Lögberg - 16.07.1959, Page 8

Lögberg - 16.07.1959, Page 8
8 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 16. JÚLl 1959 Úr borg og byggð Ársfundur Icelandic Cana- dian Club fór fram í Unitara kirkjunni, Sargent og Ban- ning. Voru þessi kosin í em- bætti: — Forseti, Caroline Gunnarsson; vara-forseti, H. J. Stefánsson; ritari, Mrs. Lára B. Sigurdson; vara-ritari, Mrs. H. F. Danielson; féhirðir, L. H. Olson. ☆ Mr. Verne Benedictson, for- maður veðurstofunnar í Comax, B.C., kona hans og börn dvöldu í nokkra daga hjá foreldrum Mrs. Benedict- son, Dr. og Mrs S. E. Björns- son, Dorchester Ave., Winni- peg. Ennfremur dvaldi hjá þeim sonur þeirra, Dr. Svein- björn Bjornson, State Medical Examiner í Wilmington, Dela- ware, ásamt fjölskyldu sinni. Þau hjónin heimsóttu og for- eldra Mrs. Bjornson, Mr. og Mrs. S. V. Sigurdson í River- ton, Man. ☆ Mr. og Mrs. S. Benjaminson frá Little River, California, eru nýkomin til tveggja mán- aða dvalar að heimili sínu í Kirkfield Park, Man. ☆ VEITIÐ ATHYGLI! Ekkja með þrjú börn, er stundar atvinnu utan heimilis, óskar eftir aldraðri konu á heimili sitt. — Einkaherbergi, fæði og önnur hlunnindi. Upplýsingar á skrifstofu Lögbergs. ☆ — DÁNARFREGNIR — Frederick Christian Barry Julius, 691 Jessie Ave., Win- nipeg, andaðist á föstudaginn 3. júlí í Winnipeg General Hospital, aðeins 27 ára að aldri. Hann var hraðskeyta- ritari — telegraphist — hjá Canadian National Telegraphs í síðastliðin 7 ár. Hann lætur eftir sig föður sinn Clarence A. Julius í Fort Churchill og tvo bræður, Norman og Gordon. Þessi ungi maður var sonar-sonur hinna mætu hjóna, Bjarna Julius og Sigur- bjargar Swanson Julius. Útförin var gerð frá Bardals útfararstofunni; Rev. E. P. Johnston jarðsöng. ☆ Mrs. Helga Sveinbjornson, er lengi átti heima í Eelfros, Sask., lézt 30. júní í Wadena Union spítalanum. Hún var fædd á íslandi og giftist Jóni Sveinbjornson í Winnipeg 1901. Þau settust að í Elfros 1908 og andaðist hann 1939. Hin látna var í lúterska söfn- uðinum og starfaði mikið í íslenzka kvenfélaginu, var um skeið forseti þess. Hún lætur eftir sig tvo sonu, Helga og Harold í Elfros; eina dóttur, Mrs. Sam Austman í Calgary; níu barnabörn og fjögur barna-barnabörn. Ennfremur þrjár systur: Mrs. S. J. Jó- hannesson og Mrs. H. Jóhann- esson í Winnipeg og Mrs. F. J. Craddock í Saskatoon, og einn bróður, Guðmund Fjeldsted að GimlL ☆ Kjartan Stefánsson, 72 ára að aldri, andaðist 22. júní á Elliheimilinu Betel á Gimli. Hann var fæddur 12. júlí 1886 í Argylebyggð. — Foreldrar hans voru þau Sigtryggur og Guðrún Stefánsson, sem voru ein af frumbyggjum þeirrar byggðar. Fékkst hann við bú- skap í mörg ár eða þar til hann flutti til Morden. En vegna vanheilsu varð hann að breyta til og flutti þá til Win- nipeg og var til heimilis hjá systur sinni og' tengdabróður, Mr. og Mrs. J. Anderson, Layton Apts., í nokkur ár. — Jóhanna kona hans dó 1947. Ein dóttir, Margrét, Mrs. Les Bogarie, Oakland, Cal., syrgir föður sinn; einnig þrjár syst- ur, Mrs. G. Björnson, Mrs. J. Anderson og Mrs. O. Stefáns- son. — Rev. E. P. Johnston jarðsöng hinn látna frá Bar- dals Funeral Home. BRÉF: Um drauma Ég hefi lengi reynt að ráða í ýmislegt af því sem mig hef- ir dreymt. Þess vegna tók ég upp á því fyrir all-löngu að skrifa sumt um leið og ég vaknaði, meðan allt var skýr- ast fyrir mér til þess að glata því ekki er frá liði. Mér finnst endilega að ég hafi fengið að vita margt fyrirfram í draumi, en eins og gerist hefir verið mislangt að bíða þess, að þeir rættist. Ég trúi þessu, en bið engan um að gera það fremur en honum sýnist. En tilefni þess að ég rita þessar línur er það, að mig dreymdi eitt sinn svipaðan draum og draum Sig. J. Árness, sem birtur var í Lesbók 25. marz s.l. Sá draumur var þannig: Að morgni 22. des. 1950, kl. 7—8, dreymdi mig að ég væri staddur hér úti á túni, ásamt móður minni, og sá þá allt í einu að eitthvað kom svífandi úr loftinu. Ég kallaði aðvörun til móður minnar, að For Prompt, Clean and Courteous Service — C ALL ALLIED CHIMNEY SWEEPS "VACUUM SERVICE" Phone SPruce 2-7741 MESSUBOÐ Fyrsta lúterska kirkja Sr. V. J. Eylands, Dr. Theol Heimili 686 Banning Street. Sími SUnset 3-0744. Guðsþjónustur á hverjum sunnudegi: Á ensku kl. 11 f. h. Allir ævinlega velkomnir verða ekki fyrir þessu, enda kom það niður rétt að baki henni. Þetta var allstór gljá- svartur kassi, sem minnti á einhvers konar ferðaskrínu, en mjög einkennileg, jafnvel skreytt. Sérstaklega man ég eftir allmörgum gullnum krossum á henni. Sá draumur var ekki lengri. Þegar ég vaknaði, fór ég að hugsa um þetta, og fannst mér þá þegar að þetta mundi vera feigðarboði. Réði ég það af lit kistunnar, sem var nákvæm- lega eins og á líkkistu á með- an þær voru svartmálaðar, og svo krossmörkunum gullnu, sem ég kom þó ekki tölu á. Datt mér fyrst í hug, að þetta mundi vera fyrir skammlífi móður minnar, en hún er enn við góða heilsu, nærri níræð. En svo var það um mánaða- mótin jan.-febr. 1951 að flug- vélin „Glitfaxi“ fórst með öll- um mönnum, sem á voru. Þá fannst mér endilega að draum urinn væri forboði um það slys. Flugvélin er á vissan hátt nokkurs konar ferða- skrín. Flugvélin fannst ekki og má því segja að hún hafi orðið líkkista áhafnar og far- þega. — Ef til vill eru draumar vís- bending til mannskepnunnar um að einhverjir viti og ráði meira, heldur en þeir, sem byggja þessa jörð. Það skyldi þó ekki vera, að draumarnir séu nokkurs konar skjágluggi, sem önnur tilverustig halda opnum á milli, til þess að fá okkur til að hugsa upp og út fyrir það, sem við sjáum og skiljum? Lýtingur Jónsson Lýtingsstöðum. —Lesb. Mbl. Mannsheilinn er undursam- legt líffæri. Hann tekur til starfa strax og maður fæðist, og hættir ekki fyrr en maður stendur upp til að halda ræðu. KAUPIÐ OG LESIÐ —LÖGBERG! Afmælis islenzka lýðveldisins minnst í Norður-Dakota Fimmtán ára afmælis ís- lenzka lýðveldisins v a r minnst með sérstakri hátíðar- guðsþjónustu í Víkurkirkju að Mountain, N. Dak., kl. 2 e.h. sunnudaginn þ. 21. júní. Sókna'rpresturinn, sr. Ólaf- ur Skúlason, þjónaði fyrir alt- ari og stjórnaði messugjörð- inni, er hófst með því, að Guðmundur J. Jónasson, for- seti þjóðræknisdeildarinnar „Bárunnar," las bæn í kór- dyrum. Blandaður kór, er saman- stóð af fólki víðsvegar úr ís- lenzku byggðinni söng ís- lenzka sálma undir stjórn Theodores Thorleifson frá Garðar. Ræðuna við guðsþjónustuna flutti dr. Richard Beck, ræðis- maður Islands í Norður- Dakota, er hóf mál sitt með því að flytja kveðjur og heilla óskir Forseta Islands. Annars var ræðuefnið „Þá hugsjónir rætast,“ og lýsti ræðumaður stofnun lýðveldisins að Lög- bergi þ. 17. júní 1944; lagði hann áherzlu á það, hver virðuleiki og söguleg helgi hefði hvílt yfir þeirri athöfn og hve sterklega forráðamenn þjóðarinnar hefðu í ræðum sínum á þeim miklu tímamót- um í sögu hennar slegið á trúarlega strenginn. Dr. Beck minnti einnig á það, að lýð- veldisstofnunin hefði á áhrifa- mikinn hátt dregið athygli Is- lendinga hvarvetna og um- heimsins almennt að sögu hinnar íslenzku þjóðar og menningarlegum afrekum hennar. I guðsþjónustulok sungu blandaði kórinn og kirkju- gestir þjóðsönginn „Ó, Guð vors lands.“ Hátíðarguðsþjónusta þessi var prýðilega sótt, nálega hvert sæti skipað í kirkjunni, eða um 150 manns, hvaðanæfa úr byggðinni. Þótti guðs- þjónustan, sem einstæð mun hafa verið vestan hafs, um allt hin virðulegasta og mun lengi geymast í minni manna. Þar sem hún fór fram sam- dægurs biskupsvígslunni á Islandi, minntist séra Ólafur Skúlason hins nýja biskups, herra Sigurbjarnar Einars- sonar, íslenzku kirkjunnar og heimaþjóðarinnar í ávarps- orðum sínum og bænum, bæði við umrædda hátíðarguðs- þjónustu og annars staðar í kirkjum sínum þann dag. Geta má þess ennfremur, að í ræðu á ensku, sem hann flutti við guðsþjónustu í Vída- línskirkju í Akra-Hensel sókn- um fyrir hádegið þá um dag- inn, vék dr. Beck einnig sér- staklega að lýðveldisstofun- inni og fimmtán ára afmæli hennar. K.. TEACHERS WANTED Manitoba will need many new teachers each year as long as the increase in school population continues at present rates and present conditions prevail. WHAT TEACHING OFFERS: • Training at low cost • Bursaries and Loans to those who need them • Variety of positions in a11 parts of the Province • Highest basic salaries ever offered for fully qualified teachers • Excellent opportunities for advancement • Opportunities for service Grade XII students and others looking to the elementary field are invited to apply for admission to the 1959-60 session of the Teachers College beginning September 8th, 1959. Application forms and other information may !•> obtained from School Inspectors, High School Principals, The Registrar, Department of Education, 140 Legislative Building, Winnipeg 1, or The Principal, Teachers Col- lege, Tuxedo, Manitoba. University graduates who are interested in the second- ary field should apply to The Dean, Faculty of Educa- tion, University of Manitoba, Fort Garry, Manitoba, or The Director, Faculty of Education, Brandon College, Brandon, Manitoba. For further general information, please write Mr. H. P. Moffat, Supervisor of Teacher Supply. Room 42, Legis- lative Building, Telephone Number, WHitehall 6-7467. MANITOBA DEPARTMENT OF EDUCATION AUTHORIZED BY HON. STEWART E. MclEAN, Mini»t«r Educatien, Provinco of Manitoba*

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.