Lögberg - 01.12.1955, Page 2
2
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 1. DESEMBER 1955
Nám í hússtjórn og barna uppcldi er nauðsynlegur
þattur í menntun kvenna
Spjallað við frú DÓRU S. LEWIS, prófessor
í hússtjórnar- og hagfræði
ER ég hafði heimsótt ísland
varð mér fyrst ljóst,
hverju íslendingarnir, sem
fluttu vestur um haf, urðu að
sjá á bak, og þegar ég er
stödd hér, á ég oft á tíðum
erfitt með að skilja, hvernig
þeir gátu yfirgefið þettk stór-
brotna land, segir frú Dóra S.
Lewis, prófessor í hússtjórn-
ar og hagfræði við Hunter
College í New York.
Frú Dóra talar mjög sæmi-
lega íslenzku og skilur hana
ágætlega. En mér hefir farið
dálítið aftur, segir hún. Móðir
mín talaði alltaf íslenzku við
mig, en hún dó fyrir nokkrum
árum. — Frú Dóra er fædd í
Norður-Dakota. Foreldrar
hennar voru Sumarliði Sum-
arliðason, gullsmiður, frá
Kollabúðum við Þorskafjörð í
Reykhólasveit, og Helga
Kristjánsdóttir frá Tungu í
Dalamynni við ísafjarðar-
djúp.
-----0----
Er frú Dóra kom hingað í
fyrsta skipti árið 1933, heim-
sótti hún æskustöðvar móður
sinnar við ísafjarðardjúp, en
nú hélt hún til æskustöðva
föður síns að Kollabúðum.
Og margt hefir breytzt hér
síðan, einkum þótti mér
mikilfenglegt að sjá yfir
Reykjavík úr flugvélinni,
þegar við lentum hér í hvass-
viðrinu á þriðjudagskvöldið.
Borgin hefir stækkað gífur-
lega.
Það var hreint ekki auð-
velt að ná tali af frú Dóru.
Hún var önnum kafin við að
hitta vini og skyldmenni,
„enda á ég hér fleiri ættingja
en heima í Bandaríkjunum11,
segir hún. Ég hefi gert mér
far um að rækja vinskap við
íslendinga eftir föngum, bætir
hún við. Enda munu margir
íslendingar hafa notið gest-
risni frú Dóru á heimili henn-
ar í New York.
----0----
Þegar ég kom hingað árið
1933, þekkti ég aðeins 'einn
ættingja minn, Jón Fjalldal,
sem búsettur var á Melgras-
eiði við ísafjarðardjúp. Ég
hafði skrifað honum um fyrir-
hugaða Islandsreisu mína, og
sendi hann son sinn til
Reykjavíkur til að taka á
móti mér. Á Melgraseiði var
yndislegt að vera — þaðan var
dagleið á hestbaki til æsku-
stöðva móður minnar.
Frúin kom hingað fyrir 10
dögum og fer héðan á morgun,
þar sem hún hefur umfangs-
miklum störfum að gegna
heima fyrir auk kennslu-
starfanna. Hún kom hingað
frá Evrópu. Hafði hún ferðazt
LÆGSTA FLUGFAR TIL
með Douglas Skymasters, er
hver um sig hefir 7 skandi-
naviskra manna áhöfn, sem
fengið hafa flugæfingu í
Bandaríkjunum.
C. A. B. skrásettar, reglu-
bundnar flugferðir frá New
York.
Kaupið fnr hjá næstu ferðaskrlfstofu.
n /-\ n
iceiAHoia 'airuhbs
u lAauu
ISLANDS
265
oo
BÁÐAR LEIÐIR
15 West 47th Street, New Yorti 36
Pt 7-8585
Frú Dóra Lewis
ásamt hóp þjóðfélagsfræðinga
um löndin fyrir botni Mið-
jarðarhafs — ísrael, Tyrkland
og Grikkland — einnig um
Júgóslavíu, ítalíu og Frakk-
land.
----0----
Var tilgangur þessa ferða-
lags að kynnast ýmsu, er lýtur
að þjóðfélagslegri þróun, fjöl-
skyldulífi, barnauppeldi og
sókn kvenna til metorða og
mannvirðinga í þjóðfélaginu.
Segir frú Dóra, að þessum
málum hafi fleygt fram í
Tyrklandi og Júgóslavíu, og
konur láti áberandi mikið til
sín taka í ísrael.
Helztu áhugamál frú Dóru
eru bætt fjölskyldulíf og
barnauppeldi og auknir mögu
leikar kvenna á að vinna sig
UPP í þjóðfélaginu. Sjálf veit
frú Dóra af eigin reynslu,
hversu mikils virði það er
fyrir konur að geta rutt sér
braut af eigin rammleik. Hún
giftist ung að aldri, en missti
mann sinn eftir mjög stutta
sambúð. Hann féll í fyrri
heimsstyrjöldinni í Frakk-
landi skömmu áður en vopna-
hlé var samið árið 1918.
----0----
Henni hefur heldur ekki
orðið skotaskuld úr því að
ryðja sér braut í þjóðfélaginu.
Vart mun nokkur vestur-
íslenzkt kona skipa hærri
virðingarsess en frú Dóra, og
hafa þær þó margar látíð að
sér kveða. En hún er senni-
lega ein af þeim fáu vestur-
íslenzku konum, sem eiga
nafn sitt skjalfest í „Hver er
maðurinn?“ í Bandaríkjunum.
Hver kona ætti að reyna að
verða sér úti um almenna
menntun og sérmenntun, ef
mögulegt er, segir frú Dóra.
Hins vegar ætti nokkur hluti
af menntun konunnar að vera
undirbúningur undir hvers
konar heimilisstörf og barna-
uppeldi. Þær eyða flestar of
miklum tíma við þessi störf.
Slíkt nám ætti að vera hluti af
menntun þeirra í framhalds-
skólum.
----0----
Vann frú Dóra að því um
nokkurt skeið að skipuleggja
slíkt nám — bæði í mennta-
málaráðuneyti Washington-
ríkis og síðar við bandaríska
menntamálaráðuneytið. Árið
1939 var hún skipuð prófessor
við uppeldismáladeild New
York-háskólans, og gegndi í
fimm ár stöðu við þessa
mikilvirku menntastofnun.
Hún hefur nú verið prófessor
í hússtjórnar- og hagfræði
við Hunter College í 14 ár.
Fór hún til Japan árið 1948
og vann þar að skipulagningu
hússtjórnarkennslu í fram-
haldsskólum. Frú Dóra stund-
aði nám við háskólann í
Seattle en tók meistarapróf
frá Columbia-háskólanum í
New York. Síðar fékk hún
Rochefeller-styrk og nam þá
við Minnesota-háskólann og
háskólann í Cincinnati.
Hunter College er mikil
menntastofnun og stunda um
10 þúsund nemendur þar nám
á dag- og kvöldnámskeiðum.
— Til skamms tíma stærðum
við okkur af því, að þetta
væri stærsti kvennaskóli
heimsins, en nú getum við það
ekki lengur, þar sem bæði
piltar og stúlkur sækja skól-
ann. Skólinn hefur aðsetur
sitt á tveim stöðum í borginni.
Skólagjöld eru mjög lág, þar
sem skólinn er rekinn á veg-
um New York-ríkis.
----0----
Auk kennslu í hússtjórn og
öllu, er lýtur að heimilishaldi
og barnauppeldi, geta nem-
endurnir búið sig undir
kennslustörf, numið viðskipta
fræði, blaðamennsku o. fl. Ég
álít, að hægt sé að búa konur
undir hússtjórn án þess, að
það verði á kostnað frekari
sérmenntunar, segir frú Dóra.
Hún hefur skrifað fjórar
bækur um heimilislíf, mál-
tíðir á heimilum, klæðnað og
fjölskyldulíf og barnauppeldi.
Eru bækurnar kenndar í
framhaldsskólum víða í Banda
ríkjunum. Voru þær gefnar
út fyrir nokkrum árum, „en
það er svo sem ekki hægt að
hlaupa í að Ijúka slíku af á
milli mála“, segir frú Dóra
brosandi. „Ég hef unnið að
útgáfu þessara bóka síðan árið
1940“.
---0----
Konur hafa ekki enn náð
því marki að fá sömu laun og
karlmenn fyrir sömu vinnu —
en því verður áreiðanlega
kippt í lag með tímanum,
bætir hún við. í Evrópu hitti
ég fjölmargar konur, sem til-
heyra kvennasamtökunum, —-
„Soroptimist International",
en þessi samtök eiga deildir í
27 löndum. Eru þetta samtök
kvenna, er skipa mikilvægar
stöður í hinum ýmsu löndum.
Er frú Dóra formaður í þeirri
deild, er nær yfir norð-austur
ríki Bandaríkjanna.
Að lokinni ferð sinni til
landanna fyrir botni Mið-
jarðarhafs, fór frú Dóra í
skemmtiferð um fjölmörg
lönd Evrópu, England, Skot-
land, Noreg, Svíþjóð, Dán-
mörku, Þýzkaland, Austur-
ríki, Sviss, ítalíu, Frakkland,
Spán, Holland — og loks
hingað. Fór hún í þessa ferð
með starfssystur sinni, sem
var prófessor við Cornell-
háskólann í íþöku í NeW
York-ríki. Kom hún einnig
hingað til íslands með frú
Dóru. G. Si.
—Mbl., 6. okt.
Kaupið Lögberg
VIÐLESNESTA
ÍSLENZKA BLAÐIÐ
KRAFA
Sparnaður, þægindi,
skjólgóð, þessi nær-
föt eru frábærlega
endingargóð, auð-
þvegin til vetrar-
notkunar, gerð úr
merinon-efni. Veita
fullkomna ánægju og
seljast við sann-
gjörnu verði — alveg
sérstök nærfatagæði.
Skyrtur og brækur
eða samstæður handa
mönnum og drengj-
um.
Fraeg
síðon 1868
71-FO-4