Lögberg - 07.07.1955, Page 1
ANYTIME — ANYWHERE
CALL
Transit - Sargent
Siiverline Taxi
5 Telephone Lines
20-4845
ANYTIME — ANYWHERE
CALL
Transit - Sargent
Silverline Taxi
5 Telephone Lines
20-4845
68. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 7. JÚLÍ 1955
NÚMER 27
Nákvæmar landmælingar
framkvæmdar í sumar
^anskir séríræðingar annasi
í samvinnu við íslend-
inga og Bandaríkjamenn
Hafnar eru á íslandi ná-
kvaemar mælingar á land-
inu, bæði staðarákvarð-
anir og aðrar niælingar,
sem síðar verða undir-
staða kortagerðar, en auk
þess verður nákvæmlega
reiknuð út fjarlægð milli
Islands og nágranna-
landanna.
Hér er um að ræða samstarf
danskra, bandarískra og ís-
lenzkra aðila, en það eru
danskir sérfræðingar frá
Geodætisk Institut í Höfn,
sem annast sjálfar mæling-
arnar, en Islendingar leggja
H1 mannafla ,efni og farar-
tæki, en Bandaríkjamenn
a. þrjár þyrilvængjur.
Dönsku sérfræðingarnir,
sem eru 29 að tölu, hafa dval-
izt hér 3V2 viku, en fyrirliði
þeirra er Chantelou, yfirmæl-
ingafræðingur frá Danmörku.
^réttamenn áttu í morgunn
tal við Chantelou og Ágúst
Höðvarsson í skrifstofu land-
niaelinganna, og skýrðu þeir
Irá framkvæmdum.
Ágúst Böðvarsson skýrði
Irá því, að hér væri um mikið
vinarbragð að ræða af hálfu
^ana, sem legðu til mjög
vprðmæt tæki, auk hinna 29
serfræðinga, en sjálfir gætum
Vlð naumast annast svo ná-
kvaemar og kostnaðarsamar
n^aelingar. Þá hafa Danir hér
tvo vélbáta, sem eru á vegum
eiðangursins.
Meðal hinna dönsku sér-
ræðinga eru tveir stjörnu-
raeðingar, og hafa þeir bæki-
stöðvar sínar að Ragnheiðar-
^töðum í Flóa og í Hjörsey á
^ýrum. Flestir leiðangurs-
^anna eru nú við Stóra-
j^ropp í Borgarfirði, þar sem
þeir dvelja í tjöldum.
Verkefni landmælinga-
jnannanna er aðallega tví-
Pætt: Þeir ætla með ná-
væmu þríhyrningakerfi að
|næla landið upp eins ná-
væmlega og beztu tæki
eyfa, en samtímis verður
^æld fjarlægð milli landa, og
er hér um þátt alþjóðlegrar
samvinnu að ræða. Þríhyrn-
jngskerfi það, sem fyrir var
er, er ekki nægilegt til slíkra
^ælinga, og þess vegna verð-
Ur nú gert þríhyrninga-„net“
a landinu, miklu fullkomnara
en áður var .
Gert er ráð fyrir, að mæl-
ingar þessar taki allt sumarið,
en vonir standa til, að þeim
verði lokið fyrir haustið.
Flestir verða sérfræðingarnir
38 síðar í sumar. Enn sem
komið er, hafa þeir lítt getað
aðhafzt í óbyggðum vegna
snjóþyngsla.
—VISIR, 24. maí
Vegleg afmælishátíð
í Argyle
Um síðustu helgi var mikið
um dýrðir í Glenboro, og
raunar víðar, því þá var
minst 75 ára afmælis hins
fagra og frjósama Argyle-
bygðarlags, þar sem Islend-
ingar hafa jafnan komið mjög
við sögu; en þetta var hátíð
allar bygðarinnar án hlið-
sjónar af þjóðernislegum upp-
runa þar sem allir voru eitt.
I Sögu íslendinga vestan
hafs er skilmerkilega lýst
landnámi íslendinga í Argyle
og fyrstu brautryðjenda að
verðleikum svo glæsilega
minst, að þar verður eigi um
bætt. Einn maður úr frum-
herjahópnum, Mr. Friðbjörn
S. Fredrickson, 96 ára að aldri,
býr hjá syni sínum, Fred
kaupmanni í Glenboro, og var
viðstaddur hátíðahöldin.
I tilefni af atburðinum
streymdu synir og dætur
bygðarinnar að úr öllum átt-
um til að samgleðjast með
bygðarbúum og rifja upp
æskuminningar sínar; sonur
Argylebygðar, Dr. Tryggvi J.
Oleson, prófessor í sagnfræði
við Manitobaháskólann, flutti
aðalræðuna fyrir minni frum-
herjanna.
Afspyrnuveður
veldur sfórtjóni
Síðastliðið fimtudagskvöld,
rétt um miðaftansleytið, skall
á eins konar gerningaveður í
Winnipeg með slíkri helli-
rigningu og ofsastormi, að til
undantekninga má teljast;
iarviðrið stóð yfir í nálega
tvær klukkustundir, en svo
var myrkt umhorfs, að naum-
ast sást gatna á milli. Vatn
fylti og hálffylti marga kjall-
ara, einkum í Fort Garry og
St. Vital, en í Winnipegborg
fóru 5000 símar í ólag; víðs-
vegar um fylkið skemdust
einnig margar símalínur; er
fjárhagstjón símasambands-
ins metið á 90 þúsundir
dollara.
Þrír aðalembættismenn kirkjufélagsins
Séra Eric H. Sigmar
skrifari
Sjötugasta og fyrsta árs-
þingi hins ev. lúterska Kirkju
félags íslendinga í Vestur-
heimi var slitið á miðviku-
dagskvÖldið í fyrri viku eftir
langa og ánægjulega sam-
fundi; var aðsókn mikil svo
sem þegar hefir verið skýrt
frá og mörg og mikilvæg mál
tekin til umræðu og af-
greiðslu; eitt af stórmálum
þingsins var það, að félagið
beitti sér fyrir um fjársöfnun,
er nema skyldi $175,000 til
endurbóta elliheimilinu Betel
og viðbyggingu við stofnun-
ina, en slíks var löngu þörf.
Leitað var ásjár Manitoba-
stjórnar fyrirtækinu til stuðn-
ings, en tilboð hennar um
10% framlag af byggingar-
kostnaði var talið ófullnægj-
andi, en hitt þótti vænlegra
til úrbóta, að leita lánsfjár hjá
sambandsstjórn með hagvæn-
legum kjörum; hin væntan-
lega viðbygging verður í fjöl-
býlishúsaformi með 50 nýjum
svefnrúmum; vonandi er að
giftulega takist til um fram-
gang þessa mikla nauðsynja-
máls, sem í rauninni þolir
ekki lengri bið.
Dr. Valdimar J. Eylands
var endurkosinn í forseta-
embætti; til skrifara var kjör-
inn séra Eric H. Sigmar, en
Mr. Njáll Bardal var endur-
kosinn féhirðir. I Betelnefnd
Smjör handa Tékkum
og hveiti til Póllands
Að því er ráða má af nýj-
ustu fregnum frá Ottawa,
hefir sambandsstjórn hlutast
til um sölu á 300 þúsund
pundum af canadisku smjöri
til Tékkóslóvakíu, en jafn-
framt komið því til vegar að
Pólverjar kaupi héðan úr
landi 16 miljón dollara virði
af hveiti.
Dr. Valdimar J. Eylands
forseti
voru endurkosnir þeir Dr.
P. H. T. Thorlakson og séra
Sigurður Ólafsson, auk þess
sem S. V. Sigurdson tók sæti
í nefndinni í stað Harolds
Bjarnasonar.
Mrs. B. S. Benson var end-
urkosin forstjóri Sameining-
arinnar, en við ritstjórninni
tekur séra Bragi Friðriksson.
Social Credit verður
fyrir óföllum
Á miðvikudaginn hinn 29.
júní s.l., fóru fram almennar
kosningar til fylkisþingsins í
Alberta og lauk þeim á þann
veg, að Social Credit flokkur-
inn undir forustu Ernest
Mannings, vann hinn sjötta
kosningasigur sinn, þótt hann
óneitanlega sætti þungum á-
föllum; þrír ráðherranna féllu
í val, þeir Mr. Ivan Casey,
skógræktar- og landsvæða-
ráðherra, Mr. Lucien Mayn-
ard dómsmálaráðherra, og
fylkisritarinn, Mr. C. E. Ger-
hart. I kosningunum næst á
undan hlaut Social Credit
flokkurinn 57 af hundraði
allra greiddra atkvæða, en að
þessum kosningum loknum 47
af hundraði.
Fyrir kosningarnar réði
Social Credit stjórnin yfir 51
þingsæti af 61. Nú hefir hún
fengið kosna 36 þingmenn og
hefir því nægu þingfylgi á
að skipa. Liberlar hlutu 13
þingsæti, en höfðu áður þrjú,
en búist við að þeir bæti einu
sæti við sig. íhaldsmenn unnu
þrjú þingsæti en C. C. F,-
sinnar 2. Einn frambjóðandi,
er gekk undir nafninu Liberal
Progressive-Conserative, náði
kosningu, einn Coalition
frambjóðandi og einn utan-
flokka.
Ekki eru enn við hendi
fullnaðarúrslit í öllum kjör-
dæmum.
Mr. Njáll Bardal
féhirðir
22 þús. kr. verðlaun
fyrir hótíðaljóð
Undirbúningsnefnd Skál-
holtshátíðar 1956 hefir á-
kveðið að stofna til sam-
keppni um hátíðaljóð (kan-
tötu) ort í minningu 9 alda
afmælis biskupsstóls í Skál-
holti.
Ætlunin er svo að íslenzk-
um tónskáldum verði síðar
boðið að semja lög við þann
ljóðaflokk, sem beztur verður
dæmdur, og að hann verði
fluttur á hátíðinni. Nauðsyn-
legt er því, að ljóðin séu vel
hæf til söngs, og æskilegt, að
þau verði í 3—5 köflum.
Kvæðin skulu send vél-
rituð, nafnlaus, en þó greini-
lega auðkennd. Höfundarnafn
fylgi í lokuðu umslagi,
merktu hinu sama auðkenni
og ljóðið.
Veitt verða þrenn verðlaun,
kr. 15000.00, kr. 5000.00 og kr.
2000.00 fyrir þá þrjá ljóða-
flokka, er dómnefnd telur
bezta, enda fullnægi þeir
þeim kröfum, er hún gerir til
slíkra ljóða til þess að verð-
launahæf séu.
Hátíðanefndin áskilur sér
fram yfir hátíðina allan um-
ráðarétt yfir þeim ljóðflokk-
um, sem verðlaun hljóta, bæði
til prentunar, flutnings og
söngs án sérstaks endurgjalds
til höfundanna.
Kvæðin skulu vera komin í
hendur formanni hátíða-
nefndarinnar, séra Sveini
Víking, biskupsritara, eigi
síðar en hinn 1. sept. n.k.
—Mbl., 15. júní