Lögberg - 30.06.1955, Blaðsíða 8

Lögberg - 30.06.1955, Blaðsíða 8
8 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 30. JÚNl 1955 Frá Minneapotis, Minn., Úr borg og bygð — MESSUBOÐ — Að öllu forfallalausu verður messað í Guðbrandssöfnuði við Morden, í samkomuhúsi héraðsins, sunnudaginn 10. júlí klukkan 2 e. h. (Central Standard Time). Enska og íslenzka verða notaðar við guðsþjónustuna. S. Ólafsson ☆ Gefið í Blómveigasjóð kven félagsins „Björk“ $5.00 í kærri minningu um Mrs. Þóru Loft- son, d. 19. apríl 1955. — Frá Kvenfélaginu „Eining“, Lund- ar, Man. Kæra þökk, Mrs. O. Johnson, Sec. Lundar, Man., 28. júní 1955. ☆ Síðastliðinn föstudag lézt á Johnson Memorial sjúkra- húsinu á Gimli, Mrs. Guðrún Johnson, lengi búsett að Árnesi, Man., 78 ára að aldri, vinföst merkiskona, ættuð úr Skagafirði; hún lætur eftir sig þrjá sonu, Marino, Ólaf og Thorvald, og fjórar dætur, Mrs. Jónas Ólafsson, Mrs. Richard Amer, Mrs. Fred McLelland og Mrs. Ray Michaud, svo og einn bróður, Dr. Thorberg Thorvaldson í Saskatoon. Úförin var gerð frá Unítara kirkjunni við Árnes á þriðju- daginn. Séra Philip M. Péturs son jarðsöng. ☆ Tvö herbergi fyrir Light Housekeeping, óskast til leigu í vesturbænum hinn 15. júlí næstkomandi. — Upplýsingar veitir Leo Johnson, 1051 Downing Street. Sími 7Ö-8582. * Mr. J. Walter Johannson leikhússtjóri frá Pine F'alls, Man., lagði af stað síðastlið- inn sunnudag ásamt frú sinni í þriggja vikna ferðalag suður um Bandaríki. ☆ Mr. Helgi Einarsson rithöf- undur og fyrrum kaupmaður að Gypsumville, Man., hefir dvalið í borginni nokkra undanfarna daga. ☆ Síðastliðinn fimtudag lézt hér í borginni Helgi Árnason múrhúðari ættaður úr Reykja vík, 69 ára að aldri; hann læt- ur eftir sig konu og uppkomin börn, svo og einn bróður, Jón Árnason fyrrum kaupmann að Oak Point; hins látna verð- ur vafalaust nánar minst við fyrstu hentugleika. — Útförin var gerð frá Bardals á laugar- daginn. Séra Philip M. Péturs son jarðsöng. Kæri Einar Páll! Fyrir nokkrum árum kom hinn góði Jón Bíldfell með skilaboð frá Lögbergingum, að ég sendi þeim fréttir héð- an. Færðist ég undan slíku og benti á Valdimar, sem eina manninn, sem þekkti alla ís- lendinga hér. Vissum við þó báðir, að Valdimar væri upp í höku og nef í annríki, enda hefir útkoman orðið sú, að íslendingar hafa dáið hér eins og flugur á seinustu árum. En Bíldfell minntist sérstak- lega á dauðsföll landanna. En það eru hérumbil helztu fréttir héðan, því hinir ný- borriu hafa enga sÖgu að segja — og svo er með flesta hina eldri. Samt höfum við samkomur árlega; var sú í fyrra sérstak- lega vel sótt, þó í vor hafi hún verið all-sæmileg. En þann 17. júní höfðum við útisamkomu, sem var fámenn, eins og oftar, enda ekki mörgum á að skipa. Þegar ég leit yfir hópinn, þá var helmingurinn nýkomnir landar að heiman. Og væri ekki um slíkt fólk að ræða, þá mundi þessi þjóðhátíðar- dagur gamla landsins ekki hafa orðið upp á margar spýtur. Eitt er þó sérstakt við sam- komur okkar, að menntaðir og mælskir menn standa fyrir palli — menn, sem vita hvern- ig hinar miklu menntastofn- anir eru innréttaðar (og er ég einn af þeim, því ég hefi orðið að gaufa um hin dimmu göng þessara stofnana — stundum innan um dauða menn og dýr). — Vilhjálmur Bjarnar stjórnaði samkomunni, og kallaði á Bjorn Bjornson, sem sagði meira á 5 mínútum, en margir gera á hálfum tíma, eins og hans er vani. Matthías Thorfinnsson talaði nokkra stund ágætlega um ísland, sem sýndi bezt, hvað mikla ánægju hann hafði af heim- ferðinni — þrungin af ætt- jarðarást, sem þó mun ekki Alvarlegir skógareldar Umfangsmiklir og geigvæn- legir skógareldar hafa undan- farna daga geisað í norður- hluta Manitoba, og er sá mesti þeirra einungis í fimm mílna fjarlægð frá Flin Flon; tveir eldanna eru í grend við Landing Lake norður og austur af Flin Flon og Big Island Lake; eldarnir ná að sögn yfir tvö. þúsund ekra svæði, og hefir fjöldi mikill sjálíboðaliða frá Flin Flon komið á vettvang 'til að reyna að stemma stigu fyrir framrás tortímingaraflanna; auk þess hafa embættismenn skóg- vörzlunarinnar sent til loga- svæðanna 70 Indíána frá Puketawagen, sem þaulvanir eru í að ráða niðurlögum skógarelda. 20. júní 1955 hafa verið ný í brjósti hans. Valdimar — og án hans er engin samkoma — las part af greininni í seinasti Lögbergi, „Hvað á barnið að heita“ — og þótti okkur gaman að hin- um gömlu nöfnum, þó sum okkar hafi lesið Lögberg. Væri ekki um þessar sam- komur kvenfélagsins að ræða, og íslenzku blöðin, þá værum við flest dauð og gleymd. Og hvorugt má deyja! Kven- fólkið okkar verður að íialda fast í lífið, og við öll verðum að halda fast í líf blaðanna, jafnvel þó að sumir okkar verði ekki prentsvertuverðir á seinustu stundinni. Væri hægt að haga því þannig að blöðin kæmu út aðra hvora viku, en þó án þess að prent- ararnir og aðrir, sem að blöð- unum standa tapi vinnu? Ég mundi glaður borga tvöfalt fyrir hvort blað — og svo munu aðrir — kannske nógu margir? En blöðin mega ekki líða undir lok! Nóg sagt! —G. T. A. Úrslit aukakosninga Svo sem skýrt var áður frá að til stæði, fóru fram auka- kosningar síðastliðinn mánu- dag í tveimur kjördæmum til fylkisþingsins í Manitoba, Glenwood-Deloraine og Moun tain kjördæmunum; kosning- ar þessar voru sóttar af kappi rniklu og komu þar mest við sögu Campbell forsætisráð- herra og leiðtogi íhaldsflokks- ins, Mr. Roblin; úrslitin breyttu engu til um þingstyrk megin flokkanna; í hinu fyr- nefnda kjördæmi náði kosn- ingu frambjóðandi íhalds- manna, Earl Draper, en í Mountain gekk merkisberi Liberala, Walter Clark, sigr- andi af hólmi. Kirkjuþing a Gimli Síðastliðið laugardagskvöld kom saman til funda í hinni veglegu kirkju lúterska safn- aðarins á Gimli, hið sjötugasta og fyrsta ársþing Hins evang- eliska lúterska kirkjufélags Islendinga í Vesturheimi og var þá formlega sett af forseta félagsins, presti Fyrsta lút- erska safnaðar, Dr. Valdimar J. Eylands; við þingsetningu voru staddir yfir 100 erindrek- ar frá hinum ýmsu söfnuðum, auk þjónandi og áður þjón- andi presta; ennfremur sóttu þingið virðulegir sendifull- trúar hinnar Sameinuðu lút- ersku kirkju í Norður-Ame- ríku; með umboð fyrir hönd herra Ásmundar Guðmunds- sonar og Þjóðkirkju Íslands, fór séra Ólafur Skúlason svo sem frá er skýrt á öðrum stað hér í blaðinu; óvenjulegur mannfjöldi víðsvegaf að, sótti þingið. A Greeting to the decsendants of the Icelanders on the occasion of the Centennial cele- bration al Spanis Fork. Utah, June 15—17, 1955 The members of the Ice- landic organization “FRÓN“> in Winnipeg, Canada, send greetings and good wishes to their kinsmen in Utah on this most happy and auspicious occasion. Many of the members oi “FRÓN” are of the older generation of Icelanders and so can remember back to pioneer days themselves. They fully realize the cour- age, fortitude and vision • has taken for the pioneers i° Utah to build a new country from the trackless wasteland they found before them when they arrived. It is with the deepist joy that the members of “FRóN’, send their congratulations and felicitations, remember- ing that through these hund- red years their kinsmen i° Utah, have shown such a loy- alty to the tradtions and culture of Iceland. On this festive occasion the thoughts of Icelanders every- where are with you, with the feeling that through the neW contacts now established with our kinsmen in Utah, further steps may be taken to bind together in closer bonds oí fellowship all the people of Icelandic origiri, in the West- ern hemisphere, and in Ice- land as well. The> festivities in Spanish F’ork June 15—17, so carefully planned and artistically exe- cuted, will long be re- mebered by Icelanders every- where, and your activities in the cultural sphere should be an inspiration to the descend- ants of Icelanders every* where. The members of “FRóN ’ wish you, the Icelanders i11 Utah success and happiness in the future. JON JOHNSON President of “FRóN” Winnipeg, Manitoba, Canada. Skiptast ó heimsóknum Forsætisráðherra Indlands, Nehru, sem dvalið hefir 1 Moskvu nokkra undanfarna daga í boði rússneskra stjórn- arvalda, er nú horfinn heim og lætur hið bezta af við- tökunum; nú hefir Nehru boðið stjórnarformanni Ráð- stjórnarríkjanna, Nikolai Bulgarin, til gagnkvæmrar heimsóknar og tþk hann þvl með fögnuði; viðræður þess- ara tveggja forustumanna 1 Moskvu, snerust mestmegnis uip Asíumálin, að því er ráða má af útvarps- og blaða- fregnum. Góð vörumerki oð kynnast og kaupa eftir . . . Veitið athygli þessum nöfnum, er þér farið í búð, því það, sem þér þarnist ber að líkind- um á sér eitthvert þessara nafna. — Verzlið í öryggi — í vörugæðum og verði. .... einungis hjá EATON’S ; f § h.'ýyy 1Í n|'

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.