Lögberg - 21.04.1955, Síða 8
8
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 21. APRÍL 1955
LEONARD WOOLEY:
í kjölfar Arkarinnar hans Nóa
Úr borg og bygð
— PRESTAFUNDUR —
Lúterska kirkjufélagsins var
haldinn í Selkirk-kirkjunni 14.
þ. m. Áður en fundurinn hófst,
kl. 2, sátu prestar — 7 að tölu —
matarboð heima hjá séra Sigurði
og frú hans. 1 kirkjunni setti
forseti félagsins fundinn með
nokkrum orðum og séra Valdi-
mar J. Eylands las kafla úr ritn-
ingunni og flutti bæn. Næst
flutti séra Bragi Friðriksson er-
indi, er hann nefndi, Koptiska
kirkjan í Ethiópíu. Það var
mjög fróðlegt erindi og sköru-
lega flutt.
Séra Jóhann Fredriksson flutti
nokkrar hugleiðingar, og út af
þeim spunnust allmiklar um-
ræður um A.A-hreyfinguna og
kirkjuna.
Dr. Haraldur Sigmar frá
Blaine kvaðst ekki geta látið
þetta tækifæri líða án þess að
minnast á tillögu, sem fram var
borin á kirkjuþingi í sumar,
að fella skuli nafnið íslenzka úr
nafni kirkjufélagsins. — Hann
lýsti óánægju sinni yfir því og
vonaðist eftir því að allir sannir
íslendingar stæðu saman með
einum huga í því að láta ekki
slíka hneisu koma fyrir.
Forseti félagsins baðst undan
endurkosningu og var séra Bragi
Friðriksson kjörinn forseti. Séra
Robert Jack var endurkjörinn
ritari og gjaldkeri. Fundinum
lauk með því, að hinn nýi for-
seti las kafla úr ritningunni.
Þá var gengið heim á prests-
setrið, þar sem kaffi var drukk-
ið. — Fundarmenn þakka séra
Sigurði og frú hans fyrir fram-
úrskarandi góðar viðtökur og
mikla gestrisni.
ROBERT JACK, ritari
☆
Laugardaginn þann 9. apríl s.l.
voru gefin saman í hjónband
Helga Yvonne, yngsta dóttir
Sigurborgu og Magnúsar heitins
Magnússonar frá Baldur, Man.,
og James Robert, sonur Mr. og
Mrs. A. R. Palmer frá Cypress
River, Man.
Hjónavígslan fór fram á heim-
ili Ólafs Oliver á Baldur, afa
brúðarinnar. Sóknarpresturinn
gifti. Svaramenn voru Ólöf
Magnússon systir brúðarinnar
og Russel Leo. Fjölmenn veizla
var setin á heimili Mrs. S.
Magnússon. — Ungu hjónin fóru
í brúðkaupsferð til Bandaríkj-
anna. Þau setjast að í Holland,
Man.
Mr. Alec Thorarinsson lög-
fræðingur er nýlega kominn
heim ásamt fjölskyldu sinni
eftir að hafa dvalist í Florida
síðan um miðjan janúarmánuð.
☆
Mr. Skúli Sigfússon frá Lund-
ar, fyrrum þingmaður St.
George kjördæmis, dvaldi í
borginni nokkra daga í fyrri
viku í heimsókn til barna sinna.
☆
Þær systurnar Miss Pálína
Johnson og Miss Rósa Johnson
kenslukonur frá Lundar, voru
staddar í borginni um miðja
fyrri viku.
☆
Mr. Arthur Sigfússon frá
Lundar kom til borgarinnar í
vikunni, sem leið, og dvaldi hér
nokkra daga.
☆
Dr. Haraldur Sigmar prestur
íslenzka lúterska safnaðarins í
Blaine, Wash., kom hingað til
borgar um miðja fyrri viku
ásamt frú sinni og lagði af stað
suður til Mountain, N. Dak., þar
sem hann mun gegna prestsem-
bætti um nokkra hríð hjá sínum
fyrri söfnuðum; þau Dr. Harald-
ur og frú hafa alla jafna notið
frábærra vinsælda hvar, sem
leið þeirra hefir legið og fagna
því margir komu þeirra hingað
í nágrennið.
☆
Frá því hefir áður verið skýrt
hér í blaðinu, að séra Robert
Jack sóknarprestur í Árborg,
hafi samið bók eina allmikla,
ARCTIC LIVING, er lýsir sjö
ára starfsemi hans sem þjónandi
prests í Grímsey; bók þessi mun
verða um 250 blaðsíður að stærð
og mun nú að öllu fullbúin til
prentunar; nú er það orðið að
ráði, að Ryerson Press gefi bók-
ina út, en í því felst full trygging
þess, að vandað verði til útgáf-
unnar hið bezta, auk þess sem
þetta kunna forlag gefur ekki
út aðrar bækur en þær, sem vel
eru samdar og eitthvað raun-
verulegt er spunnið í.
☆
Mr. Guttormur J. Guttorms-
son skáld frá Riverton var
staddur í borginni nokkra daga
í fyrri viku; hann hafði kent
nokkurs lasleika seinnipart
vetrar, en var nú hinn hressasti
og lék við hvern sinn fingur svo
sem hann á vanda til; er það
hinum mörgu vinum þessa sér-
stæða skáldjöfurs ósegjanlegt
ánægjuefni hversu vel hann
gekk undan vetrinum.
Arborg Memorial Hospital
Arborg, Manitoba
Box 70, April 14, 1955
Dear Editor:
In the recent list of Donations
to the Arborg Memorial Hospital
“Memorial Fund” which I for-
warded to you, it seems. that 1
line was missed out and the
correction would be as follows:
“From Mrs. Thora Oliver,
Selkirk, Manitoba, in Memory
of Guðmundur Vigfússon, Ár-
borg ....................S 1.00
From Framnes Ladies Aid in
Memory of:
Guðmundur Vigfússon $10.00
Tryggvi Bjornson 5.00.”
I regret that I should have to
bother you with this but the
members of the Ladies Aid
would be pleased and have
requested me to have this
corrected.
Thanking you kindly in antici-
pation.
Yours truly,
Mrs. E. Gíslason, Secretary,
Arborg Memorial
Hospiltal Board
☆
Hin árlega samkoma lestrar-
félagsins á Gimli verður haldin
í Parish Hall á föstudagskvöldið
hinn 22. þ. m., kl. 8.30. Þar flytur
Dr. Richard Beck ræðu, en auk
þess verða til skemtunar söngv-
ar, upplestur og ýmislegt annað;
venju samkvæmt fer einnig
fram happdrætti til arðs fyrir
bókasafnið og verður kaffi og
sætabrauð á takteinum.
Vafalaust sýna Gimlibúar
þjóðrækni sína í verki með því
að fjölmenna á samkomuna.
☆
Nýlátinn er í Riverton Pétur
Jónsson 84 ára að aldri, sem
yfir fjörutíu ár stundaði fisk-
veiðar á Winnipegvatni, hinn
mesti sæmadrmaður; hann var
jarðsunginn af séra Robert Jack.
☆
Þeir séra Robert Jack frá
Árborg og séra Bragi Friðriks-
son frá Lundar voru staddir hér
seinni part fyrri viku.
☆
Mr. P. Robertson frá Moose-
horn, Man., var stödd í borginni
á fimtudaginn í vikunni, sem
leið.
☆
The Icelandic Canadian Club
Sevarel people have expressed
interest in the projected excurs-
ion to the Icelandic Centenary
celebration in Utah, next June.
An offer has been received from
the Grayhound Bus Company to
provide a bus, if 37 passengers
offer themselves, the round fare
to be $55.00, with hotel accom-
modation and meals on route
included.
Miss Anna Cheng, guest artist
at the Icelandic Canadian Club
meeting, April 25, has received
fresh recognition in being
selected to sing before the
Governor-General, His Exel-
lency the Rt. Hon. Vincent
Massey, at the Citizenship Day
ceremonies in Winnipeg, May 21.
W. K.
☆
Hún var ein þeirra eigin-
kvenna, sem nöldra frá morgni
til kvölds, en svo hlustaði hún
eitt sinn á fyrirlestur, sem
nefndist: Broshýrt andlit fær
enginn staðizt.
Hún varð svo hrifin af fyrir-
lestrinum, að hún ákvað að gera
tilraun. Marguninn eftir, þegar
maður hennar kom að morgun-
verðarborðinu og hafði ekki
hugmynd um neitt, mætti hann
konu sinni brosandi út að eyrum
og — þegjandi. Ekki kom eitt
einasta nöldursorð út fyrir
hennar varir yfir því, hve seinn
hann væri.
Hann stóð í dyrunum drykk-
langa stund og botnaði ekki neitt
í neinu. Allt í einu féll honum
allur kefill í eld. — Drottinn
minn dýri, tautaði hann. Hún
er orðin klumsa!
Árið 1929 vann ég að upp-
greftri í Úr í Mesópótamíu. Þar
átti Abraham, ættfaðir ísraels-
manna, fyrst heima. Við vorum
að leita hinna frægu konunga-
grafa, sem geymdu dýrmætar
minjar frá tímabilinu kringum
2800 f. Kr. Þá datt mér í hug,
eins og af rælni, að grafa nokkru
dýpra. Við grófum þrönga holu
niður á milli grafanna, gegnum
hið margvíslega rusl, sem alltaf
finnst á grunni gamalla bú-
staða — sambland af fúnum
leirtíglum, ösku og leirkera-
brotum. Allt í einu komum við
niður úr þessu lagi, og þar tók
við óblandaður, vatnsbarinn leir,
þar sem hvergi vottaði fyrir
leirbrotum eða ösku. Aðstoðar-
maður minn sagði mér, að nú
værum við komnir niður í ó-
snortinn jarðveginn, þarna væri
ekkert fleira að finna, og bezt
væri að reyna á einhverjum
öðrum stað.
Ég fór niður í holuna, leit á
uppgröftinn og féllst á, að hann
hefði rétt fyrir sér, en síðan
tók ég til mælitækja minna og sá
þá, að þessi ósnortni jarðvegur
lá ekki nærri því eins djúpt og
ég hafði búizt við. Það braut í
bága við eina kenningu mína,
sem ég hafði haldið fast við, og
þar sem mér er mjög lítið um
það gefið, að kenningum mínum
sé hnekkt, nema órækar sann-
anir séu fyrir hendi, bað ég
hann að grafa dýpra. Hann
hlýddi því, þótt hann væri ófús
til þess, og nú kom ekkert upp
annað en hreinn leir, sem ekki
bar vott um neinar mannlegar
athafnir. Hann gróf átta fet
niður í viðbót, og þá fóru allt í
einu að koma upp tinnuáhöld og
brot úr lituðum leirkerum. Við
vorum nokkurn veginn vissir
um, að þetta væru leifar af
fyrstu leirkerasmíðinni í Suður-
írak. Ég var ekki í neinum vafa
um, hvernig stæði á þessu átta
feta djúpa leirlagi, en mig lang-
aði til að vita, hvort hinir
mundu álykta eins og ég. Ég
kallaði á tvo af starfsfélögum
mínum, sýndi þeim uppgröftinn
og spurði þá, hvaða ályktanir
þeir drægju af þessu. Þeir gátu
ekki leyst úr því. Þá bar konu
mína þar að. Ég spurði hana hins
sama, og hún sagði, um leið og
hún sneri sér frá holunni: —
Nú, þetta er auðvitað eftir
syndaflóðið.
Það var alveg rétt. En það
var naumast hægt að staðhæfa,
að syndaflóðið hefði í raun og
veru átt sér stað, þótt uppgröft-
ur úr eins fermetra holu benti
til þess. Næsta ár gróf ég gríðar-
stóra holu, 64 feta djúpa. Við
hófum uppgröftinn þar sem
verið hafði yfirborð jarðar á
tímabilinu kringum 2805 f. Kr.
Við komum nærri því strax
niður á húsarústir, sem eldri
voru en það, og er við höfðum
hreinsað þær burtu, fundum við
aðrar húsarústir undir þeim. 1
fyrstu tuttugu fetunum, sem
við grófum niður, fundum við
hvorki meira né minna en átta
húsarústir, sem hverjar voru
ofan á öðrum, þar eð alltaf hafði
verið byggt á gömlu rústunum.
Þá fundum við ekki fleiri húsa
rústir í bili, en grófum niður
gegnum þykkt, samanþjappað
lag af leirkerabrotum. Þar hafði
staðið leirkerasmiðjan svo lengi,
að hægt var að lesa framvindu
sögunnar út úr leirbrotalögun-
um. Neðst 1 lögunum voru gripir
af því tagi, sem fornfræðingar
hafa fundið í Erech, sem var að-
setursborg nokkurra af fyrstu
konungum Súmera. Allra neðst
voru lituð leirker frá dögum
fyrstu innflytjendanna í landið.
Síðan tók við óblandaða, vatns-
barða leirlagið, 11 fet á dýpt.
Þegar leirinn var rannsakaður,
reyndist hann vera framburður
úr ánni Eufrat, svo langt að
kominn, að hundruðum mílna
skipti. Undir leirlaginu, sem
þakti hinn raunverulega ó-
snortna jarðveg, fundum við
rústir af húsunum, sem farið
höfðu á kaf í flóðinu og grafizt
undir leirnum, sem það hafði
skolað með sér.
í rústum hinna fornu borga
íraks, sem fornfræðingar höfðu
grafið upp, höfðu fundizt leir-
töflur, sem á voru skráðar frá-
sagnir Súmera af flóðinu mikla.
Það er sama sagan og sögð er í
fyrstu bók Mósesar, en hún var
skráð fyrir daga Mósesar, og
það sem meira er, fyrir daga
Abrahams. Og flóðsins er ekki
aðeins getið í sögunni af því.
Gætnir söguritarar Súmera
færðu í letur sögu lands síns,
þannig, að þeir töldu upp kon-
ungana. Konungatal þetta hefst
á upptalningu afar voldugra
stjórnenda, og síðan segir á þessa
leið: — Síðan kom flóðið. Og
þegar flóðinu linnti, var konungs
tign aftur send af himni, og þá
er sagt frá konungsætt, sem tók
sér bólfestu í borginni Kish, og
því næst frá konungsætt, sem
gerði Erech að höfuðborg sinni.
Uppgröftur okkar færði sönnur
á frásögur þessar, sem margir
höfðu álitið munnmælasögur
einar. Gífurlegt vatnsflóð, sem
ekki hafði átt sér neina hlið-
stæðu allt til þess tíma, hafði
átt sér stað skömmu fyrir Erech-
tímabilið. Það var flóðið, sem
um er getið í konungatali Sú-
mera, flóðið, sem munnmæla-
sögur Súmera greindu frá, og
það var syndaflóðið, sem sagt er
frá í fyrstu bók Mósesar.
í frásögn Súmera segir (þótt
þess sé ekki getið í Mósebók-
inni), að fyrir flóðið hafi menn
búið í kofum, sem byggðir hafi
verið úr reyr, og undir leirlag-
inu fundum við einmitt rústir af
reyrhúsum. Nói byggði örk sína
úr léttum viði og biki. Ofan á
leirlaginu fundum við stóran
bikklump, sem á voru för eftir
körfuna, sem hann hafði verið
borinn í. Sjálfur hef ég séð
óunnið jarðbik úr gryfjunum
við Hit, nærri miðbiki Eufrat-
árinnar, látið í körfur til flutn-
ings niður með ánni. Ég komst
að þeirri niðurstöðu, að vatns-
flóðið hlyti að hafa verið að
minnsta kosti 25 feta djúpt,
fyrst það hafði skilið eftir 11
feta djúpt leirlag á hæðinni, þar
sem hin forna borg Úr stóð, og í
frásögn Mósebókarinnar segir,
að dýpt flóðsins hafi verið 15
álnir, sem eru um það bil 26 fet.
Menn kunna að segja, að 26 feta
djúpt flóð hafi ekki verið nein
ósköp. En neðri hluti íraks er
svo flatur og láglendur, að hafi
flóðið verið það djúpt í Úr, hefir
það náð yfir 390 mílna langt og
100 mílna breitt svæði.
Syndaflóðið fyllti allan dal-
inn, sem árnar Tígris og Eufrat
renna um. Það færði í kaf allt
byggilega landsvæðið milli eyði-
markanna að austan og vestan.
I augum fólksins, sem bjó þar,
var það allur heimurinn.
Flóðið gereyðilagði flest þorp-
in og eyddi íbúum þeirra. Enda
þótt einhverjar af þeim borgum,
sem á hæðunum stóðu, hafi
sloppið, hafa það verið fáliðaðar
og örvílnaðar leifar þjóðarinnar,
sem að lokum urðu sjónarvottar
að því er vatnsflóðið fjaraði út.
Það er því sízt að furða, þótt
þeir teldu þessar hörmungar
vera refsidóm Guðs yfir synd-
ugri þjóð og lýstu þeim í mikil-
fenglegum trúaróði.
— HEIMILISBLAÐIÐ
Inn til læknisins kom ókunnur
maður og sagði brosandi: —
Góðan daginn, læknir. Ég leit
bara inn til að þakka yður fyrir
allt, sem þér hafið gert fyrir mig.
— En þér eruð ekki einn af
mínum sjúklingum.
— Ég veit það, en frændi minn
var, og ég er einkaerfingi hans.
M ESSUBOÐ
Fyrsta lúterska kirkja
Sr. V. J. Eylands, Dr. TheoL
Heimili 686 Banning Street.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
Á ensku kl. 11 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
☆
— MESSUBOÐ —
Messað verður sunnudaginn
24. apríl á þessum stöðum:
Lundar, kl. 11 f. h. “Family
Service”.
Vogar, kl. 2 e. h. á ensku.
Silver Bay, kl. 4 e. h. á ensku.
Steep Rock, kl.8 e. h. á ensku.
Séra Bragi Friðriksson
☆
Lúierska kirkjan í Selkirk
Sunnud. 24. apríl:
Ensk messa kl. 11 árd.
Sunnudagaskóli kl. 12
íslenzk messa kl. 7 síðd.
Fólk boðið velkomið.
S. Ólafsson
Leiðrétting
Stjórnarnefnd Elliheimilisins
Stafholt, í Blaine, Washington,
finnur ástæðu til að biðja Lög-
berg að birta, við fyrstu hentug-
leika, eftirfarandi leiðréttingu
við frétt, sem stendur efst í
öðrum dálki á 8. síðu Lögbergs
sem út kom 3 marz síðastliðinn.
Þar stendur: „Á nýafstöðnu
þjóðræknisþingi tilkynnti for-
seti á fundi að Elliheimilið Staf-
holt í Blaine óskaði eftir konu
eða stúlku, sem gæti tekið að
sér ráðskonustörf á heimilinu".
í þessu sambandi vill nefndin
taka það fram, að hún hafi ekki
beðið forseta Þjóðræknisfélags-
ins fyrir neina slíka „tilkynn-
ingu“ og að henni er alls ókunn-
ugt um, hver kunni að hafa
gjört það.
Ummælin um núverandi ráðs-
konu Stafholts, Mrs. Dómhildi
Arnaldsdóttur, Krichevsky, —
sem ekki verður séð á greininni
hvort eru hluti af tilkynning-
unni, eða koma frá fregnritar-
anum, — telur nefndin mjög
óviðeigandi og jafnvel meið-
andi. Er hér sérstaklega átt við
þessi orð: „en hún (ráðskonan)
hafði dvalið þar (á Elliheimilinu)
aðeins skamma stund, er- hún
giftist rússneskum manni, sem
hún hafði kynnst á leiðinni
vestur“. Maðurinn, sem hér um
ræðir, er ekki rússneskur held-
ur Bandaríkjamaður, þó að lang-
afi hans hafi komið frá Rúss-
landi. Hafði hann stundað at-
vinnu á íslandi og kynnst þar
Dómhildi. Hér er því að ræða
um ranghermi og slúður um
einkamál ágætrar íslenzkrar
konu, sem enn er ráðskona á
Stafholti við ágætan orðstír og
hefir hún áunnið sér virðingu og
vinsæld þeirra, sem hafa kynnzt
henni. Annars fimsst nefndinni
það nokkuð undarleg þjóðrækni,
sem gjörir sér það að gaman-
málum að ata leir glæsilega og
góða íslenzka konu, sem nýkom-
in er hér vestur til okkar til að
taka að sér erfitt og vandasamt
starf við eina af okkar allra
vinsælustu stofunum.
Blaine, Wash., 15. apríl, 1955
í umboði nefndarinnar,
A. E. Krisijánsson
ENTER BARLEY CONTEST
To be eligible to compete in the Manitoba Barley
Contest, the barley grower must enter the Contest
before July 15th, 1955.
Secure your entry form from your Agricultural Repre-
sentative or your elevator operator, send form to the
Soils and Crops Branch, Department of Agriculture,
Legislative Building, Winnipeg 1, Manitoba.
This space contributed by:
Winnipeg
Brewery Limiled
M.D. 354
Fullkomnasta . . . Úrvals aðbúð farþega
Lægsta flugfargjald til íslands
FljúgiíS skemstu hringíerSina tii Reykjavlkur við
því lægsta flugfargjaldi, sem fáanlegt er.
Hinar óviSjafnanlegu fjögra hreyfla Douglas
Skymaster vélar, er skandinaviskir flugmenn, sem
notið hafa U. S. æfingar stjórna, veita hina
fullkomnustu flugferðatækni, þægindi og ávalt
lent á áætlunartíma. Þér njótið ágætis máltlða,
hallandi sæta og fyrsta flokks afgreiðslu ferðina
á enda.
Bein samhönd við alla Evrópu og Mið-Austurlönd.
Frekari uirplýsingar og verð fargjaltla
hjá ferðaskrifstofu ,vðar
n n n
ICELANDICl AIRLINES
ulAalju
15 West 47»h St„ N. Y. 36, Pl 7-8585