Lögberg - 30.04.1959, Blaðsíða 1

Lögberg - 30.04.1959, Blaðsíða 1
CDavidAxm^ StudioA, PHOTOGRAPHERS Phone GRover 5-4133 106 Osborne Street WINNIPEG (DcwiddJjfL. SíudioA, PHOTOGRAPHERS Phone GRover 5-4133 106 Osborne Street WINNIPEG 71. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 30. APRIL 1959 NÚMER 18 Fréftabréf úr Húnaþingi TJÖRN, 16. APRÍL 1959 Kæri Einar og lesendur Lögbergs! Páskarnir eru liðnir og ekki kom hretið fyrr en nú. Kuldi er mikill og snjórinn ekki minni, auk frosts og norðan- áttar dag eftir dag. Lítið er um samgöngur um Vatnsnes á veturna og maður er þess vegna heidur mikið út úr. Þess vegna er gott að eiga út- varp. Upp á síðkastið hefir verið auðvelt að ná í Montreal stöðina. Nú heyrði ég sagt um daginn að stjórnmálakosning- ar myndu fara fram í Mani- toba í vor. Það verður eins hér heima og sennilega aftur í haust samkvæmt nýrri reglugerð um breytingu á kjördæmaskipulaginu. Eftir þær kosningar munu verða 60 þingmenn á Alþingi að sögn inanna. Nú er búið að kjósa nýjan biskup. Séra Sigurbjörn Ein- arsson var kjörinn lögmætri kosningu 2. apríl. Séra Sigur- björn er einn lærðasti guð- fræðingur Islands; aflaði hann sér góðrar menntunar bæði hér heima, í Svíþjóð og víðar. Hann er ungur maður, aðeins 47 ára að aldri, og menn vænta mikils af honum. — Séra Sveinn Víkingur, sem verið hefir biskupsritari síðan á dögum Sigurgeirs biskups Sigurðssonar hættir störfum í vor. Hann er mikill fræði- maður og ágætur útvarpsles- ari; mun hann helga fræði- störfum alla krafta sína, þegar hann lætur af starfi biskups- ritara. — Það er gert ráð fyrir því að séra Sigurbjörn, sem er prófessor við háskólann, verði vígður á Synodus í júní. Séra Ásmundur Guðmunds- son biskup hefur skipað virðu legan sess í biskupsstólnum og prestastéttin h é r n a mun sakna hans. Hann kenndi sem professor við Háskólann meg- in þorra presta og þekkti þá sem lærifaðir og hirðir, sálu- sorgari og vinur. Sæluvikunum báðum á Blönduósi og Sauðárkróki er lokið. Margt var til skemmt- unar á báðum stöðum: leikrit, upplestur, myndasýningar og dansleikir. — Ég sé að kind- urnar mínar eru komnar upp til fjalla. Það er mjög kalt í veðri og nauðsyn ber til að sækja þær og hýsa. Þegar ég var að ljúka við þetta bréf til ykkar, var drep- ið á dyrnar, og þegar ég lauk þeim upp, stóð þar Ari Jóns- son, sem mörg ykkar kannast við — hann er til heimilis í Árborg, en bjó um skeið í Wynyard. Þess vegna getið þið ykkur nærri að mikið hafi verið spjallað um mínar gömlu slóðir og rifjaðar upp góðar endurminningar. Ari var ekki hrifinn af kuldanum, þótt hann sé ýmsu vanur ag sagðist ekki mundu geta búið á Vatnsnesi þótt hann reyndi. Við töluðum dálítið saman á vestur-íslenzku, sem virtist vera „hvíld“ fyrir hann, þótt hann sé góður íslenzkumaður. í þrjá tíma var ég horfinn til ykkar í huganum. Ari varð hissa þegar ég sagði honum nýjustu fréttir frá Canada. — „Færðu bréf svona fljótt að vestan?“ spurði hann. — „Nei, nei,“ svaraði ég og leiddi hann inn í herbergi, þar sem radio sat á borði. Ég opnaði það og honum til mikillar undrunar, var canadískur útvarpsþulur að tylkynna, að einmitt það kvöld myndu Winnipeg Braves og Flin Flon Bombers keppa í ice-hockey play-off. Nú skildist honum hvaðan ég fæ fréttirnar að vestan, og það á jafn afskekktum stað á norðurhluta íslands. Ari ætlar sér að fara héðan til Danmerkur og Þýzkalands og kemur vestur einhverntíma í júní. — Þegar hann kvaddi börn okkar, þau sem voru í Árborg, spurði hann þau hvort þau vildu ekki fara til Árborgar. “Jú,“ svöruðu þau og drengirnir báðu hann fyrir kveðjur til Adda. Þeir gleyma honum aldrei. — Við hjónin báðum hann einnig fyrir kveðjur til allra kunningja og vina í Árborg og sveitunum í kring. Ég óska ykkur öllum gleði- legs sumars. Ykkar einl. Roberl Jack Syngur í Town Holl# New York Hin víðkunna íslenzka söng- kona, Miss Guðrún Á. Símon- ar, er gat sér svo frábæran orðstír hér um slóðir í haust, mun syngja í Town Hall, New York á miðvikudaginn 29. apríl. American-Scandinavian Foundation stendur að þess- ari fyrstu opinberu söngsam- komu hennar í New York. Allt tónlistarfólk sækir eftir að koma fram í Town Hall. Lögberg mun síðar birta frá- sagnir um söng Miss Símonar í þessari sönghöll New York borgar. íslendingar í kjöri í síðasta Lögbergi var getið þriggja íslendinga, er verða í kjöri í Manitoba kosningun- um 14. maí. Síðan hafa tveir aðrir verið útnefndir: Mr. Elíasson er útbreiðslu- málastjóri fyrir C.C.F. flokk- inn í Saskatchewan og Mani- toba. Hann er frambjóðandi fyrir C.C.F. í River Heights kjördæmi í Winnipeg. Oscar Bjornson Mr. Bjornson er frambjóð- andi Progressive Conservative flokksins í Lac du Bonnet kjördæminu. Hlýtur maklegan heiður Fyrir skömmu var þess get- ið í blöðum víðsvegar í Canada, að Dr. Tryggvi J. Oleson, prófessor í miðalda- sagnfræði við Manitoba-há- skóla hefði verið kjörinn “Fellow of the Royal Society of Canada.” Er hér um að ræða hinn mesta heiður, er canadískur háskólamaður get- ur hlotið. Fyrir rúmlega tveimur ár- um hlaut próf. Tryggvi “The Guggenheim Fellowship” til ársdvalar við Harvard-há- skólann í Bandaríkjunum. — Síðastliðið ár var hann skip- aður “Full” Professor við Manitobaáháskólann. Er í öllu þessu fólginn hin mesta viður- kenning á vísindastarfi dr. Tryggva, en hann hefir, meðal annars, samið grundvallarrit um fornsögu Engil-Saxa. Á síðustu tveimur árum hefir hann ritað skarplegar greinar varðandi íslenzka miðalda- sögu í tímaritin „Nordisk Tid- skript för Bok och Biblio- teksvasem og í Steculum, rit miðaldasangfræðinga í Ame- ríku. Hann mun verða einn af höfundum Studia Islandica, ársrits Háskóla íslands árið 1960. Dr. Tryggvi hefir og verið kjörinn til að skrifa fyrsta bindi hins mikla verks, Saga Canada. Lögberg óskar Dr. Tryggva innilega til hamingju með þennan maklega heiður. Hlýtur nómsstyrk Miss Phyllis Thordís John- son hefir enn á ný hlotið námsstyrk vegna hæfileika sinna og ástundunar, en það er The Ionic Lodge Bursary $200.00 veittur til framhalds- náms í Science við Manitoba háskólann. Miss Johnson er dóttir Mr og Mrs. Walter G. Johnson hér í borg. Dr. Tryggvi J. Oleson Útvarpserindi um Þjóðræknisfelogið Þ. 24. marz síðastliðinn fiutti Ríkisútvarpið íslenzka í Reykjavík 25 mínútna erindi um Þjóðræknisfélag Islend- inga í Vesturheimi, sem dr. Richard Beck, forseti félags- ins, hafði talað á segulband sérstaklega fyrir Útvarpið. I erindi þessu rakti ræðu- maður í megindráttum stofn- unar- og starfssögu félagsins, gat margra þeirra, sem þar hafa mest komið við sögu, og vék einnig að nýlega afstöðnu fertugasta afmælisþingi fé- lagsins. Hefir erindið mælzt vel fyr- ir hjá útvarpshlustendum heima á ættjörðinni, að dæma af þakkarbréfum, sem dr. Beck hafa borizt fyrir það. Þorsteinn Jónsson rithöfund- ur fór einnig einkar vinsam- legum orðum um erindið og höfund þess í útvarpsþáttum sínum í Morgunblaðinu. Úr ruslakistunni Að hlægja með glöðum og gráta með hryggum er guðdómnum þóknanlegt sagt. En hjartað skyldi þó hverju sinni í hlátrana og grátana lagt. THE TEAR By KRISTJÁN JÓNSSON Translated by Rev. Runólfur Fjeldsled O sacred spring where healing flows, Thou shining silvery tear, That bringest balm in weary woes And soothest pang and fear. O visit still these orbs, I pray. That tender grace I need. Thou takes mortals’ griefs away, Though sore the heart may bleed. I Rómaborg heiðrar þú háttu Rómar og hjalar þér þvert um geð. Þú hlustar og grundar og hefur að engu þótt hjartað sé ekki með. Heima er bezt Heima er bezt í hlaði og varpa, heima er bezt á túni og engi. Altaf á vor heima harpa hinum öllum mýkri strengi. —P. G. A light from heaven within appears, When dews fall sorrow-born, Because my God will tell my tears; I trust and cease to mourn.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.