Lögberg - 27.02.1958, Side 7

Lögberg - 27.02.1958, Side 7
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 27. FEBRÚAR 1958 7 Bretar virkja Sú fregn, að Bretar séu komnir nokkuð áleiðis að hag- nýtingu vetnisorkunnar, vek- ur gífurlega athygli víða um heim. Að vísu er þarna aðeins um byrjunaráfanga að ræða, en um leið sennilega örðug- asta áfangann, að því er ráða má af umsögnum vísinda- manna. Telja þeir sumir að nú muni ekki líða meira en tíu til fimmtán ár þangað til Bret- um hafi tekizt að beizla vetnis orkuna sem orkugjafa, en þeg- ar því takmarki er náð hafi mannkyninu opnazt svo að segja óþrjótandi orkulind í fljótum, vötnum og úthöfum. Ekki eru þó Bretar einir um að vera komnir þarna nokkuð áleiðis. Bandaríkjamenn vinna af kappi að lausn sama við- fangsefnis, og talið er víst að rússneskir vísindamenn hafi náð svipuðum árangri og þeir brezku. Þá hefur og komið á daginn að sænskir kjarnorku- vísindamenn hafa í Uppsölum gert sér svipað tæki til hita- mögnunar og þeir brezku, en þó minna, og er talið að ekki líði á löngu áður en þeir verði komnir jafn langt brezkum og rússneskum starfsbræðrum sínum. Lítill flokkur valdra vísindamanna Átta undanfarin ár hefur lítill, en valinn hópur brezkra kjarnorkuvísindamanna unnið að lausn þessa ævintýralega viðfangsefnis undir stjórn og forystu Sir John Cockcroft, en hann er nú að komast á sjö- tugsaldurinn- Og fyrir nokkr- um dögum gat hann skýrt fréttamönnum blaða og út- varps frá því að við tilraunir með samruna þungra vetnis- frumeinda við hita hefði að öllum líkindum fundizt leið til að beizla þá orku, er losn- aði við það úr viðjum, og hefði hitamögnunin við slíkar tilraunir oft náð fimm miljón gráðum á Celsíus nokkurt brot úr sekúndu, — eða mun hærra hitastigi en er á yfirborði sól- ar eða nokkurrar stjörnu, svo vitað sé. Hitastigið hið innra í sólinni er hins vegar talið ná fimmtán milljón gráðum. — Bandarískir vísindamenn telja hitastigið við slíkar tilraunir hjá þeim hafa náð sex milljón gráðum, en mun skemmri tíma í einu en við brezku til- raunirnar. Og Sir John Cock- croft kvaðst ekki í neinum vafa um að brátt tækist að beizla hitaorku, mun meiri en sólarinnar. Kjarnorkustöðvar úreltar Hráefnið, þunga vetnið, sem notað er við þessar tilraunir, kalla vísindamenn deuterium, og fæst eitt gramm af því úr tuttugu lítrum vatns. Vinnsl- an kostar rúmar fimm krónur á gramm, en grammið jafnast á við tíu smálestir af kolum sem orkugjafi. vetnisorkuna Svo hefur reiknazt til að kol í námum og olía í neðan- jarðarlindum muni endast mannkyninu sem orkugjafi næstu hundrað árin, en úran það og thorium, sem fyrir- finnst muni síðan duga því til orku í 200—300 ár. En deuter- ium það, sem fyrirfinnst í út- höfunum ætti að nægja mann- kyninu sem orkugjafi í allt að eitt þúsund milljónir ára. Með virkjun vetnisorkunnar verða það því ekki aðeins kola- eða olíuknúnu raforkuverin sem úreltast, heldur og þær kjarn- orkustöðvar, sem Bretar og ýmsar aðrar þjóðir keppast nú við að reisa. Þá verður ekki framar spurt um úraníum, heldur deuterium. En til þess að þessi gerbylt- andi uppgötvun komi að til- ætluðum notum verður hita- stigið að komast upp í 100 milljón gráður, — sumir segja jafnvel þrefalt það. Sir John telur ekki neinum vafa bundið að það megi takast, og verði það næsti áfanginn. Þriðji á- fanginn verði svo í því fólginn að reisa fyrstu vetnisorku- stöðina, og sá fjórði að hag- nýta hina miklu orku hennar til að knýja með rafstöðvar. Tuliugu ár Um fimm hundruð blaða- menn, — brezkir og erlendir, þeirra á meðal frá Sovétveld- unum, Kína og mörgum lepp- ríkjum, — voru viðstaddir þegar Sir John skýrði frá þessum furðulega árangri. Og er hann var spurður hvenær búast mætti við að fjórða og síðasta áfanganum lyki, hugs- aði hann sig um nokkra stund áður en hann svaraði: — Eftir svona um tuttugu ár. Tilraunatækinu, — gervisól- inni, — þar sem þungavetnis- frumeindirnar eru bræddar saman við hita, er komið fyrir í einu af skýlum flughersins og er um tvö hundruð smá- lestir að þyngd. Þar er vetnis- gasinu hleypt inn í bogna alumínpípu, þrjá metra að þvermáli, og hitað unz hið gífurlega hitastig næst, — að vísu aðeins þúsundhluta úr sekúndu, en hins vegar hefur tilraunin verið endurtekin hvað eftir annað með aðeins tíu sek. millibili. Við það myndast samruni þungvetnis- frumeindanna og skapar orku með sama hætti og verður við vetnissprengingu, og í sólinni. Fyrstu tilraunirnar voru ekki ýkja stórfenglegar, en smám saman var hert á. Fyrsta gervisólin var mun minni en sú, sem nú er notuð, rafstraum urinn, sem beitt var til hitun- arinnar, nam ekki nema 80,000 ampérum og náðist ekki hærra hitastig en 140,000 gráður. Við gervisól þá, sem nú er notuð, er beitt 200,000 amp- straumi, og nú er undir- búningi að smíða nýtt til- Mrs. Laura Burkett Mrs. Laura Burkett, Flin Flon, Man. died Nov- 15th 1957 at a Hospital in Flin Flon fol- lowing a lengthy illness. Born in Arnes 1899 Laura married Earl Burkett 1923, and came with her husband to Flin Flon in 1935. Mrs. Burkett was a member of the Eastern Star Lodge and the church of England. Sur- viving are her husband Earl a druggist of Flin Flon, also two sons, James a druggist of Flin Flon and Robert a druggist of Lynn Lake. Her parents pre- deceased her some years ago. There are also two brothers and four sisters left to mourn her death, they are: Oscar Erickson of Arnes, Man.; Harry Erickson of Prince Rupert, B.C.; Mrs. H. Thordarson of Gimli; Mrs. Á. P. Jóhannson; Mrs. J. Swann; Mrs. F. Frisk; all of Winnipeg. Mrs. Burkett had a very charming personality and leaves a wide circle of friends- —G. E. J. raunatæki, allt að því tíu sinn- um stærra, en öllu í sambandi við það er enn haldið leyndu. Um fimmtíu manns hafa starfað að þessum tilraunum, en eftir því sem þeim miðar lengra verður að auka starfs- liðið og verja meira fé til þeirra. Bandaríkjamenn verja miklu fé . . . 1 Bandaríkjunum hófust svipaðar tilraunir 1951, og eru þær á mun stærri mælikvarða. Þar hafa starafð að þeim um fimm hundruð manns, og er varið gífurlegu fé í því skyni. Vitað er að þeir hafa í smíð- um mun stærri gervisól en þá, sem Bretar nota nú við til- raunir sínar. Þá er og vitað að Rússar vinna af kappi að slíkum tilraunum. Einnig vinna sænskir kjarnorkuvís- indamenn að sama viðfangs- efni, er árangri þeirra haldið mjög leyndum, og jafnvel talið að þeir hafi náð svipuðum ár- angri og Bretar. —Alþbl., 30. janúar Stóraukinn bustofn landsmanna ó síðastliðnum fimm órum Sauðfjáreign íslendinga hef- ur aukizt stórkostlega á und- anförnum árum, eða úr 445 þúsund fjár í árslok 1952 í 706 þúsund fjár í árslok 1956. Nemur þessi aukning 260 þúsund fjár á aðeins 5 árum eða meir en um einn þriðja alls sauðfjárstofns landsins. Á árinu 1956 fjölgaði sauðfé í öllum sýslym landsins, mið- að við árið á undan nema í Dalasýslu og Strandasýslu, en í þeim sýslum var niðurskurð- ur vegna mæðiveiki í nokkr- um hreppum. Jafnvel í sum- um kaupstöðum fjölgaði sauð- fé. Fjárflesta sýsla landsins var í árslok 1956 Húnavatnssýsla með nær 77 þúsund fjár og þar næst Þingeyjarsýsla með rúm lega 74 þúsund fjár. Fæst var féð í Gullbringu- og Kjósar- sýslu, aðeins 12 þúsund fjár, enda land þar hrjóstrugt víða og ekki fallið til sauðfjár- ræktunar. í Reykjavík voru hátt á þriðja þúsund fjár í árslok 1956, en Akureyri var þá fjár- flesti kaupstaður landsins með á 4. þúsund fjár. Sauðfjáreigendur á öllu landinu eru rösklega 12 þús- und talsins og koma því tæpar 70 kindur til jafnaðar á hvern framteljanda- Nautpeningi hefur nokkuð fjölgað í landinu á sama tíma- bili. Árið 1952 (í árslok) voru tæplega 43 þúsund nautgripir í landinu, en 47 xh. þúsund fimm árum síðar. Hefur nautgripum fjölgað í öllum þeim sýslum á árinu 1956, þar sem mjólk er fram- leidd til sölu í verulegum mæli. Mest varð fjölgun naut- gripa í Árnessýslu og Rang- árvallasýslu, en einnig veru- leg í Borgarfjarðarsýslu og Mýrasýslu, enda hafði naut- gripum fækkað í öllum þess- um sýslum árið áður vegna óþurrkanna sumarið 1955. Langflestir nautgripir eru í Árnessýslu af öllum sýslum landsins, eða á 9. þúsund og þar næst koma svo Rangár- vallasýsla með tæpt hálft sjö- unda þúsund og Eyjafjarðar- sýsla með rúmlega fimm þús- und nautgripa. í Reykjavík voru um hálf fimmta hundrað nautgripa og yfir 500 á Akur- eyri. Hrossaeign landsmanna fer stöðugt minnkandi. í árs- lok 1952 voru rúmlega 38 þús- und hross á landinu, en fimm árum seinna ekki nema tæp 34 þús. Geitfé er að deyja út, aðeins til 105 geitur á öllu landinu og hefir þeim fækkað frá ári til árs. Svínum hefir fjölgað úr 457 í 746 á þessu fimm ára tíma- bili. Refir og önnur loðdýr voru aðeins til 10 í eigu lands- manna í árslok í hitteðfyrra og getur það ekki minna verið. I landinu eru til rúmlega 93 þúsund hænsni, en sáralítið af öðrum alifuglum, eða rétt rúm lega 200 endur og álíka mikið af gæsum. —VISIR, 29. jan. VITRUN Enski leikarinn frægi, Sir Charles Hawtrey, var háskóla- genginn maður og enginn veifiskati. Hann ritaði endur- minningar sínar og nefndi bókina “The Truth at Last” (Sannleikurinn um síðir). Þar segir hann frá merkilegri vitrun: „Það var í febrúar 1920 að ég veiktist. Ég þjáðist mjög og mér leið illa, en það sem ég minnist alla ævi er vitrun,- sem mér birtist rétt áður en mér batnaði. Hún var svo ljós- lifandi og hafði svo mikil á- hrif á sál mína, að þessum endurminningum væri mjög áfátt ef henni væri sleppt. Mér fannst ég vera hrifinn á loft og borinn hærra og hærra upp í geiminn. Og ég varð gagntekinn af innilegum fögnuði, slíkum fögnuði er enginn maður getur gert sér í hugarlund. Eftir nokkurn tíma varð ég þess var, að ég stóð á gljáandi stétt úr svörtum marmara, framan við mig voru þrep og þar yfir djúpblátt hvel. Og sem ég nú stóð þarna fann ég ósjálfrátt að ég var í návist guðdóms, enda þótt ég sæi engan. Ég varð þess var að ég var með nokkrar gullkúlur í hönd- unum og ég vissi að ég átti að raða þeim á þrepið fyrir fram- an mig. Það var erfitt að koma þeim fyrir, því þær vildu velta alla vega. Ég kraup því á kné til þess að geta raðað þeim sem bezt. Og að lokum tókst mér að raða þeim, og þarna lágu gullkúlurnar og glóðu fagurlega við svartan marmar- ann. Ég var enn krjúpandi, leit yfir þær og sagði: „Mér þykir leitt að mér skuli ekki hafa, tekizt þetta betur.“ Þá heyrði ég rödd, sem svaraði: „Farðu þá og reyndu aftur!“ Og nú varð ég þess var, að ég var aftur borinn um geim- inn á leið til jarðarinnar, og sami fögnuður og áður fyllti sál mína. Skömmu seinna fór mér að batna, og bráðlega gat ég far- ið að starfa. En endurminn- ingin um þessa vitrun hefir alltaf vakað í sál minni, og jafnframt rík meðvitund um, að mér hafi verið gefið nýtt tækifæri „að reyna aftur.“ Þessi orð voru blátt áfram, en þrungin af ástúð og hvatningu. Og ég hefi reynt • . . .“ Báru vinir Sir Charles vitni um, hve gagnger áhrif þessi vitrun hafði á líf hans þau 2 Y2 ár, er hann átti eftir ólifað.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.