Lögberg - 09.10.1958, Blaðsíða 7
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 9. OKTÓBER 1958
7
Ég hygg að Bretar bili fyrr
á taugum en við!
Samlal við EIRÍK KRISTÓFERSSON skipherra á Þór
— Ég held að Bretarnir bili
fyrr á taugum heldur en við,
sagði Eiríkur Kristófersson
skipherra á Þór, er Mbl. átti
tal við hann á Seyðisfirði í
gærmorgun, en þangað kom
Þór til að sækja vatn.
Þetta er fyrst og fremst
taugastríð, sem við heyjum.
Það er erfitt að segja hvað
það tekur langan tíma að
þreyta Bretana og sýna þeim
fram á að fásinna er fyrir þá
að ætla sér að stunda veiðar í
framtíðinni í íslenzkri land-
helgi. Ég hygg að þetta þóf
geti dregizt 1—2 mánuði.
Landhelgisbr j ót arnir
komnir norðar
í fyrri nótt kom hreyfing á
brezku herskipin og togarna,
þá fáu sem á miðunum fyrir
Austurlandi eru, og leituðu
þeir norðar, líklega norður á
Bakkaflóa eða Þistilfjörð, að
því er Eiríkur taldi. Notaði ég
því tækifærið til þess að halda
inn á Seyðisfjörð til þess að
taka vatn, sagði hann, er
blaðamaður Mbl. átti símtal
við hann þar.
— Þið eruð alltaf að hrella
brezku togaraskipstjórana og
herskipin?
— Já, ofurlítið.
í gær gekk óvenjumikið á.
Svartaþoka var á miðunum
og við notuðum tækifærið til
þess að stríða þeim dálítið.
Við sigldum í þokunni upp að
tveimur togurum og létum
svo sem við hygðum á upp-
göngu á skipin. Togaramenn
höfðu ekki fyrr komið auga á
okkur en allt var á tjá og
tundri um borð og þeir þyrpt-
ust út að lunningunni með
krókstjaka og annan útbúnað
til þess að taka á móti okkur.
Eftir að við höfðum siglt góða
stund fast upp með þeim
beygðum við frá út í þokuna
og skildum þá eftir með krók-
stjakana á lofti.
Með mannaðar byssur
I þriðju atlögunni í gær
reyndum við nýtt herbragð.
Við kölluðum til Seyðisfjarð-
ar, og af tilviljun á sömu
bylgjulengd og brezku togar-
arnir og herskipin talast við á.
Bretarnir tóku það sem svo,
að nú væri loks alvara á ferð-
um, nú værum við ákveðnir í
því að taka togara. Það ætlaði
allt vitlaust að verða, skipun-
unum linnti ekki í talstöðina
frá herskipunum og fyrr en
varði sáum við Eastborne
koma brunandi með allar fall-
byssur mannaðar og meira að
s e g j a loftvarnabyssurnar
líka!
En við beygðum frá án
frekari aðgjörða.
— Þið hafið ekki í hyggju
að ráðast um borð í annan
togara eftir tilraunina við
„Northern Foam“?
— Nei, ég tel að það myndi
verða hæpið að reyna það.
Bretinn virðist ætla að sýna
þá hörku að til alvarlegra at-
burða gæti þá dregið. Nei,
okkar aðferð er að þreyta þá.
Og við heyrum alltaf fleiri og
fleiri togaraskipstjóra kvarta
undan svefnleysi og þreytu.
— Hvað heldurðu að þeir
endist lengi?
— Ómögulegt er um það að
segja. Kannske 1—2 mánuði.
Fangarnir sígareiiulausir
— Hvernig hafa fangarnir
9 um borð í H.M.S Eastbourne
það?
— Ágætt eftir því sem við
bezt vitum. Við sáum til
þeirra í gær. En nú fá þeir
ekki lengur að tala við okkur
um stuttbylgjutæki sitt. Bret-
arnir bera allt á milli.
í gær fékk ég skilaboð um
það frá Barry Anderson skip-
herranum á Eastbourne að
þeir væru orðnir tóbakslausir,
strákarnir. Hann sagðist
mundu geta lánað þeim pen-
inga svo þeir gætu keypt sér
sígarrettur í skipsbúðinni, ef
ég ábyrgðist að íslenzka ríkið
greiddi þá með skilum aftur.
Ég lét senda honum þau
skilaboð að á íslandi væri
fram með Biblíuna í annarri
hendinni og sverðið í hinni.
Það sýnist svo sem Anderson
hafi farið að blaða í Biblíunni
eftir þetta, því svo sendi hann
tilvitnunina í orðskviði Salo-
mons í gær. Mér þykir hann
eiginlega hafa sannað sjálfur
með því máltækið, sem ég
sagði honum frá.
Blaðamennirnir gera þá
vitlausa!
— Hafið þið nokkur sam-
skipti haft við brezku sjó-
mennina?
— Við þekkjum þá og þegar
við siglum framhjá brosa
sumir þeirra vingjarnlega til
okkar en aðrir bíta á jaxlinn.
En mér sýnist svo sem þeim
sé mörgum ekkert um allt
þetta gefið. Það eru fulltrúar
togaraeigendanna, sem um
borð í skipunum eru, sem
stappa í þá stálinu og herða
þá í baráttunni. Og svo eru
þarna um borð líka allmargir
blaðamenn, og ekki eru þeir
betri. Þeir gera þá alveg vit-
lausa!
Um það sögðumst við ekki
efast, þökkuðum Eiríki Kristó
ferssyni skipherra fyrir sam-
talið og óskuðum honum og
skipshöfn hans allra heilla í
því „kalda“ stríði, er þeir nú
heyja fyrir Austfjörðum.
Mbl., 7. sept.
Eins og getið var í Lögbergi
fyrir nokkru síðan hefir nú
hinum íslenzku varðskips-
mönnum verið skilað á land
í Keflavík.
Filmstjörnurnar í Holly-
wood hafa nýlega tekið upp
þann sið að gifta sig á morgn-
ana. Ástæðan kvað vera sú, að~
ef hjónabandið er misheppn-
að, þá er þó ekki allur dagur-
inn eyðilagður.
það ekki venja að selja föng
um sígarettur. Ef hann skilur
það ekki, þá verða þeir að
þrauka sígarettulausir þar til
þeir losna úr haldinu.
— Hvað heldur þú að Bret-
ar geri við fangana?
— Hver veit það? Ég hygg
þó helzt að þeir fari með þá
til Englands á H.M.S. East-
bourne og láti þá þar í land.
Með sverðið og Biblíuna
— Brezku herskipin fylgja
ykkur eins og skugginn?
— Já, það má nú segja. í
gærkvöldi fór ég upp undir
land til þess að gera skýrslur,
sem ég þurfti að senda til
Reykjavíkur. Eastbourne kom
í humátt á eftir alla leið upp
að 4 mílunum og beið þar all-
an tímann sem við lágum í
vari. Og hér fyrir nokkrum
dögum fórum við inn á Loð-
mundarfjörð og þá var það
sama sagan. Þeir eru alltaf í
kjölfarinu. Við hreyfum okk-
ur aldrei neitt án þess að
a. m. k. eitt brezka herskipið
fyigi-
— Biblíuvitnanir ykkar
skipherrana hafa vakið mikla
athygli og farið um heim
allan, Eiríkur.
— Já, það var eiginlega
þannig til komið, að þegar við
höfðum sett menn um borð í
Northern Foam á þriðjudag-
inn kom Barry Anderson yfir
í Þór til þess að ræða við mig,
en erindi hans var reyndar
það eitt að lokka mig til þess
að taka mennina aftur um
borð í Þór. Ég neitaði því auð-
vitað harðlega.
Þá fór hann að tala um „of-
beldi íslendinga.“
Ég svaraði honum því til að
það væri gamalt máltæki á ís-
landi að Bretar sæktu jafnan
Fyrir miljónir Canadamanna .
bezta aðferðin til að spara!
0
Tilkynning
um nýju
CANADA
SPARNABAR
VESBIEFIN
fáanleg NÚNA!
Góðir vexiir: 7>xk% fyrir
fyrsta árið og 4%% fyrir
næstu fjórtán árin. Að jafnaði
4.19% á ári þar til þau falla í
gjalddaga.
Má skipta fyrir peninga: Ef
þörf gerist, má skipta veð-
bréfum yðar í peninga hve-
nær sem er, fyrir fullt verð
og vexti.
(MDA
jSAATNGS
BOND
•Tsoo*,
Takmörk: Upp að $10,000 fyr-
ir hvern einstakling. Hver
meðlimur fjölskyldunnar get-
ur keypt upp að þessari upp-
hæð.
Hvar má kaupa: Hvar sem
þér starfið, eða hjá banka
yðar, fésýslumanni, ábyrgðar-
og lánfélögum, fyrir peninga
út í hönd eða með afborg-
unum.
Verjið fé í bjarla framtíð fyrir
yður sjálfan . . . og fyrir
Canada. Gerið ráðstafanir til
að kaupa hin nýju Canada
Spari Veðbréf yðar núna!