Lögberg - 23.06.1955, Blaðsíða 3

Lögberg - 23.06.1955, Blaðsíða 3
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 23. JÚNI 1955 3 QUO VADIS? Business and Professional Cards S. O. BJERRING Þegar ég fer að rifja þetta I upp fyrir mér núna, þá er það eins og að rekja spor í sandi eða mjöll eftir að vindsveipur hefur gengið yfir, krókótta slóð eftir tvo fætur, ofan frá hasnum inni í dalnum, niður til bæjarins út við sjó. Ég er staddur í Málmey við Eyrarsund, eitt síðkvöld í nóvember, farþegi á þriðja farrými í næturlest, í klefa, sem ætlaður er sitjandi fólki, því að svefnvagnarnir eru fullskipaðir; og framundan óralöng sænsk nótt. Ég er kominn í gegnum tollinn, einnig útlendingaeftirlitið með sinni gjaldeyrisyfir- heyrslu og vegabréfaskoðun. Sit einn út af fyrir mig og bíð brottferðar. En ég hef enn ekki getað gleymt vegabréfa- skoðaranum, þessum varð- hundi landamæranna. Get ekki að mér gert að muna hann enn, hvar hann sat inni 1 básnum sínum eða hólfinu ofan við landgöngubrúna, stór °g kraftalegur, og maður sá hann ekki fyrr en maður stóð beint fyrir framan hann. Hann leit á mig snöggt og grimmilega um leið og hann tok við vegabréfinu, eins og hann væri staðráðinn í að Ijósta upp um mig glæp, af- hjúpa í leiftursókn dulinn andskota í fari mínu. En sy° sleppti hann mér fram hjá Ser, inn í föðurland sitt í norðri, ojá, lét mig sleppa. Þetta er ég að hugsa um þangað til lestin rennur af stað, þangað til stunur lestar- mnar, titringur og skjálfti hafa slitið mig úr sambandi við allt sem var og verður og gefið miskunnarlausu augna- bliki líðandi stundar alræðis- vald yfir skynjun minni og tilfinningum. Svartahaf hinn- ar sænsku haustnætur svarrar ^ið nötrandi gluggarúðurnar. hað er ekkert að sjá. Mannsaldur líður, að mér tinnst, annar mannsaldur og hinn þriðji, öldin okkar hlýt- Ur að vera liðin og önnur ný runnin upp, þó ég hafi ekki °rðið þess var, eða eru vís- indin kannske búin að slökkva á sólinni og fram- alla ragnarök, svo sem spáð efur verið? — Nei, ekki enn, ekki enn: Það er allt í einu ekið að skíma, svo sannar- ega, sortinn skyndilega orð- inn grár, og maður hrekkur UPP úr einum af þessum ólýs- anlegu, örstuttu blundum, sem á mann renna við og við eftir að hafa þraukað heila nótt uppi sitjandi og án þess að hafa nokkuð sér til afþrey- ingar. Þetta er morgunninn þó ótrúlegt sé, hann er kom- lnn hingað til mín, alla leið 1Un í sænska „snabbtoget“ — austrænn morgunn, runninn UPP handan við Kóreu og hið gula haf, búinn að fara vestur yfír þver Sovétríkin, gylla aukturna Slavans og kalífans uiínarettur í Qum. Kom þú blessaður, grái, langföruli nóvembermorgun, ég hef beð- ið þín langa nótt óþreyju- fullur. Úti var stormur og sjódrífa, kóf í rjóðrum, skógarnir upp- fenntir, og' það fór um mig hrollur eitt augnablik. En svo sá ég, að út úr fönninni lýsti grænt — að undan mjöllinni skinu algrænir viðir og flétt- uðu saman sitt lifandi lim. Það var eins og þeir tækju höndum saman í bylnum, staðráðnir í að styðja hver annan hvað sem á gengi, svo hvorki megnaði veturinn að brjóta þá né beygja. „Samhjálp — samvinna“, flaug mér í hug. Mér hafði birzt táknmynd hinna mátt- ugu samtaka fólksins, hvers gestur ég átti nú að verða um skeið; einnig hér í uppfennt- um skóginum ríkti andinn frá Rochdale. Klukkan tæpt níu komum við til Stokk- hólms. „Stokkhólmur — Lagar- drottningin — Feneyjar Norð- urlanda,“ — ég nefndi öll nöfn hennar, fyrst áfram, síðan aftur á bak, en það stoðaði ekki: Sesam hélt á- fram að vera lokuð, ég var einn, það var enginn mættur til þess að taka á móti mér. Ég hafði þó sent símskeyti til rektorsins og boðað komu mína. Jæja, þá það. En ég átti ekki einn eyri í sænskri mynt, bara ávísun, og svo nokkrar danskar krónur. Ein- hver tegund af tollþjónum fór höndum um töskurnar mínar og vildi fá tvær krónur fyrir snúð sinn. Ég sagðist engar eiga, utan danskar, en þær voru ekki gjaldgengar hér, svo sýndi ég þeim ávísunina. „Láttu leysa hana út“, sögðu þeir. „Og það skal ég gera,“ svaraði ég. En húsbóndi myntskipti- skrifstofunnar á járnbrautar- stöðinni vildi ekki fást við slíkt, sagði að bankinn einn hefði umboð til þess. A dönsku krónunum mínum virtist hann hafa alveg sér- stakan viðbjóð. Ég spurði hann þá, hvað til bragðs skyldi taka, „tullen“ vildi fá tvær krónurnar sínar og ég kæmist ekki heim í kvöld. Við þetta neyðaróp meyrnaði hjarta Svíans. „Þú kemur hér seinna," sagði hann og rétti mér tvær krónur í gegnum afgreiðslu- opið. Það var eins og að vera leystur úr ánauð. Ég náði mér í leigubílstjóra. 1 bíl. Vasagatan liggur framundan og það er ekki sem verst. Ég hef lesið um Gustav Vasa í Sögum herlæknisins og geri mér í hugarlund, að þessi gata sé heitin eftir hon- um, stríðsmanninum, — og )við ökum eftir henni. Við stefnum á stóra byggingu með tveimur lágum og sívöl- um turnum upp úr þakinu. Dr. G. KRISTJANSSON 102 Osborne Medical Bldg. Phone 74-0222 Weston Office: Logan & Quelch Phone 74-5818 Þetta er hús Morgon Tidning- en, aðalblaðs sósíaldemókrata í Stokkhólmi, öll umferð Vasagötunnar stefnir þangað, að mér virðist, sporvagnar, bílar og fótgangandi fólk. Og hefur hraðann á, eins og það hafi allt í einu uppgötvað sína Mekka þarna hinum megin við Norra Bantorget og nú sé hver síðastur að ná heim. En það er raunar ekki þangað sem ég ætla, ég er enginn sósíaldemókrati og ég bið Islam forláts að ég skyldi nefna helgisetur hennar í sömu andránni, ég er Elóhím- Suba-Sjandra-Hó-Sí og ferð minni er heitið á fund ílajalí í landsbyggðinni Sjangrí-La. Guðm. Daníelsson —SUÐURLAND Skoti nokkur keypti sér út- varpstæki, — en nokkrum dögum eftir að hann hafði keypt það, fór hann með það í viðtækjaverzlunina og vildi skila því. „Er hljóðið slæmt í því?“ spurði afgreiðslumaðurinn í viðtæk j a verzluninni. „Nei, það er allt í lagi með hljóminn," svaraði Skotinn. „En lamparnir lýsa svo dauft, að það er ekki nokkur leið að lesa við þá“. ☆ Vitur eiginmaður lætur sér ekki bregfða þó kona hans sé staðráðin í einhverju. Hann veit, að hún er fljót að skipta um skoðun. Minnist BETEL í erfðaskrám yðar Canadian Stamp Co. RUBBER & METAL STAMPS NOTARY & CORPORATE SEALS CELLULOID BUTTONS 324 Smith St. Winnipeg PHONE 92-4624 J. Wilfrid Swanson & Co. Insurance in all its branches Real Estate - Mortgages - Rentals 210 POWER BUILDING Telephone 93-7181 Res. 40-3480 LET US SERVE YOU EGGERTSON FUNERAL HOME Dauphin. Manitoba Eigandi ARNI EGGERTSON, Jr. Phone 74-7855 ESTIMATES FREE J. M. Ingimundson Re-Roofing — Asphalt Shingles Insul-Bric Siding Vents Installed to Help Eliminate Condensation 632 Simcoe St. Winnipeg, Man. Gilbart Funeral Home Selkirk, Manitoba J. ROY GILBART Phone 3271 Selkirk Muir's Drug Store Ltd. J. CLUBB FAMILY DRUGGIST SERVING THE WEST END FOR 27 YEARS Phone 74-4422 Ellice & Home Thorarinson & Appleby Barristers and Solicitors S. A. Thorarinson, B.Sc., L.L.B. W. R. Appleby, B.A., L.L.M. 701 Somersel Bldg. Winnipeg, Man. Ph. 93-8391 Phone 92-7025 H. J. H. PALMASON Chartered Accountant 505 Confederation Life Building WINNIPEG MANITOBA Dunwoody Saul Smiih & Company Chartered, Accountants Phone 92-2468 100 Princess St. Winnipeg, Man. , And offices at: FORT WTLLIAM - KENORA FORT FRANCES - ATIKOKAN Hafið H öf n í huga Heimili sólsetursbarnanna, Icelandic Old Folks’ Home Soc., 3498 Osler St., Vancouver, B.C. Arlington Pharmacy Prescription Specialist Cor. Arlinglon and Sargent Phone 3-5550 We Handle School Supplies We collect light, water and phone bills. Post Office

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.