Lögberg - 10.02.1955, Síða 8
8
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 10. FEBRÚAR 1955
Úr borg og bygð
Frá Árborg, 6. febrúrar 1955
Kæri vinur, Einar:
Ég sendi þér hér með leiðrétt-
ingar á greininni „Heyrt og séð
í Norður-Nýja-íslandi, sem Snæ-
björn Johnson óskar eftir:
1. Guðmundur Finnsson var
fyrsti maðurinn, sem settist að á
næsta landi fyrir norðan Hólma,
og Gestur Sigurðsson kom í ísa-
foldarbyggðina um svipað leyti
og Guðmundur Finnsson og
nefndi bæinn sinn Borgarnes.
(Snæbjörn segir, að þessu atriði
hafi verið sleppt).
2. Pósthúsið var einnig bónda-
bær.
3. Frostið var sennilega milli
40—50 stig, — ekki 50—60.
Robert Jack
☆
Gefin saman í hjónaband í
Selkirk, Man., þann 29. jan.,
Marvin Johnson, Hnausa, Man.,
og Joan Emma Johnson, Árborg,
Man. Við giftinguna aðstoðuðu:
Mr. og Mrs. Sigurður Vidal. —
Ungu hjónin setjast að á Hnaus-
um, Man. Giftingin fór fram á
heimili íslenzka sóknarprestsins
í Selkirk.
☆
Síðastliðinn laugardag lézt að
heimili sonar síns, H. Tómasson-
ar í Langruth, Sigurður Tómas-
son 88 ára að aldri, en til þeirrar
bygðar kpm hann árið 1910.
Kona hans, Katrín, lézt 1950.
Hann lætur eftir sig fjögur börn,
eina dóttur, Mrs. Caroline Wise,
og þrjá sonu, Hjört, Oscar og
Guðmund og sjö barnabörn. Út-
förin var gerð frá lútersku kirkj-
unni í Langruth á þriðjudaginn.
Séra Jóhann Frederickson jarð-
söng.
☆
Látin er nýlega að Oak Point,
Man., Árni Anderson 73 ára að
aldri, góður drengur og vinsæll,
er eigi vildi vita vamm sitt í
neinu; hann var ættaður frá
Bægisá í Eyjafjarðarsýslu. —
Séra Philip M. Pétursson jarð-
söng.
☆
Aðfaranótt síðastliðins mið-
vikudags lézt á elliheimilinu
Betel á Gimli merkiskonan
Hansína Olson, 91 árs að aldri;
útför enn eigi ráðstafað.
lcelandic Canadian Club
ANNUAL CONCERT
The Annual Concert of the
Icelandic Canadian Club will be
held, in The First Lutheran
Church, Tuesday, February 22,
commencing 8.15 p.m.
Guest speaker will be Judge
Asmundur Benson, District
Court judge, at Rugby, North
Dakota. He made a great im-
pression as a very outstanding
speaker, at the Icelandic
National League 25th annivers-
ary banquet in 1944.
Music will be provided by
Robert Publow, baritone soloist,
and Edward Lincoln, pianist.
Robert Publow is soloist at
Knox United Church, and
Edward Lincoln has performed
at various times on CBC pro-
grams.
February 22 is a date to circle
on the calendar. W. K.
Við getum margt lært af
landbúnadi Vesturheims
Tíðindamaður frá Vísi hefur
fundið að máli Árna G. Eylands
stjórnarráðsfulltrúa, sem er ný-
lega heim kominn ásamt frú
sinni, úr ferðalagi um Bandarík-
in og Kanada, og spurt hann um
sitt af hverju varðandi ferðalag-
ið.
Fyrirspurn um tildrög að ferð
inni svaraði A. G. E. á þessa leið:
„Við hjónin lögðum upp í
þetta ferðalag um mánaðamótin
september-október. Fór ég í boði
Bandaríkjastjórnar, en ennfrem-
ur hafði sambandsstjórnin í Ot-
tawa, Kanada, en henni var
kunnugt um ferðalag mitt, óskað
eftir því að ég kæmi þangað. Var
þar nánar tiltekið ráðuneyti það,
sem fer með málefni norður-
slóða (Ministry of northern af-
fairs o. s. frv.), sem óskaði eftir
að ég kæmi til að ræða um land-
j búnaðar og ræktunarskilyrði þar
Fyrstu vikuna dvöld-
t nyrðra.
Mrs. Gislina Olson 749 Minto!umst yið { Washington) þar sem
Street lézt í gær, 86 ára að aldri;
hún var í hópi hinna fyrstu ís-
lenzku landnema hér um slóðir
og kom til Winnipeg 1875. Út-
förin fer fram frá Bardals á
föstudaginn.
Að Lundar
Framhald af bls. 5
gefið hey á jörðina, og það er
látið vera svo mikið, að grip-
irnir geti legið á því, og þeir
þurfi ekki að liggja á snjónum
og klakanum. Kýrnar eru látnar
bera í apríl og eru kálfar látnir
sjúga mæður sínar. Mér brá í
brún að sjá meðferðina á heyinu.
Það er í göltum á enginu og er
ekkert breitt yfir þá. Því er svo
ekið heim jafnóðum og það er
notað. Og er oft allt útflennt
heima við. Það er auðséð að ekki
þarf að óttast regn, og að auð-
veldara er að afla heyja hér en
á íslandi.
Þarna sá ég nokkuð af sauðfé,
var það allt svart í framan,
blakkt á lagð og toglaust. Var
mér sagt að þetta fjárkyn væri
heppilegt þarna. Meðal annars af
því að það er fljótt að hlaupa
undan úlfinum. En hann er oft
reglulegur vargur í sauðahjörð
á sléttunni. Þetta voru auðsjáan-
lega hinar myndarlegustu skepn-
ur, en mér fannst þær skorta
fríðleika, tign og blíðu íslenzku
sauðkindanna.
Þá heimsótti ég bændaöldung-
inn Skúla Sigfússon. Hann hefur
nú að baki sér hálfan níunda
tug ára, en er ern og glaður.
Fullkomnasta . . . Úrvals aðbúð farþega
Lægsta flugfargjald til fslands
FljúgiS skemstu hringferSina til Reykjavíkur viS *
því lægsta flugfargjaldi, sem fáanlegt er.
Hinar ðviðjaf nanlegu fjögra hreyfla Douglas
Skymaster vélar, er skandinaviskir flugmenn, sem
notið hafa U. S. æfingar stjórna, veita hina
fullkomnustu flugferSatækni, þægindi og ávalt
lent á áætlunartima. Þér njótiS ágætis málttöa,
hallandi sæta og fyrsta flokks afgreiSslu ferSina
á enda.
Bein sannböml við alla Evrópu og Mið-Austurlönd.
Frekari upplýsingar og verð fargjalda
hjá ferðaskrifstofu yðar
n /71 n
ICELANDICl AIRLINES
luAauzj
15 We»t 47th St., N. Y. 36, Pl 7-8585
Atvinnu- og atvinnuleysis-
styrkurinn er félagsleg
reglugerð
Tilgangur hans er tvenns konar: —
Að útvega atvinnulausum vinnu.
Að greiða götu þeirra fjárhagslega, sem um stundarsakir
eru atvinnulausir.
Á síðastliðnum þrettán árum hefir atvinnuleysistryggingar-
nefndin greitt $754,000,000 atvinnulausu fólki.
Þessi þjónusta stendur yður ókeypis til boða.
UNEMPLOYMENT INSURANCE
COMMISSION
#
C. A. L. MURCHISON J. G. BISSON R. J. TALLION
Commissioner Chief Commissioner Commissioner
Hann situr nú á landnámsjörð
sinni, en hefur fengið sonum sín-
um í hendur búrekstur að
mestu. Hann færði mig í loð-
feld af sér bg við gengum út í
skóg og litum þar á gripina, sem
þar voru í rjóðri, vel skýldu af
þéttum skóginum. Skúli hefur
gerzt mikill skógræktarmaður,
einkum á síðari hluta ævinnar,
og hefur gróðursett fjölda trjá-
tegunda. Og eru mörg tré hans
orðin nokkurra mannhæða há.
Þótti mér mest koma til barr-
trjánna hans, furanna. Sagði
hann að natni þyrfti við gróður-
setningu þeirra. Þar þyrfti að
undirbúa jarðveginn vel og gæta
þess að ekkert illgresi eða auka-
gróður væri í kringum þau fyrst
framan af. Og þau þyrftu að
hafa fengið dálítinn þroska áður
en þau eru gróðursett. Þyrftu
helzt að vera 4—6 ára. Annars
væru þau hálfgerður vonarpen-
ingur. Mér virtist skógræktin
vera mesta stolt hans. Hann var
þingmaður héraðsins um nálega
25 ára bil. Hann er því kunnugur
krókaleiðum stjórnmálanna. Gat
hann þess, að það væri óþarfi
fyrir okkur heima að vera að
kúldrast með lággengi. Við
skyldum hafa það eins og þeir í
Canada fyrir nokkrum árum,
þegar dollari þeirra var 10 cent-
um fyrir neðan þann banda-
ríska, samkvæmt lögskipaðri
skrásetningu. Þá hafi þeir gefið
hann frjálsan. Nú væri svo
komið að Canada-dalurinn væri
3 centum fyrir ofan bandarískan
dal. Það ætti að fylgjast að
auðugt land og hátt gengi gjald-
miðils. Tvö lönd kvaðst hann
þekkja auðugust, Canada og
ísland. Þessi fyrrv. þingmaður
hafði orð á því, að vandalaust
væri að láta atvinnuvegina bera
sig. Galdurinn væri sá, að gjöra
starfsfólk hverrar greinar ábyrgt
í rekstri hennar.
Frá Lundar tók ég mér ferð á
hendur um ýms byggðarlög og
býli í íslenzka landnáminu.
Presturinn ók mér. Við ferðuð-
umst mílu eftir mílu, þar sem
eingöngu blasti við augum ís-
lenzk verk og afrek. Möfg býl-
anna, einkum þau magrari, hafa
íslendingar nú selt. Eru þau nú í
eigu Ukrainíu-manna, aðallega.
Hér endurtekur sig sama sagan
og við lok skútualdarinnar
heima, þegar togaraöldin og vél-
bátaöldin hófu innreið sína. Þá
seldu íslendingar Færeyingum
skúturnar, sem ráku þær með
hagnaði um langan aldur. En
landarnir keyptu vélknúnu
veiðiskipin í staðinn. Að sjálf-
sögðu heimsóttum við höfuðstað
íslenzka landnámsins, Gimli.
Við stöldruðum þar meðal ann-
ars við í elliheimilinu, og flutti
presturinn morgunandakt fyrir
vistmönnum. Á þessu heimili er
ísland í öndvegi. Gamla fólkið
bað að heilsa heim.
Winnipeg, 3. febr. 1955
Jón Kristgeirsson
landbúnaðarráðuneytið og nefnd
skipuð af því, skipulagði ferða-
lagið.
Frá Washington fórum við til
Ottawa og dvöldumst þar í tíu
daga, heimsótti ég landbúnaðar-
háskóla, sem er í grennd við
höfuðborgina, og aðaltilrauna-
stöð á sviði landbúnaðar í Kan-
ada, sem einnig er skammt þar
frá. Ennfremur fórum við í ferð
upp með Ottawa-ánni, til Peta-
wawa, en á þeim slóðum ræður
Kanada yfir miklum skóglend-
um og lætur framkvæma þar
viðtækar tilraunir með skógrækt
og eru þar margvíslegar athug-
anir gerðar á þessu mikla skóga-
svæði.
Kynbætur á trjám
Þar eru m. a. framkvæmdar
tilraunir með kynbætur á trjám
og get ég skotið því inn í til
gamans að yfirumsjón með þeim
hefir danskur maður Holst að
nafni, sem sambandsstjórnin
fékk frá Danmörku til þess að
taka að sér þetta starf, og hefur
hann haft það með höndum í
nokkur ár.
•
íslenzkt birki í Kanada
Þá vil ég einnig drepa á, að
þarna hafa verið gerðar tilraunir
með íslenzkt birki, en erfiðlega
mun ganga að koma upp bein-
vöxnum trjám af hinum ís-
lenzka stofni. Því miður sá ég
ekki íslenzku birkitrén þarna,
en svo atvikaðist, að við ætluð-
um á þær slóðir, fór hvirfilvind-
ur yfir, og féll fjöldi trjáa, m.a.
yfir veginn, sem við ætluðum að
fara, og urðum við að snúa við.“
Til Minneapolis
Hvert var svo haldið?“
„Frá Ontario-fylki héldum við
til Minneapolis í Bandaríkjun-
um, en þar dvaldist ég við land-
búnaðarháskólann í hálfan mán-
uð, aðallega í forsjá Skúla Rut-
ford, sem er aðalforstöðumaður
allrar tilraunastarfsemi á sviði
landbúnaðar í Minnesota-fylki.
— Frá Minneapolis fórum við til
Fargo, Grand Forks og Moun-
tain í Norður Dakota, og höfð-
um fárra daga viðdvöl á hverj-
um stað, og fórum svo þaðan
norður yfir landamærin til Mani
toba.
A vegum Þjóðræknisfélagsins
í Manitoba vorum við hálfan
mánuð og komum m. a. til Ár-
borgar, Gimli og Lundar. Má
skjóta því hér inn í, að þjóð-
ræknisfélags Islendinga í Vestur
heimi vissi um ferðalagið, og
óskaði þess eindregið, að við
kæmum, og var efnt til mann-
funda víða á vegum félagsins, af
þessu tilefni."
Landkynning
„Þetta ferðalag hefur ef til
vill að öðrum þræði verið land-
kynningarferðalag.“
„Það má vel segja, því að alls
flutti ég erindi og sýndi kvik-
myndir á 23 stöðum í Bandaríkj-
unum og Kanada, sumstaðar á
vegum þjóðræknisfélagsins, en
annarsstaðar án þess. Kvikmynd
irnar, sem ég sýndi voru: „Gim-
steinn norðursins (Jewel of the
North), sem Ferðafélag Islands á,
mynd af Heklugosinu 1947 og
ferðamyndir frá Þórsmörk og úr
öræfum.
Ég vil geta þess, að Heklu-
kvikmyndin vakti alveg sérstaka
athygli, þar sem hún var sýnd í
skólum og menntastofnunum.
Frá Winnipeg fórum við aftur
suður fyrir landamærin til Bis-
marck í Norður Dakóta.
í Oregon — íslendingar þar
Heimsóttir þú fleiri landbún-
aðarstofnanir en þú þegar hefur
minnst á?“
„Já. Frá Bismarck fórum við
eftir stutta viðdvöl til Corwallis
í Oregonfylki, en í Corwallis er
landbúnaðarháskóli fylkisins.
Þarna vorum við tvær vikur og
var ég ýmist í landbúnaðarhá-
skólanum eða tilraunabúi í As-
toria þar í fylkinu, eða á ferða-
lögum.“
„Hittir þú íslendinga þar?“
„Fremur fátt mun um Islend-
inga í Oregon, ef miðað er við
þau fylki, þar sem þeir eru fjöl-
mennastir. Nokkra menn hitti
ég af íslenzkum ættum. Þeirra
meðal er Barði Skúlason ræðis-
maður í Portland, en hann er nú
84 ára. Þar eru nokkrir íslend-
ingar. í Corwallis kynntist ég
manni af íslenzkum ættum, gagn
merkum manni, Sigurði Péturs-
syni, ættuðum frá Hákonarstöð-
um á Jökuldal. Hann hefur í 42
ár verið kennari í ensku við land
búnaðarháskólann. Um þriðja
íslendinginn frétti ég, Straum-
fjörð lækni, kunnan mann, en
því miður kynntist ég honum
ekki, því að meðan ég dvaldist í
Corwallis var hann á skemmti-
ferðalagi í Florida, en hann brá
sér suður þangað í einkaflubvél
sinni.“
Búskapur í Oregon
„Hvað fannst þér nú athyglis-
verðast á sviði búskapar þarna í
fylkjunum vestur við Kyrrahaf?
,í fylkjunum Oregon og Wash-
ington skiptir alveg í tvö horn
með veðurfar. Á ströndinni er
víða mjög mikil úrkoma, en
handan strandfjallgarðsins inni
í landinu afar þurrksamt. 1
strandhéruðum er því aðallega
um grasrækt að ræða, en hveiti-
rækt og hjarðbúskap handan
fjallanna inni í landinu.
Úrkoma eins og í Mýrdalnum
Á tilraunabúinu í Astoria, þar
sem ég dvaldist nokkra daga, er
úrkoman svipuð og í Mýrdaln-
um, en þó er veðurfari þannig
háttað, að bændur verða að veita
vatni á túnin til þess að fá góðu
sprettu. Stafar það af því, að
þurrkarnir eru á aðalsprettu-
tímanum og vatnsuppgufun mik
il í hitunum á þeim tíma árs. Er
ég spurði um ræktunarskilyrði
var svarið jafnan: Hér er ekkert
hægt að rækta nema gras. Þetta
IVl ESSUBOÐ
Sr. V. J. Eylands, Dr. TheoL
Heimili 686 Banning Street.
Sími 30 744.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
Á ensku kl. 11 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
☆
Lúterska kirkjan í Selkirk
Sunnud. 13. febr.:
Ensk messa kl. 11 árd.
Sunnudagaskóli kl. 12
íslenzk messa kl. 7 síðd.
Fólk boðið velkomið.
S. Ólafsson
☆
Messur í Norður-Nýja-íslandi
Sunnud. 13. febrúar:
Víðir, kl. 2,
(ef veður leyfir)
Riverton, kl. 8.
Báðar á ensku.
Robert Jack
má þó vitanlega ekki taka bók-
staflega ,en slík svör bera það
með sér hve geisi þýðingarmikil
grassræktin er á þessum slóðum.
P I O N E E R
Offers
10% FREE CHICKS
With all orders booked foiu
weeks ahead of delivery date
R.O.P. SIRED BRETGOLDS (RIR
xBR). HAMPBARS, LIGHT SUSSEX,
RHODE ISLAND REDS, BARRED
ROCKS, NEW HAMPS.
Unsexed 100’s $20.00 50’s
Pullets 100’s $33.00 50’s
R.O.P. Sired Leg. Pull.100
App. Austra-White Pull..100
Heavy Breed Cockerels 100
$10.75
$17.25
$37.00
$36.00
$12.00
in March
HY-LINES
Bred like Hybrid Corn — for
high egg production, high live-
ability. They lay about a case
more eggs a month per 100 birds
housed than other chickens—as
proved by hundreds of Divided
Flock Tests. Ask for our booklet
“How Hy-line Chicks are Bred."
Brett-Young’s Pioneer Hatchery al-
ways leads the way with stock which
can show you greater profit. Send
for our 1955 Catalogue and Price List.
PIONEER HATCHERY
416 Corydon Ave. Winnipeg
ÞRÍTUGASTA OG SJÖTTA
MIÐSVETRARMÓT
Þjóðræknisdeildarinnar FRÓN
verður haldið í
FYRSTU LÚTERSKU KIRKJU
mánudaginn 21. febrúar 1955
OH, CANADA Ó, GUÐ VORS LANDS
SKEMMTISKRÁ:
ÁVARP FORSETA
EINSÖNGUR
1. Svanasöngur á heiS
2. Sáuð þiö hana systu
Undirspil
Jón Johnson
...............Joy Gíslason
...........S. KALDALÓNS
mína ......PÁLL ÍSÓLFSSON
ELMA GÍSLASON
RÆÐA — Nokkur orð um Island
Marja Björnsson
EINSÖNGUR ............................Lilja Eylands
1. Vögguljóö ..............JÓN FRIÐFINNSSON
2. í snörunni fuglinn fastur sat, PÁLL ISÓLFSSON raddsetti
Undirspil SIGRID BARDAL
EINLEIKUR Á ORGEL Björg ísfeld
UPPLESTUR — Bragarbót — Matthías Jochumsson
—Ragnar Stefánsson
EINSÖNGUR Ingibjörg Bjarnason
1. Sjá dagar koma .... BJÖRGVIN GUÐMUNDSSON
2. Serenada til Reykjavikur ....S. KALDALÓNS
Undirspil SIGRID BARDAL
ERINDI — Á flæðiskeri
Dr. Valdimar J. Eylands
ELDGAMLA ÍSAFOLD — GOD SAVE THE QUEEN
Við hljóðfærið SIGRID BARDAL
Aðgöiigumlðar fást I bókabúð Davíðs Björnssonar og við
dyrnar. — V’eitingar verða til söiu S fundarsal kirkjunnar.
INNGANGCR $1.00 - BYIÍJAR STUNDVÍSLEGA KL. 8 E. H.