Lögberg - 31.01.1957, Page 1
SAVE MONEYl
use
LALLEMAND
quick rising
dry yeast
In y4 Lb. Tlns
Makes the Finest Bread
Avallable at Your Favorite
Grocer
SAVE MONEYI
US6
LALLEMAND
quick rising
DRY YEAST
In % Lb. Tins
Makes the Finest Bread
Avallable at Your Favorlte
Grocer
!°- árgangur
i
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 31. JANÚAR 1957
NÚMER 5
Fréttir frá Gimli, 28. janúar, 1357
Bæjarráðsfundur var hald-
Jnn a Gimli 1. janúar, kl. tíu
• h. Alt bæjarráðið var við-
statt, en það skipa eftirfarandi
menn: Barey Egilson, bæjar-
stjóri; bæjarráðsmenn: Eric
^fanson, Kardy Geirholm,
°hn Howardson og B. V.
rnason. Málafærslumaður
Var endurkosinn.Arni G. Egg-
erfson, Q.C., með $25.00 fasta-
aunum. Dr. George Johnson
Var endurkosinn heilsu- og
Ve ferðarmála umsjónarmað-
nr> nieð $75.00 árslaunum. Mr.
ric Stefanson var skipaður
Vara-bæjarstjóri. H. B. Bed-
nnie var endurkosinn frið-
^omari með $50.00 árslaun.
firfarandi voru skipaðir í
~a f^oða slökkviliðssveit: E.
■ Anderson, formaður, J. T
rnason, vara-formaður, T. K.
rnason, J. V. Thordarson, J.
Menzies, H. E. Beddome,
lc* Sprowl, Walter Stasiuk,
• Ericson og J. Robinson. I
j lmIi Park nefnd: G. B.
agnússon, B. Egilson, K.
eirholm, B. V. Arnaason, D.
lgmundson og M. Graboski.
Eftirfarandi nefndir Voru
aklPaðar fyrir árið 1957: —
ubhc Works: B. V. Arnason,
' ' Geirholm og J. T. Howard-
^°n. Lögregiu- og slökkviliðs-
e nd: j. t Howardson, K.
^eirholm 0g E. Stefanson.
Fjármála- og almennramála-
nefnd: K^Geirholm, E. Stefan-
son og B. V. Arnason. Eftir-
farandi kaup var ákveðið fyrir
að sitja á lögákveðnum bæjar-
ráðsfundum: — Bæjarstjóri
$10.00; bæjarráðsmenn $8.00;
ennfremur að bæjarstjóra
verði borgaðir $400.00 fyrir
önnur ábyrgðarstörf. Ákveðið
var að hafa lögákveðna fundi
annan^, þriðjudag í hverjum
mánuði.
Árslaun starfsmanna fyrir
1957 vorii ákveðin: E. G.
Anderson $2,700.00, H. E.
Beddome $2,700.00, Albert
Markússon $2,500.00, ennfrem-
ur að auka-starfsmönnum
verði borguð 95 cent á klukku-
stund. Royal Canadian Moun-
ted Police, sem annast um
bæinn verði borgaðir $50.00
fyrir notkun á bifreið í þágu
bæjarins og $50.00 fyrir húsa-
leigu á lögreglustöð hvern
mánuð. Samþykkt var að gefa
$50.00 til Gimli-skautaskálans
og *$40.00 til “Curling” skál-
ans. Samþykt var að senda tvo
fulltrúa áynót Manitoba borga,
bæja og þorpa, sem haldið
var í Brandon dagana 14.,
15. og 16. janúar. Samþykkt
var greiðsla reikninga að upp-
hæð $11,588.82, sem borgað
Framhald á bls. 8
Safnast til
^ aðfaranótt síðastliðins
nnudags lézt að heimili sínu
ver 1 borg, Mr. Jónas J. Thor-
^ar Sson fyrrum kaupmaður,
^°n>inn á tíunda áratug, en
^ann yarð, svo sem Lögberg
jj? lr a®ur skýrt frá, níræður
lnn 8. desember síðastliðinn.
“nas var fæddur að Leik-
Kalum í Haukadal í Dala-
8- desember árið 1868.
var6^rar bans voru Thor-
Ur Bergthorsson stór-
Jóí! * ^ Geiiísiíaium og Kristín
á nannesdóttir frá Ytra-Leiti
til -ngarsironci. Jónas fluttist
Vcsturheims 1887. Hann
ar hfsglaðm- maður, og mátti
fr Jast vel ern svo að segja
l am tiJ hins síðasta; hann
jj’..Ur etiir sig konu sína Ingi-
°rgu Freysteinsdóttur, hina
^u úugnaðar- og myndar-
j nu’ svo °g tvær glæsilegar
Ur’ Þær Kristínu, gifta J.
F er Johannson í Pine
Mr SF°^ ®erthu> sem gift er
bai ,rank Reynolds, °g eiga
bróð dma 1 ^inniPeg- Einn
ó0 lr a Jónas á lífi í þessari
"^horarinn að nafni, en
al hálfsystkyna hans á ís-
feðra sinna
Mr. J. J. Thorvarðsson
landi af seinna hjónabandi
föður hans, er Sigurður
Skjaldberg stórkaupmaður í
Reykjavík.
Útförin hófst á miðvikudag-
inn með húskveðju á heimil-
inu, 768 Victor St., en að henni
lokinni var kveðjuathöfn hald-
in í Fyrstu lútersku kirkju.
Dr. Valdimar J. Eylands flutti
kveðjumál á báðum stöðum.
Heiðruð með samsæt-i
Frú Jakobína Johnson
Frú J a k o tví n u Johnson,
skáldkonu, var haldið fjöl-
mennt samsæti af dr. K. S.
Eymundson og frú hans á
heimili þeirra í San Francisco,
12. janúar s.l. Var skáldkonan
í#nokkurra daga heimsókn í
Oakland í boði bræðranna
Vigfúsar og Halldórs Helga-
sona og frænda þeirra Vig-
fúsar Jakobssonar og konu
hans.
Dr. Eymundson, formaður
Islendingafélagsins í Norður-
Kaliforníu, bauð gesti vel-
komna, en íslenzki konsúllinn,
séra S. O. Thorlakson, ávarp-
aði skáldkonuna. Frú Jakobína
mælti nokkur orð og las upp
nokkur af kvæðum sínum,
sum frumort á íslenzka tungu
og önnur kvæði íslenzk, er
hún hafði þýtt á ensku, við
hinar beztu undirtektir, enda
fer frúin með skáldskap af
mikilli tilfinningu og alúð.
Átta manna kór íslendinga-
félagsins undir stjórn frú
Louise Guðmunds söng nokk-
ur ættjarðarlög. Fram voru
bornar bæði íslenzkar {rúllu-
pylsa, rúgbrauð, hnoðuð terta)
og amerískar kræsingar.
Enda þótt frú Jakobína sé
komin nokkuð yfir sjötugt,
fæst hún enn við kveðskap.
Hennar er hin síunga sál lista-
mannsins. Hún kallaði ljóða-
gerð sína ekkert annað en
ævingu og að sér væri nokkuð
sama, hvaða dóm samtíminn
legði á hana. Þetta væru
æfingar, sem sér væri unun
að, æfingar undir næsta líf,
en þar vonaði hún, að hún
mætti enn kveða.
Þótti öllum íslendingum og
íslandsvinum þar góður gest-
ur, er frú Jakobína var.
„Kertaljós," nýjasta kvæða-
safn frú Jakobínu á íslenzku,
er nú fyrir nokkru komið út í
Reykjavík.
Togarinn Goðanes
fórsf í fyrrinóff við
Færeyjar
Togarinn liðaðist sundur og
sökk — 5 mönnum var bjargað
úr sjónum
Botnvörpungurinn Goðanes
frá Norðfirði, fórst við Fær-
eyjar í fyrrinótt. Tuttugu og
fjögra manna áhöfn var á
skipinu og tókst að bjarga
öllum nema einum, skipstjór-
anum, Pétri Hafsteini Sigurðs
syni. ,— Skipið strandaði á
blindskerjum út af Skálafirði
í Færeyjum. — Togarinn Goða
nesið tók niðri um 9 leytið i
fyrrakvöld og mun björgun
þeirra, sem bjargað varð hafa
verið lokið um kl. 6.30 í gær-
morgun. Fimm var bjargað úr
sjónum eftir að skipið var
sokkið. Goðanesið var að
sækja 14 færeyska sjómenn til
Færeyja.
—Alþbl., 4. janúar
Útvarpserindi um
vestur-íslcnzk skóld
Um hátíðaleytið var útvarp-
að yfir íslenzka Ríkisútvarpið
tveim erindum, sem dr.
Richard Beck prófessor hafði
talað á segulband í Grand
Forks að beiðni dagskrár-
stjóra útvarpsins.
Fjölluðu erindi þessi, er
voru hvort um sig 25 mínútur
að lengd, um þá skáldin Þor-
stein Þ. Þorsteinsson og dr.
Sigurð Júlíus Jóhannesson.
Rakti höfundur í megindrátt-
um æviferil þeirra, en ræddi
sérstaklega um skáldskap
þeirra og önnur ritstörf.
Var erindunum vel tekið,
eftir bréfum að dæma, sem
höfundi hafa borizt af ýmsum
stöðum á landinu.
Þingsetning
Á þriðjudaginn var fylkis-
þingið í Manitoba sett af
fylkisstjóranum, Hon. J. S.
McDiarmid, að viðstöddu
miklu fjölmenni; hærri fjár-
lög en nokkru sinni áður verða
lögð fyrir þing og ganga
hækkanirnar e i n k u m til
mentamála og vegabóta;
stjórninni er ant um að þingi
verði slitið áður en vorannir
byrja og mun því gera alt sem
í hennar valdi stendur til að
hraða störöfum þess.
Sýnt þykir, að málið um
nýja kjördæmaskipun leiði til
langra og ýtarlegra umræðna
á þingi; búist er við fylkis-
kosningum snemma næsta
sumar.
Hannes Kristjónsson
lótinn
Á miðvikudaginn d fyrri
viku lézt á Almenna sjúkra-
húsinu hér í borginni Hannes
Kristjánsson fyrrum kaup-
maður á Gimli, hinn mesti
skýrleiks- og atorkumaður, 73
ára að aldrei; hann átti um
langt skeið sæti í skólaráði
Gimlibæjar og skemtigarðs-
nefnd; auk hinnar ágætu konu
sinnar, Elínar, lætur Hannes
eftir sig sex sonu, Baldur,
Kristján, Albert, Burbank,
Ragnar ov Leó. Dæturnar eru
Mrs. Charles Leonard og Mrs.
Monty Westmacott. Barna-
börnin eru ellefu. Tveir
bræður Hannesar eru á lífi,
þeir séra Albert í Blaine,
Wash., og Tryggvi á Gimli;
ennfremur ein systir, Mrs. F.
Jones.
Hannes var ástríkur heimil-
isfaðir, og má það til fyrir-
myndar teljast hve vel þau
hjónin komu sínum stóra
barnahópr til menta.
Útförip var gerð frá Únítara
kirkjunni á Gimli á föstudag-
inn að viðstöddu miklu fjöl-
menni undir forustu séra
Philips M. Péturssonar.
Flutti ræðu við
þingsetningu
Elman Guttormson, M.L.A.
Er fylkisþingið í Manitoba
kom saman til funda á þriðju-'
daginn var, flutti aðra aðal-
ræðuna af hálfu stjórnar-
flokksins, Mr. Elman Gutt-
ormson, yngsti maður á þingi,
sá er gekk sigrandi af hólmi
við aukakosninguna, sem fram
fór í St. George-kjördæminu
3. desemher síðastliðinn.