Lögberg - 27.09.1956, Page 1
SAVE MONEY!
use
LALLEMAND
quick rising
DRY YEAST
In Ya Lb. Tins
Makes the Finest Bread
Available at Your Favorite
Grocer
SAVE MONEYI
use
LALLEMAND
quick rising
DRY YEAST
In Vi Lb. Tins
Makes the Finest Bread
Available at Your Favorite
Grocer
69. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 27. SEPTEMBER 1956
NÚMER 39
Social Credit’ vinnur frægan sigur
í British Columbia
Á fimtudaginn hinn 19.
þ-ni., fóru fram almennar
kosningar til fylkisþingsins í
^ritish Columbia og lauk
þeim með glæsilegum sigri
fyrir Social Credit stjórnina
undir forsæti W. A. C.
Bennetts; vann flokkur hans
39 þingsæti af 52. C.C.F.-sinn-
ar fengu 10, Liberalar 2, en
óháðir verkamenn 1. Stjórnin
græddi 10 þingsæti. íhalds-
Oienn fengu engan þingmann
kosinn, og það gerðu komm-
únistar ekki heldur. Foringjar
Liberala, íhaldsmanna og
Kommúnista féllu allir í val.
Svo sem nærri má geta ríkti
fnikill fögnuður í herbúðum
Social Credit fylkingarinnar,
er úrslitin urðu heyrinkunn,
°g lýsti Bennett forsætisráð-
herra þá brátt yfir því, að í
næstu sambandskosningum
^yndi flokkur sinn útnefna
þingmannsefni í öllum kjör-
ó*mum fylkisins.
Laetur af
Hokksforustu
Hon. George Drew
tíðindi gerðust í lok
^yrri viku, að Hon. George
Prew, foringi íhaldsflokksins
' þessu landi lýsti yfir því, að
Vegna heilsubilunar treystist
hann eigi lengur til að hafa
Lokksforustuna með höndum
°g verður flokkurinn þar af
^iðandi að kveðja til flokks-
Þings áður én reglubundið
Sarnbandsþing kemur saman,
Sennilega snemma á öndverð-
Urfi næsta vetri, til þess að
Velja nýjan foringja; með
Mf. Drew hverfur af vett-
Vangi opinberra mála mikil-
aafur og glæsilegur stjórn-
‘nálaleiðtogi, sem mikið hefir
Veðið að á þingi.
Um eftirmann Mr. Drews á
Þessu stigi málsins, skal ekk-
ert fullyrt, þó líklegt þyki að
vesturlandið hallist ^ð John
• Diefenbaker.
Jóhann G. Jóhannsson
sjötugur
Síðastliðinn föstudag komu
saman í Marlborough hótelinu
allmargir vinir Jóhanns G.
Jóhannssonar prófessors í til-
efni af sjötugsafmæli hans og
var þar, svo sem vænta mátti,
glatt á hjalla; að undirbúningi
þessa samkvæmis hafði unnið
manna mest Mr. Oliver
Björnson fésýslumaður. Sam-
kennarar afmælisbarnsins við
Daniel Mclntyre skólann
fluttu ræður, en orð fyrir
gestum af hálfu íslendinga
hafði W. J. Lindal dómari, er
afhenti heiðursgestinum fyrir
hönd viðstaddra vina dálitla
minjagjöf, en auk hans flutti
Dr. S. O. Thompson þing-
maður Gimli kjördæmis stutta
ræðu; afmælisbarnið þakkaði
með stuttri og laggóðri tölu
þann vinarhug, er samsætið
bæri vott um, ásamt gjöfinnþ
og kvaðst hvorstveggja lang-
minnugur verða.
Jóhann G. Jóhannsson er
góður félagsmaður; hann er
líka mikill lærdómsmaður, er
fyrir löngu hefir vakið orð á
sér fyrir stærðfræðilega
þekkingu.
Úr bréfi fró Tyner,
Saskatchewan
5. SEPTEMBER
Það má ekki minna vera,
en ég sendi Lögbergi nokkur
þakkarorð — ásamt $10.00
greiðslu fyrir blaðið. Ég þakka
þér, Einar Páll, IngibjörgU
konu þþini og Þór Víking
hjartanlega fyrir blaðið ásamt
þeim öðrum, er að útgáfu
þess standa; ég, sem er langt
í burtu frá íslendingum finn
e. t. v. ljósar til þess hvers
virði það er að fá fréttir af
fólki okkar hingað, þó stund-
um komi tár í augu mín, er
sagt er frá láti gamalla og
góðra vina. Margt er fallegt
á síðum blaðsins, gaman af
fregnum af því, sem landar
okkar hér aðhafast og kær-
komnar eru fréttirnar heiman
af ættjörðinni.
Uppskeruhorfur hér um
slóðir eru í ,góðu meðallagi, en
frost hafa lækkað gæði hveit-
is og hörs að talsverðu leyti;
að undanförnu hafa verið
sólarlitlir dagar, en þó er
“combining” í algleymingi.
Með alúðarkveðju,
Krisíinn Oddson
Merkur maður fallinn í val
Þrjótíu óra
st-arfsafmæli
Daniel S. Olafson
Þann fjórða þessa mánaðar
söfnuðust saman vinir og
samstarfsmenn Daniels S.
Ólafssonar til að samfagna og
árna honum heilla í tilefni
þess, að hann hafði þá verið
30 ár samfelt í þjónustu Com-
monwealth Edisons félagsins
í Chicago.
Mr. Ólafsson var fæddur og
uppalinn að Skógarnesi,
Hecla, Man. Þótt heimili hans
væri sjö mílur frá skóla eyj-
arinnar, naut hann þar þó
náms í nokkur ár og stundaði
síðan fiskiveiðar og aðra at-
vinnu, er þar gafst. En hugur
hins unga manns stefndi hátt;
hann lagði leið sína til Chi-
cago til að leita sér fjár og
frama, og vann þar um skeið
á verkstæði Dr. Hjartar
Thordarson, hins merka raf-
fræðings, en gekk síðan í
þjónustu ofangreinds félags.
Samtímis stundaði Daniel á
þessum árum nám í rafmagns-
fræði í kveldskóla, þar til
hann lauk námi sem Profes-
sional Electrical Engineer og
tilheyrir nú A.I.E.E.. Jafn-
framt voru honum falin æ
ábyrgðarmeiri störf hjá fé-
laginu. Þannig ruddi þessi
ungi maður sér braut bæði á
mennta- og atvinnusviðinu,
með lítið veganesti og af eigin
rammleik, og má það heita
fágætt afrek.
Daniel og kona hans
Eleanor eiga silfurbrúðkaup
31. október. Þau búa að 2927—
77th Avenue, Elmwood Park
35, Illinois. — Hinir mörgu
vinir þeirra munu á þeim
tímamótum samfagna þeim;
þau eiga tvo sonu, Robert í
þjónustu Bandaríkja sjóhers-
ins í Guam og Dale, sem
stundar nám við miðskólann í
Elmwood Park.
Það hljóðnaði yfir íslenzka
mannfélaginu hér um slóðir á
miðvikudaginn í fyrri viku, er
sú frétt barst út um bæinn, að
þá væri nýlátinn á Deer
Lodge sjúkrahúsinu Kristján
Halldórsson, venjulega nefnd-
ur Chris, þingmaður St.
George kjördæmis í fylkis-
þinginu í Manitoba, 65 ára að
aldri, því þótt vitað væri að
hann hefði eigi gengið heill
til skógar nokkur síðustu árin,
hugðu vinir hans og sam-
ferðamenn honum lengra líf
fyrir höndum, en raun varð á.
Chris var þrívegis kosinn á
þing, í eitt skiptið gagnsókn-
arlaust, og var slíkt talandi
vottur þess trausts, er hann
naut; hann var skyldurækinn
þegnskaparmaður, er jafnan
lét gott eitt af sér leiða; hann
var gæfumaður, kvæntur úr-
valskonu, Guðlaugu, og þau
eignuðust tvö mannvænleg
börn, Roy Oscar og Doris
Guðrúnu.
Hinn látni þingmaður var
fæddur að Lundar, sonur
hinna valinkunnu sæmdar-
hjóna Halldórs Halldórssonar
og hinnar gjörfulegu frúar
hans; glæsileg og fjölsótt
minningarathöfn um Chris
var haldin í Fyrstu lútersku
kirkju á föstudaginn undir
Kvöldskemtun sú, eða
kynningarkvöld, er Þjóð-
ræknisdeildin Frón í samráði
•við stjórnarnefnd Þjóðræknis-
félagsins efndi til í Sambands-
kirkjunni hér í borg á mánu-
dagskvöldið, var með ágætum
sótt og tókst um alt hið bezta;
forseti Fróns, Mr. Jón Jóns-
son, flutti nokkur inngangs-
orð og stjórnaði samkomunni.
Veigamesta atriði skemti-
skrárinnar var ferðasaga
Björns Sigurbjörnssonar frá
íslandi í sumar, ásamt fögrum
og fræðandi litmyndum; á-
nægjuefni var það mikið, að
hlusta á þau Mrs. Barry Day
{Lilju Eylands), og Erling
Eggertson lögfræðing, sýngja
mörg og fögur lög á íslenzku,
er ber því fagurt vitni hvern
hljómgrunn íslenzk tunga enn
á í hjörtum yngri kynslóðar-
innar.
Dr. Valdimar J. Eylands
kynnti samkomugestum hinn
nýja prófessor við íslenzku-
deild Manitobaháskólann, —
Harald Bessason, er flutti
faguryrt og hlýlegt ávarp í
garð Vestur-íslendinga; er
prófessorinn stakt prúðmenni
og mikill gáfumaður.
Chris Halldórsson, M.L.A.
forustu Dr. Valdimars J. Ey-
lands, en útförin fór fram á
Lundar daginn eftir, þar sem
Dr. Valdimar einnig flutti
kveðjumál; staðhæft er að um
600 manns hafi verið við út-
förina, sem verið mun hin
fjölmennasta í sögu bygðanna
við Manitobavatn.
Chris lætur eftir sig tvö
systkini, Salome, fyrrum
M.L.A., og Magnús.
Vonandi verður þessa ágæta
manns frekar minst áður en
langt um líður.
Séra Bragi Friðriksson, sem
gegnt hafði um hríð prests-
embætti í Lundarbygðum og
að Gimli, ávarpaði samkom-
una nokkrum hlýyrðum með
þakklæti til samstarfsmanna
sinna vestan hafs, en hann
lagði af stað ásamt fjölskyldu
sinni alfari til íslands daginn
eftir.
Að lokinni skemtiskrá sýndi
Kvenfélag Sambandssafnaðar
af sér þá miklu rausn, að
bjóða hinum mikla mann-
fjölda til kaffidrykkju í sam-
komusal kirkjunnar.
Heimsækir ísland
Hinn mikilsmetni utanríkis-
ráðherra canadisku þjóðar-
innar, Lester B. Pearson, kom
til Reykjavíkur á mánudag-
inn og gisti landið fram á
þriðjudag; lét canadiska út-
varpið þess getið, að Mr.
Pearson myndi eiga viðræður
við forseta íslands, og senni-
lega ráðuneytið, fyrripart
þriðjudagsins.
Til Reykjavíkur kom Mr.
Pearson af Nato-fundi í París.
Fjölsótf og ónægjuleg samkoma