Lögberg - 24.10.1957, Blaðsíða 8

Lögberg - 24.10.1957, Blaðsíða 8
8 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 24. OKTÓBER 1957 Úr borg og bygð VEITIÐ ATHYGLI! Það verður „Bridge“-kvöld í Unitara-kirkjusalnum næstk. mánudagskveld, 28. okt., kl. 8, í umsjá kvenfélagsins. Heilsið vetrinum með því að að spila með konunum. Þær verða þar með kaffi og gómsæt brauð á boðstólum og dýrindis verðlaunamuni fyrir þá sem hlutskarpastir verða í sam- keppninni. Allir eru boðnir og velkomnir að taka þátt í þess- ari skemtun, Sambandskvenfélags- nefndin. ☆ The Icelandic Canadian Club will hold its first meeting of the 1957-58 season on Thurs- day, Oct. 24th at the First Federated Church, Banning St., commencing at 8.30 p.m. Miss Helen Joseþhson will show her pictures of Iceland. It is hoped that a large at- tendance will be on hand to enjoy these excellent pictures and to welcome the new club president Dr. Gestur Krist- jánsson. Refreshments will be served. —L. V. FRÆG KANADISK COCKTAIL FORSKRIFT Gamal-móðins Hér er smár drykkur, sem nær hylli fólks sem líkar góSur bragðkeimur af góðu whiskey, en & sama tíma drekkur þaS til þess aS auka lyst á undan máltlSum. Þegar þér búiS til ,,Gamal-mðSins“ setjiS I þaS sykur og beiskju og hræriS þaS I glasinu svo aS þaS snerti hiiSar þess og brúnir. .s MyljiS hálfan sykurmola, iT”T| þrjá dropa af beiskju (bitter) og 1% únsu af sódavatni I iitlu glasi. BætiS I 1 % únsu af Seagram’s V.O. eSa “83” Canadian Rye whiskey. HræriS vel I látiS svo 2 ísmola, lítiS eitt af lemon peel og niSursoSiS oherry. Höfðingleg gjöf Svo sem sjá má af Betel Building Fund listanum í þessu blaði, gaf starfsmanna- samband EATONS verzlunar- innar, The T. Eaton Co. Em- ployees Benevolent Fund, $1500 00 nýverið í byggingar- sjóð elliheimilisins Betel á Gimli; er hér um svo mikil- væga og drengilega gjöf að ræða, að ekki má minna vera en hún sé sérstaklega þökkuð. Með endurteknum þökkum, K. W. JOHANNSON féhirðir byggingarnefndar ☆ Veiiið athygli auglýsingu Strandarinnar Nokkrar konur úr söfnuð- inum og Sólskin hafa tilkynnt mér að þær ætli að gefa drætti á þessa tombólu. Þetta er fallega gert og skal hér með þakkað. — Allir sem koma með „drætti“ í kirkjusalinn 1. nóv, eftir hádegi, fá gott kaffi og beztu þakkir fyrir sína fyrirhöfn og hlýhug. Að loknu þessu móti mun Ströndin borga, fljótlega, það sem eftir stendur af hennar $1,000.00 loforði í Byggingar- sjóð kirkjunnar^ og prests- setursins tilvonandi. C. H. 1. ☆ COLORED SLIDES shown in the First Lutheran Church on Friday, Oct. 25th at 8.15 P.M. under auspices of Jon Sigurdson Chapter IODE. Mrs. Kristín Johnson will show pictures of Iceland. — Chairman will be Mrs. Eric Isfeld. — Convenor, Mrs. E. W. Perry. — Lifrapylsa will be for sale. — Refreshments served, and collection taken. Come, take an imaginary trip to Iceland with the Jon Sigurdson Chapter, and sup- port them in their effort to help Betel. KAUPIÐ og LESIÐ — LÖGBERGI STRÖNDIN, Vancouver, heldur TOMBÓLU í NEÐRI SAL ÍSLENZKU KIRKJUNNAR 41st & Cambie St. föstudaginn, 1. nóvember, 1957 — Klukkan 8 e.h. FRlR INNGANGUR — ENGIN SAMSKOT DRÆTTIR, 25c HVER Kaffiveitingar og skyr verður til sölu á vanalegu verði SÍM AR: CE 2064; CH 6732; EL 4671; CH 9164; KE 6441L.-CH 4118 Mikið af góðum dráttum hefur þegar verið safnað fyrir þessa TOMBÓLU, þar á meðal “Speedmaster” rafmagns-vatnskatli af vandaðri gerð; hann má einnig nota á stó, því hann hefur ekta kopar-botn- Gefinn sem EINN dráttur af nokkrum félagsmönnum. Er $16.75 virði. Honum fylgir ábyrgð í eitt ár. Þrjár stórverzlanir í þessum bæ, nefndin, félags- menn og konur taka saman höndum með að gera þessa Tombóru með þeim beztu, sem STRÖNDIN hefur enn haft. Mætum því öll í neðri sal kirkjunnar 1. nóvember klukkan 8 e. h. Þangað er ævinlega gott að koma — þar er hlýtt og bjart! Verið velkomnir, íslendingar! NEFNDIN MESSUBOÐ Fyrsta lúterska kirkja Sr. V. J. Eylands, Dr. Theol. Heimili 686 Banning Street. Sími SUnset 3-0744. Guðsþjónustur á hverjum sunnudegi: Á ensku kl. 11 f. h. Á íslenzku kl. 7 e. h. Allir ævinlega velkomnir Kirkjur á fsSandi . . . Framhald af bls. 4 safnaðarkirkjur, örfáar eru enn lénskirkjur, en bænda- kirkjurnar, þær sem enn eru ekki komnar í hendur safnað- anna, eru nú ýmist bænda- kirkjur eða ríkiskirkjur, eftir því hvort eigandi jarðarinnar, þar sem slík kirkja stendur, er einstaklingur eða ríkið. Við- hald og endurbygging kirkna landsins nú hvílir því aðallega á söfnuðunum sjálfum. Þær, sem ríkið eða einstakir menn reka, eru orðnar sárafáar og fer stöðugt fækkandi. En hvaða aðstæður hafa þá söfnuðum landsins verið skap- aðar til þess, að endurreisa hinar hrörlegu kirkjur, en halda hinum, sem þegar hafa reistar verið, sómasamlega við? Því miður hafa þær aðstæð- ur verið allt annað en góðar. Með lögum um sóknargjöld árið 1909 voru hverri sóknar- kirkju tryggðar tekjur, er námu kr. 0,75 á hvern sóknar- mann 15 ára og eldri, er hækk- að var árið 1921 í kr. 1.25. Má öllum vera ljóst, að slíkar tekjur hrukku naumast fyrir árlegum rekstrarútgjöldum, hvað þá að fé yrði afgangs til endurbóta eða endurbygging- ar kirkjunnar. Úr þessu er að vísu nokkuð bætt með lögum um sóknargjöld 1948 og síðari breytingu á þeim lögum. Þó hygg ég, að kostnaður við rekstur kirknanna hafi farið svo ört vaxandi hin síðustu ár, að ekki sé um það að ræða, að að af lögskipuðum sóknar- gjöldum sé hægt að leggja nokkurt teljandi fé fyrir til endurbóta kirknanna eða end- urbyggingar. , Þar verður því að koma til frjálst framlag safnaðanna sjálfra með því að leggja á aukagjöld eða safna gjöfum, og þarf þó enn meira til. Lán í lánastofunum er yfir- leitt ekki unnt að fá til kirkju- bygginga. Hinn almenni kirkjusjóður er hin eina stofn- un, sem á síðustu áratugum hefir veitt söfnuðum sæmi- lega hagstæð lán til kirkju- bygginga, en hann hefir yfir svo litlu fé að ráða, að hann getur sjaldan lánað meira en sem svarar 1/10 hluta bygg- ingarkostnaðar. Til þess að bæta hér úr hinni brýnustu þörf var með lögum 1955 stofn aður Kirkjubyggingarsjóður, er ríkið leggur árlega til kr. 500 þús. um næstu 20 ár. Skal úr sjóði þessum veita lán til endurbóta eldri kirkjubygg- inga, er endurgreiðast á 50 árum. En lán til endurbóta eldri kirkna greiðist á 20 ár- um. Þó mega lán þessi aldrei nema meira en sem svarar 2/5 hlutum kostnaðar við endur- bætur kirkna og ekki nema sem svarar kr- 1000.00 á hvern fermetra gólfflatar, ef um ný- byggingu er að ræða. Þetta er að vísu mikilsverð bót frá því, sem áður var, enda hefir, síðan lögin voru sett, vaknað mikill áhugi á kirkju- byggingum og endurbótum eldri kirkna. En sá er hér galli á gjöf Njarðar, að reynslan hefir þegar sýnt, að fjárfram- lagið til sjóðsins er allsendis ófullnægjandi. Hefir ekki ver- ið unnt að sinna þeim lán- beiðnum, sem borizt hafa, nema að litlu leyti, og kemur það sér afarilla. Hlýtur því að vera næsta sporið, ef ekki á að kæfa í fæðingunni þann áhuga, sem nú er vaknaður um kirkju- byggingarmálin, að vinna ötul lega að því, að framlag til sjóðsins verði þegar hækkað að minnsta kosti í 1 milljón króna á ári. Fyrir þeirri um- bót verða prestar, héraðsfund- ir og söfnuður nú þegar að beita sér undir forustu bisk- ups. Og jafnhliða verður, eins og ég hefi áður drepið á, að vinna að því, að hinar nýju kirkjur geti orðið hentugar, smekklegar og í þjóðlegum stíl. Sennilegt tel ég, að hag- kvæmara mundi reynast að reisa hinar minni kirkjur í fámennum sóknum úr timbri, en ekki litla steinkumbalda, sem yfirleitt reynast illa, eins og á hefir verið bent, og eru auk þess ósmekklegir. Kirkjur eru nú víða í sókn- um landsins hrörlegustu hús- in, svo að jafnvel gripahús bændanna taka þeim fram. Þetta má ekki svo til ganga. Guðshúsin eiga að verða veg- legustu húsin í hverri sveit, ekki endilega þau stærstu, en yfir þeim á að vera tign og reisn. Að þessu þarf, og að þessu á að vinna. Og til þess þarf kirkjustjórn, Alþingi og söfn- uðir landsins að taka höndum saman og tryggja á þann veg skynsamlega framkvæmd þessara mála. Sveinn Víkingur —KIRKJURITIÐ Rivival of the Gay Nnielies The twó choirs of the First Lutheran Church will give a concert on Wednesday Oct 30, at 8.15 p.m. in the lower auditorium of the church. The programme will consist of old favorite songs depicted by tableaux in costumes. — Collection taken in aid of Betel Building Fund. GIVE YOUR FAIR SHARE

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.