Lögberg - 30.08.1956, Side 1
SAVE MONEYl
11S6
LALLEMAND
quick rising
DRY YEAST
In Vt Lb. Tlns
Makes the Flnest Bread
Available at Your Favorite
Grocer
SAVE MONEYl
US6
LALLEMAND
quick rising
dry yeast
In Vi Lb. Tlns
Makes the Finest Bread
Available at Your Favorite
Grocer
69. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 30. ÁGÚST 1956
NÚMER 35
Fréttir frá GimÍi, 27. agúst, 1956
Mr. og Mrs. Harold Bjarna-
son og Dr. og Mrs. F. E.
Scribner tóku höndum saman
°g höfðu veizlu á hinu fallega
nÝja heimili Bjarnason’s hjón-
0nna, s.l. mánudagskveld til
þess að gefa fólki tækifæri
að mæta hinum góðu gestum,
séra B. A. Bjarnason og frú
Ölmu, sem hafa verið síðast-
liðin sex ár í Bandaríkjunum,
°g eru nú búsett í Green Leaf,
Kansas. Skemmt var með því
að sýna myndir og ryfja upp
liðin samveruár. Svo var farið
að hljóðfærinu og sungið vel
°g lengi. Það voru um þrjátíu
°g fimm gestir. Veitingar voru
nnjög rausnarlegar.
----0----
Daníel Peterson og Mrs.
Inga Storm voru gefin saman
1 hjónaband 17. þ. m. kl. hálf
tvö í'Lútersku kirkjunni á
Gimli. Séra Bragi Friðriksson
gifti. Sveinn A. Sveinsson á
Betel, stóð upp með brúð-
gumanum, Mrs. Ingibjörg
Sveinsson var brúðarmey.
Mrs. Helgi Stevens var við
hljóðfærið. — Að afstaðinni
hjónavígslunni var farið í
neðri sal kirkjunnar, og þar
var dúkað borð og falleg
brúðarkaka ásamt góðum veit-
ingum. Tíu manns sat veizl-
una. Nýgiftu hjónin fóru
strax til Winnipeg í heim-
sókn til skyldfólks þeirra. —
Börn Mr. Peterson höfðu
kveldverð og veizlu fyrir þau
a heimili Thorvaldar sonar
hans og tengdadóttur að 173
Bourkevale, St. James. Mr. og
Mrs. Peterson komu heim til
Betel s.l. þriðjudag, og var
tekið á móti þeim með söng
og lukkuóskum. Þau dvelja á
Betel framvegis.
----0----
Endurkjörnir tt’il flokksforustu
Mr. Valdi B. Árnason og
Mr. Kjartan Geirhólm voru
endurkosnir í bæjarráðið á
Gimli.
----0----
Mrs. Sigríður Ólafsson frá
Plenty, Sask., kom til Gimli
fimmta þ. m. og dvaldi hér
tíu daga hjá Mr. og Mrs. I. N.
Bjarnason, heimsótti hún
marga forna vini. — Hún er
ekkja Jóns Ólafssonar kaup-
manns í Leslie.
Mrs. Kristín Thorsteinsson
Fimmtugur
Valdimar Bjornson
1 gær átti Valdimar Bjorn
son blaðamaður í Minneapolis
fimmtugsafmæli, einn hinn
mælskasti Vestur-íslendingur,
sem nú er uppi, kunnur að
höfðingslund og andlegri
sðalsmensku.
:rú Guðrún Harold
ótin
Þann 24. apríl síðastliðinn
lézt frú Guðrún Hannesdóttir
Harold í Hanover, New
Hampshire, en þar hafði hún
átt heima hjá dóttur sinni
Fredu í síðastliðin 26 ár, og
•ar var hún lögð til hvíldar
íinn 27. apríl. Guðrún heitin
var á þriðja árinu yfir nírætt,
^egar kallið kom, og var ern
fram á síðustu ár. Hún var
dóttir séra Hannesar Þor-
varðssonar og Hólmfríðar,
dóttur Jóns stjórnfræðings
Bjarnasonar. Hún fluttist
vestur um haf árið 1884 og
giftist Páli Guðmundssyni
sama ár og settust þau að 1
Parry Sound, Ont. Guðrún
misti mann sinn ungan frá
tveim börnum, Fredu og
Hannesi. Jón og Ingibjörg
Pálmason ólu upp drenginn
og gáfu honum sitt nafn, en
mæðgurnar fylgdust ávalt að.
Börn Guðrúnar náðu hárri
menntun; Freda brautskráðist
frá Wesley College í nútíðar
tungumálum 1908 og hlaut
hæstu verðlaun háskólans,
kenndi um langt skeið við
Mosse Jaw Collegiate og hlaut
þar $1200.00 War Memorial
Scholarship til áframhálds
ixáms í tungumálum á Frakk-
landi. Hannes Jón Harolc
Pálmason er hinn alkunni
Chartered Accountant. Auk
þeirra lætur Guðrún heitin
eftir sig þrjú sonarbörn, Jack
og Einar, báðir útskrifaðir í
Engineering, og Carol, gift A.
S. Kristjánssyni lögmanni. —
Guðrún Harold var móður-
systir W. J. Lindal dómara og
þeirra kunnu Líndalssystkina.
DWIGHT D. EISEHHOWER
Á mánudaginn hinn 20.
m., hófst framboðsþing
Republicana til undirbúnings
forsetakosningunum í haust,
ef segja mætti að um undir-
óúning hefði verið að ræða,
iví það komu víst flestir er-
indrekar með það á vitund, að
aeir Eisenhower og Nixon
yrði útnefndir gagnsóknar-
aust og sú varð raunin á; and-
staða Harolds Stassen gegn
Nixon hjaðnaði eins og vind-
bóla, enda var auðsjáanlega
alt þannig í pottinn búið, að
allir segðu skilyrðislaust já og
amen við útnefningu hinna
RICHARD M. NIXON
áminstu forkólfa; stefnuskrá
in hafði víst líka verið samin
áður en á þingið kom til að
létta ögn undir með þreyttum
og sveittum jábræðrum utan
af landsbygðinni; tiltölulega
var þar fátt eitt mælt um kyn-
þáttaskiptinguna, eða sam-
búðina milli hinna blökku og
hvítu frá réttarfarslegu sjón
armiði séð, en á hinn bóginn
gylt í alla enda velmegunin,
sem ríkja ætti í landinu og
bændum heitið meira af gulli
og grænni og umfangsmeiri
skógum.
Merkur tungumóla-
fræðingur lótinn
Þann 2. þessa mánaðar lézt
í Washington, D.C., John
Wesley Perkins, 69 ára að
aldri. Hann kunni 26 tungu-
mál, sem hann hafði lært að
mestu tilsagnarlaust, þar á
meðal íslenzku. Hann var svo
fimur þýðari, að hann þýddi
við fyrstu sýn marga greinar-
kafla á ensku, er jafnvel voru
torskildir þeim er áttu tung-
una að móðurmáli. Hann var
yfirmaður tungumáladeildar
stjórnarinnar í Washington og
einnig Sameinuðu þjóðanna,
og var því jafnan viðstaddur
á ráðstefnum þjóðhöfðingja
stærri þjóðanna (Big Four).
Daginn áður en hann átti að
leggja af stað til Geneva með
Dwight Eisenhower í fyrra,
veiktist hann af slagi, og sagði
af sér embættinu nokkru
síðar.
John W. Perkins var
kvæntur íslenzkri konu, —
Mekkin Perkins, — og lifir
hún mann sinn. Hún er einnig
skjalaþýðari hjá stjórninni, og
er einnig kunn fyrir ágætar
þýðingar úr íslenzkum bók-
menntum á enska tungu.
Haraldur prófessor
kominn
Hingað kom til borgarinnar
síðastliðinn laugardag hinn
nýskipaði prófessor við ís-
lenzkudeild Manitobaháskól-
ans, Haraldur Bessason, ásamt
frú sinni, tveimur kornungum
dætrum og tengdamóður
sinni; í för með þeim var
Ólína Sigurgeirsdóttir ættuð
úr Köldukinn í Suður-Þing-
eyjarsýslu; er hún systur-
dóttir Mrs. S. Sveinsson 351
Riverton Avenue hér í borg.
Vegna þess hve prófessor
Haraldur hefir verið önnum
hlaðinn við að koma sér fyrir,
hefir Lögberg ekki átt þess
kost að eiga við hann viðtal
að nokkru ráði, en væntir
þess að geta birt mynd af
honum í næstu viku og sagt
frá ætterni hans og námsferli.
Þeir Dr. Valdimar J. Ey
lands forseti Þjóðræknis-
félagsins, Grettir L. Johann
son ræðismaður og Einar P.
Jónsson ritstjóri, komu til
fundar við prófessorsfjöl
skylduna á flugvellinum.
Lögberg býður þessa góðu
gesti innilega velkomna í ís-
lenzka mannfélagið hér um
slóðir og væntir þess að það
finni sig brátt heima.
Fimm þjóða ncfnd
Á Lundúnafundinum, sem
fjallaði um þann vanda, sem
skapast hefði vegna þjóðnýt-
ingar Egypta á Suezskurðin-
um, var kjörin fimm þjóða
nefnd til að vitja á fund
Nassers einvaldsherra í því
augnamiði, að leita úrlausnar
málsins. Formaður nefndar-
innar er Robert Menzies for
sætisráðherra Ástralíu. Nasser
hefir gengist inn á að veita
nefndinni áheyrn, en jafn-
framt gefið í skyn, að litlar
líkur séu á að henni verði að
nokkru ráði ágengt.
Nefndin mælir með því, að
áminst siglingaleið verði und-
ir alþjóða eftirliti, en Egypt-
um verði trygður bróðurhlut-
inn af þeim tekjum, sem
skurðurinn gefi af sér.
Nasser heldur því fram, að
hér sé um sérmál að ræða, er
Egyptum einum beri að ráða
fram úr.
Tuttugu og tvær þjóðir sátu
áminnstan Lundúnafund, og
voru átján þeirra á einu máli
um það, að hin eina viturlega
úrlausn málsins væri sú að
tryggja alþjóða eftirlit með
siglingum um skurðinn til að
útiloka hlutdrægni eða mis-
rétti.
Fjórveiting til
sjúkrahúss
Rétt áður en sambandsþingi
sleit kunngerði heilbrigðis-
málaráðherrann, Mr. Martin,
að stjórnin hefði veitt $359,900
fjárveitingu til byggingar
nýrrar álmu við Almenna
sjúkrahúsið í Winnipeg, og
kemur víst öllum saman um
það, að mál þetta þyldi ekki
lengri bið; nú hefir Campbell
stjórnin ákveðið að leggja
fram hliðstæða upphæð, og
má því víst telja, að tekið
verði til óspiltra málanna
varðandi framkvæmdir við
byggingu hinnar nýju álmu.
Þingrof í
British Columbia
Forsætisráðherrann í British
Columbia, Mr. Bennett, hefir
leyst upp fylkisþing og efnt
til nýrra kosninga hinn 19.
september næstkomandi. Mr.
Bennett veitir forustu svo-
kallaðri Social Cretdit stjórn,
og mun nokkurn veginn mega
víst telja, að hún vinni endur-
kosningu jafnvel þó hún verð-
skuldi það ekki, því andstöðu-
flokkarnir þrír C.C.F., Ihalds-
menn og Liberalar, eru í ótal
brotum og mega sín þar af
leiðandi ekki mikils.