Lögberg


Lögberg - 20.03.1958, Qupperneq 8

Lögberg - 20.03.1958, Qupperneq 8
8 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 20. MARZ 1958 Fréttir fró starfsemi S. Þ. marz. 1958 — FLEST UMFERÐARSLYS í JAPAN — Umíerðarkennsla í skólum dregur úr slysunum Úr borg og bygð Listi yfir nöfn þeirra, er gerðust meðlimir í Skógrækt- arfélagi Islands á þessu ári, 1958: Rósmundur Árnason, Elfros, Sask. $2.00. Páll Guðmundsson, Leslie, Sask., $2.00. Soffía Benjamínsson, 636 Lipton St., Winnipeg, $2.00. G. Magnússon, Gimli, Man., $2.00. Mrs. H- von Renesse, Gimli, Man., $2.00. Mrs. I. Eriksson, Árborg, Man., $2.00. Mr. S. Eymundsson, 1854 W. 5th Ave., Vancouver B.C. $2.00. Mrs. K. J. Thomas, Morden, Man. $2 00. Gísli Gíslason, Lundar, Man. $2.00. Ari Magnússon, 595 Lipton St., Winnipeg, Man. $2.00. Mrs. E. P. Jónsson, Queens Apts., Winnipeg $2.00. Guðmann Levy, 185 Lindsay St., Winnipeg $2.00. Haraldur Bessason, Ste. 14, Ft- Garry Manor $2.00. Þorsteinn Mýrmari, Oak Point, Man- $2.00. Sigríður Jakobsson, 628 Agnes St., Winnipeg $2.00. Mrs. H. Sigurdson, 526 Ar- lington St., Winnipeg $2.00. Árni Sigurðsson, Seven Sisters Falls, Man. 2.00. Mrs. Elísabet Paulson, 652 Goulding St. Winnipeg $2.00. Mrs. Sigríður Árnason, Win- nipeg $2.00. Karl Hanson, 636 Home St., Winnipeg (fyrir 3 ár) $6.00. Með innilegu þakklæti- F. h. Skógræktarnefndar Marja Björnsson 1080 Dorchester Ave. Winnipeg, Man. ☆ — DÁNARFREGN — Sigfús Franklin Peterson frá Víðir, Man. lézt á föstudaginn 14. þ. m. 73 ára að aldri. Hann var fæddur í Riverton, en stundaði búskap í Víðir í 45 ár. Hann lifa kona hans, Aldís; tveir synir Ragnar og Peter, báðir í Víðirbyggð; þrjár dætur, Mrs. Victor Jó- hannson og Mrs. Valdi Jó- hannson í Víðribyggð og Mrs. W. N. Oddleifson í Atikokan, Ont.; fjögur barnabörn; fjórar systur, Mrs. Kristján Reykdal í Transcona, Dóra og Mrs. Ás- björn Pálsson í Vancouver og Mrs. J. P. Paulson í Langford, B. C. Útförin var gerð á þriðju daginn- Dr. Valdimar J. Ey- lands og séra J. Larson fluttu kveðjumál. ☆ — DÁNARFREGN — Hinn 10. þ. m. andaðist í Selkirk Benjamín Magnússon, 73 ára að aldri. Hann átti eng- in náin skyldmenni í Ameríku, en var fóstursonur Elíasar Kjernested, sem nam landið Laufás í Víðinesbyggð í Nýja íslandi. Benjamín var vand- aður maður til orða og verka. Útförin var gerð frá Gilbart’s í Selkirk 13. þ. m. MESSUBOÐ Fyrsta lúterska kirkja Sr. V. J. Eylands, Dr. Theol. Heimili 686 Banning Street. Sími SUnset 3-0744. Guðsþjónustur á hverjum sunnudegi: Á ensku kl. 11 f. h. Á íslenzku kl. 7 e. h. Hinu grugguga og nafnlausa bréfi, er birt var á framsíðu Heimskringlu síðastliðna viku, mun svarað við hentugleika. Veðurfræðingur lýkur embættisprófi í læknisfræði Haustið 1952 innritaðist Björn L. Jónsson veðurfræð- ingur í læknadeild Háskóla ís- lands. — Björn var þá 48 ára að aldri og vakti það eðlilega nokkra athygli. Þá hafði Björn starfað við veðurstofuna um margra ára skeið. Að vísu var hann meðal þeirra sem fremst- ir voru í flokki Náttúrulækn- ingafélagsins hér í bænum og áhugi hans mikill á því sviði. 1 gærdag gekk Björn L. Jónsson upp að prófborðinu í læknadeildinni og lauk þar lokaprófi í síðustu grein lækn- xsfræðinnar í bóklegum fræð- um. Síðdegis í gær lauk hann svo síðustu prófrauninni — „klinik“ í Landsspítalanum. Björn var ekki til viðtals í gærdag, en í gærkvöldi hitti tíðindamaður blaðsins gamlan bekkjarbróður Björns. Sagði hann, að Björn myndi örugg- lega hafa tekið hið þunga læknisfræðinám mjög föstum tökum, því hann væri mikill og góður námsmaður- Kvaðst þessi gamli skólabróðir Björns samfagna honum af heilum hug. Björn L. Jónsson er Hún- vetningur að ætt, frá Torfa- læk í Austur-Húnavatnssýslu, 54 ára að aldri. Hann varð stúdent 1925 og kandidat í veðurfræði við við Svarta- skóla í París 1930. —Mbl., 31. jan. Konan: — Ef einhver segir eitthvað við þig, þá fer það inn um annað eyrað og út um hitt. Maðurinn: — Og ef einhver segir eitthvað við þig, þá fer það inn um bæði eyrun og út um munninn. Umferðarslysum fækkar til muna, þar sem tekin hefir verið upp kennsla í umferðar- málum í barnaskólunum. Áður var það algengt víða um lönd, að mikill meiri hluti þeirra, sem slösuðust, eða létu lífið í umferðarslysum væru börn. En nú hefir þetta breyzt þann- ig, að það er eldra fólk, sem orðið er hálfsjötugt, eða meira, sem hættast er í umferðinni. Alþ j óðaheilbrigðismálastof n- un Sameinuðu þjóðanna — WHO — hefir látið fara fram ítarlega rannsókn á umferðar- slysum í 18 löndum. Fara hér á eftir nokkrar upplýsingar frá þeim rannsóknum: Háar hlutfallstölur Dauðsföll af völdum um- ferðarslysa eru flest í Japan, þar sem 2,336 manns fórust miðað við hverja 1 miljón bif- reiða- Tímabilið, sem rann- sóknirnar ná yfir er frá 1953 til 1955. í Bandaríkjunum er tilsvarandi hlutfallstala 129 svo það er talsverður munur á. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin lét gera samanburð á umferð- arslysum á árunum 1950 til 1952 og 1953 til 1955. Kom þá í ljós við þessar rannsóknir, að tala slysa í aldursflokkum yfir 65 ár hafi aukizt til muna, en slysum á börnum fækkað að sama skapi. Danskar umferðaslysatöflur Rannsóknir á umferðarslys- um í Danmörku virðast gefa einkar góða heildarmynd af þróun þessara mála á undan- förnum árum. Á árunum 1950—1952 fórust í Danmörku 41,1 manns í um- ferðarslysum miðað við hverja milljón farartækja. Árin 1953 til 1955 eru samsvarandi tölur 48,9. Aukningin fellur svo að segja öll í aldursflokka frá 65 til 74 ár (úr 112,8 í 135,1). í Danmörku hafa skólarnir lagt mikla áherzlu á að kenna umferðarreglur og hvetja til varkárni í umferðinni. WHO dregur þær ályktanir af rann- sóknum sínum í Danmörku, að fræðsla um umferðarmál í skólunum eigi ábyggilega sinn þátt í að draga úr umferðar- slysum meðal barna og ungl- inga. Þess ber vitanlega að gæta, að þegar talað er um dauðs- föll meðal aldraðs fólks af völdum umferðarslysa, að til- tölulega smámeiðsli, sem ekki myndi gera ungum manni mein, getur auðveldlega orðið öldruðum manni að aldurtila. Algengasta dauðaorsök í umferðarslysum er höfuðkúpu brot. Fólk venst umferðinni Það er langt frá, að flest umferðarslys verði í þeim löndum þar sem bílar eru flestir í hlutfalli við fólks- fjölda. Hins vegar fjölgar um- ferðarslysum venjulega til muna þegar bifreiðum fjölgar skyndilega. Með öðrum orðum mætti segja, að fólk venst um- ferðinni og varar sig á hætt- unum, þegar það kynnist bíl- unum betur. Mun það bæði eiga við um ökumenn og veg- farendur almennt. Það eru aðeins tvö lönd í heiminum, þar sem umferðar- slysum hefir fækkað á undan- förnum árum. Þessi tvö lönd eru Bandaríkin og Irland. I Bandaríkjunum fækkaði dauðaslysum af völdum um- ferðarinnar um 13,4% á árun- um 1952—1955 og um 5,9% í Irlandi á sama tíma. Hér er átt við dauðaslys af völdum umferðarslysa í hlutfalli við bílafjölda. Veit/ingahúsið Naust í Rvík auglýsir: ÞORRAMATUR 1 hverju trogi eru: Súrsuð svið súrt slátur súrsaðir hrútspungar hangikjöt bringukollar c hákarl flatkökur rúgbrauð hveitibrauð smjör. Óski menn eftir vínföngum er mælt með ákavíti eða ís- lenzku brennivíni og Egils- pilsner. Verð fyrir manninn: kr. 60. PROVINCE OF MANITOBA PUBLIC NOTICE Public hearing will be held regarding the distribution of natural gas in the Greater Winnipeg Area. Anyone desiring to present their viewpoint regarding this subject will have an opportunity to do so. They must first present their views in the form of a letter or written brief on or before APRIL 2nd, 1958. The time and place for public hearings will be announced at a later date. Address all communications to the secretary, The Natural Gas Distribution Enquiry Commis- sion, 511 Power Bldg., Winnipeg. The Nalural Gas Distributíon Enquiry Commission of Greater Winnipeg Commissioners: Chairman: J- J. DEUTSCH E. F. BOLE STEPHEN JUBA Vote CCF RE-ELECT Stanley KNOWLES X in W'innipeg North Centre ON MARCH 31 Phone SPruce 2-5795 Authorized by Howard McKelvey Official Agent

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.