Lögberg - 01.01.1959, Page 8
8
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 1. JANÚAR 1959
Úr borg og byggð
Vancouver 19. des. 1958
Ritstjóri Lögbergs
Kæri vinur Einar:
Viltu gjöra svo vel og birta
eftirfarandi dánarfregn í
blaðinu:
— DÁNARFREGN —
Að morgni þ. 14. des. 1958
lézt á St. Vincent spítala í
Vancouver, B.C., Carl Finn-
bogason, byggingameistari, —
6553 Knight Rd., Vancouver.
Dauðamein hans var hjarta-
bilun. Hann var aðeins 56 ára
að aldri. Hann lifa ekkja hans,
María, í Vancouver og 4
börn: 2 synir, Carl Junior í
Coquitlam, B.C., og Lawrence
í Vancouver, og 2 dætur,
Elsie Noel og Irene Rosenberg
í Vancouver og 8 barnabörn.
Jarðarförin fór fram þ. 17.
des. frá íslenzku lútersku
kirkjunni í Vancouver, að við-
stöddu fjölmenni; séra Octa-
víus Thorláksson jarðsöng.
Hinn látni var lagður til
hinztu hvíldar í Ocean View
grafreit.
Carl sál. var vinmargur í
Vancouver, Winnipeg og víð-
ar. Hans verður nánar getið
síðar.
Með vinsemd og beztu há-
tíðaróskum til ykkar.
Einlæglega,
G. Steíánsson
☆
— DANARFREGNIR —
Hjálmar Eiríkur Vigfússon,
407 Rosser Ave., Selkirk, Man.
andaðist á Almenna spítalan-
um í Winnipeg á fimmtudag-
inn 25. desember, 61 árs að
aldri. Hann bjó fyrrum að
Oakview, Man., en síðastliðin
12 ár var hann starfsmaður
hjá Booth fiskifélaginu. Hann
lifa kona hans, Guðrún, fjórir
synir, Herbert, Hjálmar, Nor-
man og Leslie, þrjár dætur,
Mrs. Robert Hawes, Mrs.
Helgi Christiansen og Mrs.
David McCartney; 17 barna-
börn og systir hans Mrs.
Guðrún Hallson. Útförin var
gerð frá lútersku kirkjunni í
Selkirk; séra Edward Day
jarðsöng.
----0----
Sigurbjörn Kristjánsson, 89
ára að aldri, andaðist að
heimili sínu sínu að Lundar,
Man. á mánudaginn 22. des.
s.l. Hann fluttist til Canada
árið 1889. Hann nam land að
Otto, Man., og bjó þar með
konu sinni Sigurbjörgu í 18
ár; fluttist þaðan til Lundar
og átti þar heima til æviloka.
Hann lifa þrír synir, Valdi-
mar í Winnipeg, Norman og
Oscar, báðir að Lundar; þrjár
dætur, Guðný (Mrs. J. Long)
í Edmonton, Pálína (Mrs. W.
í’. Breckman) og Sveinbjörg
(Mrs. H. Benedictson, báðar
að Lundar. Ennfremur 21
barnabarn. Útförin var gerð
frá lútersku kirkjunni að
Lundar. Séra Jón Bjarman
flutti kveðjumál.
Hannes Jónasson lézt að
Betel, Gimli, á mánudaginn
15. desember, áttræður að
aldri. Hann lætur eftir sig
konu sína, Guðrúnu, stjúp-
dóttur, Mrs. J. V. Johnson,
þrjú barnabörn og þrjá bræð-
ur á íslandi. Hann var lagður
til hvíldar í Gimli grafreit;
séra J. Fullmer jarðsöng.
----0----
Mrs. Sigríður Simundson
varð bráðkvödd að heimili
sínu í Mapleton, Man. á sunnu
daginn, 21. des s.l. Hún var
76 ára að aldri. Útförin var
gerð frá lútersku kirkjunni í
Selkirk.
----0----
John Johnson, er fyrrum
bjó að Hayland, Man., andað-
ist 24. sept. s.l. í Kelowna,
B.C. eftirlangvarandi hjarta-
sjúkdóm.
☆
— DANARFREGN —
Þann 2. nóvember s.l.
varð Anna Vatnsdal, ekkja
Þórðar heitins Vatnsdal, bráð-
kvödd að heimili sínu í
Seattle, Washington. Verður
þessarar merku konu síðar
getið í Lögbergi.
☆
— Hjartans þakklæti —
Við biðjum Lögberg að
fiytja öllum vinum okkar
austan hafs og vestan, sem
sendu okkur heillaóskir land-
leiðis, loftleiðis, sjóleiðis, sím-
leiðis, þann 21. nóvember og
hinn 6. desember þ. á., okkar
innilegasta þakklæti. Enn-
fremur viljum við þakka
Þjóðræknisfélaginu, s e m
heiðraði okkur með samsæti í
Winnipeg og öllum, sem að
því stóðu, skáldum og ræðu-
mönnum, yfir höfuð öllu lista-
fólkinu, sem þar kom fram og
gerðu kvöldið hátíðlegt, þar
með talin börn þeirra hjóna
Margrétar og Gunnars Sæ-
mundssonar.
Jensína og Guttormur
☆
VEITIÐ ATHYGLI
Frú Guðrún Jóhannesdóttir,
Langholtsveg 6, Reykjavik,
Iceland, óskar eftir að komast
í bréfasamband við systur
sína, Jónínu Jóhannesdóttur,
sem er búsett annaðhvort í
Manitoba eða Bandaríkjun-
um. Þætti henni vænt um ef
einhver gæti sent henni upp-
lýsingar um systur sína.
☆
Dr. Joseph T. Thorson dóm-
ari er nýlega lagður af stað
til New Dehli á Indlandi til
að sitja þing Alþjóð&nefndar
lögfræðinga, en hann hefir
verið forseti þeirra samtaka
frá því að þau voru stofnuð í
Berlín 1952. Síðasta þingið var
haldið í Athens 1955. Dr.
Thorson mun ferðast kring-
um hnöttinn; hann kemur til
Vancouver 31. janúar og
stjórnar réttarhöldunum í
fjármálarétti Canada í Van-
couver, Edmonton, Regina og
e. t. v. í Winnipeg í febrúar-
mánuði.
MESSUBOÐ
Fyrsta lúterska kirkja
Sr. V. J. Eylands. Dr. Thaol
Heimili 686 Banning Street.
Sími SUnset 3-0744.
A íslenzku kl. 7 e. h.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
Á ensku kl. 11 f. h.
Embællismenn Fyrsta
lúterska safnaðar
Á ársfundi Fyrsta lúterska
safnaðar, sem haldinn var í
desember voru þessir kosnir
í stjórnarnefnd safnaðarins:
K. W. Johannson, forseti
Gus Gottfred, vara-forseti
Halldór Bjarnason, ritari
Gordon Gíslason, féhirðir.
Aðrir í nefndinni eru:
Grettir Eggertson
Paul Goodman
William Finnbogason
Paul Clemens
John Ingimundarson
Byron Paulson.
Annara stjarna menn
Framhald af bls. 3
hafa hendur. Og vegna þess
hlýtur hann því að ganga
uppréttur. Hann hlýtur og að
hafa fætur, því að hverri
skepnu er nauðsynlegt að geta
borið sig um.
Þessi er þá lýsing á mann-
inum frá hnetti X. En getum
vér þá dregið nokkuð af henni
um það hvernig hnötturinn X
muni vera?
Þessu er fljótsvarað: Hnött-
urinn mun líkjast mjög okkar
eigin jörð, og sennilega gæt-
um vér lifað þar.
Fyrst er þá að geta þess, að
hnötturinn X getur ekki verið
mikið stærri né minni en
jörðin. Ef hann væri mikið
stærri, þá mundi að dráttar-
afl hans vera svo mikið, að
engri skepnu væri þar líft. En
ef hann væri mikið minni en
jörðin, þá mundi hann ekki
hafa nægilegt aðdráttarafl til
þess að safna um sig gufu-
hvolfi, og þess vegna væri
ekkert lífsloft þar.
Andrúmsloftið á þessum
hnetti hlýtur að vera mjög
svipað og hér, annars gæti þar
varla verið lifandi verur. Þar
hljóta að skiptast á höf og
lönd og veðrátta breytileg
eins og hér. Væri þar til
dæmis óbreytileg veðrátta, þá
hefði ekki þurft á neinum
framkvæmdum að halda. Það
er hið breytilega tíðarfar sem
hefir rekið oss áfram, og sama
máli hlýtur að vera að gegna
hjá þeim, úr því að þeir eru
svo langt komnir að geta smíð
að sér geimför.
Allt þetta sýnir, að gestur-
inn utan úr geimnum, getur
ekki verið kominn frá neinni
jarðstjörnu í sólhverfi voru,
því að í þessu sólhverfi er
það jörðin ein, sem getur
framfleytt lífi. Gesturinn er
því lengra að kominn. Og á
því sjáum vér, að hann stend-
ur oss langtum framar um
þekkingu.
Nú verður ekkert fullyrt
um, hvort þetta er vegna þess,
að þeir á X-hnetti séu oss
miklu gáfaðri, eða hvort það
er vegna þess, að lífið hefir
haft lengri tíma til að þróast
þar. En hann hlýtur að vera
langt að kominn.
Næsta stjarna fyrir utan
sólhverfi vort er Alpha
Centauri, en hún er í fjögurra
ljósára fjarlægð. Gesturinn
hlýtur því að vera kominn um
veg, sem ekki er skemmri en
fjögur ljósár. Þetta er svo
stórkostleg vegalengd, að oss
hefur ekki dottið í hug að
reyna við hana. Vér getum
því fræðst um margt og mikið
hjá gestinum.
En eru þá nokkrar líkur til
þess að menn sé á öðrum
hnöttum?
Þess ber þá fyrst að geta,
að í vorri vetrarbraut eru að
minnsta kosti 50 þúsundir
milljóna sólna. í öðrum vetrar
brautum eru hundruð millj-
óna. Vísindamenn þykjast nú
geta fullyrt að langflestum
sólum fylgi jarðstjörnur, og
þá er það óhugsandi, að jörðin
ein af öllum þessum milljón-
um milljóna hnatta sé hæf til
þess að framfleyta lífi—skyn-
semi gæddu lífi. Og ef ein-
hver vera þaðan kæmi í
heimsókn hingað til jarðar-
innar, hlyti hún að vera
maður.
<Úr “This Week Magazine”)
—Lesb. Mbl.
Gaman er að ferðast
Framhald af bls. 7
templara. En þó drekka Is-
lendingar langtum minna en
aðrar Norðurlandaþjóðir. En
svo kvað það vera dýrt, að
vínsvelgir hér mundu gera
uppreisn, ef þeir yrðu að
borga það líku verði og Is-
lendingar gera. Mig minnir að
mér væri sagt, að flaskan af
Skozku Whisky seldist þar
16 dollara en svarti-dauði á
átta — spritt og vatn blandað
til helminga, góður má þeim
þykja sopinn.
Framhald í næsta blaði.
Innköllunarmenn Lögbergs
Einarson, Mr. M. Arnes, Manitoba
Fridfinnson, Mr. K. N. S. Arborg, Manitoba Arborg, Manitoba Geysir, Manitoba Hnausa, Manitoba Riverton, Manitoba Vidir, Manitoba
Arnason, Mr. R. Box 94 Elfros, Saskatchewan Leslie, Saskatchewan Mozart, Saskatchewan Foam Lake, Sask. Wynyard, Sask.
Gislason, G. F. Churchbridge, Sask. Bredenbury, Sask.
Magnússon, Einar 401 Lake Ave. Selkirk, Manitoba
Thorsteinsson, Mrs. Kristín 74 — First Ave., Gimli, Man. Gimli, Manitoba Husavik, Manitoba “Betel,” Gimli, Man. Winnipeg Beach, Man.
Anderson, Mr. Paul A. . Glenboro, Man. Glenboro, Manitoba Baldur, Manitoba Cypress River, Man.
Lindal, Mr. D. J. . Lundar, Manitoba
Isfjörð, Mr. C. H 5790 Sherbrooke St. Vancouver, B.C. ...Vancouver 15, B.C.
Middal, J. J 6522 Dibble N.W. Seattle 7, Wash., U.S.A. Seattle, Wash., U.S.A.
Simonarson, Mr. A. Box 33 R.F.D. No. 1, Blaine, Wash. . Blaine, Washington Bellingham, Wash.
Finnbogason, Mrs. J. Langruth, Man. Langruth, Manitoba Westbourne, Man.
Grimson, H. B. Mountain, N. Dakota