Lögberg - 25.08.1955, Side 8
8
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 25. ÁGÚST 1955
Úr borg og bygð
— ÞAKKARORÐ —
19. maí 1955
Við viljum hér með votta
okkar innilegt þakklæti til
allra þeirra, sem á einn eða
annan hátt sýndu hjálpsemi
og hluttekningu í sambandi
við fráfall föður okkar, Guð-
mundar Elíassonar. Erfitt
væri að minnast allra þeirra,
er hér komu við sögu, bæði í
veikindastríði okkar hjart-
kæra föður, og við kveðju-
athöfnina í Vancouver og
einnig við útförina sjálfa, er
fram fór í kirkju og grafreit
Árnesbygðar.
Það hefir dregist að birta
þessi þakkarorð lengur en
skyldi, mest vegna þess hvað
fjölskyldan er tvístruð víðs-
vegar um landið. Viljum við
endurtaka okkar innilegt
þakklæti til ykkar allra, sem
þarna áttuð hlut að máli og
biðjum við Skaparann að
launa ykkur öllum þau góð-
verk, er þið hafið í té látið.
Með vinsemd,
Elíasson's-fjölskyldan
☆
Stjórnarnefnd Fróns hefir
ákveðið að efna til almenns
fundar í G. T.-húsinu mánu-
dagskvöldið 3. október n. k.
Skemmtiskrá fundarins nánar
auglýst síðar. —Neíndin
Fyrsta lúterska kirkja
Venjulegar guðsþjónustur
hefjast 11. sept., kl. 11 á ensku;
kl. 7 á íslenzku.
Næstkomandi sunnudags-
kvöld, 28. ágúst kl. 7. Guðs-
þjónusta á ensku. Mr. Barry
Day, guðfræðistúdent frá
United College, flytur pré-
dikunina.
☆
Lúlerska kirkjan i Selkirk
Sunnud. 28. ágúst:
Ensk messa kl. 11 árd.
íslenzk messa kl. 7 síðd.
Fólk boðið velkomið.
S. Ólafsson
☆
Uniled Lutheran Mission
of Silver Heighis
Services in the Y.M.C.A. of
St. James, on Ferry Road
South. (Just off Portage).
There was a gratifying re-
sponce to the Opening Service
when over 100 people at-
tended last Sunday. Many
were guests, and we were
happy for their presence and
good will.
Sunday, Aug. 28th at 11
A.M. services with Pastor
Eric H. Sigmar preaching on
the subject, “Facing Christ.”
Guest pianist and accompanist
for this service will be Mrs.
Eric Isfeld.
Pastor Sigmar will sing a
vocal solo.
Miss Helga Thordarson
Þessi glæsilega unga stúlka
lauk prófi í hjúkrunarfræði
við Vancouver Hospital s.l. ár;
hún er ennfremur brautskráð
úr verzlunarskóla hér í borg.
Hún er um þessar mundir á
ferðalagi í Evrópu. — Miss
Thordarson er dóttir Mr. og
Mrs. Theodore Thordarson,
Vancouver, B.C.
' Nú er fólkið, sem héðan fór
í heimsókn til Islands snemma
sumars víst flest komið aftur
heim. Fyrst komu þau Mr. og
Mrs. Gunnar Baldvinsson og
Mrs. Jóhanna Goodman frá
Selkirk, þar næst Einar Sig-
urðsson héðan úr borg og Dr.
S. O. Thompson frá Riverton
og frú, en á laugardagskvöld-
ið var komu þau frú Sigþóra
Tómasson frá Hecla- og Júlíus
Davíðsson byggingameistari;
alt hefir það af ferðafólkinu,
sem Lögberg hefir náð tali af,
notið ósegjanlegrar ánægju af
heimsókninni.
☆
Mr. Bergur Johnson vist-
maður á Betel kom til borgar-
innar í byrjun vikunnar með
konu sína til lækninga.
☆
Nýlega er komin hingað til
borgarinnar ungfrú Stefanía
Vilhjálmsdóttir frá Hánefs-
stöðum á Seyðisfirði, glæsileg
og gáfuð stúlka, sem dvalið
hefir í bænum Portsmouth í
New Hampshire-ríkinu síðan
um lok janúarmánaðar; hún
er systir Hjálmars Vilhjálms-
sonar fyrrum sýslumanns í
Norður-Múlasýslu; hún á
móðursystir hér í borginni,
ekkju Jóns Árnasonar fyrrum
kaupmanns í Churchbridge,
Sask. Ungfrú Stefanía mun
dveljast hér um slóðir fram
yfir næstu mánaðamót.
☆
Um miðjan mánuðinn
komu hingað til borgar frá
Reykjavík hr. Skúli Jóhanns-
son ásamt frú sinni Eriku og
ungri dóttur þeirra Ingi-
björgu að nafni; hefir fjöl-
skyldan í hyggju að setjast
hér að. Skúli er sonur Jó-
hanns Eyjólfssonar fyrrum al-
þingismanns frá Brautarholti
og Sveinatungu, en frú Erika
er dóttir Péturs Jónssonar
óperusöngvara og er fædd á
Þýzkalandi.
Þjóðræknisdeildin „FRÓN"
tilkynnir hér með, að bóka-
safn deildarinnar verður opn-
að til útlána á bókum mið-
vikudaginn 7. september á
vanalegum tíma, sem er kl.
9.30 til 11 f. h. og kl. 6.30 til
8.30 e. h. Talsvert hefir bætzt
í safnið af nýjum bókum yfir
sumarfríið.
Fyrir hönd deildarinnar Frón,
J. Johnson, bókavörður
☆
Hinn 17. þ. m. lézt á Betel
Swain Swainson, fæddur 5.
janúar 1866 að Hóli í Höfða-
hverfi í Suður-Þingeyjar-
sýslu. Foreldrar hans voru
Sveinn Sveinsson og Anna
Jónasdóttir. Hann kvæntist
Ovidu Jóelsdóttur (Loftsson)
17. maí 1889, er lézt 11. maí
1949. Þau komu til Winnipeg
15. ágúst sumarið 1893. Þeim
hjónum varð sex barna auðið;
þrjú dóu í bernsku, en tvö á
æskualdri; ein dóttir lifir
föður sinn, Ida Dorothy til
heimilis í Winnipeg; hann
lætur einnig eftir sig eina
systur, Mrs. Jónasínu Jó-
hannesson í Vancouver. —
Swain heitinn tók heimilis-
réttarland í Árborg, flutti
síðan inn í þorpið, en kom til
Gimli í janúarmánuði 1951 og
gerðist þá vistmaður á elli-
heimilinu Betel. Útförin var
gerð frá Bardals hinn 22. þ. m.
Dr. Valdimar J. Eylands jarð-
söng.
Áttræð að aldri
Mrs. C. B. Jónsson
Sunnudaginn hinn 28. þ. m.,
heldur Mrs. Lily Matthews
móttökufagnað (Open house)
að heimili 'sínu 778 Minto St.
frá kl. 2 e. h. til kl. 6, í tilefni
af áttræðisafmæli móður
hennar Mrs. C. B. Jónsson
(Thordís Björgvinsdóttur), er
lengi var búsett við Cypress
River; verða vafalaust margir
til að taka í hendina á þessari
vinsælu konu áminstan sunnu
dag.
Sundafrek tveggja
kvenna
Á sunnudaginn, 14. ágúst,
var í fyrsta sinn reynt að
synda þvert yfir Winnipeg"
vatn, var það tvítug stúlka,
Kathie Mclntosh að nafni,
sem lagði út í þá þrekraun
að synda frá Grand Marais a
austurströnd vatnsins til Win-
nipeg Beach — 18 mílur. Hún
lagði af stað kl. 11.30 f. h., en
var tekin úr vatninu kl. 9.30
e. h. vegna öldugangs í vatn-
inu og náttmyrkurs, og átti
hún þá eftir 4 mílur. C.K.R-C-
útvarpsstöðin tilkynnti nú að
hún myndi veita $1,000.00
verðlaun og silfurbikar þeim,
er fyrst leysti af hendi þessa
þrekraun. — Á föstudaginn
lögðu 5 keppendur til sunds
frá Grand Marais, fjórir karl-
menn og Kathie. Þótti hún
sýna mikinn kjark að leggj3
út í þetta langa sund aftur,
eftir aðeins 5 daga hvíld. Allir
karlmennirnir gáfust upp a
sundinu, en Kathie komst alla
leið eftir 17 klst.
Daginn eftir reyndi ung
húsmóðir, tveggja barna móð-
ir, Vivian King Thompson frá
St. Vital þetta sama sund-
Hún er 24 ára og hefir hlotið
mörg sundverðlaun. Hún
reyndist hraðsyntari en
Kathie og var alt útlit fyrir að
hún myndi ná takmarkinu á
styttri tíma, en tvær mílur
frá Winnipeg Beach skall
snögglega á þrumuveður,
rigning og ofsarok, svo sund-
konunni lá við drukknun og
var hún tekin úr vatninu.
Þessar tvær. sundkonur og
þá sérstaklega Kathie Mc-
Intosh hafa verið hyltar mjög
fyrir kjark sinn og sundafrek
og hefir Miss Mclntosh verið
gefnar margar verðmætar
gjafir.
Magnús Ásgeirsson
skóld lótinn
Magnús Ásgeirsson skáld
andaðist síðastliðna laugar-
dagsnótt, 30. júlí.
Magnús, var eins og kunn-
ugt er, talinn einn snjallasti
ljóðaþýðari landsins og hefir
þýtt fjölda ágætra ljóða.
Magnús Ásgeirsson var 53
ára, er hann lézt.
—VÍSIR, 2. ágúst
Messur í Norður-Nýja-íslandi
Sunnud. 28. ágúst:
Árborg, kl. 2.
Ladies Aid 50 years.
Riverton, kl. 8,
á ensku og íslenzku.
Robert Jack
Góð vörumerki
að kynnast og
kaupa eftir . . .
Veitið athygli þessum
nöfnum, er þér farið i
búð, því það, sem þér
þarnist ber að líkind-
um á sér eitthvert
þessara nafna.
— Verzlið í öryggi
— í vörugæðum og
verði.
.... einungis hjá
EATON'S
-
m
xtfi1
o*
'&s&SM-sí&íiéíjMto
3OÚ
V//SSSArSSSS/.-SSS;U.
"SALESMEN" wanted for the sale of hardwood
and cloth covered caskets in Western Canada.
Give territory covered. Commission basis. Send
particulars to:
LOGBERG
695 Sargent Ave. Winnipeg, Man.