinum. Og í flestum greinum
getum vér fagnað þessari starfs-
byltingu. Handaflið við orfið og
árina, skófluna og hjólbörurnar
hrukku skammt til að vinna Is-
lands náttúruauð. En með mót-
ornum og rafmagninu breyttist
öll aðstaðan á ótrúlega skammri
stund. Þá kemur í ljós, að Island
er, með ströndum fram og langt
á haf út, vísast jafngott hverju
öðru landi þegar rétt og vel er á
haldið. Moldin er mjúk og frjó-
söm, þegar hún er komin í rækt,
og grasið jafngott þeim ræktun-
arjurtum, sem meir láta yfir sér.
Það er ekki ofmælt í upphafi, að
það drýpur smjör af hverju strái.
Stórtækar vélar grafa nú skurði
og slétta þúfurnar, og það stefn-
ir ört að því marki, að ræktun
komi í stað beitar. Slátturinn,
sem var áður aðalsumarstarf
allra karlmanna er orðinn ígripa
verk, og réttar aðferðir eru
fundnar til að létta stórlega hey-
verkunina og tryggja heyfeng-
inn í óþurrkatið. Afurðirnar
hafa annað matarþörf lands-
manna og það stefnir óðum að
auknum útflutningi.
Sömu sögu er að segja til sjá-
varins. Landhelgin er stærri og
nýtízku bátar og togarar ná víð-
ar til fiskjar en áður var kleift.
Ruslfiskurinn, steinbíturinn og
trosið er orðið jafn verðmætt og
málfiskurinn og karfinn hefir
bæzt í hóp nytjafiska. Skreiðin
skipar aftur sitt forna virðingar-
sæti og frystingin vinnur mark-
aði, sem áður voru ekki til allt
frá Moskva til San Francisco.
Vísast eru hvergi framleiddar
fleiri máltíðir á dagsverkið, og
merkaðurinn þenst líka út við
vaxandi frystitækni í öllum lönd
um, því nýmetið fellur öllum vel
í smekk.
Ég má ekki ljúka svo við véla-
öldina, að ég nefni ekki rafmagn
ið, ljós, orku og yl hinna blá-
hvítu fossa. Það eru okkar hvítu
kol, og vafalaust hollara heimil-
um, iðnaði og þjóðmenning en
hin svörtu voru sínum þjóðum.
Rafmagnið hefir fært nýtt líf í
útkulnaðan iðnað, lýsir skamm-
degið og rekur kuldann á dyr.
Það er vissulega ekki að ástæðu-
lausu, að rafmagnsmálin eru nú
einhver hin stærstu í öllum hér-
uðum landsins, og engin byggð
getur hugsað til þess, að vera af-
skipt til langframa. Þó er saga
Hvernig furðulegt dráttarafl Fergusons
getur sparað yður fé
Vissulega getið þér búist við miklu dráttarafli
af þungri og stórri dráttarvél, en hvernig getur
2500 punda Ferguson haft það.
Ferguson dráttarvél þarnast ekki ofurþyngd-
ar „í sjálfri sér“ til þess að draga þung æki.
Þyngd tækisins og afl moldarinnar er verkar á
tækið færist yfir til vélarinnar — eykur þyngd-
ina á afturhjólunum og veitir aukið dráttarafl.
Alt þetta veldur sparnaði. Þér greiðið ekkert
fyrir óþarfa orku eða ástæðulausa þyngd; við-
hald og eldsneyti teljast til lámarks. Áður en
yður grunar hefir inneignin í bankanum stór-
aukist. Þér þurfið ekki að fara eftir vorum
eigin orðum. Sannfærist af reynslunni við
notkun Ferguson dráttarvélar á býli yðar, og
þér finnið til undrunar yfir því, að hafa ekki
ávalt átt Ferguson dráttarvél.
7-feta Ferguson ræktar 15 til 20 ekrur á dag.
Undirber sáÖlendiS, heldur þvl röku og varnar
illgresisgrðöri, á ðdýran hátt. Fjaöratindarnir
á Ferguson-tækinu spara tlma viö aö yrkja
grýtta og rótbundna mold.
Ferguson stillir sjálfkrafa dráttarafliö, þannig
aÖ þegar Ferguson Skífu Herfið fer um ðslétta
jörö hægir vélin á sér og aukaþyngd leggst á
afturhjðlin, er eykur dráttarafliö. Einföld,
einnar mlntltu þriggja hreyfinga-aöferö.
Massey-Harris-Ferguson
Toronto, Canada
LIMITED