Lögberg - 13.02.1958, Page 6
6
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 13. FEBRÚAR 1958
GUÐRÚN FRA LUNDI:
DALALÍF
„Þú mátt ekki láta föður þinn ofbjóða þér-
Hann er svo hraustur sjálfur og getur ekki skilið
þá, sem eru veikbyggðir og þreklitlir“.
Nú hló hann upphátt og sagði: „Kannske þú
ætlir að verða nærgætnari við mig en hann? Það
gæti ég hugsað, að þér færist hálfklaufalega. Ég
býst ekki við, að þú hafir mikla hæfileika til að
hjálpa þeim, sem eru þreklitlir og veikbyggðir,
eins og þú álítur að ég sé“.
Dísa varð hálfvandræðaleg. Þetta ætluðu ekki
að verða þægilegar samræður. Hana hafði lengi
grunað það. „Mig langar oft til að tala við þig,
en ég hef lítinn tíma, nema þá helzt á kvöldin.
Því læsirðu alltaf stofunni?“ sagði hún.
„Nóttin er ætluð til svefns, en ekki skrafs og
ráðagerða. Ég get ekki skilið, hvað þú þarft að
skrafa við mig“, sagði hann og fór að líta í blaðið
aftur. Ekki var nú mikill áhuginn fyrir samræð-
unum hugsaði hún. Því skyldi hann hafa hætt að
brosa? Líklega hafði honum ekki fallið það, að
hún talaði um að hann væri þreklítill. Það var
víst ekki karlmannlegt.
„Er það satt, að þú sért hættur við að læra til
prests, eins og þú hefur alltaf ætlað þér að gera?“
spurði hún hikandi.
„Ég var víst aldrei ákveðinn í því“, svaraði
hann.
„Mamma er víst ekki vel ánægð með það.“
Hann anzaði engu. „Hún var búin að hlakka svo
mikið til að sjá þig í prestaskrúðanum“, hélt hún
áfram.
„En sá tilbúningur í þér“, sagði hann.
„Var ekki ósköp gaman að vera á Ásólfsstöð-
um? Bárður hefur líklega verið stimamjúkur við
þig?“ sagði hún.
„Stimamýkri voru nú stúlkurnar“, sagði hann,
og henni til ánægju fór hann að brosa. Þó gat það
svo sem átt sér stað, að Ella ætti þetta bros, en
honum þætti ekkert gaman að samtalinu.
„Kom ekki Siggi á Hóli fram eftir eitt kvöldið
eða kannske oftar?“
„Hann kom ekki nema í þetta eina skipti,
þegar þú sást til hans“, sagði hann. „Fellur þér
það ekki vel, að hann sé að koma þangað?“ bætti
hann við.
„Mér? Heldurðu að mér sé ekki sama um
Sigga á Hóli. Það er verið að gefa honum Ellu á
Ásólfsstöðum og hún er líka vitlaus í honum — og
þau hæfa líka hvort öðru“.
„Nei, svo er ekki, hann er mikið stærri en
hún. Svo hélt ég, að enginn ætti Ellu til að gefa
hana, nema foreldrar hennar og svo náttúrlega
hún sjálf. Það er líka kvenfólkið hérna og enginn
annar, sem segir þetta og annað eins, eruð sjálf-
sagt gramar yfir því, að hann veitir ykkur ekki
neina eftirtekt“, sagði hann.
„Við sjálfsagt kærðum okkur ekki mikið um
svoleiðis pilta“.
„Þeim er sjálfsagt lítið gefið um okkur hérna
í dalnum, eiga líklega vini heima í sinni sveit.
Siggi er líka búinn að ákveða sig — það þýðir
ekkert að hugsa um hann“, sagði hann og fór enn
að lesa í blaðinu.
„Eru þau kannske trúlofuð, Ella og hann?“
spurði hún forvitin.
„Ella? Nei, dettur þér í hug að hann taki
hana frá mér?“ sagði hann hlæjandi. „Við erum
nú betri kunningjar en það“.
Dísa stóð upp, svo mikið varð henni um það,
sem hann sagði. „Þú talar ekki í alvöru, Jakob?“
sagði hún loðmælt.
„Nei, það geri ég ekki. Það er aldrei hægt
að tala í alvöru við þig, Dísa“.
„Segðu mér satt, Jakob“, sagði hún.
„Ég hef ekkert að segja“, sagði hann.
Lísibet og Borghildur systir hennar komu inn
í hjónahúsið, nýgreiddar og þvegnar, og ætluðu
að fara að hátta. Þær sváfu saman í rúminu hennar
Lísibetar, en litli bróðir þeirra svaf í litlu rúmi
hinum megin við hjónarúmið. — Aldrei var friður
fyrir þessum krakkaormum hans Sigga, hugsaði
Dísa gröm yfir að fá ekki að njóta betur þessarar
stuttu stundar. Það yrði sjálfsagt ekki næsta dag,
sem hún gæti náð tali af honum. Það eitt að sjá
hann brosa og hlæja var henni ótrúlega mikils
virði. Bráðum tæki engjaheyskapurinn allan tím-
ann og þá yrði allt ennþá erfiðara. „Ég þyrfti svo
margt að tala við þig, Jakob, en það er aldrei
friður til þess“, sagði Dísa.
„Ég get ekki ímyndað mér, að þú hafir neitt
sérstakt við mig að tala“, sagði Jakob.
„Hvernig lízt þér á það, að ég fari í kvenna-
skóla í haust?“ spurði Dísa.
„Þér gekk nú alltaf heldur báglega að læra,
minnir mig“, svaraði hann áhugalaust.
Anna húsfreyja kom inn með Jakob Sigurðs-
son í fanginu og lét hann í rúmið hans.
„Aumingja mamma, þú verður dauðþreytt á
því að stjana við þessa krakka“, sagði Dísa. „Mér
finnst að Siggi og Rósa séu ekki of góð að hugsa
um sína krakka sjálf, fyrst þau eru að hrúga þessu
niður".
„Það þarf ekki mikið fyrir þeim að hafa, þau
eru vön að sjá um sig sjálf“, sagði Anna. „Svo
hjálpar hún Borghildur mér við það, eins og allt
annað“.
Sumarið leið án þess Dísa gæti nokkurn tíma
talað einslega við Jakob, vegna þess að hann
forðaðist að gefa henni tækifæri til þess. Flesta
sunnudaga var haldin danssamkoma einhvers stað-
ar í sveitinni. Dísa lét sig ekki vanta þar, en vana-
lega var hún óánægð yfir því, að sér væri ekki
veitt viðeigandi eftirtekt sem fóstursystir Jakobs.
Hún var líka með mesta hárið af öllum stúlkun-
um í sveitinni og átti fínasta upphlutinn. En það
var eins og enginn sæi það, nema þá helzt með
öfundaraugum. — Jakob fór alltaf fyrstur út á
dansgólfið með Ellu í fanginu, en hann dansaði
samt oft við hana sjálfa.
Það var rétt fyrir göngurnar að hún trúði
samverkakonum sínum fyrir því, að nú væri af-
ráðið, að hún færi í hússtjórnarskóla og yrði þar
hálfan veturinn. Það hefði verið orðið of seint
að sækja um inntöku í kvennaskólann, og svo
hafði þeim báðum fundizt það, fóstra hennar og
Jakobi, að þetta væri heppilegra fyrir hana, því
að þar væri kennt minna bóklegt, en sér hefði
alltaf gengið svo illa að læra það bóklega.
„Ég kalla að þú segir fréttirnar“, sagði Kristín.
„Þú hefur líka verið svo sæl á svipinn og íbyggin
núna þessa síðustu daga. Það var mikið að þú
gazt nokkurn tíma stunið því upp“.
„Ég fór til mömmu og Borghildar“.
„Þó það væri nú, að fóstra þín færi eitthvað
að hugsa fyrir að hafa laglegt í steinhúsinu nýja.
Það verður einhver að taka við af Borghildi —
ekki lifir hún alltaf“, rausaði Kristín.
„Ég fæ nú sjálfsagt lítið að skipta mér af því,
ef ég þekki rétt- Ég er ekki búin að gleyma svipn-
um á fólkinu í fyrravetur, þegar ég sagðist geta
búið til betri steik en Borghildur. Ég ætlaði mér
þá að breyta heimilinu dálítið, en það þýðir víst
lítið að reyna slíkt“.
„Ég efast nú svo sem ekkert um það, að þú
eða hver sem er fái sig fullkeypta, meðan hún er
að ná bústjórninni úr höndunum á Borgu gömlu.
En það verður heldur enginn óbarinn biskup.
Það er til mikils að vinna að ná í allan Nauta-
flataauðinn og þennan fallega pilt. Ég hlakka til
að sjá, upplitið á þér, þegar þú kemur af skólanum.
Náttúrlega kemurðu hingað aftur?“
„Það veit ég nú ekki. Mamma og Borghildur
vilja láta mig ráða mig í fínt hús þarna fyrir
norðan, en ég veit ekkert, hvað ég geri“.
„Mér þykir líklegt, að Jakob verði líka í skóla
fyrir norðan í vetur. Ég sé nú ekki, hvernig lífið
getur leikið betur við þig, Dísa litla“, sagði Kristín.
„Skyldi það verða munur eða ævin okkar Lauf-
eyjar. Satt að segja hálfkvíði ég nú fyrir að lynda
við Borghildi í vetur. Ég hefi nefnilega hugsað
mér að slá undan ,ef í odda kynni að skerast á
milli okkar, þó að Gróa segði, að enginn gæti
þrifizt, nema hann semdi sig að hennar siðum“.
NAÐARVÖKIN
Seint á þorra kom Dísa heim aftur. Henni
fannst hún vera orðin talsvert mikil manneskja.
En það fór eins og fyrri — það var ekki tekið eftir
því heima í dalnum. Önnu þótti vænt um að sjá
hana, en leiddist þó fljótlega masið í henni, eins
og vanalega. Hún var mjög veikluð á taugum og
átti bágt með svefn. Jakob hafði verið vestur á
Felli síðan um nýár við barnakennslu í veikinda-
forföllum barnakennara sveitarinnar. Einkenni-
legt var, hvað heimilið gat breytzt á fáum vikum,
fannst Dísu. Borghildur hafði lagzt í fótarmeini í
janúarlok. Þess vegna varð mikil breyting á
heimilinu- Kristín hafði tekið við hennar verkum.
Laufey hafði verið ráðin til nýárs og var því ný-
farin, þegar Borghildur lagðist. Ekki var hús-
móðirin alls kostar ánægð með það, hvernig mat-
reiðslan fórst Kristínu úr hendi, en um það þýddi
ekki að tala. Kristín var harðánægð með sjálfa sig
og þóttist upp úr því vaxin að láta segja sér fyrir
verkum. Það var fengin stúlka neðan af Ós til að
hugsa um fjósið og að spinna. Auðvitað var þreyt-
andi vankunnáttumót á því öllu. Eftir að Borg-
hildur fór að klæðast, fór fyrst að verða erfitt sam-
komulagið. Hún gat ekki látið það afskiptalaust,
hvernig gengið væri um eldhúsið. Anna hús-
freyja var hreint og beint hrædd að koma fram í
eldhúsið, nema húsbóndinn væri þar. Hún mátti
búast við lítilsvirðandi tilsvörum frá þessum konu-
svarki, sem réð þar ríkjum. En hún forðaðist að
láta mann sinn heyra það. Kristínu kom vel saman
við karlmennina. Borghildur stakk upp á því, að
Dísa tæki við eldhúsinu, því að nú var hún búin
að læra, hvernig átti að ganga um í eldhúsi og búa
til mat, en Kristín sagðist verða við þetta þangað
til Borghildur væri orðin svo hress, að hún gæti
tekið við aftur. Kristín var ekki að sama skapi
dugleg við tóvinnuna eins og útiverkin, og vildi
vera laus vð að sitja inni við spuna. Dísu þótti
ekkert að því, þó að Kristín svaraði svona, — hana
langaði ekkert til að taka við öllum þeim verkum,
sem fylgdu því að vera í eldhúsinu. En hún vildi
gjaran sýna kunnáttu sína og búa til matinn,
þegar eitthvað sérstaklega átti að breyta til, því
að náttúrlega kunni hún svo margt, en Kristín
sagði henni að geyma sína miklu kunnáttu þangað
til stóra sólin væri upprunnin, — ólíklegt væri að
hún þyrfti að bíða lengi og vona hér eftir, svona
hámenntuð stúlka. Dísa sat því inni í húsi hjá
fóstru sinni við útsaum, þangað til stúlkan af
Ósnum þurfti endilega að fara heim. Þá var hún
beðin að, mjólka með Kristínu, en vinnumaðurinn
varð að gefa kúnum, það gat Dísa ekki gert. Svo
kom Jakob heim og þá var henni ofaukið í hjóna-
húsinu. Heimasætulífinu var þar með lokið.
Kristín gaf heimilisfólkinu slæman vitnisburð,
þær fóru að mjólka saman, hún og Dísa. Húsbónd-
inn var sá eini, sem hún hældi. Hún hafði náttúr-
lega komizt af við Þórð, en hann var þó óttalegur
bölvaður fýludrumbur. Hallgrímur, en svo hét
vinnumaðurinn, var eins og hvert annað flón.
Jakob var alveg eins og móðir hans, hégómlegur og
eigingjarn. Þetta komst allt fljótlega til eyrna hús-
móðurinnar — og ekki varð það til að bæta sam-
búðina. Hún taldi vikurnar, þangað til Kristín færi
af heimilinu.
Svo var það, að Dísu datt allt í einu í hug, að
nauðsynlegt væri fyrir fóstru sína að fara yfir að
Jarðbrú. Lína var nýbúin að eignast son, sem
Helga á Hóli hafði látið mikið yfir að væri svo
fallegur og ólíkur stelpunum, systrum sínum.
Borghildur hafði oft talað um það við Dísu, að
hún ætti að ganga úti með fóstru sinni, þegar gott
veður væri, en hún gerði það sjaldan. En að Jarð-
brú vildi hún fara með henni. Borghildur sagði,
að það væri of langt, betra væri að fara út að
Hvammi. A þann bæ vildi Dísa sízt af öllu koma.
Hún var nú eins og hún var vön þveröfug við alla
aðra. Þær völdu logn dag, þegar húsbóndinn var
ekki heima. Jakob vildi fara með móður sína á
hesti, en hún vildi heldur ganga — þetta var svo
stutt.