Alþýðublaðið - 16.08.1960, Side 11

Alþýðublaðið - 16.08.1960, Side 11
Björgvin tugþrautarmeistari Vantahi aðeins 60 stig / Ol-lágmarkið MEISTARAMÓT ísiands í frjálsíþróttum lauk nú um helg ina með keppni í tugþraut, 10 km. hlaupi og 4x800 m. boð- hlaupi. Einnig var keppt í 1500 m. hindrunarhlaupi Unglinga- meistaramótsins, sem frestað var á dögunum. if ÁGÆT BYRJUN. Hinir fáu áhorfendur fvlgd- ust af miklum spenningi með því, hvort Björgvin Hólm tæk- ist að ná Olympíulágmarkinu í tugþraut. Hann byrjaði mjög vel á laugardaginn. í fyrstu greininni —■ 100 m. hlaupi náði hann 11,1 sek., en 'Valbjörn Þorláksson, sem sigraði, fékk tímann 10,9 sek. Þetta var mjög gott hlaup og hinir keppend- urnir tveir, Brynjar Jensson og Karl Hólm náðu einnig góð- um tíma, 11,6 sek. Langstökkið var ekki eins gott hjá Björgvin, en segja má að hann liafi verið nokkuð ó- heppinn. Hann stökk alltaf upp fyrir aftan plankann, en náði þó 6,64 m. Valbjörn varð ann- ai með 6,48 m., Karl stökk 6,02 m. og Brynjar 5,52 m. ir kúluvarpbð og HÁSTÖKKBÐ. Árangurinn í kúluvarpinu var einnig nokkuð slakur. Björgvin hefur yfirleitt ekki varpað styttra en 13,40 til 13,50, en í þetta sinn náði hann bezt 13,07 m. og hin köstin tvö voru nokkrum sentimetrum styttri. Brynjar fékk 12,98 m., Karl 11,27 og 'Valbjörn 11,04 m. — Valbjörn náði sér vel upp í há- stökkinu og stökk 1,74 m., Karl var næstur með 1,70 m, en Björgvin var sérlega óheppinn, stökk langt vfir 1,65 m. og var einnig yfir 1,70 m., en felldi af einskærri óheppni. Hann virt- ist vera miög taugaóstyrkur. Brynjar stökk 1,55 m. Ít BJÖRGVIN HLJÓP 400 M. VEL. Þrátt fyrir nokkra golu náð- ist býsna góður árangur í síð- ustu grein fyrri dags — 400 m. hlaupinu. Björgvin var á vztu braut og hafði forystu allt hlaupið og sigraði á 52,8 sek. Valbjörn var á 53,8, Brynjar fékk 57,5 og Karl 58,0 sek. Eftir fyrri dag hafði Björg- vin 3485 stig, Valbjörn 3380, Karl 2793 og Brynjar 2701 stig. i? GÓD BYRJUN SÍÐARI DAGINN. ‘Veður var sérlega gott, þegar keppnin hófst síðari daginn, logn og 18—20 stiga hiti. í fyrstu greininni — 110 m. grindahlaupi sigraði Björgvin með yfirburðum á 15,0 sek. Valbjörn varð annar á sínum langbezta tíma 16,2 sek. Karl þriðji á 17,2, sem einnig er hans langbezti tími og Brynjar fjórði á 19,9 sek. Björgvin sigraði einnig með yfirburðum í kringlukastinu, en var lakari en við var búizt. Hann kastaði 39,77 m. Brynjar var annar með 38,15 m. Val- björn 33,47 og Karl 31,35 m. -k VALBJÖRN 4,30 M. Á STÖNG. . Valbjörn nálgaðist Björgvin mjög í næstu grein, sem var stangarstökk. Hann sigraði með miklum vfirburðum á 4,30 m. Brynjar stökk 3,70 m. og l bræðurnir Björgvin og Karl | 3,40 m. Hafði Björgvin nú að- eins 84 stigum meira en Val- björn. í fyrstu tilraun spjótkastsins náði Björgvin velheppnuðu kasti, 58,16 m., en 'Valbjörn var óheppinn, gerði ca. 62 m. kast ógilt. Þetta fyrsta kast Björg- vins var hans lengsta, Valbjörn náði bezt 57,97 m. Karl 48,51 m. og Brynjar 32,38 m. Aðeins bræðurnir Björgvin og Karl luku við síðustu grein- ina — 1500 m. hlaupið. Til þess að ná olympíulágmarkinu þurfti Björgvin að hlaupa á 4:40,0 mín., en nú var komin töluverð gola og þó að hann hlypi vel vantaði hann rúmar 7 sek. og hljóp á 4:47,4 mín. Karl fékk tímann 5:29,4 mín. í heild má segja, að þetta hafi verið ágæt tugþraut. Björg vin var alveg við sinn bezta árangur, vantaði aðeins 16 stig og 60 stigum frá OL-lágmark- inu. Allir hinir náðu sínu bezta, Kari bætti sinn bezta árangur um rúm 700 stig og Brynjar setti nýtt HSH-met. ÚRSLIT f TÚGÞRAUT. Björgvin Hólm, ÍR, 6440 stig. Valbjörn Þorláksson, ÍR, 5997 stig. Karl Hólm, ÍR, 4670 stig. Brynjar Jensson, HSH, 4219 stig. -jÉf AÐRAR GREINAR. Sveit KR sigraði með mikl- um yfirburðum í 4x800 m. boð- hlaupi á 8:25,6 mín. en í sveit- inni voru Svavar Markússon, Agnar J. Leví, Reynir Þor- steinsson og Kristleifur Guð- björnsson. Drengjasveit ÍR hljóp á 9:05,6 mín. Kristleifur varð íslandsmeist ari í 10 km. hlaupi á 33:39,4 mín. Hafsteinn Sveinsson, Sel- fossi, varð annar á 35:44,4 mín. og Reynir Þorsteinsson þriðji á 37:49,4 mín. í 1500 m. hindrunarhlaupi varð Agnar J. Leví, KR, ungl- ingameistari á 4:50,8 mín., en Friðrik Fxiðriksson, ÍR varð annar á 5:05,6 mín. Björgvin Hólm, íslandsmeistari í tugþraut. vann Fram vin og Pétur til Rómar Á FUNDI sínum í gær á- til keppni á Olympmleikun- kvað Olympíunefnd íslands, um .* Björgvin Holm, Í.R., til að fengnum tillögum Frjáls- keppni í tugþraut. íþróttasambands íslands að senda eftirtalda íþróttamenn Pétur Rögnvaldsson, K.R., til keppni í 110 mctra grinda- I hlaupi. WWtMMMMMWWMWMMW $ Potgiefer slasast ^ Suður-afríkanski ginda hlauparinn Gerhardus Potgieter lenti í bílslysi í Þýzkalandi fyrir helg- ina og er útilokað, að hann geti keppt í Róm. Hann á heimsmet í 440 yds grind, 49,3 sek.' og var sá eini, sem hefði get- að veitt Bandaríkja- mönnum einhverja keppni. Ekki er talið, að' Potgieter sé í neinni lífs- hættu. Framhald af 10. síðu. ræðispuð úti á vellinum og Fram tókst ekki _að ná neinu samfelldu spili. Á 21. mínútu brýst Skúli miðherji ÍBK snögg lega í gegn og á beina braut að marki. II. bakv. Fram kem ur þeim einum vörnum við, að slæma til hans fæti'num svo Skúli fellur við og í staðinn fyr ir, a'llt að því upplögðu marki — fá Keflvíkingar aukaspyrnu, sem síðan er varin. En aðeins stuttu síðar skorar Hólmbert 2. mark IBK, kom markið úr góðri sókn og snöggu skoti, Geir mark vörður var korninn út, en h. bak vörður Fram gerði árangurs- lausa tilraun, til að bjarga á línu. Við þetta tvíefldust Kefl víkingar og svo að segja er leikur var hafinn að nýju skora þejr þriðja markið. En það gerði' Högni Gunnlaugsson, sem lék nú v. útvörð. Lék hann bókstaflega í gegn um Fram- vörnina og renndi knettinum inn. Enn halda Keílvíkigar a- fram sókinni. Fá hornspyrnu, sem Hólmbert vippar laglega úr að marklnu, Geir hafði hlaup ið út, en knötturinn lenti í þver slánni og greip Geir hann úr frákastinu. Er hér var komið leiknum voru fimmtán mínút- ur eftir og höfðu Keflvíkingar skorað þrjú mörk gegu engu. WWWWWMIWWWWWWWWI Yngsti þátttakandinn í Ólymp- íuleikunum í Róm er ítalska stúlkan Luciana Marcinclli, sem keppir í 200 m bringusundi. Hún er aðeins 12 ára. FRAM SKORAR. En sex mínútum síðar tókst Fram loks að skora, gerði Gret- ar það úr ágætri fyrirsendingu Guðmundar Óskarssonar, og öðrum sex mín. síðar, bættu Framarar öðru marki við, skor- aði Björgvin Árnason það. Var nú staðan orðin 3:2, en aðeins þrjár mínútur til leiksloka. — Varð því að hafa hraðan á, ef jafna skyldi metin til fulls. En ÍBK haíði ekki enn sagt sitt síðasta orð. í sóknarlotu, sem þeir rétt á eftir gerðu, fengu þeir aukaspyrnu á vítateigi fyr ir hindrun, óbeina spyrnu. — Knettinum var spyrnt laust til Högna, sem skaut þegar og skor aði fjórða markið á næst síð- utsu mínútu leiksins. Þannig lauk leiknum með ósigri Fram 4:2. Úrslit sem fáir myndu hafa viljað veðja á fyrirfram. „En allt getur skeð í knattspyrnu", eins og aldraður og þungbúinn Framari heyrðist segja um leið og gengið var út af vellinum, eftir þessi næsta óvæntu úrslit. LEIKUR Fram var nú alhir annar en áður og liðið næsta ó- þekkjanlegt frá fyrri leikjum, sem gjarnan hafa einkennst af snerpu og baráttudug. Þetta var nú allt að mestu fjarri. Fram- línan var ósamstæð og seinvirk þverspil áberandi, sem gaf mót herunum aUtof oft tækifæ-ri til að kómast í vörn. Geir hefur átt betri leiki í markinu, en að þessu sinni, þó hann verði ekki sakaður um mörkin. Rúnar barðist vel i vörninni, stundum þó fullharð- ur, en erfitt var um vik. Hin- rik átti og allgóðan leik, sömu leiðis Guðjón Jónsson. Er þá upptalið. En það skorti hins- vegar mjög á alla baráttugleði og ,,humor“ í liðið. Leikgleði og sigurvilji mótherjanna setti þá út af laginu, en það sýndu Kefl víkingarnir í ríkum mæli, eink- um í síðari hálfleiknum. Þeir börðust af krafti og dugnaði cg oftast fyrri ,,á boltann“ og unnu mótherjunum sjaldan stundar griða. Heimir varði vel í markinu og Hörður átti góðan leik sem miðh., en hann í stað Hafsteins, sem var veikur. — Högni reyndist vel, sem fram- vörður og Skúli sótti sig í mið herjastöðunni, en Hólmbert og Páll voru beztu menn framlín- unnar. Undanfarið hefur Albert Guð mundsson leiðbeint Keflvíking um dálítið og hefur það sýni- lega borið góðan árangur. Magnús Pétursson dæmd» leikinn en oft verið röggsam- ari og ákveðnari. E.B. Alþýðublaðið — 16. ágúst 1960 fj,

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.