Lögberg - 16.10.1958, Page 8
8
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 16. OKTÓBER 1958
!
1
Við munum berjast fyrir alþjóðareglu
um 12 mílna fiskveiðitakmörk
— segir Guðmundur Ó. Guðmundsson, utanríkisráðherra,
sem í kvöld fer til New York á allsherjarþing S. Þ.
Úr borg og byggð
7. oklóber, 1958
Mr. Einar P. Jónsson,
Winnipeg, Man.
Kæri ritstjóri:
Aðeins fáar línur frá suður
sólskinshafinu California. Ég
flutti hingað fyrir mánuði
síðan til að eiga heima ná-
lægt syni mínum, Dr. George
konu hans og 4 börnum
þeirra. Ég bý í Apts. og hef
það þægilegt; geng í lúterska
kirkju á sunnudögum. Hér
fást allir skapaðir hlutir, sem
peningar geta keypt. Nú ætla
ég að biðja þig að gera svo
vel að senda Lögberg til
3161 Clairmont Dr. San Diego
17, California. — Þakka inni-
lega fyrir þennan greiða og
gott blað.
Beztu óskir til allra lesenda
Lögbergs.
Með vinsemd,
M. Goodman
☆
The Rev. Eric H. Sigmar,
President of the Icelandic
Synod, will preach at an Ice-
landic service next Sunday
afternoon, October 19th, at
3 p.m. at Selkirk Lutheran
Church, Selkirk. The Rev.
Edward A. Day, pastor of the
church, will conduct the ser-
vice. At 4:30 p.m. President
Sigmar will dedicate the con-
gregation’s new parsonage at
303 Sutherland Ave., Selkirk.
An open house will follow, to
which all members and
friends of the congregation
are invited.
☆
BÍLL TIL SÖLU —
Hér um bil splunkunýr 1957
“English Ford Consul.” Hefir
aðeins farið 12 þúsund mílur,
útbúinn öllum nýjustu þæg-
indum; fer 30 mílur á galloni;
fæst fyrir $1600.00. Niður-
borgun $600.00. Nánari upp-
lýsingar á skrifstofu blaðsins.
☆
TI LEIGU
Eftir 1. nóvember, íbúð í
húsi á Dominion St., skammt
frá Sargent Ave. — Nánari
upplýsingar í síma SU. 3-8631.
☆
— DÁNARFREGNIR —
Jóhanna Björg Arngríms-
dóttir andaðist 12. október í
Port Arthur, Ontario. Hún
átti fyrrum heima í Selkirk,
og verður lögð til hvíldar í
lúterska grafreitnum þar.
☆
Richard William Goodman,
Selkirk, Man. lézt á mánudag-
inn 78 ára að aldri.
MESSUBOÐ
Fyrsta lúterska kirkja
Sr. V. J. Eylands, Dr. Theol
Heimili 686 Banning Street.
Sími SUnset 3-0744.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
Á ensku kl. 11 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
Allir ævinlega velkomnir
Slys á Winnipegvaini
í dagblöðunum á þriðju-
dagskvöldið birtist lausleg
frétt um að Sigurður Sigurðs-
son fiskimaður frá Árnesi
hefði drukknað í Winnipeg-
vatni. Hafði hann farið út á
vatn að vitja um net sín og
veittu aðrir fiskimenn því
eftirtekt að bátur hans var
mannlaus, en vélin í gangi, og
er talið að hann hafi fallið
útbyrðis. Ekki hafði líkið
fundizt er síðast fréttist. Sig-
urður var 64 ára að aldri.
Frét-tabréf . . .
Framhald af bls. 3
gjörð næsta ár; þá fáum við
allra veðra braut í allar áttir.
Skemmtanir hafa verið fáar
og fremur léttvægar fundnar,
sérstaklega fyrir hina eldri
kynslóð ,en sú yngri unir sér
vel í bílum og á dansleikjum.
Heilsufar er yfirleitt gott,
og fáir hafa dáið, nema helzt
þeir, sem þegar voru farnir
að þrá hið hinzta kvöld.
Ég gleymdi að geta þess að
hirðing uppskeru var ágæt.
Þegar þið fáið þessar línur
verð ég kominn þangað sem
jafnvægi milli hita og kulda
nýtur sín bezt.
Vera má, ef eitthvað sér-
stakt ber til tíðinda, að þið
heyrið frá mér síðar.
Vona að gæfa og friður ríki
hjá ykkur. Kær kveðja.
í friði, ykkar einlægur,
Við munum berjast fyrir
því á allsherjarþingi Samein-
uðu þjóðanna, sem hefst í
New York eftir helgina, að
þingið setji ótvíræðar reglur
fyrir allar þjóðir um 12 mílna
fiskveiðitakmörk, sagði Guð-
mundur í. Guðmundsson,
utanríkisráðherra, í viðtali
við Alþýðublaðið í gær. Ráð-
herrann heldur væntanlega
vestur um haf í kvöld.
Landhelgismál íslendinga
er ekki sem slíkt á dagskrá
allsherjarþingsins og því hef-
ur ekki verið vísað til Sam-
einuðu þjóðanna til úrskurð-
ar, sagði utanríkisráðherra
ennfremur. Hins vegar er
Genfarfundurinn, sem hald-
inn var s.l. vor á vegum Sam-
einuðu þjóðanna, á dagskrá
allsherjarþingsins. Þar með
er það sjálfgert, að landhelg-
ismál íslands komi til um-
ræðu. Höfum við búið okkur
undir það og þegar skýrt frá
þeirri stefnu okkar, að alls-
herjarþingið eigi nú að setja
almennar reglur fyrir allar
þjóðir um fiskveiðilandhelgi
og önnur atriði, sem Genfar-
fundurinn ekki gat afgreitt,
en fresta þess ekki enn að
vísa til nýrrar ráðstefnu.
— Hvað er að segja um
kröfu Þjóðviljans um að við
vísum deilu okkar við Breta
til Sameinuðu þjóðanna?
— Sú tillaga Þjóðviljans er
vanhugsuð, enda hafa ráð-
herrar þeir, sem blaðið styðja,
enga tillögu gert um það í
ríkisstjórninni. Ef þetta væri
gert, mundi málið fara til ör-
yggisráðsins. Þar sem stór-
veldin, — þar á meðal Bretar,
hafa neitunarvald. Hins vegar
liggur Genfarfundurinn fyrir
allsherjarþinginu og virðist,
eins og nú standa sakir, greini
lega skynsamlegast fyrir Is-
lendinga að vinna á þeim vett-
vangi. Þar eru einnig full-
trúar þeirra mörgu þjóða,
sem vænta má helzt að styðji
12 mílna fiskveiðitakmörkin.
Að sjálfsögðu er það tilgang-
ur íslendinga að fá viðurkenn
ingu á 12 mílna landhelginni,
en ekki að nota þetta alvar-
Xega mál til að vekja óþarfar
deilur og úlfúð á alþjóða vett-
vangi.
Við getum búizt við langri
og harðri baráttu í New York,
sagði utanríkisráðherra. Fyrst
verður sennilega um það deilt,
hvort allsherjarþingið eigi að
setja einhverjar reglur um
fiskveiðitakmörkin fyrir öll
lönd nú eða slá því á frest
með nýrri Genfar-ráðstefnu.
Þar munu sennilega margir
verða á annarri skoðun en
við. Verði ákvörðun tekin nú
þarf að vinna sem mest fylgi
fyrir 12 mílurnar. Búast má
við að þangið taki 1—2 mán-
uði.
— Hverjir verða fulltrúar
íslands á þinginu?
Auk mín verður þar Thor
Thors, sem er fastafulltrúi Is-
lands hjá Sameinuðu þjóðun-
um, Pétur Thorsteinsson, am-
bassador í Moskvu, Hans G.
Anderson, ambassador hjá
NATO og Þórarinn Þórarins-
son, ritstjóri. —Alþbl., 13 sept.
Þó við, að sjálfsögðu tölum
vel um þá látnu, þurfum við
ekki endilega að tala illa um
þá, sem eru lifandi.
Kaupið Lögberg
VIÐLESNASTA
ISLENZKA BLAÐIÐ
F0R MAY0R 0F WINNIPEG
VOTE for a nian pledjfed to íi'i ve constructivc
clvlc Kovernnient. Mr. Carrlek — wbo, as a
former alderman and scliool trustee, lui.s altvays
championcd the eause of labor and the small
taxpayer — if eleeted will press for: —
• The purcliase of the old Pt>st Offiee huildins to he used for a
Public Ijibrary, with spaee desianetl for the eomfort and eon-
venience of our senior citizens, providing- such amenities as
newspaiters. tnaaazines. T.V., etc.
• An artlfieial lake at Old Exhibition site, acetvssilile to jtedes-
trians and hus riders, as well as ínotorists.
• A reduced bus t'are for senior eitizens durinjí off i>eak hours,
10 A.M. to 4 P.M.
• A bridge over the C.P.R. tracks. eonnectins: McGregor and
Slierbrook Sts.
VOTE
CARRICK Stan I 1
Carrick Eiection Conunittee
KAUPIÐ OG LESIÐ LÖGBERG
RECITALS
Gudrue A. Simonar
Iceland's Foremosl Soprano
SNJOLAUG SIGURDSON at the piano
ARBORG COMMUNITY HALL. ARBORG. MAN.
Thursday. October 23. at 8.15 P.M.
Sponsored by Esjan
GIMLI LUTHERAN CHURCH. GIMLI. MAN.
Friday, October 24, at 8.15 P.M.
Sponsored by deildin Gimli and Board of Deacons
of Gimli Congregaiion
PLAYHOUSE THEATRE, WINNIPEG. MAN.
Wednesday, Nov. 5, at 8.30 P.M.
H. Ólafsson
ALLIR HAGNAST
— ALLIR GEFA
* *
COMMUNITY
CHEST
*> *
MARGAR FJARGJAFIR í EINNI
Vote C.C.F.
i
For Democratic
Municipal Covernment
Eleci
Ward 2 C.C.F. Elecfion Committee