Lögberg - 09.06.1955, Blaðsíða 8
8
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 9. JÚNÍ 1955
Úr borg og bygð
Hinn 8. apríl síðastliðinn
voru gefin saman í hjónaband
í lútersku kirkjunni í Grand
Forks, N. Dak., ekkjufrú
Kristjana Jackson og Mr. A.
L. Odegard. Frú Kristjana
starfaði um hríð á skrifstofu
Lögbergs og á margt vina hér
í borg; þau Mr. og Mrs. Ode-
gard voru stödd hér í borg-
inni í fyrri viku og var rit-
stjóra Lögbergs það mikið
ánægjuefni, að hitta þau að
máli.
☆
Víðir P.O., Man. 30. maí 1955
Gefið í kirkjubyggingar-
sjóð Víðir-safnaðar:
Mrs. Dave Kaye, Cran-
brook, B.C. ..........$10.00
Mrs. Guðrún Magnússon og
börn, í minningu um hina
mörgu og kæru liðnu ná-
granna ...............$25.00
Alls í sjóði $1010.85
Með kæru þakklæti,
Rúna Jónasson. féhirðir
☆
A meeting of the Jon Sig-
urdson Chapter I.O.D.E. will
be held at the home of Mrs.
J. F. Kristjanson, 246 Mont-
gomery Ave., Winnipeg 13,
Man., on Friday June lOth at
8 o’clock.
☆
Mr. Jón Vigfússon frá
Riverton var staddur í borg-
inni á þriðjudaginn.
☆ '
Mr. S. Wopnford sveitar-
oddviti í Bifröst var staddur
í borginni í fyrri viku.
S P A C 6
CONTRIBUTED
B Y
WINNIPEG
BREWERY
IIMITID
MD-3SI
Ungmenni fermd í lútersku
kirkjunni í Glenboro Hvíta-
sunnudag, 29. maí, af sóknar-
prestinum:
Elin Margaret Josephson
Evelyn Colleen Joel
James Allen Joel
Wayne Paul Johnson.
Ennfremur voru eftirtalin
ungbörn skírð:
Heather May, dóttir Mr. og'
Mrs. G. M. Skaftfeld, Wpg.
Jack Ronald, sonur Mr. og
Mrs. J. T. Phelps, Winnipeg.
Allan Craig, sonur Mr. og
Mrs. A. E. Frederickson,
Glenboro.
Pauline Margaret, dóttir
Mr. og Mrs. H. K. Jónsson,
Stockton.
Robert John, sonur Mr. og
Mrs. B. J. ísleifson, Glenboro.
☆
STRÖNDIN, Vancouver, B.C.
stofnar til 17. júní hátíðar-
halds í Hotel Georgia, 17. júní,
kl. 8 e. h.
Valdir ræðumenn flytja
stutt, viðeigandi og skemmti-
leg ávörp á báðum málunum.
Fræg söngkona syngur ís-
lenzk og ensk lög. Góðar veit-
ingar verða fram bornar og
fyrsta flokks hljómsveit spilar
fyrir dansi fram á nótt.
Inngangur aðeins $2.50 á
mann og alt ofanskráð inni-
falið.
Verður þessi samkoma nán-
ar auglýst bréflega, því fleira
verður á skemmtiskrá.
☆
Hingað kom til borgar á
sunnudaginn Mr. Thorhallur
Blondal hárskurðarmeistari
frá San Francisco, California,
og dvaldi hér fram á þriðju-
dagsmorgun. Mr. Blondal er
ættaður frá Hvammi í Húna-
vatnssýslu og fluttist til Vest-
urheims um aldamótin; hann
hefir við góðum árangri rekið
iðn sína í áminstri borg síðan
1923. Hann á margt ættmenna
hér í borginni, en héðan hélt
hann suður til Spanish Fork
til að sitja aldarafmæli Is-
landsbygðar í Utah.
☆
Laugardaginn þ. 7. maí s.l.
kl. 3 e. h. voru gefin saman í
hjónaband í lútersku kirkj-
unni að Brú, Cypress River,
Ruth Lillian, dóttir Mr. og
Mrs. H. S. Johnson frá
Cypress River og Mervin
Charles, sonur Mr. og Mrs.
D. J. McKay frá Pilot Mount,
Man.
Brúðurin var leidd til
altaris af föður sínum. Svara-
menn voru Mrs. E. Tufvande
og Lois Johnson systur brúð-
urinnar og Wilma Stevens,
Jim Bell, Howard Johnson og
A1 Lee. Árni Sveinsson frá
Baldur lék á orgelið. Mr. A.
McKitrick frá Pilot Mound
söng “The Lord’s Prayer” og
“O promise me”.
Fjölmenn og vegleg veizla
var haldin í samkomuhúsinu
að Brú eftir hjónavígsluna. —
Ungu hjónin fóru í brúð-
kaupsferð til Bandaríkjanna.
Þau setjast að í Baldur.
Stórhríð í útsveitum norðan lands
Stórhríð var norðan lands í
fyrrinótt og gær, og var tals-
vert mikill snjór kominn
strax í gærmorgun. Er þetta
mjög vont vorhret, en senni-
lega ekki sérlega skaðlegt,
þar eð fé hefur mjög víða
ekki verið sleppt enn og sauð-
burður ekki byrjaður nærri
alls staðar.
Mikil snjókoma var í gær-
kvöldi víðast norðan lands.
Þannig var á Akureyri, Sauð-
árkróki, Raufarhöfn, og einn-
ig austan lands á Dalatanga.
I Grímsey var kominn skaf-
renningur. Leitað var til
Slysavarnafélagsins í gær
vegna bifreiðar, sem strandað
hefir á leiðinni milli Húsa-
víkur og Akureyrar.
Frost var talsvert í fyrri-
nótt og veðurhæð talsverð. Er
sums staðar óttazt, að vegir
verði illfærir eða ófærir, og
þær ær, sem bornar eru verða
fyrst um sinn á húsi og fullri
gjöf-
Ólafsfirði í gær: Stórhríðar-
veður skall á kl. 4.30 í nótt og
í morgun var snjór orðinn 25
cm. jafnfallinn. Þá fór að
hvessa. Frost er 2—3 stig.
Lágheiði var mokuð í gær-
kvöldi og er hætt við að hún
verði ófær að nýju.
Vegir að verða ófærir
Hofsósi í gær: Varla hefir
svo mikill snjór komið á jafn-
skömmum tíma og í nótt og
dag. Eru komnir djúpir skafl-
ar og vegir hér út með Skaga-
firði verða ófærir, ef ekki
hættir að snjóa. Sauðfé er á
húsi enn.
Haugasjór og hvassf
Húsavík í gær: Hér hefur
verið hvasst með hríð og
frosti, svo að mikill snjór er
kominn. Frostið er 2—4 stig.
Haugasjór er og ekki sjóveð-
ur. Fé hefur óvíða verið
sleppt, en sauðburður er að
byrja 1 S.-Þing. og kominn vel
af stað hér á Húsavík. í N.-
Þing. er sauðburður ekki
byrjaður.
Djúpir skaflar eru niðri á
láglendi hér í Húnaþingi eftir
snjókomuna í nótt. Hríðar-
veður hefur verið í dag, en þó
ekki stórhríð. Fé er alls staðar
í húsi nema í fremstu dala-
bæjum, þar sem yfirleitt er
Þeir Benedikt Ólafsson,
Elías Dagfinnsson og Heimir
Thorgrímsson fóru suður til
Bandaríkjanna í skemtiferð í
vikunni, sem lei?S.
☆
Nafn Kenneth Wayne
Stephanson átti að verða sam-
ferða nöfnum hinna ferming-
arbarnanna í Selkirksöfnuði,
en féll úr í handriti af vangá,
en nafnalistinn var birtur í
Lögbergi í fyrri viku.
☆
Nýlátinn er í Selkirk Hallur
Gillson 83 ára að aldri.
búið að sleppa því fyrir
nokkru.
Birti upp síðdegis
Siglufirði í gær: Stórhríð
var hér í nótt og töluverður
snjór kominn. Seinni partinn
í dag birti upp og er komið
sæmilegt veður.
—Alþbl.. 13. maí
Brúðkaup
Á sunnudaginn 5. júní voru
gefin saman í hjónaband í
lútersku kirkjunni á Gimli,
Dolores Jóhanna Jóhannesson
hjúkrunarkona og Jónas C.
Sigurgeirson, Flying Officer,
R.C.A.F. Brúðurin er dóttir
Mr. og Mrs. Helgi Jóhannes-
son, Gimli, en brúðguminn
einkasonur Rev. og Mrs. Skúli
Sigurgeirson, Duluth, Minn.
Faðir brúðgumans fram-
kvæmdi hjónavígsluna með
aðstoð sóknarpréstsins Rev.
Harald S. Sigmar. Dr. F. E.
Scribner lék á orgelið; Miss
Lorna Stefánsson söng, en
Mrs. S. Stevens annaðist
undirleik á píanó. Brúðar-
meyjar voru Misses Mary
Ellen Scott og Elín Arnason,
Mrs. Carl Malm, og litla Linda
Stamp blómamey; en Robert
Larsen og Wilfred Benson að-
stoðuðu brúðgumann. Carl
Malm, Marino Tómasson og
Charles Tandy vísuðu gestum
til sætis.
Að lokinni hjónavígslunni
var sezt að borðum í neðri sal
kirkjunnar. Rev. Sigmar
hafði veizlustjórn með hönd-
um. Dr. Rúnólfur Marteinsson
flutti bæn. Dr. Björn Péturs-
son frá Winnipeg mælti fyrir
minni brúðarinnar. Mr. Lar^
sen las fjölda heillaóska-
skeyta, er borizt höfðu víðs-
vegar að; ennfremur flutti
Rev. Sigmar margar kveðjur
frá fólki, er ekki gat komið
MESSUBOÐ
Fyrsta lúterska kirkja
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
Á ensku kl. 11 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
☆
Lúterska kirkjan í Selkirk
Sunnudaginn 12. júní:
Ensk messa kl. 11 árd.
Sunnudagaskóli kl. 12
Islenzk messa kl. 7 síðd.
Fólk boðið velkomið.
S. Ólafsson
☆
Messur í Norður-Nýja-lslandi
Sunnud. 12. júní:
Geysir, kl. 2
Árborg, kl. 8
báðar messurnar verða á
ensku.
Robert Jack
vegna ófærra vega. Brúðgum-
inn flutti hlý þakkarorð.
Brúðkaupið var fjölsótt;
gestir lengst að komnir voru
þrenn hjón frá Minnesota:
ríkisþingmenn Erdahl og Haf-
stead og konur þeirra, Mr. og
Mrs. Robert Larsen. Miss M.
E. Scott frá Chicago; Mr. og
Mrs. McKillip frá Dauphin;
Mrs. S. E. Sigurdson, Winni-
pegosis og frá Winnipeg og
bygðunum umhverfis.
Heimili Mr. og Mrs. J. C.
Sigurgeirson verður í Winni-
peg. Lögberg óskar þeim til
hamingju.
17. JÚNÍ
Þjóðræknisdeildin Frón efnir til kvöldskemmtunar í
Sambandskirkjunni á Sargent og Banning
föstudaginn 17. júní 1955, klukkan 8.15 síðdegis
O CANADA — Ó, GUÐ VORS LANDS
Við hljóðfœrið: SIGRID BARDAL
SKEMMTISKRA:
ÁVARP FORSETA ........................Jón Jónsson
SÖNGUR AF SEGULBANDI ..........Barnakór Akureyrar
Söngatjóri: BJÖRGVIN JÖRGENSON
EINSÖNGUR ...............Erlingur Eggertson, L.L.É.
Víð hljóðfœrið: MRS. MCGREGOUR
UPPLESTUR Margrét Guðmundsson
— Pjóðhátíöarljóð Davíðs Stefánsson 1954 —
I. PIANO SOLO Þóra (Ásgeirsson) Du Bois
1) liurlesca ö
2) lntermezzo ö............PÁLL ISÓLFSSON
3) Capriceio J
II. VIKIVAKI ....................Sv. Sveinbjörnsson
ERINDI (Kona forsetans) ..........Ingibjörg Jónsson
EINSÖNGUR .......................Lilja Eylands.B.A.
Við hljóðfœrið: SIGRID BARDAL
SÖNGUR AF SEGULBANDI ..........Barnakór Akureyrar
ELDGAMLA ISAFOLD — GOD SAVE THE QUEEN
Við hljóðfœrið: SÍGRID BARDAL
Kvenfélag Nambandssafnaðar stendur fyrir kaffiveitbiyum i neðri
sal kirkjunnar að samkomunni lokinni, og kosta þœr aðeins 25c
INNGANGUR 50c