Lögberg - 20.03.1958, Síða 2
2
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 20. MARZ 1958
Raforka
RAFMAGN? Jú, satt var
orðið. Vísindamaðurinn Crile
hefur sýnt fram á það í bók
sinni The Phenomena of Life
(Undur lífsins), að „geyma-
rafmagn sé í eðli sínu hið
sama og orka líffrymisins.
Vöðvarnir „vita“ ekki hvílíkri
raforku þeir hafa yfir að ráða“.
Þess vegna er stundum hægt
að fá hjarta til að starfa á ný,
enda þótt það hafi hætt að
slá meðan á skurðaðgerð
hefur staðið, meðal annars
vegna deyfilyfjanotkunar, —
með því að nota rafstraum til
þess.
hjartans
Nokkrum öldum fyrir Krists
burð komst grískur líffæra-
fræðingur að þeirri niðurstöðu
með athugunum sínum, að
hjartað slægi af sjálfu sér.
Uppgötvun hans var enginn
gaumur gefinn um meira en
tvö þúsund ára skeið- Það var
ekki fyrr en á síðustu öld, að
menn tóku að hallast að þessu
aftur, en upp frá því má segja
að læknavísindin hafi stöðugt
verið að leita þess, hvernig
hjartað framleiðir sína eigin
orku. Ekki hefur tekizt að
varpa skýru ljósi yfir þennan
leyndardóm enn, þó hafa
menn lært mikið á seinni ár-
um, og er það rakið í Scien-
tific American, maí hefti 1957.
Til þess að skilja hvernig
hjartað framleiðir orku sína,
er rétt að gera sér ljóst,
hvernig það er byggt og
hvernig það starfar. — Segja
má, að hvert hjarta sé í raun
og veru tvö hjörtu, hægra og
vinstra. Milli þeirra er vegg-
ur, sem verður stinnur, þegar
bæði vinstra og hægra hjarta
slá, en það gera þau samtímis.
Hverju hjarta er skipt í fram-
hólf og afturhólf. Milli þeirra
er blaðka eða loki og önnur
til neðst í afturhólfinu. Þessir
hjartalokar hindra blóðið frá
að renna til baka, eftir að það
hefur sogazt út úr hólfinu.
Hvort hjarta annast sína sér
stöku hringrás, hið hægra til
lungnanna en það vinstra
blóðrásina um líkamann að
öðru leyti. Þegar blóðið kem-
ur inn í framhólf hægra hjart-
ans, úr hringferðinni um lík-
amann, er það fullt af kolsýru.
Þá er hólfið er fullt, opnast
loki og blóðið streymir niður í
afturhólfið. Þegar það er fullt
lokast hólfið og nú sogast blóð-
ið út í lungun, eftir lungna-
slagæðunum, þar sem það
hreinsast af kolsýrunni, og
tekur í sig súrefni. Samtímis
þessu fyllist framhólfið á ný.
Þegar blóðið hefur tekið í sig
súrefnið, hverfur það frá
lungunum og streymir inn í
vinstra helming hjartans, en
þaðan út um líkamann. Ann-
ars má öllu fremur líkja
hjartaslögunum við vindingu
en slátt.
Hvað kemur svo hjartaslætt
inum af stað? í stuttu máli
sagt, eru það raföldur sem
myndast í sérstökum vef, eða
mnút í hægra framhólfinu.
Við keðjuverkun breiðast þær
út frá hólfi til hólfs, yfir bæði
afturhólf, á broti úr sekúndu.
Aukahnútur er í hólfinu til
Framhald á bls. 3
Til Minna Canadisku
samborjjara,
lesenda Lögbergs
Ég flyt yður hér með alúðarþakkir fyrir það fylgi,
er þér hafið veitt mér á liðnum árum, og óska
yður góðrar heilsu, lífsánægju og velmegunar.
THE PROGRESSIVE
CONSERVATIVE PARTY
OF CANADA.