Lögberg - 13.02.1958, Qupperneq 8
8
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 13. FEBRÚAR 1958
HEIMURINN OKKAR
Framhald af bls. 1
Úr borg og bygð
THE ANNUAL CONCERT
of the Icelandic Canadian
Club will be held in the First
Lutheran Church on Tuesday,
February 25th, commencing
at 8.15 p.m.
The main adress of the
evening will be given by
Björn N. Árnason of Regina,
Deputy Minister of Co-Opera-
tion and Co-Operative De-
velopment for Saskatchewan.
Björn was born in Glad-
stone, Man. and brought up at
Kristnes, Sask., north of Foam
Lake. His parents were John
and Guðlaug Árnason, pion-
eers of that district. He at-
tended the University of
Saskatchewan from 1924-28,
specializing in history and
economics. In 1929 he joined
the Sask- Department of Agri-
culture maintaining that posi-
tion until his present appoint-
ment in 1944. In 1953 he re-
ceived an honorary degree of
law (Honoris Causa) from the
St. Francis Xavier University
of Nova Scotia.
The subject of Mr. Árna-
son’s address as well as the
musical part of the program
will be announced next week.
☆
The First Lutheran Young
Peoples’ Association will pre-
sent their annual “Valentine
Varieties” Concert in the
lower auditorium of the First
Lutheran Church, Sargent and
Victor street, an Friday,
February 14, 1958 at 8.15 p.m.
The programme includes in-
strumental Combo, a play,
skit and vocal selections.
Tickets available at The
Electrician, 685 Sargent Ave.,
or phone SPruce 4-0955.
Dennis Eyolfson
VEITIÐ ATHYGLI
Erlingur K. Eggertson, lög-
maður verður í Árborg á
fimmtudögum, en ekki á
þriðjudögum, eins og áður var
auglýst. —Professional spjald
hans er á 3. síðu Lögbergs.
☆
Rausnarleg gjöf
Frú Guðrún Jóhannsson,
Ste. 9 — 755 Ellice Avenue,
Winnipeg, ekkja Ásmundar P.
Jóhannssonar byggingameist-
ara, hefir sýnt Betel þá vel-
vild og rausn, að gefa heimil-
inu fullkominn húsgagnaút-
búnað í eina íbúð þess. Fyrir
þessa drengilegu aðstoð er hér
með innilega þakkað.
Fyrir hönd fjársöfnunar-
nefndar,
Greliir Eggertson
☆
Mr. Magnús Elíasson út-
breiðslustjóri C.C F. flokksins,
sem búsettur er í höfuðborg
Saskatchewanfylkis, Regina,
er nýkominn hingað til borg-
arinnar og mun dveljast hér
um slóðir fram yfir fylkis-
kosningarnar, sem sýnt þykir,
að hér verði haldnar í júní-
mánuði næstkomandi; mun
hann ferðast allvíða um fylk-
ið, en verður þess á milli að
finna á flokksskrifstofunni
1170 Main Street. Sími JUstice
2-3777. Magnús rekur rætur
sínar til Árnessbygðar í Nýja-
Islandi; hann er skýrleiks-
maður hinn mesti og ágætlega
máli farinn.
☆
Séra Ólafur Skúlason getur
því miður, ekki komið til
Winnipeg um næstu helgi, og
messar því ekki í Fyrstu lút-
ersku kirkju, eins og áætlað
var.
MESSUBOÐ
Fyrsta lúterska kirkja
Sr. V. J. Eylands. Dr. Theol.
Heimili 686 Banning Street.
Sími SUnset 3-0744.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
Á ensku kl. 11 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
Mrs. Sarah Goodman og
Mrs. Ása Stefánsson frá Van-
couver komu til borgarinnar á
föstudaginn í heimsókn til
vina og vandamanna, sem eru
fjölmennir á þessum slóðum.
Munu þær dvelja hér í mánuð;
hefir Mrs. Stefánsson í hyggju
að fara til Selkirk og Hecla,
ennfremur að koma við í
Moose Jaw, Sask. á vesturleið.
BÓKMENNTIR
Framhald aí bls. 5
ur.“ Þá er Pétur Hannesson
með nokkur falleg kvæði;
bezt þeirra þykir mér „Nótt.“
Góðar eru „Vorvísur,“ eftir
Pétur Jónasson, og „Bærinn
lokast,“ eftir Sigríði Björns-
dóttur. „Mitt líf,“ eftir Sigríði
Rögnvaldsdóttur, vekur at-
hygli; einnig „Vor,“ eftir Sig-
rúnu Fannland. Allgott skáld
er Sigurður Sigurðsson frá
Vigur, og Sigurður H. Guð-
mundsson efnilegt skáldefni.
Viðkunnanlegt kvæði er
„Góa,“ eftir Sigurjón Jónas-
son, og Una Sigtryggsdóttir á
tvö vel gerð ljóð: „Á sextugs-
afmæli mínu“ og „Játning.“
Þá er Þorsteinn Jónsson
(Þórir Bergsson); fallegasta
kvæðið hans er „Afmælis-
rósir.“ „Sama sagan,“ eftir
Þorstein Magnússon, er snið-
ugt og heimspekilegt ljóð, og
loks er ágæt vísa, eftir Stefán
Stefánsson, sem vekur les-
andann til umhugsunar:
„Oft er gott, sem gamlir
kveða,
gráhærðir af andans krafti.
En hvort er betra að yrkja —
eða algjörlega halda kjafti “
—Mbl., 22. des.
Apótekarinn: — Þessi hósta-
saft læknar hósta á einni viku.
!Ég get borið um það sjálfur,
vegna þess að ég er búinn að
nota það í þrjár vikur.
☆ \
— Ég skildi guðspjallið,
sagði Stína- En ég skildi ekki
útskýringu prestsins á því.
meira en lítið „blaséraður,“
sem ekki hrífst af þeim undr-
um náttúrunnar, er við hon-
um blasa á hverri síðu bókar-
innar. Við sjáum heiminn og
okkar eigið líf í nýju ljósi eftir
lestur hennar. Maðurinn sjálf-
ur kemur að vísu ekki við
sögu hér, og er það nokkur
skaði, en furður heimsins og
geimsins eru gerðar þeim mun
áþreifanlegri, þannig að mað-
ur stendur allt að því högg-
dofa andspænis þeirri auðlegð
frjómagns og fegurðar, sem
heimurinn okkar býr yfir —
heimurinn, sem nú hefur
skugga gereyðingar hangandi
yfir sér. Þetta er lofsöngur til
lífsins og þá um leið fordæm-
ing á þeirri öfundshneigð
mannkindarinnar, sem er að
reka hana út á yztu nöf tor-
tímingar. Skyldi nokkurt
skáld hafa flutt okkur mælsk-
ari friðaróð en aðstandendur
þessarar bókar?
Sumum þeim, sem ekki hafa
handfjatlað þessa bók, kann
að finnast örlæti mitt á sterk
lýsingarorð nokkuð gegndar-
laust. Ég býst ekki við, að ég
sé miklu hrifnæmari en land-
ar mínir yfirleitt, og þó kann
ég ekki að mæla með bókinni
nógu sterkum orðum. Hún
hlýtur að verða kærkominn
gestur á hvert heimili, þar sem
fróðleiksfýsn og forvitni á um
heiminum á sér formælendur.
„Heimurinn okkar“ er ekki
einungis frábært vísindaafrek,
heldur og sannkallað lista-
verk, bæði að því er snertir
myndir og texta. Það eru víða
skáldleg tilþrif í textanum, og
ekki er mér grunlaust um, að
þýðandinn eigi nokkurn þátt
í því- Málið er kjarnyrt og lif-
andi og sjaldan tyrfið, enda
þótt vrða sé fjallað um flókin
vísindaleg efni.
Bókin skiptist í 13 megin-
kafla, sem bera þessi heiti: —
Fæðing jarðar, Undur og gát-
ur hafsins, Yfirbragð þurr-
lendisins, Lofthafið, Fram-
vinda lífsins, Öld spendýr-
anna, Lífið í sjónum, Kóralrif,
Land sólar, Auðnir norður-
hjarans, Regnskógar hitabelt-
is, Sumargrænir skógar og
Stjörnugeimurinn. Má nokk-
uð af þessum heitum ráða, um
hvað bókin fjallar. Þá er í
bókinni skrá yfir merkustu
vísinda- og fræðslurit, sem
fjalla um efni hvers kafla.
Ennfremur er skrá yfir höf-
unda myndanna og yfir vís-
indamenn og stofnanir, sem
unnu að frumútgáfunni. Og
loks er þar nafna- og atriða-
skrá. Gunnar Gunnarsson
skáld hefur skrifað formála
fyrir íslenzku útgáfunni, en
bókin hefur þegar komið út
víða á Vesturlöndum og hvar-
vetna hlotið fádæma góðar
viðtökur.
„Heimurinn okkar“ verður
óbrotgjarn minnisvarði um
viðleitni mannsíns á miðri
tuttugustu öld við að gera sér
grein fyrir umheiminum og
stöðu sinni í náttúrunni. Bók-
in er kannski fyrst og síðast
lofsöngur um hugvit og yfir-
burði mannsins, þrátt fyrir
allar hans takmarkanir. Ein-
um kafla hennar lýkur með
þessum orðum: „Þótt maður-
inn megi kallast byrjandi og
nýgræðingur á þessari plán-
etu, hefur hann eigi að síður
sérstöðu í hinu víðáttumikla
veldi náttúrunnar, hann ræð-
ur örlögum sínum og er eigin
gæfu smiður. Fyrir meir en
2000 árum komst Plató svo að
orði: „Hugurinn verður ávallt
herra heimsins“.“
Sigurður A. Magnússon
—Mbl., 8. des.
Aldraður maður
hverfur
Veslmannaeyjum, 2. jan. —
Fjöldi Vestmannaeyinga hefir
í dag leitað um allar eyjarnar
að öldruðum manni, sem hvarf
hér í bænum á gamlársdag.
Tíðindin um hvarf hans spurð-
ust ekki út meðal bæjarbúa
fyrr en á nýársdag og var þá
þegar hafin leit. Síðdegis í dag
fannst húfa mannsins á floti í
höfninni.
Maður sá, sem hér um ræðir,
hét Eyjólfur Sigurðsson, frá
Laugardal hér í bænum, kom-
inn á áttræðisaldur. Hann
hefur um fjölda mörg ár feng-
izt við trésmíðar.
Eyjólfur fór að hfeiman frá
sér um kl. 8 á gamlársdags-
morgun til vinnu sinnar í
smíðastofu niðri við höfnina.
Þangað hefur hann komið,
þótt ekki kæmi hann heim til
sín í morgunkaffið eða um há-
degisbilið. Það var ekki beint
talin ástæða til þess heima hjá
honum að undrast um hann,
fyrr en síðari hluta dagsins.
Tóku þá nánustu ættingjar að
grennslast fyrir um ferðir
gamla mannsins meðal vina
og kunningja í bænum. Leitin
bar ekki árangur. Seint á
gamlárskvöld var leitað til
lögreglunnar, sem þegar hóf
eftirgrennslan.
Rannsókn hennar leiddi
brátt í ljós, að maður nokkur
hafði hitt Eyjólf um kl. 2 á
gamlársdag inn við Friðar-
höfn. Ræddi maður þessi litla
stund við Eyjólf. Kvöddust
þeir með áramótaóskum. Síð-
an hefur enginn orðið Eyjólfs
var. Á nýársdag lét lögreglan
kafa við bryggjur hér en ár-
angurslaust. í dag hófu skátar
og sjálfboðaliðar skipulagða
leit um allar eyjar. Seinnipart
dags fundu drengir húfu Eyj-
álfs á reki í höfninni inni í
svonefndum Botni, skammt
frá olíubryggju Skeljungs.
Þykir mönnum sýnt hver orð-
ið hafi örlög þessa aldraða
manns, sem lætur eftir sig
konu og uppkomin börn- Hann
var ern vel og vann að smíð-
um alla daga frá morgni til
kvölds. —Mbl., 3. Jan.
ÞRÍTUGASTA OG NÍUNDA
MIÐSVETRARMÓT
ÞJÓÐRÆKNISDEILDARINNAR FRÓN
verður haldið í
FYRSTU LÚTERSKU KIRKJU
mánudaginn 24. febrúar 1958, klukkan 8 e. h.
SKEMMTISKRÁ:
O, CANADA — ó, GUÐ VORS LANDS
ÁVARP FORSETA Jón Johnson
SÖNGUR (double quartette) undir stjórn Elmu Gíslason
Undirspil: JÓNA KRISTJANSON
1- Áróra .........HELGI S. HELGASON
(Kvæðið eftir Guttorm J. Guttormsson, sunRÍð í fyrsta
sinn í Winnipeg.
2. Litla Stina ........C. P. WALLIN
3. Vel er mætt til vinafunda .H. WETTERLING
KVÆÐI Dr. Sveinn Björnsson
EINSÖNGUR Joy Gíslason
UPPLESTUR William Pálsson
EINSÖNGUR Janet Reykdal
RÆÐA Próf. Haraldur Bessason
EINSÖNGUR Heather Sigurdson
EINLEIKUR Á PÍANÓ Sigrid Bardal
TVÍSÖNGUR Elma Gíslason, Gústaf Kristjánsson
ELDGAMLA ÍSAFOLD — GOD SAVE THE QUEEN
Inngangur $1.00. — Byrjar stundvíslega. — íslenzkar
veitingar til sölu í fundarsal kirkjunnar. — Aðgöngu-
miðar fást við dyrnar.
ALLUR ÁGÓÐI GENGUR TIL BETEL