Lögberg - 31.01.1957, Síða 3
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 31. JANÚAR 1957
3
Business and Professional Cards
byggingarlag bátum þeim,
sem tíðkuðust á Norðvestur-
strönd Noregs fram á vora
daga.'
1 grafhýsi á þiljum „Gauk-
staðaskipsins“ fannst beina-
grind af karlmanni, og var
umbúnaður allur mjög vand-
aður; hafði hann verið heygð-
ur í skrautklæðum og alvopn-
aður. Kom A. W. Brögger pró-
fessor fram með þá tilgátu,
að það væri Ólafur konungur
Geirstaðaálfur, er þarna hefði
grafinn verið. Síðan hefir
ýmsum stoðum verið kippt
undan þeirri ágizkun, þó eigi
hafi henni með öllu hrundið
verið.
„Ásubergsskipið" fannst á
samnefndu býli á Vestfold
1903, en var ekki grafið úr
jörðu fyrri en næsta sumar.
Eins og hin víkipgaskipin tvö
sneri það í haugnum stafni til
sjávar. Það er 21,5 metrar á
lengd mijli stafna og rúmir 5
metrar á breidd miðskips, og
róið 15 árum á borð. Mjög er
til þess vandað um efnivið og
gerð, og hið tígulegasta ásýnd-
um, stafnhátt, og stefnan
fagurlega útskorin. Hins vegar
er það það mjög flatbotna og
borðlágt að sama skapi, og að
því leyti harla ólíkt haffæru
skipi sem „Gaukstaðaskipinu“.
Enda er litið svo á, að „Ásu-
'bergsskipið“ hafi verið
skemmtiskip, og því smíðað
sérstaklega til ferða með
ströndum fram, en eigi ætlað
að ganga á hólm við æðandi
úthafsöldur, og það hefir auð-
sjáanlega náð þeim tilgangi
sínum ágætlega. í haugnum
hafði skipið orðið fyrir all-
miklum skemmdum, en það
hefir verið endurbætt, eftir
því, sem þörf krafðist, og
hlær nú við safngestum í
upprunalegum glæsileik sín-
um.
„Ásubergsskipið“ er talið
vera smíðað í byrjun 9. aldar,
en mun hafa verið 50 ára gam-
alt, er það var hauglagt. í
grafhýsinu á skipinu fundust
beinagrindur tveggja kvenna,
og er litið svo á, að það hafi
verið drottning og þerna
hennar, og skipið þá um leið
skemmtisnekkja hinnar fyrr-
nefndu, eins og þegar er vikið
að. Fjöldi dýrmætra muna
fundust efnnig í skipinu, seni
bera því vott, að þar hafi
höfðingskonu mikilli verið
búin hinzta hvíla, og eiga
munir þessir jafnframt mikið
menningarsögulegt giídi.
Brögger prófessor hefir í
sambandi við þennan ein-
stæða skipsfund og fornra
minja, getið þess til, að Ásu-
berg hafi verið kennt við Ásu,
ömmu Haralds hárfagra, og
hafi hún verið heygð þarna í
skipinu með öllum þeim
virðuleika, er drottningu
sæmdi að sið þeirra tíma. En
sé það rétt til getið, er óþarft
að fjölyrða um það, hversu sá
fornminjamundur er.nátengd-
ur landnámi íslands og jafn-
framt óvenjulega merkilegur
fyrir okkur íslendinga.
Á hinn bóginn bera „Gauk-
staðaskipið“ og „Ásubergs-
skipið“ því fagurt vitni, hverj-
ir snillingar í skipasmíð nor-
rænir menn hafa verið orðnir
á víkingaöldinni, enda áttu
þeir - sér þá þegar langa
reynslu að baki í þeim efnum.
Jafnframt er þess að minn-
ast, að skip norrænna manna
voru þeim eigi aðeins flutn-
ingstæki, heldur samtímis
mikilvægur þáttur í þjóðfé-
lagslegu og trúarlegu lífi
þeirra, og því er það einnig,
að skipagrafir þær, sem fund-
izt hafa, varpa um margt
björtu ljósi á líf og hugsunar-
hátt norrænna manna á vík-
ingaöldinni, en klæði, fé ogt
margs konar gripir voru lagð-
ir í haug með mönnum, og
eru f;undirnir í ofannefndum
fornmannahaugum ljós dæmi
þess.
Skipagrafirnar benda líka
ótvírætt 1 þá átt, að fornmenn
hafa lagt hina dauðu í skip, af
því að þeir trúðu því, að hann
ætti sjóferð fyrir höndum.
Stundum voru líkin lögð í
skip, og hvorttveggja síðan
brennt; loks eru dæmi þess í
fornum sögum, að konungar,
sem vissu dauðann á næstu
grösum, stigu í logandi skip,
sem þvínæst var ýtt frá landi
á haf út. Víðfræg að verðleik-
um er eftirfarandi lýsing
Snorra Sturlusonar í Heims-
kringlu á dauða Haka konungs
hins sænska:
„Haki konungur fékk svo
mörg sár, að hann sá, að hans
lífdagar myndu eigi langir
verða. Þá lét hann taka skeið,
er hann átti, og lét hlaða dauð-
um mönnum og vopnum, lét
þá flytja út til hafs og leggja
stýri í lag og draga upp segl,
en leggja eld í tyrvið og gera
bál á skipinu. Veður stóð af
landi. Haki var þá að kominn
dauða eða dauður, er hann var
lagður á bálið. Sigldi skipið
síðan logandi út í haf, og var
þetta allfrægt lengi síðan“.
Og ekki er erfitt að gera sér
í hugarlund, að það hafi verið
ágætle^a að skapi hinum
fornu sækonungum, að setjast
við stjórnvöl og sigla eigin
skipi út á rúmsjó eilífðarinnar
— á fund Óðins. Sjáni blái
sver sig ótvírætt í ættina,
eins og Örn Arnarson lýsir
honum í samnefndu kvæði
sínu, og þá ekki sízt í þessu
mælska og myndríka erindi:
Vindur hækkar. Hrönnin
stækkar.
Hrímgrátt særok felur grund.
Brotsjór rís til beggja handa.
Brimi lokast vík og sund.
Stjáni blái strengdi klóna,
stýrði beint á drottins fund.
Víkingaskipin í Byggðeyjar-
safninu minná áhorfandann
jafnframt kröftuglega á víð-
tækar víkingaferðir og landa-
fundi norrænna manna og á
sögulegt og menningarlegt
gildi þeirra ferða þeirra. Þeir
voru „frumherjar frelsisins“
$3.00 per House Call
EXPERT TECHNICIAN
24-HOUR PHONE SERVICE
B.E.M. Television &
Radio Service
PHONE SPruce 5-2875
miklu víðar en á Islandi, þó
að lýðveldi það, er þeir stofn-
uðu þar, beri hæst við himin
í stjórnarfarslegri sögu þeirra
til forna.
En fleira er það á Byggðey,
sem minnir á dirfsku og snilli
norrænna forfeðra vorra og
frænda vorra Norðmanna í
sæförum. Við lukum deginum
á Þjóðminjasafninu með því
að ganga um þilfar hins víð-
fræga skips dr. Fridtjofs Nan-
sen „Fram“, er hann sigldi í
Norðurheimskautsför s i n n i
1893—1896 og Roald Amund-
sen í Suðurheimskautsför
sinni 1910—1912; síðan skoð-
uðum við gaumgæfilega hinn
einstæða farkost „Köntiki“,
sem Thor Heyderdahl og fé-
lagar hans létu berast á fyrir
stormi og straumi yfir Kyrra-
haf árið 1949, og pnnu með
því mikið afrek bæði frá sigl-
inga- og vísindalegu sjónar-
miði. En fleki þeirra félaga er
eftirlíking af farkostum þeim,
sem Indíánar í Perú notuðu til
sæfara 500 árum fyrir Krists
burð.
í þessu mikla Sjóminjasafni
Norðmanna ber því allt að
sama brunni. Sæferða- land-
fundasaga norrænna manna
verður áhorfandanum, sem er
henni að einhverju leyti
kunnugur, ljóslifandi fyrir
hugskotssjónum. í löngum
röðum sér hann víkingaskipin
halda á haf í margar áttir;
svipmikil, borðhá og skjöld-
um sköruð. Og íslendingurinn
lítur þar í anda forfeður sína
leggja úr höfn áleiðis til hins
fyrirheitna lands þeirra, ís-
lands, og honum verður ofar-
le^a í huga myndin fagra af
þeim, sem Davíð skáld Ste-
fánsson hefir brugðið upp í
Alþingishátíðarljóðum sínum:
Þér landnemar, hetjur af
konungakyni,
sem komuð með eldinn
um brimhvít höf,
sem stýrðuð eftir stjarnanna
skini,
og stormana hlutuð
í vöggugjöf —
synir og farmenn hins
frjálsborna anda,
þér leituðuð landa.
I særoki klufuð þér kólguna
þungu,
komuð og sáuð til stranda.
1 fjalldöluni fossarnir sugu.
Að björgunum brimskaflar
sprungu.
Þér blessuðuð Island
á norræna tungu.
Fossarnir sungu, j
og fjöllin bergmála enn:
Heill yður, norrænu hetjur.
Heill yður, íslenzku
landnámsmenn.
Sjómannadagsblaðið 1956
Minnist
BETEL
í erfðaskróm yðor
Dr. ROBERT BLACK
Sérfræðingur í augna, eyrna, nef
og hálssjúkdómum.
401 MEDICAL ARTS BLDG.
Graham and Kennedy St.
Skrifstofusíml 92-3851
Heimaslmi 40-3794
G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir.
Keystone Fisheries
Limited
Wholesale Distributors of
FRESH AND FROZEN FISH
60 Louise Street Slmi 92-5227
Van's Electric Ltd.
636 Sargenl Ave.
Authorized Home Appliance
Dealers
GENERAL ELECTRIC — ADMIRAL
McCLARY ELECTRIC — MOFFAT
SUnsel 3-4890
Dr. P. H T. Thorlakson
WINNIPEG CLINIC
St. Mary's and Vaughan, Winnipeg
Phone 92-6441
Office Phone Res.
92-4762 SPruce 2-6115
Dr. L. A. Sigurdson
528 MEDICAL ARTS BUILDING
Office Hours: 4 p.m.—6 p.m.
and by appointment.
PARKER. TALLIN, KRIST-
JANSSON. PARKER AND
MARTIN
BARRISTERS — SOLICITORS
Ben C. Parker, Q.C.
(1910-1951)
B. Stuart Parker, Clive K. Tallin,
Q.C., A. F. Kristjansson, Hugh B.
Parker, W. Steward Martin
5th fl. Canadian Bank of Commerce
Building, 389 Main Street
Winnipeg 2, Man. Phone 92-3561
Thorvaldson, Eggerlson,
Baslin & Stringer
Barristers and Solicitors
209 BANK OF NOVA SCOTIA Bldg
Portage and Garry St.
PHONE 92-8291
J. J. Swanson & Co.
LIMITED
308 AVENUE BLDG. WINNIPEG
Fasteignasalar. Leigja hús. Út-
vega peningalán og eldsábyrgö,
bifreiöa&byrgö o.s. frv.
Phone 92-7538
CANADIAN FISH
PRODUCERS LTD.
J. H. PAGE, Managing Dtrector
Wholesale Distributors of Fresh and
Frozen Fish
311 CHAMBERS STREET
Office: Res.:
SPruce 4-7451 SPruce 2-3917
National Realty Co.
New and older homes—farms—
stores and other businesses in
Winnipeg and surrounding areas.
PAUL ANDERSON, Manager
214H Sherbrook St., Winnipeg, Man.
Days SPruce 4-5568—Evgs. 42-4924
SELKIRK METAL PRODUCTS
Reykháfar, öruggasta eldsvörn,
og ávalt hreinir. Hitaeiningar-
rör, ný uppfynding. Sparar eldl-
við, heldur hita frá aö rjflka út
með reyknum.—Skrifiö, slmiö til
.KELLY SVEINSSON
625 WaU St. Winnipeg
Just North oí Portage Ave.
SUnset 3-3744 — SUnset 3-4431
\-------
S. O. BJERRING
Canadian Stamp Co.
RUBBER & METAL STAMPS
NOTARY & CORPÖRATE SEALS
CELLULOID BUTTONS
324 Smith St. Winnipefl
PHONE 92-4624
A. S. BARDAL LTD.
FUNERAL HOME
843 Sherbrook Street
Selur Ukkistur og annast um flt-
farir. Allur fltbúnaöur s& beztf.
StofnaÖ 1894 SPruce 4-7474