Lögberg - 13.02.1958, Blaðsíða 1

Lögberg - 13.02.1958, Blaðsíða 1
71. ÁRGANGUR LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 13. FEBRÚAR 1958 NÚMER 7 Landssamband ísl. Grænlands- áhugamanna stofnað Vinnur að endurheimi íslenzkra réiiinda á Grænlandi HEIMURINN OKKAR — SAGA VERALDAR í MÁLI OG MYNDUM — HEIMURINN OKKAR — Saga veraldar í máli og myndum. 304 bls- — Hjörlur Halldórsson íslenzkaði. — Tilmenna bóka- íélagið, Reykjavík, 1957. Hinn 1. desember síðastlið-; inn var stofnað í Reykjavík Landssamband ísl. Grænlands- áhugamanna, en forgöngu um það hafði Farmanna- og fiski- mannasamband Islands. Kaus það á 18. þingi sínu 5 manna nefnd til undirbúnings, og skipuðu hana Henry Hálfdán- arson loftskeytamaður, Þor- kell Sigurðsson vélstjóri, Sig- urjón Einarsson skipstjóri, Örn Steinsson vélstjóri og Þorsteinn Stefánsson hafnar- vörður á Akureyri. Síðastliðinn máudag kvaddi Þorsteinn hafnarvörður tíð- indamenn bæjarblaðanna á fund sinn og skýrði fyrir þeim tilgang og takmark þessarar sambandsstofnunar. — Kvað hann vaka fyrir samtökunum að vinna íslenzkri útgerð að- stöðu á Grænlandi, sem nú væri mjög aðkallandi vegna sívaxandi aflatregðu á heima- miðum. Hér væri ekki um ný- lendupólitík að ræða, en þó mundi félagið fylgjast með því, hvern lagalegan rétt Is- lendingar ættu til Grænlands, en þar hefði dr- Jón Dúason verið betur á verði en nokkur landa vorra annar. Þorsteinn kvað Guðmund Guðmundsson framkvæmda- stjóra hafa hreyft þessu máli fyrstan manna á þingi F.F.S.Í., og hefir því síðan verið haldið vakandi. En hið ískyggilega aflaleysi á heimamiðum hefði nú fært útgerðarmönnum og sjómönnum heim sanninn um, að málið þyldi ekki frekari bið. Hvernig þessum málum yrði skipað, skyldi ekkert sagt um að svo stöddu, en ef til vill væri bezta lausnin sú, að við veiddum í salt á Græn- landsmiðum á vorin, er fisk- urinn væri að ganga á miðin, og nauðsynlegt væri, að ís- lenzkir togarar gætu fengið olíu og salt í grænlenzkum höfnum. I frumdrögum að stofnskrá og lögum sambandsins er svo að orði kveðið 1 2. grein; „Tilgangur sambandsins og markmið er að kynna fyrir þjóðinni og umheiminum forn- an rétt og erfðakröfur íslend- inga til Grænlands og gera gangskör að því að fá viður- kennda og endurheimta með- ferð eignar- og yfirráðaréttar íslands yfir Grænlandi, sem íslendingar hafa aldrei glatað. Ennfremur að beita sér fyrir gagnkvæmum skilningi og samstarfi milli íbúa beggja landanna og vinna að efnaleg- um og menningarlegum fram- förum, er snerta samskipti þeirra.“ Akureyrardeild stofnuð innan skamms Þá gat Þorsteinn Stefánsson þess, að hér í bænum mundi síðar í þessum mánuði verða boðað til stofnfundar Akur- eyrardeildar í þessu landssam- bandi. Kvað hann æskilegt, að áhugamenn, sem vildu verða með í stofnun deildarinnar, létu sig vita það sem allra fyrst, svo að hann gæti boðað þeim stofnfundinn. Mál þetta mun nú liggja fyrir Fiskiþingi til umræðu, og er þess að vænta, að sem flestir þeir, er hagsmuna hafa að gæta varð- andi útgerð og sjómennsku, gefi málinu gaum. Hinn hrað- minnkandi afli á íslenzkum fiskimiðum, er e. t. v. alvarleg- asta málið í dag, sem getur haft örlagarík áhrif á afkomu þjóðarinnar um langa framtíð. —íslendingur, 6. des. Framboð í öllum kjördæmum Stjórnmálaflokkarnir þrír, Liberalar, C.C.F. og Konserva- tívar, hafa ákveðið að bjóða fram þingmannsefni í öllum kjördæmum við fylkiskosn- ingarnar í Manitoba, sem að líkindum verða haldnar fyrri- part júnímánaðar næstkom- andi, svo ekki þarf að efa að úr nógu verði ða velja. Um afstöðu Social Credit-sinna, er enn eigi að fullu vitað, þótt flogið hafi það fyrir, að þeir muni lítt hafa sig í frammi í kosningunum vegna fjár- skorts. ískyggilegar horfur Nýjustu fregnir, sem borizt hafa frá Indónesíu á öldum Ijósvakans vítt um heim, telja ástandið þar í landi svo við- sjárvert um þessar mundir, að til byltingar og gagnbyltingar geti þá og þegar komið í land- inu, er leitt geti til hinna ægi- legustu blóðsúthellinga; fylgir það sögu, að rússnesk stjórn- arvöld séu að reyna að ná pólitískum yfirráðum yfir landinu. Mrs. Elma Gíslason Þessi kunna söngkona hefir æft sönginn fyrir miðsvetrar- mót Fróns, og gefur söngskrá- in, sem birt er á öðrum stað í blaðinu, til kynna að þar verður um góða skemmtun að ræða. Úr borg og bygð — DÁNARFREGNIR — Mrs. Lára Johnson Burns lézt á fimmtudaginn 6. febrú- ar. Hún var fædd í Selkirk 1883; foreldrar hennar voru Jón Sigurjónsson frá Einars- stöðum í N.-Þingeyjarsýslu og kona hans Sigurveig Gísla- dóttir. Ólst hún upp hjá for- eldrum sínum í Winnipeg. Hún giftist William John Burns frá North Dakota, en misti hann eftir eins árs sam- búð; flutti hún þá til Winni- peg og gekk í þjónustu Mani- toba Telephone System og starfaði hjá því félagi í 36 ár þar til henni voru veitt eftir- laun 1949. Hún lætur eftir sig systir, Jennie Johnson. Önnur systir hennar, Inga Johnson, forstöðukona á Betel, lézt fyr- ir nokkrum árum. Útförin var gerð frá Bardals á mánudag- inn að viðstöddu' fjölmenni. Dr. Valdimar J. Eylands flutti kveðjumál. ☆ Hinn 7. þ. m-, lézt á St. Boniface sjúkrahúsinu Mr. Clifford Paul Hjaltalín raf- magnsverkfræðingur, s e m lengi var í þjónustu Winnipeg Electric Railway félagsins, góður drengur og vinsæll. Hann var sonur Guðjóns Hjaltalín skósmíðameistara. Hinn látni lætur eftir sig konu sína og systur, Mrs. Lax- dal. Útförin var gerð á mánu- daginn frá Clark Leatherdale að viðstöddu fjölmenni. I upphafi var undrið, og það hefur haldið áfram að heilla mannshugann allt til þessa dags. Að sama skapi sem þekkingin á heimi okkar og náttúru hans allri eykst og margfaldast, magnast einnig furðan yfir fjölbreytni og óendanleik alheimsins. Skyldi frummaðurinn, þegar hann stóð gagntekinn og flemtraður gagnyart óskiljanlegum nátt- úruöflunum umhverfis sig, hafa verið öllu meiri furðu sleginn en vísindamaður nú- tímans, þegar hann kannar leyndardóma heims og geims? Maðurinn var að sönnu smár og aumkvunarverður í árdaga, þar sem hann stóð uppi fákunnandi og varnar- litill í heimi, sem var honum bæði fjandsamlegur og ó- skiljanlegur. En hann hefir ekki bætt spönn við hæð sína síðan. Hann stendur enn mátt- lítill og ráðvilltur gagnvart heimi sínum. En maðurinn hefir aldrei hætt til langframa að reyna að gera sér grein fyrir um- heiminum og rökum tilveru sinnar. Hann hefir verið síleit- andi og síspyrjandi, og þekk- ingu hans hefir fleygt fram með ótrúlegum hraða, ekki sízt á síðustu fimmtíu árum. En hver ný lausn ól af sér nýjar og erfiðari gátur.. Mannkynið er enn í sporum Heraklesar í hinni fornu goð- sögn, þegar hann reyndi að vinna á Hýdru, hinu marg- höfða skrímsli. Fyrir hvert höfuð, sem hann hjó af, uxu tvö ný í staðinn. Með tilstyrk frænda síns vann Herakles að lokum á þeim öllum, nema því sem ódauðlegt var. Vera má, að manninum takizt um síðir að finna svör við flestum gát- unum í sambandi við lífið og alheiminn, en hætt er við, að ein þeirra verði lífseigust — gátan mikla, undrið sem við köllum líf. En þekkingarþorstinn verð- ur ekki kæfður, og vilji manns ins til að kryfja öll vandamál býr að líkindum með honum jafnlengi og hann er mennsk- ur. Okkur íslendingum hefur þessa dagana borizt glæsilegur vottur um óbugandi þekking- arviðleitni mannsins. Er hér um að ræða eitthvert merki- legasta rit sinnar tegundar, sem gert hefur verið fyrr og síðar. Þetta rit er „Heimurinn okkar,“ sem Almenna bóka- félagið hefur nú sent á bóka- markaðinn. „Heimurinn okkar“ er tví- mælalaust veigamesta verk, sem nokkurt íslenzkt útgáfu- fyrirtæki hefur lagt í að gefa út. Ekki einasta er það yfir- gripsmesta vísindarit, sem birzt hefur á íslenzku, heldur er allur búnaður bókarinnar með þeim hætti, að undrun sætir. Bókin er 304 síður í geysistóru broti (26x35 cm.) og prýdd rúmlega 360 mynd- um, sem sumar eru nálega metri á lengd, og svo frábær- lega góðar myndir hafa ekki sézt á íslenzkum bókum fyrr- Um 300 myndanna eru í lit- um. Textinn er ýtarlegur og mundi fylla um 500 blaðsíður í Skírnisbroti. Bókin er öll prentuð á einstaklega fallegan myndapappír. I þessu riti er að finna kjarna þeirrar þekkingar, sem við eigum nú um jörðina og sögu hennar frá upphafi vega. Heil hersing færustu vísinda- manna vann árum saman að undirbúningi verksins, og er það út af fyrir sig trygging fyrir sannleiksgildi þess og vísindalegri nákvæmni. Bókin er stærsti skerfurinn, sem lagður hefur verið fram til al- mennrar vísindáfræðslu hing- að til, eins og danskur gagn- rýnandi benti á. Hjörtur Halldórsson mennta skólakennari hefur þýtt text- ann með sérstökum ágætum og víða staðfært hann. Hefur hann í því efni notið hjálpar ýmissa íslenzkra fræðimanna. Ýmis nöfn á fyrirbærum nátt- úrunnar hefur hann íslenzkað af mikilli smekkvísi og þannig auðgað tunguna að nauðsyn- legum orðum. Sem dæmi má taka fisktegund eina, sem lifir í hitabeltissjó og nefnist á ensku “grouper.” Hjörtur kallar hana „groppu“ á ís- lenzku. Orðið beygist eins og „loppa“ og er ágætt nýyrði. I heild sinni er „Heimurinn okkar“ óviðjafanlegur lof- söngur um jörðina og þróun lífsins á henni. Sá maður er Framhald á bls. 8

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.