Lögberg - 16.10.1958, Blaðsíða 1
71. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 16. OKTÓBER 1958
NÚMER 41
Forsefi Manitobo Medicai Association
1 vikunni, sem leið, komu
saman í Winnipeg á ársþing
Manitoba Medical Association
yfir 1000 læknar frá bæjum
og byggðum í Manitoba og
víðsvegar frá í Canada og
Bandaríkjunum. Auk hinna
venjulegu starfa þingsins, er
stóð yfir í fimm daga, var
haldið upp á tvenn afmæli. Á
þessu ári eru liðin 50 ár síðan
Manitoba Medical Association
var stofnað, og 75 ár síðan
stofnuð var kennsludeild í
læknisfræði við Manitoba-
háskóla.
Þingið kaus Dr. Edward
Johnson, frá Selkirk, forseta
Manitoba Medical Association
fyrir næstkomandi ár. Er það
mikill heiður fyrir þennan ís-
lenzka lækni að vera kosinn
Dr. Edward Johnson
forseti þessara læknasamtaka
einmitt á þessum merku tíma-
mótum í sögu læknastéttar-
innar í Manitoba.
Páfinn Pius XII. látinn
Á fimmtudaginn í fyrri
viku andaðist Páfinn Pius
XII. Hann var 82 ára og hafði
þjónað æ ð s t a embætti
Kaþólsku kirkjunnar í 19 ár
og var 262. páfinn í hér um
bil 2000 ára gamalli sögu
þessarar kirkju, er kvað telja
milli 4—5 milljónir meðlima
víðsvegar um heiminn.
Pius XII. var á margan hátt
merkilegur maður. Hann var
hámenntaður, kunni mörg
tungumál og var svo vel að
sér í ýmissum fræðigreinum,
eins og til dæmis stjörnu-
fræði, að sérfræðingar undr-
uðust. Minni hans var svo frá-
bært, að hann gat þulið löng
kvæði eftir að hafa lesið þau
tvisvar. En það sem mest var
um vert var styrkleiki and-
ans; áhrif hans sem æðsta
manns hinnar alþjóða ka-
þólsku kirkju voru víðtæk.
Hann sá þegar hættuna, sem
kirkju hans stafaði af nazisma
og kommúnisma, þessum
stefnum guðlasts og fyrirlitn-
ingar, og hann hikaði aldrei
við að nota þau varnarvopn,
er hann hafði til að beita —
bannfæringu og útskúfun —
kirkju sinni til varnar. Hann
hvatti fylgjendur kirkju sinn-
ar til að líða píslarvættis-
dauða fremur en að gefa sig
þessum illu öflum á vald.
Páfavaldið er afarsterkt inn
an kaþólsku kirkjunnar. Dag-
blöð Winnipegborgar segja,
að 7 milljónir íbúa Canada
séu kaþólskrar trúar eða um
44 prósent. Það var því lán
fyrir okkar land og mörg önn-
ur lönd að þetta vald var í
höndum eins af mestu ágætis-
mönnum þessarar aldar síð-
ustu 19 árin. Pius XII. óskaði
að sín væri minnst í sögunni
sem „Friðar-páfans,“ en hans
tímabils verður þó minnzt
sem tímabils annarrar al-
heimsstyrjaldarinnar og eftir-
kasta hennar; það er að vísu
ekki hans sök, og hver veit
nema að áhrif hans hafi
stuðlað að nokkru að sigri lýð-
veldisríkjanna.
Hinir 55 Kardínálar innan
kaþólsku kirkjunnar velja
eftirmann Páfans Pius XII.
Vonandi er að þeim takist vel
valið.
Fréttir í stuttu móli
Á laugardaginn s k u t u
Bandaríkjamenn hnetti í átt-
ina til tunglsins með það
í huga að hann myndi geta
snúist umhverfis tunglið.
Gervihnötturinn var nefndur
Pioneer og komst hann 79000
mílur í loft upp í stað 221,000
mílur eins og vonast var eftir.
En langt er frá að tilraunin
hafi algerlega misheppnast.
Enginn gervihnöttur hefir
áður náð slíkri hæð; hann var
og útbúinn ýmsum tækjum,
er sendu til jarðar alls konar
vísindalegar upplýsingar.
----0----
Á miðvikudaginn í fyrri
viku leysti forseti Pakistan,
Iskander Mirza, upp þingið
og tók völdin í eigin hendur;
kvað hann landið í hættu
cegna innbyrðis uppreisnar,
og stjórnar hann nú landinu
með aðstoð hersins.
----0----
Charles de Gaulle hefir nú
skipað franska hernum í
Algeria að draga sig algerlega
út úr stjórnmálunum þar í
landi.
íslenzka söngkonan komin
Guðrún Á Símonar,
sem talin er einhver
bezta söngkona Islands,
kom til borgarinnar á
laugardagskvöldið. Hitt
um við hana að máli á
mánudaginn á heimili
Dr. og Mrs. K. J. Back-
man, 893 Garfield St.,
en hjá þeim dvelur hún
meðan hún er í Winni-
peg.
Miss S í m o n a r er
glæsileg í sjón og lát-
laus og hlý í viðmóti.
Hún er fædd í Reykja-
vík, dóttir Símonar
Johnsen Þórðarsonar
og konu hans Ágústu
Pálsdóttur. Þetta er
fyrsta ferð hennar til
Vesturheims, en hún
kvaðst eiga ættingja
hér í álfu, því systkini
föðurömmu h e n n a r
Sigríðar Hansdóttur
Bierring frá Húsavík,
hefðu flutzt vestur um
haf. Þætti henni vænt
um ef einhver gæti
veitt henni upplýsingar
um hvar afkomendur
þessa fólks væru niður-
komnir.
Fimmtán ára að aldri
hóf Miss Símonar söng-
nám hjá Sigurði Birkis
söngmálastjóra; fór síð-
an utan og stundaði
GUÐRÚN Á. SÍMONAR
í hlutverki Rosalinde í "Die
Fledermaus"
tón- og leiklistarnám í London í sex ár og samtímis söngnám
hjá ítölskum söngkennara Lorenzo Medes. Þaðan hélt hún til
ítalíu og var þar við nám í þrjú ár hjá Carmen Melis hinni
heimskunnu söngkonu.
Síðan hún lauk námi hefir Miss Símonar sungið í flestum
stórborgum Evrópu, yfir útvarp og sjónvarp og hlotið hvar-
vetna frábærlega góða dóma, svo sem þessar umsagnir sanna:
London: „Guðrún Á. Símonar hefur fagra rödd og mikil
dramatísk tilþrif."
Osló: „Tónar hennar eru fágaðir og öruggir eins og þeir
séu meitlaðir í berg. Þeir ná yfir vítt svið, því að hún hefur
mezzo-dýptina og sópran-hæðina.“
Kaupmannahöfn: „Hún er ein af þeim söngkonum, sem
maður mun ávallt minnast og fylgjast með af áhuga.“
Moskva: „Hún er hámenntuð söngkona. Söngur hennar
einkennist af djúpri innlífun og skýrri, hárfínni túlkun.“ —
„Hrein tónmeðferð, algjört áreynsluleysi og næm tilfinning
fyrir listrænni hófsemi eru þættir, sem mjög eru einkennandi
fyrir listgáfu söngkonunnar.“
Reykjavík: „Fullyrða má, að aldrei hafi íslenzk óperu-
söngkona notið sín jafnvel og Guðrún Á. Símonar í hlutverki
hinnar ástríðufullu, skapmiklu og afbrýðisömu Toscu.“ —
„Og bænina víðfrægu í öðrum þætti söng hún af slíkum inni-
leik og glæsibrag, að það atriði snart mig dýpst og hreif mig
mest í öllum leiknum. Það er okkur mikils virði að eiga svo
stórbrotna óperusöngkonu.“
Veitið athygli auglýsingunni á öðrum stað í blaðinu um
söngsamkomur Miss Símonar. Sleppið ekki tækifærinu til að
hlusta á söng þessarar víðfrægu íslenzku söngkonu.
Frú Gerða Ólafsson -
lótin
Hinum mörgu vinum frú
Gerðu Ólafsson kom mjög á
óvart, þegar þeim barst
fréttin um að hún hefði and-
ast á Almenna spítalanum í
Winnipeg á fimmtudaginn í
fyrri viku.
Hún var þrekkona mikil og
lét lítt á því bera þótt hún
gengi ekki heil til skógar.
Frú Gerða var fædd 1881,
ættuð frá Þórustöðum í Ön-
undarfirði. Til Winnipeg kom
hún 1908 og rak um all-langt
skeið greiðasölu, lengst af
Wevil Cafe á Sargent Ave., og
var þar oft gestkvæmt af ís-
lendingum, því að þeim féll
vel hið íslenzka og glaðværa
andrúmsloft er þar ríkti,
undir farsælli stjórn húsráð-
anda og varð Wevil Cafe
nokkurs konar miðstöð þeirra
á þeim árum, þar sem þeir
hittust og ræddu um menn og
málefni yfir kaffibollunum.
Árið 1920 giftist Gerða Hall-
dórsson Kristjáni Ólafssyni,
kunnum og velmetnum lífs-
ábyrgðarumboðsmanni. Þau
stofnuðu heimili í Winnipeg.
Frú Gerða var jafnan virkur
meðlimur í Fyrstu lútersku
kirkju; starfaði bæði í djákna-
nefnd og kvenfélagi kirkjunn-
ar; ennfremur fyrir Sunrise
Lutheran Camp. Hún missti
mann sinn 1943, en börn
þeirra tvö syrgja hana, —
Harold búsettur í Edmonton
og Theodora, Mrs. W. A.
Lippman í Oregon. Barna-
börnin eru fimm; ennfremur
lifa hana tvær systur, Mrs.
Anna Olson, Bremerton,
Wash., og Miss Dosia Hall-
dórsson, Victoria, B.C.
Útförin var gerð á þriðju-
daginn frá Fyrstu lútersku
lútersku kirkju að fjölmenni
viðstöddu. Dr. Valdimar J.
Eylands flutti kveðjumál.
Með frú Gerðu Ólafsson er
gengin til grafar framúrskar-
andi trygglynd kona og góður
vinur vina sinna.
Fylkisþing sett 23.
október
Duff Roblin, forsætisráð-
herra Manitoba-stjórnar, hef-
ir tilkynnt að aukaþing verði
boðað til fundar á fimmtu-
daginn 23. október til þess að
hrinda í framkvæmd ýmiss-
um málum, er flokkurinn
hafði lofað að beita sér fyrir.