Lögberg - 30.08.1956, Blaðsíða 8
8
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 30. ÁGÚST 1956
Úr borg og bygð
Fyrripart vikunnar, sem
leið, kom úr íslandsför frú
Helga Pálsdóttir kona
Björns Sigurbjörnssonar há-
skólastúdents; þau hjónin
brugðu sér í stutta heimsókn
til íslands, en Björn kom
vestur á undan, og flutti eins
og vitað er ræðu á íslendinga-
deginum á Gimli.
☆
Mr. Albert Goodman full-
trúi við ameríska sendiráðið í
Reykjavík, er fyrir skömmu
kominn hingað til borgarinnar
sunnan úr Bandaríkjum þar
sem hann dvaldi um hríð;
hann heimsótti þessa borg
fyrir rúmu ári, og nú ráðgerir
hann að dvelja hér fram um
miðjan septembermánuð og
nýtur gistivináttu systur sinn-
ar og tengdabróður síns,
þeirra Mr. og Mrs. Steindór
Jakobsson 800 Banning Street.
☆
Dr. Sveinn E. Björnsson er
nýlega farinn norður til Ár-
borgar og stundar þar lækn-
ingar um hríð; hann var árum
saman héraðslæknir þar
nyrðra, og er því í rauninni
kominn til heimabygðar sinn-
ar, sem honum hefir löngum
verið kær.
☆
— DÁNARFREGN —
Mrs. Sleinunn Loptson, 94
ára að aldri dó á Dvalarheim-
ilinu Höfn í Vancouver á
þriðjudaginn 14. ágúst. Hún
bjó í Campbell River áður en
hún fluttist til Vancouver
1947. Hún lætur eftir sig tvo
sonu, Ásmund fylkisþing-
mann í Saltcoats, Sask., og
Vilmund í Regina; átta dætur:
Mrs. Gertrude Essex, Van-
couver; Mrs. Daisy Morris og
Miss Olivia Brown í Cali-
fornia; Mrs. Sigríður Gunn-
arsson að Campbell River;
Mrs. Kristín Pritchard, Prince
Rupert; Mrs. McQueen, Ed-
monton; Mrs. Margret Mc-
Leod og Mrs. Guðlaug Sveins-
son, báðar í Saskatchewan;
ennfremur eina systir Mrs.
Rúnu Erlendsson í Vancouver.
Ættleggur Steinunnar heit-
innar er orðinn afar stór, af-
komendurnir 99 að tölu. Séra
Eiríkur S. Brynjólfsson flutti
kveðjumál; hún var lögð til
hinztu hvíldar að Campbell
River.
☆
— DÁNARFREGN —
Hinn 22. þ. m., lézt á St.
Lukes sjúkrahúsinu í Chicago,
111., Halldór Guðjón Finnsson,
fæddur í grend við Church-
bridge, Sask., 8. desember
1919. Þar ólst hann upp til
ellefu ára aldurs unz hann
fluttist með foreldrum sínum
til Winnipeg; skólamentun
sína hlaut hann í Winnipeg og
við Toledo-háskólann í Toledo,
Ohio. Hann flutti til Chicago
1946 og varð þar starfsmaður
við Palmer House Hotel.
Árið 1944 kvæntist Halldór
Maxine Bachanan, er lifir
mann sinn ásamt tveggja ára
syni, Jeffrey að nafni; einnig
er á lífi móðir har)s, frú Anna
Finnsson. Faðir hans, Kam-
binus, lézt árið 1950. Einnig
syrgir hann ein systir, Mrs.
Vernon R. Jones, Chicago, svo
og frænkur, Mrs. S. Einarsson
og Mrs. Jónína Johnson, báðar
í Regina, Mrs. S. Anderson,
Yorkton, Sask., og Mrs.
J. Thorsteinsson, Tantallon,
Sask.
Útförin var gerð í Chicago á
laugardaginn hinn 25. þ. m.
— BRÚÐKAUP —
Laugardaginn, hinn 18. þ.m.
kl. 4 e. h. fór fram gifting í
St. George’s kirkjunni í
Woodlands, Man., er Grace
•Ólöf Sigríður einkadóttir
þeirra hjóna Dr. Núma
Hjálmarssonar og frúar hans
Sigríðar Stefánsdóttur, gekk
að eiga Raymond William
Brauchamp. — Hjónavígsluna
framkvæmdi séra B. S. Mont-
gomery frá Winnipeg.
Að hjónavígslunni afstað-
inni var öllum viðstöddum
boðið til kvöldverðar í sam-
komuhúsi bæjarins, þar sem
fram voru bornir ljúffengir
réttir af kvenfélagi staðarins.
Nými læknir flutti dóttur
sinni heillaóskir í bundnu
máli (ensku) og var gerður að
því góður rómur, enda er
lækninum létt um að skeiða
á túni Braga.
Að lokinni máltíðinni
skemti fólk sér við samræður;
bændur töluðu um uppskeru-
horfur og heyskap, en yngra
fólkið ræddi um það sín á
milli hver myndi nú verða
næstur eða næst að ganga í
hið heilaga hjónaband.
Brúðurin hlaut feyknin öll
af brúðargjöfum, svo sjaldan
hefur sést annað eins, og er
það ljós vottur um vinfengi
brúðurinnar og foreldra
hennar.
Klukkan 7 e. h. fór fólkði að
týgja sig til heimferðar. Allir
virtust glaðir og ánægðir yfir
að hafa notið glaðrar stundar.
—Viðstaddur
☆
Mrs. Guðmundur Sigvalda-
son frá Árborg var stödd í
borginni á fimmtudaginn í
vikunni, sem leið.
☆
Miss Fríða Harold frá
Hannover, New Hampshire,
hefir dvalið í borginni nokkra
undanfarna daga. Miss Harold
sem er útskrifuð af háskóla
Manitobafylkis gegnir bóka-
varðarembætti við háskóla-
bókasafnið í New Hampshire
og starfaði um allmörg ár
fyrir Dr. Vilhjálm Stefánsson;
hún er systir Hannesar Pálma
sonar endurskoðanda og á
margt annað skyldmenna hér
í borg svo sem W. J. Lindal
dómara.
☆
Þjóðræknisdeildin FRÓN
tilkynnir hér með að bóka-
safn deildarinnar verður opn-
að til útlána miðvikudaginn 5.
september á vanalegum tíma,
sem er kl. 9.30 f. h. og 6.30 til
8.30 e. h. hvern miðvikudag.
Fólk er vinsamlega beðið að
veita athygli bókalista yfir
nýjar bækur, sem prentaður
er á öðrum stað í þessu blaði.
Einnig má geta þess að yfir
100 aðrar nýjar bækur hafa
bætzt í safnið, sem ekki eru
birtar á þessum lista. Komið,
sjáið og lesið skemmtilegar
bækur.
Fyrir hönd deildarinnar
FRÓN,
J. Johnson. bókavörður
MESSUBOÐ
Fyrsta lúterska kirkja
Sr. V. J. Eylands, Dr. Theol.
Heimili 686 Banning Street.
Sími SUnset 3-0744.
Sunnudaginn 2. september:
Ensk messa kl. 7 síðdegis.
☆
ST. STEPHEN'S
LUTHERAN CHURCH
— Silver Heighls —
Eric H. Sigmar, Pastor
Sunday, September 2nd:
Family Service 11 A.M.
☆
Lúierska kirkjan í Selkirk
Sunnud. 2. sept:
Ensk messa kl. 11 árd.
íslenzk messa kl. 7 síðd.
Fólk boðið velkomið.
S. Ólafsson
Gefin saman í hjónaband af
séra Sigurði Ólafssyni að
prestssetrinu í Selkirk þann
25. ágúst:
John Barry Young, Selkirk,
Man., og Maria Margaretha
Meddous, sama staðar. — Við
giftinguna aðstoðuðu Mr. og
Mrs. Eric ísfeld. Nokkrir ætt-
ingjar og vinir voru við-
staddir athöfnina.
☆
Til kaupenda Lögbergs
Síðan áskrifendum voru
send bréf til að minna þá á,
að borga Lögberg hafa á-
skriftagjöldin borist jafnt og
þétt inn á skrifstofu blaðsins,
og fleiri munu á leiðinni. —•
Kærar þakkir, — og ekki
síður fyrir hin mörgu hlýju
orð í garð Lögbergs.
Athugið nafnmiðann á blað-
inu. Um leið og áskrifta-
gjaldið er móttekið, er ártal-
inu breytt; það er kvittun til
kaupandans.
☆
Vilhjálmur Einarsson frá
Laufási á Egilsstöðum, Islandi,
brautskráðist í vor með
Bachelor of Arts stigi og
ágætiseinkunn frá hinum
fræga háskóla, Dartmouth
College, Hanover, New Hamp-
shire. Svo sem kunnugt er, fá
ekki aðrir inngöngu í þann
háskóla en hinir beztu náms-
menn. — Vilhjálmur var út-
skrifaður úr Menntaskóla
Akureyrar og hlaut Scholar-
ship til að stunda nám við
Dartmouth College.
☆
— TIL SÖLU —
Ný íslenzk ferðaritvél; verð
$65.00. Lögberg vísar á.
Til kaupenda Lögbergs
á Gimli og í grendinni
Vegna annríkis getur Mrs.
I. N. Bjarnason ekki lengur
sinnt innheimtu fyrir Lög-
berg á Gimli og í grendinni.
Hafi hún beztu þökk fyrir
ágætt starf á umliðnum árum.
Mrs. Kristín Thorsteinsson,
74 — First Ave., Gimli, er nú
innheimtumaður blaðsins á
Gimli, Betel, Húsavík og
Winnipeg Beach. Þeir, sem
skulda blaðinu eða vilja ger-
ast kaupendur þess, eru vin-
samlega beðnir að snúa sér
til hennar.
☆
Dr. Helgi Johnson prófessor
í jarðfræði við Ruthger-há-
skólann í New Jersey, hefir
dvalið í borginni undanfarinn
vikutíma ásamt frú sinni í
heimsókn til föður síns Gísla
Jdhnson ritstjóra, systra sinna
og annarra ættmenna og vina.
Þau Dr. Helgi og frú halda
heimleiðis í dag.
☆
Hingað kom til borgar um
síðustu helgi frú Sólrún Þóra
Kristjánsdóttir frá Hafnar-
firði; hún hefir dvalið nálega
árlangt hjá dóttur sinni og
tengdasyni að Long Island,
New York, og er nú senn á
förum heim til íslands. Frú
Sólrún er systurdóttir frú
Kristrúnar Thorgeirson hér í
borg og á hér margt annað
náinna skyldmenna.
☆
Mr. Skúli Benjamínsson
trésmíðameistari er nýkominn
heim úr íslandsför ásamt frú
sinni; höfðu þau ósegjanlega
ánægju af heimsókninni.
☆
A meeting of the Jon Sig-
urdson Chapter I.O.D.E. will
be held in the University
Women’s Club 54 West Gate,
on Friday Sept. 7, at 8 o’clock.
☆
Bók til sölu
Ég hefi nokkur eintök af
bókinni minni IN DAYS
GONE BY til sölu. Bókin er
gefin út af Stockwells á Eng-
landi. — Verð $1.60 með póst-
gjaldi. Box 106, Leslie, Sask.
Rannveig K. G. Sigbjörnsson
Ritstjóri kímniblaðs í Ame-
ríku kvartaði mjög undan því
við Cecil B. de Mille, að hann
hefði engan frið fyrir að-
sendu „gríni“ og skopsögum-
„Það er aumt,“ sagði Cecil
B. de Mille, „að þér skulið
aldrei hafa getað birt þær.“
☆
Margir muna eftir hinni
gömlu, mexíkönsku hetju
þöglu kvikmyndanna, Ramon
Novarro, hinum mikla töfrara
á hvíta léreftinu og hafa ef
til vill brotið heilann um það,
hvað af honum hafi orðið,
þegar þöglu myndirnar hurfu
úr umferð. En hann er ekki
alveg dauður.
Nýlega var hann staddur i
París og hélt sig þar mjÖg
ríkmannlega* Hann er nú einn
af stærstu kvikmyndafram-
leiðendum Mexicoborgar.