Alþýðublaðið - 16.08.1960, Side 10
Ritstjóri: öm Elðnoi
Óvænt úrsiit -
ÍBK setti heldur betur strik
í reikninginn hjá Fram, með ó-
væntum sigri sínum á sunnu-
dagskvöldið var á Laugardals
vellinum, í seinni umferð I.
deildarinnar.
I leik fyrri umferðarinnar,
sem fram fór £ Kefliavík, £ háv-
aða stormi, sigraði Fram hins-
vegar með yfirburðum. Sá
hefði ekki þótt spámannlega
vaxinn, sem hefði látið hafa
það eftir sér, að næst þegar
þessir sömu aðilar mættust,
myndu Keflvíkingar sigra ör-
ugglega — eins og þarna
varð hinsvegar raunin á. Ekki
aðeins er til markanna tók,
sem urðu fjögur gegn tveim,
heldur og í leiknum í heild,
þar sem Keflvíkingar sýndu
yfirleítt miklu meiri snerpu
og baráttuvilja. Er þetta fyrsti
leikurinn í mótinu, enn sem
komið er, sem Fram hefur tap
lað. En það hefur hlotið aUs 10
stig fram að þessu. Eftir við-
brögðum Fram til að byrja
með, virtist sem liðið vanmetti
algjörlega mótherjana. Hér
væri ekkert að óttast, aðeins
koma, sjá og sigra. Móttaka
auðfengin stig. En það hefur
margur farið flatt á því að
vanmeta aðstæðurnar, og það
gerði Fram að þessu sinni.
MAKK Á SÍÐUSTU
MÍNÚTU.
i ÞAÐ var ÍBK sem tók for-
ystu í leiknum, að því er til
markanna tók, með því að skora
þetta eina mark fyrri íhálfleiks-
isn, á síðustu mínútunni. Það
var Hólm'bert, sem átti' skotið
sem markinu olli. Laust var
það að vísu, og Geir var búinn
að staðsetja sig næsta örugglega
— en á leiðinni að marki' snart
knötturinn einn af varnarleik-
mönnum Fram og það gerði
gæfumuninn. — Knötturinn
breytti um stefnu og hafnaði
óyerjandi í markinu.
Bæði liðin áttu nökkur mark
tæikifæri í hálfleiknum, en
Fram þó sýnu hættulegri. Eins
og þegar Guðmundur Óskars-
son skaut framhjá, úr opinni
stöðu snemma í leiknum og aft
ur síðar, er Heimir varði með
framhjá slætti ágæta vel. Eins
Heimir stóð sig vel í marki ÍBK.
Lið ÍBK
J| Þetta er lið ÍBK sem
1* kom á óvænt á sunnu-
dagskvöldið og sigraði
hið sigursæla lið Fram
með 4:2. Var sigur Kefl-
^ víkinga verðskuldaður.
IMeð Keflvíkingum á
,myndinn:i er Afbert
Guðmundsson, sem hefur
þjálfar þá undanfarnar
vikur. Ljósm. J. Vilberg.
IWWMWWWWWWWWW
átti Gretar Sigurðsson fast skot
í stöng, eftir að hafa hlaup-
ið með knöttinn upp með enda
mörkum og ætlaQi að smeygja
honum inn mi'lli markvarðarins
og stangarinnar, einnig skaut
Hörður, v. úth. vel að markinu,
en rétt yfir slá. Vissulega hefðu
þessi tækifæri og fleiri, sem
Fram fékk átt að skapa þeim
örugga taflstöðu. En misnotuð
tækifæri' eru verri en engin,
það sannaðist hér, sem oftar.
Fyrsta marktækifæri Í!BK kom
úr skalla frá v. innh. eftir fyrir-
gjöf Páls h. úth., en skallað var
fram hjá. Þá komst miðh.
inn fyrir nokkru síðar, en Geir
varði vel með úthlaupi og skot-
ið fór framhjá. Aftur bjargaði
Geir með úthlaupi og stuttu síð
ar skoti frá h. innherja. Á 40.
mín. hlekktist Rúnari illa á, en
hann var annars meginstoð
Framvarnarinnar, Skúli komst
framhjá honum og skaut en
Geir bjargaði. Á síðustu mín-
útu skoraði svo ÍBK eins og
fyrr segir.
ÍBK HERÐIR
RÓÐURINN.
Flestir bjuggust við að Fram
myndi reka af sér slyðruorði'ð
í síðari hálfleiknum og hefja sig
þegar upp úr því sleni, sem virt
i'st einkenna leik þeirra, í fyrri
hálfleiknum. En fyrstu 20 mín-
útur leiksins voru að mestu jafn
Olympíudagurinn
fer fram i
Vilhjálmur
fj 9
í KVÖLD kl. 19,45 hefst
keppni Olympíudag^ins á
Laugardalsvellinum með hand
knattleik kvenna og þá leika
íslenzka liðið sem sigraði Svía
á Norfturlanéjl.mótlnu gegn
úrvali annarra handknattleiks
kvenna.
Keppt verður auk þess í
knattspyrnu, úrslitaleikur 2.
fl. fslandsmótsins — ÍA—Val-
ur.
OLYMPÍUFARARNIR
KEPPA.
íslenzku olympíulTararnir í
frjálsum íþróttum keppa einn-
ig allir og mestur spenningur
inn er að sjálfsögðu í sambandi
við þrístökkið, en þar er Vil-
hjálmur Einarsson meðal þátt-
takenda. Valbjörn keppir í
Islenzki
olympiubún-
ingurinn
íslenzku olympíufar-
arnir verða í sérstökum
einkennisbúningi, eins
og aðrir olympíuþátttak-
endur. Hann er svipaður
og áður, gráar buxur,
mar'inblár jakki, sami
litur á bindi og hvít
skyrta.
stangarstökki. Jón Pétursson í
hástökki. Svavar Markússon í
1500 m. hlaupi. Hilmar í 100
m. hlaupi og Pétur í 110 m.
grindahlaupi. Ekki er vitað
hvort Björgvin keppir, þar
sem hann hefur nýlokið við
tugþrautarkeppni meistara-
mótsins. Búast má við mjög
skemmtilegu kvöldi á Laugar-
dalsvellinum í kvöld og öllum
ágóðanum verður varið til
styrktar íslenzku olympíuför-
unum.
Vilhjálmur í arsson.
16. ágúst 1960 — Alþýðublaðið