Lögberg - 27.02.1958, Blaðsíða 1
71. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 27. FEBRÚAR 1958 NÚMER 9
Ársþing Þjóðræknisfélagsins
Þrítugasta og níunda árs-
þing Þjóðræknisfélagsins tók
til starfa kl. 10 á mánudags-
morguninn undir stjórn for-
seta þess, Dr. Richards Beck.
Samkvæmt venju fór fyrst
fram stutt guðræknisathöfn;
Dr. Valdimar J. Eylands flutti
bæn og sungnir voru sálmarn-
ir: Þú, Guð, ríkir hátt yfir
hverfleikans straum, og Faðir
andanna; Gunnar Erlendsson
var við hljóðfærið. Þar næst
flutti forseti ýtarlega ræðu
yfir starf félagsins á árinu og
birtist fyrri hluti hennar í
þessu blaði. Þingið var allvel
sótt. Voru þessir fulltrúar við
þingsetningu:
Frá deildinni Frón:
Marja Björnson
Hlaðgerður Kristjánsson
Elín Hall
Soffía Benjamínsson
Sigríður Jakobsson
Jakobína Nordal
Rósa Jóhannsson
Jóhanna Jónasson
Oddný Ásgeirsson
Jón Jónson.
Frá deildinni á Gimli:
Kristín Thorsteinsson
Guðm. B. Magnússon
Emma Von Renesse
Elín Sigurdson.
Esjan, Árborg:
Halldór J. Austmann
Anna Austman
Herdís Eiríksson
Tímóteus Böðvarsson.
Brúin í Selkirk:
Gestur Jóhannsson
Þórunn Jóhannsson
Kristinn Goodman
Margrét Goodman.
Lundar:
Kári Byron
Gísli Gíslason.
Ströndin, Vancouver:
Stefán Eymundsson.
Meðal langt aðkominna
gesta, er sátu þingið, auk
Stefáns Eymundssonar, voru
Rósmundur Árnason frá El-
fros, Sask., og Páll Guðmunds-
son og Ásgeir Gíslason frá
Leslie, Sask- Aðrir utanbæjar-
gestir, er vér urðum vör við:
Walter Johannson, Pine Falls,
Man.; Thorsteinn S. Mýrman,
Oak Point; Svava Bonnell,
Lundar; Thorarinn Jóhanns-
son, Selkirk, og Sæunn Bjarna
son, Gimli.
Kveðjur til þingsins höfðu
forseta borizt frá þessum: —
séra Benjamín Kristjánssyni;
Society for the Advancement
of Scandinavian Studies (Dr.
Beck er formaður þess félags);
Ríkisháskóla N. Dak. og for-
seta þeirrar stofnunar, og frá
séra Ólafi Skúlasyni. — Hin
fagra kveðja frá Thor Thors
sendiherra birtist á öðrum
stað hér í blaðinu.
Féhirðir, Grettir L. Johann-
son, og fjármálaritari, Guð-
mann Levy, lásu skýrslur sín-
ar um fjárhag félagsins og
var þeim útbýtt meðal þing-
manna til yfirvegunar.
Um morguninn lásu þessir
fulltrúar skýrslur frá deildum
sínum: Jón Jónsson, forseti
Fróns, Gestur Jóhannson fyrir
Brú í Selkirk og Stefán Ey-
mundsson frá Ströndinni í
Vancouver. Báru skýrslurnar
vitni um að vel hafði verið
haldið í horfinu hjá þessum
deildum.
Samkvæmt venju flutti full-
trúinn frá Ströndinni lofræðu
um dásemdirnar við Kyrra-
hafið, og verður það ekki
þeirra sök, ef allsherjar fólks-
flutningar hefjast ekki þang-
að vestur.
Býður sig from
í Selkirk
Eric Slefanson
Á fjölmennum fundi, sem
haldinn var í samkomuhúsinu
að Teulon, Man., var Eric
Stefanson kaupmaður á Gimli,
útnefndur sem merkisberi í-
haldsflokksins í Selkirkkjör-
dæmi við sambandskosning-
arnar hinn 31. marz. Það var
ekki fyr en að lokinni fimtu
talningu, að Mr. Stefanson var
lýstur kjörinn umfram næsta
keppinaut sinn Mr. Valda
Árnason á Gimli.
Mr. Stefanson taldi sig til
C.C.F.-flokksins svo að segja
fram um elleftu stundu og var
um eitt skeið frambjóðandi
hans til fylkisþings í St.
George kjördæmi.
Merk kona lótin
Frú Vigfúsína Beck
Á miðvikudaginn í vikunni,
sem leið, lézt á dvalarheimili
hinna öldruðu íslendinga,
Betel á Gimli, frú Vigfúsína
Beck frá Litlu Breiðuvík í
Reyðarfirði 87 ára að aldri, hin
mesta skýrleikskona, er alls
staðar kom fram til góðs; hún
lætur eftir sig tvo sonu, Dr.
Richard Beck rithöfund og
Mr- Jóhann Th. Beck, fyrrum
forstjóra The Columbia Press
Limited; einnig tvö hálfsyst-
kini, Jóhönnu Pálsson og Vig-
fús í Vancouver. Frú Vigfús-
ína var gift Hans Kjartani
Beck, en missti hann, er hann
enn var í blóma lífs.
Útför frú Vigfúsínu var
gerð frá Fyrstu lútersku
kirkju á laugardaginn að við-
stöddu fjölmenni. Mrs. Lincoln
Johnson söng einsöng en Dr.
Valdimar J. Eylands flutti
kveðjumál.
Þingmannsefni
Liberala í Selkirk
Á afarfjölmennum fram-
boðsfundi, sem haldinn var
að Inwood hinn 13. þ.m., var
Mr. William J. Wood útnefnd-
ur sem þingmannsefni Libe-
rala í Selkirkkjördæminu við
kosningar þær til sambands-
þings, sem fram fara þann 31.
marz næstkomandi. Mr- Wood
bauð sig fram í Selkirkkjör-
dæmi í fyrra og fékk þá mikið
fylgi þótt eigi nægði það til að
koma Mr. Bryce fyrir kattar-
nef.
William J. Wood er búsett-
ur að Teulon hér í fylkinu og
nýtur almennra vinsælda í
héraði; hann er gagnkunnur
staðháttum kjördæmisins og
manna líklegastur til að gæta
dyggilega hagsmuna þess á
þingi.
Faðir frambjóðandans átti
um hríð sæti á sambandsþingi
fyrir Selkirk við hinn ágæt-
asta orðstír,
KVEÐJA
tll þjóðræknisþingsins
19. febrúar, 1958
Hr. ræðismaður
Grettir L. Johannson
76 Middle Gate
Winnipeg, Manitoba
Kæri herra ræðismaður:
Ég vil hér með biðja þig að
flytja ársþingi Þjóðræknis-
félags íslendinga í Vestur-
heimi, er kemur s^man í Win-
nipeg hinn 24. þ.m., alúðar-
kveðjur mínar og allar góðar
óskir um áframhaldandi giftu-
ríkan árangur í hinu veglega
starfi Þjóðræknisfélagsins að
efla samúð, skilning og sam-
band Islendinga vestan hafs
og austan.
Það er nú orðið langt síðan,
að mér hefir unnizt tími til að
heimsækja byggðir Islendinga
í Kanada, því að leið mín sem
sendiherra íslands í Kanada
liggur oftast nær til höfuð-
borgarinnar, því að þangað
ber mér að leita í erindum
ríkisstjórnar íslands. Þau er-
indi sækjast jafan greiðlega
vegna hins vinsamlega sam-
bands milli landanna og vel-
vildar og skilnings stjórnar
Kanada á sameiginlegum hags
munamálum. Margt bendir til
þess, að sambandið milli land-
anna fari vaxandi; nýjar
stofnanir á sviði stjórnmála,
viðskiptamála og menningar,
hafa verið settar upp, heim-
sóknum fjölgað, svo og ís-
lenzkum námsmönnum í
Kanada, og leiðin milli land-
anna verður stöðugt styttri og
auðsóttari- Öll slík mál láta
Vestur-lslendingar og Þjóð-
ræknisfélagið til sín taka, og
sé þeim mikil þökk fyrir.
Eigi skal gleymt hinum stór-
merka þætti íslenzku blaðanna
beggja, Heimskringlu og Lög-
bergs, í því að tryggja tryggða
böndin.
Með innilegum kveðjum.
THOR THORS
Góður drengur lótinn
Síðastliðinn föstudag lézt á
sjúkrahúsi hér í borginni Mr.
Thorbergur Thorbergsson járn
brautarþjónn, starfsmaður hjá
Canadian National Railways;
hann var 65 ára að aldri, fædd-
ur í Churchbridge, Sask., ætt-
aður úr Skagafirði, dreng-
skaparmaður, er eigi vildi vita
vamm sitt í neinu; hann lætur
eftir sig eina systur, Mrs.
Gíslason í Churchbridge.
Kveðjuathöfn, er Dr. V. J.
Eylands stýrði, fór fram frá
Bardals á laugardaginn, en
þaðan var líkið sent til jarð-
setningar í Churchbridge.
Frónsmótið
Mikill mannfjöldi sótti hið
vinsæla Miðsvetrarmót Fróns
á mánudagskveldið, enda
jafnan vandað til þeirrar sam-
komu eftir föngum, og hefir
forseta, Jóni Johnson tekizt að
safna góðum og kunnum
kröftum á skemmtiskrá og
finna nýja. Það er ekki of-
sögum sagt af dugnaði frú
Elmu Gíslason við að kenna
og æfa söng, og ekki má
gleyma hvílíkan hauk í horni
söngelskir íslendingar eiga
þar sem frú Jóna Kristjánsson
er, jafnan reiðubúin að leika á
hljóðfærið. Eiga þessar konur
miklar þakkir skilið fyrir
mikilvægt tillag sitt til söng-
menningar Islendinga hér í
borg. Söngur kvartettsins var
ánægjulegur. 1 honum tóku
þátt fjórar unglingsstúlkur,
Joy Gíslason, Janet Reykdal,
Heather Sigurdson og Shirley
Johnson, og hinir góðkunnu
söngvarar, Fjelsted-bræðurnir,
Hermann’og Thor, ennfremur
Gunnsteinn Martin og Denriis
Eyjolfson. Sungið var nýtt lag
eftir Helga S. Helgason við
kvæði Guttorms J. Guttorms-
sonar, Áróra. Oft er það að
maður verður að heyra ný lög
oftar en einu sinni til að meta
þau, og lét þetta sönglag betur
í eyra, þegar það var sungið
í seinna skiptið. Hið fallega,
einfalda lag, Vel er mætt til
vinafunda, tókst ljómandi vel,
raddirnar þýðar og samstiltar.
Áheyrendur höfðu ánægju
af hinum léttu fjörugu ein-
söngvum ungu stúlknanna og
þá ekki sízt af tvísöng frú
Elmu og Gústafs Kristjáns-
sonar; sungu þau Visnar vonir,
kvæðið eftir Dr. Beck, lagið
eftir Louisu Gudmunds; enn-
fremur Sólsetursljóð eftir séra
Bjarna Thorsteinsson. Hafa
þau bæði ágætar raddir, og
var þeim klappað lof í lófa.
Sigrid Bardal lék fagurlega á
píanóið nokkur lög.
Aðalræðu mótsins flutti
próf. Haraldur Bessason; sagð-
ist honum margt vel og vitur-
lega, svo sem vænta mátti.
William Pálsson flutti kvæði
eftir séra Jónas A. Sigurðsson,
hvöt til að leggja rækt við ís-
lenzkuna, en próf. Haraldur
flutti frumsamið kvæði eftir
Dr. Svein E. Björnsson. Var að
öllu þessu gerður hinn bezti
rómur.