Lögberg


Lögberg - 09.10.1958, Qupperneq 3

Lögberg - 09.10.1958, Qupperneq 3
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 9. OKTÓBER 1958 3 GUNNAR HALL: Fyrsti íslenzki óperusöngvarinn — ARI M. JÓNSSON — Þann 17. júní 1927 er þess getið í Berlingske Tidende í Kaupmannahöfn, að nýlátinn sé þar í borginni Ari Johnsen, óperusöngvari, og fór blaðið um hann svofelldum orðum: Hann hafði fyrrum sungið hér í Kaupmannahöfn á mörg- um skemmtunum til hjálpar fátækum listamönnum, en frægðartíð sína átti hann í Berlín og Leipzig, þar sem hann söng í ríkisóperunum og hlaut margvíslega sæmd. En vegna styrjaldarinnar missti hann allar eigur sínar þegar markið féll, og jafnframt hvarf honum allur vinahópur- inn. Eftir það fluttist hann til Kaupmannahafnar og bjó hér afar einmana og gramur for- lögunum og hafði ofan af fyrir sér með söngkennslu. Böndin af hinum mörgu frægðar- sveigum hans voru lögð í kistu hans, og eitt þeirra af sveig frá drottningu Vil- hjálms keisara. Það eru ekki margir hér á landi, sem hafa hugmynd um það, hvaða maður það var, sem þessi eftirmæli birtust um, þrátt fyrir það að hann var fyrsti óperusöngvari ís- lendinga og mjög frægur á sinni tíð. Maður þessi hét fullu nafni Ari Maurus Jóns- son. Ritaði hann föðurnafn sitt Johnsen í stað Jónsson. Ætla ég í fáum orðum að segja frá uppruna og nokkr- um æviatriðum þessa fræga einsöngvara okkar. Á árunum 1856—1867 rak P. H. E. Hygom, kaupmaður verzlun í Hafnarfirði. Við verzlun hans starfaði sem faktor Ari Jónsson, yngri Gamalielssonar bónda á Stokkseyri, en móðurætt Ara kaupmanns var komin af prestunum í Kaldaðarnesi, séra Álfi Jónssyni <di 1671), séra Gísla syni hans (dó 1725) og séra Álfi yngra Gíslasyni (d. 1733). Er þeirra feðga Jóns Gamalielssonar og Ara sonar hans getið lofsamlega í Kambsránssögu. 1 karllegg var Ari kominn af bændum á Stokkseyri. Við Ara er kennt Arahús í Hafnarfirði, sem í sálnaregistrum er nefnt „Götuprýði.“ Til Ara réðist Þuríður formaður sem búða- maður og gegndi einkum utan búðarstörfum hjá honum. Ari andaðist í Hafnarfirði 19. júní 1863 — 67 ára að aldri. Sonur Ara var Daníel Ara- son Johnsen, stórkaupmaður, sem byrjaði kaupmannsferil sinn sem faktor í Neðstakaup- stað á ísafirði. Hann var fæddur og uppalinn í Hafnar- firði. Kona hans var Anna Guðrún Duus dóttir Peter Duus, kaupmanns í Keflavík og konu hans íslenzkrar Ástu Tómasdóttur Bech (söðlasmiðs í Reykjavík) hálfbróður Þórð- ar kanselliráðs Björnssonar í Garði, en alsystir Hans P. Duus, kaupmanns. Dætur Ara voru Anna Sig- ríður kona Torfa Thorgrím- sen, verzlunarstjóra í Ólafs- vík, móðir Maríu konu séra Helga Árnasonar í Reykjavík, og Þóru Elísabetar er átti Þórð Jónsson verzlunarmann er var í Hafnarfirði og víðar. Árið 1865 flytzt Daníel og kona hans alfari til Kaup- mannahafnar til þess að reka þar heildverzlun. Um 1872 setur hann verzlun á fót á Eskifirði, en býr sjálfur áfram í Kaupmannahöfn. Þau hjónin Daníel og Anna eignuðust tvö börn, bæði fædd á Isafirði, Ástu og Ara. Ásta bjó í Kaupmannahöfn ógift og veitti lengi forstöðu barnaheimili og andaðist í Kaupmannahöfn 1923. Ari fæddist 30. maí 1860. Upphaflega gerðist A r i verzlunarmaður, en snéri sér síðar að sönglistinni. Hann mun fyrst hafa lært söng í Kaupmannahöfn. Til Þýzka- lands fór hann ungur að aldri og lærði þar hjá Iffert bezta söngvara þeirrar tíðar. Að námi loknu söng hann í ó- peru í Berlín, Hamborg og London og gat sér hvarvetna hið mesta lof sem söngvari. Meðal annars söng Ari fyrir keisarahirðina þýzku og hlaut mikið lof fyrir söng sinn. Slíkur frami féll fáum í skaut, og á þeim tíma þótti það ein- hver mesti frami sem hugsast gat. Til Islands kom Ari aðeins einu sinni. Kom hann hingað til að leita sér hvíldar og hressingar og dvaldi hér að- eins í 5 daga. Var hann þá á bezta skeiði, kátur og fjörug- ur í anda og hinn skemmtileg- asti í umgengni. Fyrir tilmæli nokkurra manna söng Ari í Góðtemplarahúsinu í Reykja- vík 24. júlí 1901, til ágóða fyrir minnisvarða Jónasar Hallgrímssonar, sem nú stend ur í Hljómskálagarðinum. — Hann söng hér aðeins í þetta eina skipti. í ritdómi um söng Ara sagði Hannes Þorsteins- son, ritstjóri m. a.: Þeir voru margir, er ekki þóttust fegurri söng heyrt hafa, en þetta kvöld. Mig skortir algjörlega söngfræði- lega þekkingu og næmt söng- eyra, til að dæma söng Ara, frá sjónarmiði listarinnar, en eftir þeim áhrifum sem hann hafði á mig, þá er ég illa svik- inn ef slíkur söngur hefur ekki verið sönn list, og það mun einróma álit allra, sem á hann hlýddu. Sérstaklega er mér minnisstæðust mýkt og hreimfegurð tónanna og minnti það mig einna helst á söng Geirs Sæmundssonar, þá er honum tókst bezt upp, en rödd Ara var hærri og þrótt- meiri og vitanlega æfðari, svo að hljómfyllingin og hljóm- fegurðin héldust þar í hendur. Ég man enn vel, með hve mik- illi tilfinningu og innileik Ari söng „Liten fogel,“ en hann söng einnig með hinum sömu yfirburðum kafla úr nokkrum óperum, sem ég kann nú ekki að nefna, og þar lýsti sér til fulls hinn mikli styrkleiki og þróttur raddar- innar samfara þýðleikanum og einkar skýrum textafram- burði, sem ég hefi ekki heyrt betri hjá nokkrum öðrum söngmanni og hefi ég þó hlust að á allmarga bæði hér og erlendis. Eftir lát Ara ritaði Frk. Guðmunda Nielsen frá Eyrar- bakka endurminningar um þessa söngskemmtun hans, og segir þar m.a.; Síðan ég sá Ara Jónsson eru liðin 26 ár. Mér er fyrir löngu úr minni liðið hvernig maður- inn var í sjón, en söngnum hans gleymi ég aldrei meðan ég lifi. Það er þó sérstaklega meðferð hans á einu litlu sænsku lagi, sem mér er minnisstæðust. Ég á þetta lag í gamalli nótnabók, og aldrei hefi ég svo í þessi 26 ár blað- að í bókinni, að ég hafi ekki munað eftir Ara Johnsen þeg- ar ég kem að laginu, sem heitir „Liten fogel“ eftir ó- þekktan höfund, en kvæðið er eftir Matthías Langlet. Mér er nær að halda að meðferð á lagi og texta hafi verið snild- arleg. Mig tekur sárt að heyra um örlög hans að hann hafi endað ævina einmana og ef til vill í örbirgð. En hafi hann oft haft slík áhrif og hlýjað mörgum jafnvel og mér um hjartaræturnar, í þetta eina skipti, sem ég heyrði hann syngja, þá hefur hann vissu- lega ekki til einskis lifað. Eftir að Ari hætti að syngja, settist hann að sem söng- kennari í Hamborg og var þá talinn einn bezti söngkennari þar um slóðir. Efnaðist hann því vel, en missti allar eigur sínar í verðhruninu eftir fyrra stríðið. Þá fluttist hann til Kaupmannahafnar og hóf þar söngkennslu. Af þekktum íslenzkum söngvurum sem nutu kennslu hans voru Óskar Norðmann, kaupmaður, Sig- urður Skagfield, óperusöngv- ari og Viggó Björnsson, síðar bankastjóri í Vestmannaeyj- um. Sigurður og Viggó eru báðir látnir. Ef til vill má það kallast undarleg tilviljun að Ari Jóns son skyldi halda sína einu söngskemmtun á Islandi í á- góðaskyni fyrir minnisvarða Jónasar Hallgrímssonar, þess skálds ,sem orti kvæðið: Enginn grætur íslending einan sér og dáinn. Þegar allt er komið í kring kyssir torfan náinn. En það er einmitt þetta sem átt hefur sér stað um minn- ingu Ara Maurus Jónssonar á Islandi. —Sunnudagsblaðið Business and Professional Cards ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG ÍSLENDINGA í VESTURHEIMI Forseti: DB. RICHABD BECK 801 Llncoln Drive, Grand Forks, North Dakota. Styrkið félagið með því að gerast meðlimir. Ársgjald $2.00 — Tímarit félagsins frítt. Sendist til fjármálaritara: MR. GUÐMANN LEVY, 186 Lindsay Street, Winnipeg 9, Manitoba. Minnist BETEL í erfðaskrám yðar G. F. Jonasson. Pres. & Man. Dlr. Keystone Fisheries Limited Wholesale Distributors of FRESH AND FROZEN FISH 60 Louise St. WHitehall 2-5227 PARKER. TALLIN, KRIST- JANSSON, PARKER AND MARTIN BARRISTERS — SOLICITORS Ben C. Parker, Q.C. (1910-1951) B. Stuart Parker, Clive K. Tallln, Q.C., A. F. Kristjansson, Hugh B. Parker, W. Steward Martin 5th fl. Canadian Bank ot Commerce Building, 389 Main Street Winnipeg 2, Man. WHitehall 2-3561 CANADIAN FISH PRODUCERS LTD. J. H. PAGE, Managing Director Wholesale Distributors of Fresh and Frozen Fish 311 CHAMBERS STREET Office: Res.: SPruce 4-7451 SPruce 2-3917 FRÁ VINI ERLINGUR K. EGGERTSON, B.A., L.L.B. BARRISTER anb SOLICITOR DE GRAVES & EGGERTSON 500 Power Buildlng Winnipeg 1, Manitoba WHitehall 2-3149 Res. GLobe 2-6076 THE MODEL FUR CO. D. MINUK, PROP. Fur Coats Made To Order Repairing, Remodelling, t Relining & Storing and Sports Wear Ladies' Sportswear of First Class Quality Tel. WHitehall 2-6619 Res. JUstice 6-1961 304 Kennedy St. Winnipeg, Mon. Gleym mér ei HÖFN Icelandlc Old Folks Home Socieiy 3498 Osler St., Vancouver 9, B.C. Féhirðir, Mrs. Einlly Thorson, 3930 Marine Drive West Vancouver, B.C. Sfmi Walnut 2-5576 Ritari Mlss Carollne Christoiilierson 6455 West Boulevard Slmi Kerrisdale 88 72 Mamma, segðu mér sögu áður en ég sofna. Móðirin, afundin: Ég kann enga sögu, en ef þú getur haldið þér vakandi til klukk- an hálfeitt, þá kemur pabbi þinn og þá hefur hann tilbúna sögu handa mér. SELKIRK NETAL PRODUCTS Reykháfar, öruggasta eldsvörn, og ávalt hreinir. Hitaeinlngar- rör, ný uppfynding. Sparar eldi.- vlð, heldur hita frá að rjúka út meö reyknum.—Skrlfið, slmlö U1 KELLY SVEINSSON 625 WaU St. Winnipeg Just North of Portage Ave. SPruce 4-1634 — SPruce 4-1634 " 1 i . — S. O. BJERRING Canadian Stamp Co. RUBBER & METAL STAMPS NOTARY & CORPÖRATE SEALS CELLULOID BUTTONS 324 Smilh St. Winnipeg WHltehall 2-4624 A. S. BARDAL LTD. FUNERAL HOME 843 Sherbrook Street Selur ltkklstur og annast um út- farir. Allur útbúnaöur sá beztl. Stofnaö 1894 SPruce 4-7474 P. T. Guttormsson BARRISTER, SOLICITOR, NOTARY PUBLIC 474 Graln Exchonge Bldg. 167 Lombord Street Offlce WHitehall 2-4829 Resldence 43-3864 SPruce 4-7855 ESTIMATES FREE J. M. Ingimundson Reroof Aphalt Shingles. Roof repaire, install vents, aluminum wdndows, doors. J. Ingimundson. SPruce 4-7855 632 Siineoe St. Wlnnipeg 3, Man. Thorvaldson. Eggertson, Bastin & Stringer Barristera and Solicitors 209 BANK OF NOVA SCOTIA Bldg Portage and Garry St. Wllitehall 2-8291 S. A. Thorarinson Barrister and Bolicitor 2nd Floor Crown Trust Bldg. 364 MAIN ST. Office WHitehall 2-7051 Res.: 40-6488 Dunwoody Saul Smith & Company Chartered Accountants WHilehall 2-2468 100 Princess St. Wlnnipeg, Man And offlces at: FORT WILLIAM - KENORA FORT FRANCES - ATIKOKAN The Business Clinic Anna Larusson Office at 207 Atlantic Ave. Phone JU 2-3548 Bookkeeplng — Ineome Tax Insuranee Dr. ROBERT BLACK Sérfræðingur i augna, eyrna, nef og hálssjúkdómum. 401 MEDICAL ARTS BLDG. Graham and Kennedy St. Office WHitehall 2-3851 Res.: 40-3794

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.