Lögberg


Lögberg - 19.01.1956, Qupperneq 5

Lögberg - 19.01.1956, Qupperneq 5
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 19. JANÚAR 1956 5 ■wwwwwww'wwww ÁlitGAHÁL GVtNNA Ritstjón: INGIBJÖRG JÓNSSON Framfarir í málum canadiskra kvenna Fyriræt'Sanir sovéf-stjórnarinnar á Suðurskautslandinu Þriðjudagurinn 10. janúar varður talinn all-sögulegur í framsókn canadiskra kvenna í atvinnulífi landsins og á opinberum vettvangi. Þegar Hon. Vincent Massey lands- stjóri setti sambandsþingið þann dag, tilkynnti hann í ræðu sinni, að stjórnin myndi leggja fyrir þingið frumvarp þess efnid, að konum í þjón- ustu sambandsstjórnarinnar yrði tryggt jafnt kaupgjald á við karlmenn, er leysa af hendi sömu vinnu. Talið er, að 72,0000 konur hagnist af þessari löggjöf, þegar hún nær fram að ganga; 60,000 kvenna hafa þegar náð þess- um réttindum en alls munu 1,270,000 konur stunda at- vinnu utan heimilis í Canada. Mrs. Ellen Fairclough, Con- servative þingkona frá Hamil- ton West, hefir lagt sams kon- ar frumvarp fyrir hvert þing síðan 1953, en árangurslaust þangað til í fyrra, að ellefu Liberal-flokksmenn léðu því fylgi sitt ásamt þremur mót- •stöðuflokkunum. Þessi breyt- ing á afstöðu stjórnarinnar til þessa máls er talinn mikill sigur fyrir Mrs. Fairclough. Flokkurinn, sem fer með völd, felur jafnan, þingmanni, sem hann vill heiðra sérstak- lega, að flytja fyrstu ræðuna, þegar þingið tekur til starfa og svara ræðu landstjórans. I þetta skipti varð kona í fyrsta sinn fyrir valinu, en það var Mrs. Ann Shipley, þingkona frá Temiskaming, Ontario. Hún er ekkja og þriggja barna móðir. Sat lengi í skólaráði Kirkland Lake og bæjarstjórn, áður en hún var kosin á þing árið 1953. Var ræða hennar með ágætum. ☆ ☆ ☆ Alþjóða- smásagnakcppni Árið 1953—1954 efndi stór- blaðið New York Herald Tri- bune til alþjóða-smásagna- keppni. Ritstjóri Eimreiðar- innar var fulltrúi nefndarinn- ar hér á landi. Voru aðeins fjórar sögur valdar úr þeim sögum, sem bárust og sendar í keppnina. Höfundar áttu að hafa dulnefni, en senda um leið sitt rétta nafn og heimilis- fang í lokuðu umslagi. 1 síð- asta hefti Eimreiðarinnar birtist saga eftir Elinborgu Lárusdóttur rithöfund, sem heitir „Ástin er hégómi“. Hún er ein af þeim fjórum, sem sendar voru í keppnina. Eftir úrslitin barst frúnni bréf frá formanni nefndarinnar hjá New York Herald Tribune. f’ór hann fram á að fá rétt til þess að birta söguna í væntan- legu smásögusafni, eins að þýða hana á fleiri eða færri tungumál, flytja hana í útvarp og sjónvarp. — Sagan er nú komin út á fjórum tungumál- um, ensku, grísku, finnsku og flæmsku. — Mun þetta vera í fyrsta og einasta skipti, sem frú Elinborg hefir tekið þátt í samkeppni innan lands og utan, og hefir því í rauninni unnið glæsilegan sigur. —(Kvennablaðið) ☆ ☆ ☆ Hneigingar Þegar Elizabeth drottning II., sem þá var prinsessa, heimsótti Canada fyrir nokkr- um árum ásamt manni sín- um, hertoganum af Edin- burgh, var mikið um það rætt í blöðunum, hvernig þeir, sem yrðu fyrír þeim heiðri að heilsa upp á þau hjónin, ættu að haga sér. Hneigingar og beygingar voru sjálfsagðar, en þær urðu að vera hnit- miðaðar, með vissum hraða, framkvæmdar upp á punkt, ef vel átti að fara. Sagt var frá því, að konur og karlar stæðu fyrir framan spegla klukkutímunum saman að æfa sig í þessari list áður en gengið væri á fund hinna tignu gesta. Oft varð samt þessum hneigingarathöfnum nokkuð ábótavant; karlar sumir hverjir létu sér nægja að kinka kolli nokkuð hvat- skeytslega um leið og þeir tóku í hendur hinna tignu hjóna, og konurnar, sem stóðu verr að vígi, því þær urðu að viðhafa hinar vandasömu kné beygingar, kiknuðu stundum um of í hnésbótunum af hrifningu eða hræðslu, svo við lá að þær yltu um koll, en til allrar hamingju var jafnan þjónn nálægur til að reisa þær upp, ef þess þurfti. Vitanlega liðu allir áhorf- endur mikla önn fyrir þá vesalinga, sem „skandeleruðu“ á þennan hátt, við svo hátíð- leg tækifæri, og kunnu vel að meta þá, er kunnu að hneigja sig eftir listarinnar reglum. Það má því vera íslending- um hvarvetna mikið fagnað- arefni, hve Nóbelsskáldið Halldór Kiljan Laxness kunni vel að hneigja sig, þegar hann tók á móti verðlaununum af Svíakonungi 10. desember, svo sem eftirfarandi frásögn, er birtist í einu dagblaðinu á íslandi, skýrir frá; mun sú meistarahneiging lengi lifa í minnum manna! „Framkoma Laxness var með miklum glæsibrag. Hann Hún seiur þar upp rann- sóknarsiöðvar í sambandi við jarðeðlisfræði árið 1957—'58 FYRIR tæpum þremur misser um tilkynntu Rússar, að þeir hefðu komið tveimur leið- angursflokkum fyrir á ísjök- um í Norður-íshafi. Þ e s s i r leiðangursflokkar höfðu að sjálfsögðu með sér margvísleg rannsóknartæki og annan útbúnað og bárust nú tilkynningar annað veifið um þessa tvo flokka, hvorn á sín- um ísjaka, skýrt frá stöðu þeirra hverju sinni, athugun- um o. s. frv. Annar jalcanna var yfirgefinn í apríl s.l. eftir að hann hafði rekið yfir Norðurheimskautið, og nálg- aðist strendur Grænlands, en samtímis bjó nýr rannsóknar- flokkur um sig á öðrum jaka, og enn eru því tveir flokkar við athuganir, á ísjökum á hinum nyrztu slóðum. En það er ekki aðeins þar nyrðra, sem Rússar láta þann- ig til sín taka, því að í undir- búningi hefir verið mikill leiðangur þeirra til Suður- skautslandanna, og var til- kynnt á sínum tíma, að hann legði af stað í þessum mánuði. Rannsóknir þess leiðangurs verða framkvæmdar, eins og rannsóknir annarra leiðang- ursflokka, sem tilkynningar hafa verið birtar um, brezkra, bandarískra o. fl. sem þáttur í rannsóknaráætlun „Jarð- eðlisfræðiársins 1957—’58“. — Verður því hin vanalega þögn um þetta hnattsvæði rofin hvað líður, og íbúatala þess, sem ekki er nema nokkrar tylftir, eykst svo, að hún verður nokkur hundruð. 12—14 rannsóknarstöðvar Á þessum slóðum verður komið upp 12—14 bækístÖðv- var rólegur og eðlilegur og sýndi miklu meiri heims- mannsbrag en flest annað stórmenni, sem þarna var saman komið. Hann tók hyll- ingu fjöldans með léttum og mjúkum hneigingum, sýndi alvörugefna þátttöku, þegar Island var hyllt, en hlédrægni, þegar hylling fólksins beind- ist að honum sjálfum. Hneiging hans fyrir kon- ungsfjölskyldunni og sam- komugestum var meistara- verk út af fyrir sig, og sýndi óvenjulega háttvísi og glæsi- mennsku. Þegar Gústaf Adolf konungur rétti honum verð- launin, tókst með þeim fjör- legt en lágvært samtal, og handtak þeirra var svo langt og innilegt, að það vakti sér- staka athygli samkomugesta, og þeir voru mjög þakklátir fyrir þennan persónulega blæ, sem brugðið var sem snöggv- ast yfir þessa virðulegu og hefðbundnu samkomu“. um og þaðan farið í rann- sóknaleiðangra í farartækjum, sem ætluð eru til rannsókna- ferða um snæviþakin lönd og ísa, og einnig í flugvélum. Rússar hafa aldrei ' fyrr komið á fót rannsóknastöðv- um á suðurskautsmeginland- inu. Þó hafa þeir lagt leið sína suður þangað, því að þeir sigldu kringum það fyrir 135 árum’ og þótti þeirri hring- siglingu frábærlega stjórnað, en að öðru leyti hefir áhugi þeirra fyrir þessu hnattsvæði ekki komið í ljós fyrr en nú, áð því undanteknu, að þeir hafa sent hvalveiðileiðangra suður þangað. En reynsla þeirra í hinum nyrztu höfum og löndum er hin mikilvægasta og framlag þeirra til rannsókna á suður- skautssvæðinu verður líklega meira en nokkurrar annarar þjóðar, að framlagi Banda- ríkjamanna undanteknu. Og menn efast ekki um, að þeim muni vel takast að notfæra sér þar syðra reynslu frá norðurslóðum. Þrjár rússneskar siöðvar Rússar munu koma sér upp þremur stöðvum. Ein þeirra verður á Knox-ströndinni (milli 102. og 110. gr. austl. 1.), önnur á syðra jarðsegul- skautssvæðinu (geomagnetic pole region), um það bil 1280 km. inni í landi frá stöðinni, á svæði því, sem fjarlægast er ströndinni, og ef til vill álíka langt frá annari stöð- inni sem hún er frá þeirri fyrstu. Það er ekki nema ein ástæða fyrir því, að ekki verð- ur stöð á sjálfu suðurskaut- inu, og hún er, að Bandaríkja- menn höfðu fyrr tilkynnt, að þeir myndu koma sér þar fyrir til rannsókna. Útbúnaður mikill og vandaður Mjög hefir verið vandað til alls undirbúnings. Leiðangurs skipin verða tvö. Annað þeirra er Ob, eitt af þremur flutningaskipum, sem smíðuð voru í Hollandi til flutn- inga meðfram norðurströnd Síberíu, en við smíði þess var lokið í fyrra. Ob getur flutt 6,500 smálestir varnings, og hefir þegar komið í ljós hve traust og vandað það er, því að það hefir farið meðfram allri ströndini gegnum hinn mikla rekís og ísalög, sem þar eru jafnan. Mikill fengur að Ob Rússum er hinn mesti feng- ur að því, að geta haft not af þessu ágæta skipi í leiðangr- inum, og er það viðurkennt af Bretum og Bandaríkjamönn- um og fleiri þjóðum, sem hafa verið að reyna að fá miklu óhentugri skip leigð. Þrátt fyrir þá reynslu, sem fengist hefir af Ob, er verið að útbúa það sérstaklega til suðurskautsleiðangursins. Á >ví verða þyrilvængjur til notkunar á leiðinni og eftir að það er komið á ákvörðun- arstað. Ennfremur verður flogið suður þangað stórum flutningaflugvélum. Þjálfaða hundaflokka hafa Rússar með ferðis og sleða og önnur farar- tæki, sem þeim hafa reynzt bezt á norðurslóðum. Vísindaslofnunin rússneska hefir veg og vanda af leið- angrinum, en höfuðleiðtogi hans verður dr. M. M. Somov, sem þegar fyrir mörgum árum var frægur orðinn fyrir rannsóknir sínar á suðurhveli jarðar. Næstur honum verður V. G. Kort, heimskunnur haffræð- ingur. Hve margir leiðangurs- menn verða er ekki kunnugt. Vísindarannsóknir hinna rúss nesku leiðangursmanna verða samræmdar rannsóknum vís- indamanna frá öðrum þjóð- um, sem eru þátttakendur í framkvæmd rannsóknaáætl- unar Jarðeðlisfræðiársins, en þar er til grundvallar lagt að sams konar rannsóknir verði gerðar samtímis á ýmsum stöðum. Rannsóknarefni Rússa eru m. a. á sviði veðurat- hugana (einkanlega í háloft- unum), jarðsegulrannsókna, ionósferunnar, geimgeisla o. s. frv. Ennfremur verða gerðar athuganir á ísalögum, og haf- fræðilegar athuganir frá skipi, sem sérstaklega er til þess búið. Að undirbúningnum hafa starfað margar, kunnar vísindastofnanir í Ráðstjórnar ríkjunum, m. a. Norðuríshafs rannsóknarstofnunin í Lenin- grad. Alþjóðarannsóknir og háttvísi Þótt það sé skortur á hátt- vísi að tala um „pólitík“ í sömu andránni og rætt er um alþjóðlegt, vísindalegt sam- starf, verður ekki komist hjá að minnast á, að það er sorg- legur nútímasannleikur, að á suðurskautssvæðinu áformar enginn neitt og framkvæmir ekkert algerlega án tillits til eigin hagsmuna. Með nútíma- tækni kann að verða gerlegt að hagnýta sér hin snævi og ísiþöktu auðnarlönd þar syðra, og keppnin um þessi lönd er þegar hafin. Þegar hefir verið gert tilkall til mikils hluta suðurskauts landsins, aðallega af brezkum samveldislöndum. Með fyrir- huguðum leiðangri fá Rússar átyllu, sem þeir höfðu mikla þörf fyrir, til þess að gera kröfu um þátttöku í hvers konar stjórnmálasamkomu- lagi, sem ef til vill — eða ef til vill ekki — kann að verða gert til lausnar á þessum vanda. —(Úr The Economist) —VÍSIR, 25. nóv.

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.