Alþýðublaðið - 23.08.1960, Qupperneq 2
9
í fltttstjórar: Gísll J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fulltrúar rit-
IftjÖmar: Sigvaldi Hjálmarsson og Indriði G. Þorstoinsson. — Fréttastjóri:
IBjörgvin Guðmundsson. — Símar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasími:
•fl.4 906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Hverfis-
igata 8—10. — Áskriftargjald: kr. 45.00 á mánuði. í lausasölu kr. 3,00 eint,
• jfttgeíandi: Alþýðufiokkurinn. — Framkvæmdastjóri: Sverrir Kjartansson.
tðja gerir kröfur
IÐNVERKAFÓLK á Akureyri hefur gert mikl
< r kröfur á hendur verksmiðjueigendum þar
^yrðra um kauphækkanir og kjarabætur, að því
qr Þjóðviljinn skýrir frá.
f Þessi frétt er athyglisverð fyrir þá sök, að slík
kröíugerð og biríing hennar nú virðist vera brot á
samþykkt, sem ráðstefna Alþýðusambandsins
gerði fyrr í sumar, Þar var meðal annars ákveðið,
að Alþýðusambandið skyldi samræma kröfur fé'
laganna, og hefði samkvæmt því átt að senda ASÍ
óskir Iðju á Akureyri, sem síðan hefði átt að sam
ræma óskum iðnverkafólks á öðrum stöðum. Hlýt-
i|r að liggja í augum uppi, að slík samræming, sem
feiða ætti til sameiginlegrar stefnu um land allt,
Ír skynsamlegri stefna en skæruhemaður.
Kommúnistar, sem sijórna félaginu á Akureyri,
•firðast þannig vera að brjóta stefnu, sem Alþýðu-
^jkmbandið hefur tekið Væri fróðlegt að vita, hvað
hér liggur á bak við. Án efa telja kommúnistar
áuðsynlegt fyrir sig pólitískt að láta ófriðlega,
ar sem kosningar til Aíþýðusambandsþings eru
hefjast. Hitt er og athygiisvert, að höfuðat-
innurekstur í iðnaði á Akureyri eru samvinnufé
lögin undir sterkri framsóknarstjórn. Ætla stjórn
arandstöðuflokkarnir hér að sýna, að hægt sé að
veita verkafólki miklar kjarahætur? Eða eru
kommúnistar að koma bandamönnum sínum, fram
sóknarmönnum, í klípu með því að herða takið
að verksmiðjum undir þeirra stjóm?
RykiB á vegunum
!
RYKXÐ á vegunum sunnanlands var ofboðs-
legt um síðustu helgi. Þurrkar hafa verið miklir
óg stillur, svo að þykkir mekkir lágu hreyfingar-
Ixtlir yfir þjóðvegunum, og var víða illmögulegt
áS aka um þá nema með miklum óþægindum.
\ Þetta ástand minnir enn á þá staðreynd, að gerð
ýaraniegra vega, malbikaöra eða steyptra, má ekki
dragast lengur. Það verður að finna fjármuni og
feysa tæknileg vandkvæði til að gera fjölfömustu
vegina svo úr garði, með menningarþjóðir telja
der sæma.
fMn
í-?
Mafsveina og veitinðaþjónaskólinn
tekur tii siarfa 5. sept. Innritun fer fram í
skrifstofu skólans í Sjómannaskólanum 23. og
24. ágúst kl. 2—4, sími 19675.
Skóiastjóri,
Fæði og þjónusta kosta
90 kr. á dag hjá DAS
EINS og fram licfur komið í
blaðaskrifum síðustu vikur er
mikil óánægja méð stjórn dval-
arheimilis aldraðra sjómanna,
Hrafnistu. Hafa hrafnistumenn
fyrst og fremst kvartað undan
mjög háum kostnaði við fæði
og þjónustu, en hann nemur kr.
90 á dag eða 2.700 á mánuði.
Hinn 4. ágúst síðastliðinn
skrifuðu 29 manns undir bréf,
sem sent var Sjómannadagsráði
um þetta mál. Þar sem ekki hef
ur fengizt svar við óskum bréf-
skrifenda, hefur Alþýðublaðið
verið beðið að birta bréfið. Það
fer hér á eftir:
,,Sem svar við heiðruðu bréfi
yðar, dags. 14. júlí s. i., viljum
við undirrituð' tjá yður eftir-
farandi:
1. Að við vistmenn neitum
að greiða krónur 90,00 á dag
fyrir fæði og þjónustu, en það
er skýrt tekið fram í bréfi yð-
ar, að við eigum ekki að greiða
annað.
2. Við krefjumst þess að
reikningar vfir rekstur heimil-
isins verði lagðir fram, endur-
skoðaðir af löggiltum endur-
skoðendum.
3. 'Við óskum eftir að Sjó-
mannadagsráð geri grein fyrir
því, hvers vegna við erum látn-
ir greiða krónur 32,50 á dag
fyrir þann tíma, sem við erum
fjarvistum við heimilið, þar
sem þér takið það skýrt fram í
fyrrnefndu bréfi að við greið-
um enga húsaleigu,
Þá leyfum við okkur að gera
samanburð á fæðissölunni hér
og hjá þeim mönnum, sem reka
þá atvinnu að selja fæði í þess-
um bæ.
Þeir taka krónur ellefu til
tólf hundruð á mánuði fyrir
fæði. Og á þessu á fjölskylda
þeirra að lifa, en við vistmenn
í Hrafnistu erum látnir greiða ‘
kr. 75,00 á dag, eða krónur 2.
250,00 á mánuði, og auk þess
tekur svo forstjórinn kr. 15,00
á dag úr bæjarsjóði fyrir þá af
okkur, sem ekki getum greitt
mismuninn sjálfir og fær því
þannig kr. 90,00 á dag, eða krón
ur 2.700,00 á mánuði.
Og þar sem forstjórinn hefur
enn á ný tekið þetta fé úr bæj-
arsjóði í heimildarleysi, þá
krefjumst við þess eð það verði
tafarlaust endurgreitt bænum
eða skrifað hjá þeim, sem hef-
ur tekið það.
Þar sem munar svo miklu á
fæði, sem kevpt er úti í bæ og
bví sem við þurfum að greiða
hér krónur 90,00 á dag en kr.
40,00 úti í bæ, þá krefjumst við
þess að tafarlaust verði boðið
út fæðið og þjónustan.
Vonumst eftir skjótri lagfær-
ingu í máli þessu.
Virðingarfyllst,
Hrafnistu, 4. águst 1960.
Björn Gíslason, Sighvatm’
Bessason, 'Vigfús Pálmason,
Björn Halldórsson, Hjörtur
Clausen, Guðrún Pálmadóttir,
Torfi H. Halldórsson, Gísli Jó-
hannsson, Þórarinn Finnsson,
Helgi Benediktsson, Guðjón
Sigurðsson, Kári S. Sólmund-
arson, Gísli Björnsson, Guðm.
Sigurðsson, Hróbjartur Hann-
esson, Þorsteinn Guðmundsson,
Kristján Einarsson, Jón Jóns-
son, Magnús Bjarnason, Sigur-
jón Ólafsson, fv. skipstj., Ein-
ar G. Risberg, Halldór Bene-
diktsson, Einar V. Júlíusson,
Árni Gunnlaugsson, Jóhaim
Jónsson, Guðmundur Þórðar-
son, Vigfús Vigfússon, Valde-
mar Jóhannsson, Karl Karls-
son.
Fulltrúaráð
Sjómannadagsins, 1
Reykjavík11.
tflúselgendafélag |
EleyKlavfkur
Kþmið á slysstað.
ýý Harkalegur áreksiur á
breiðum vegi.
ýý Spjöid með frásögnum
á slysstöðum.
Gamli bærinn í Reykja
hlíð.
„ST. ST. skrifar mér á þessa
leiS: „Síðastliðinn sunnudag var
ég að koma úr ferðalagi frá Þing
vöilum til Reykjavíkur, Þegar
við vorum komnir framhjá Kára
stöðum blasti við okkur hroða-
leg sjón, Stórslys hafði orðið
Fordbifreið hafði rekisf á Opel-
karavan-bifreið. Fordbíllinn
hafði verið á leið til Þingvalla,
en Opelbíllinn á leið til Reykja-
víkur
BÁÐAR voru bifreiðarnar
stórskemmdar og önnur sundur-
tætt og þrjár konur og barn lágu
undir teppum fyrir utan veginn
og sumar konurnar virtust vera
mikið meiddar, enda gat maður
búist við því eftir að hafa séð
annes
lormnu
útlit toifreiðanna, sérstaklega Op
clbílsins. Bifreiðarnar höfðu
skollið saman um miðja fram-
stuðara og er því bersýnilegt að
að minnsta kosti annar bíilinn
hefur verið allt of innarlega á
veginum, Gat ég ekki betur séð,
en að annar bíllinn hefði verið
á ofsalegum hraða iþegar árekst-
urinn varð því að svo mikið
hafði höggið verið. — Á þetta
vil ég þó ekki leggja nelnn dóm,
enda ar ég ekki sjónarvottur ao
slysinu sjálfu.
EN ÁSTÆÐAN til þess að ég
skrifa þér þetta bréf af tilefni
þessa slyss er sú, að áður en við
komum að slysinu höfðu farið
fram úr okkur nokkrir bílar á
ótrúlega miklum hraða og af til-
litsleysi. En það var eftirtektar-
vert, að eftir að menn höfðu séð
ástandið á slysstaðnum var ekið
mjög varlega í bæinn. — Þó skal
ég geta þess, að einum faíl mætt
um við á ofsalegðum hraða og
voru strákar í þeim bíl.
VIÐ VORUM að tala um það
í bílnum, sem ég var a, að í raun
og veru þyrfti að setja upp stór
skilti á slysstöðum þar sem get-
ið væri slyssins og sagt frá þvú
„Hér varð slys. Þrjár konur og
eitt barn stórslasaðist Tveir bíl-
ar eyðilögðust. Ástæðan of hrað
ur akstur — Gáleysi". — Eitt-
hvað á þessa leið. Við vorum
sannfærðir um það, félagarnir,
að slík skilti á slysstöðum
myndu hafa mikil áhrif,
ANNARS er rétt að taka það
fram í sambandi við þetta, að
mjög mikil bót er að umferða-
merkjum, sem sett hafa verið
upp. Þau eru glögg og hafa á-
reiðanlega þau áhrif að draga úr
hættunum. Hins vegar koma
merki varla að notum þegar um
er að ræða gálausa menn. Veg-
urinn þar sem slysið varð á
sunnudaginn er bæði breiður og
góður og ekki um blindar beygj
ur að ræða“.
FERÐALANGUR skrifar: „Ég
kom að Reykjahlíð við Mývatn,
nýlega — og þangað er gott að
koma. G-amli bærinn stendur
þarna við veginn í niðurníðslu
og er hörmulegt upp á að horfa.
Það er ekki líkt Mývatnsbænd-
um að láta slíkt standa lengi um
hirðulaust. Ég vil eindregið
leggja til að bærinn sé lagaður
og hafður til sýnis fyrir ferða-
fólk. Um leið og ég þakka á-
gætar móttökur, vildi ég mæl-
ast til þess, að gamli bærinn sá
ekki hafður í vanhirðu“.
Hannes á horninu. ?