Alþýðublaðið - 23.08.1960, Síða 11
16,31 í jbrístökki
fyrir 2600 árum
NOKKRIR keppendur á ol-'
ympíuleikunum í Grikklandi
fyrir 2600 árum náðu árangri,
sem þeir þyrftu ekki að skamm
ast sín fyrir í dag. Aðeins er
’vitað um árangur fárra þeirra
eftir 26 aldir, en þó er vitað, að
tveir þrístökkvarar, Faillo og
Chionis, stukku árið 660 fyrir
Krist 16,31 og 16,01. Með þeim
árangri kæmust þeir í hvaða
olympíulið sem er í dag, þar
sem olympíumet Brazilíumanns
ins Ferreira da Silva, sett 1952,
er ekki nema 16,35, eða 4 sentí-
metrum betra en árangur Fa-
illos fyrir 2620 árum.
í kringlu og spjóti er erfið-
ara um samanburð, þar eð ekki
er vitað um þyngd þeirra. Fa-
illo kastaði kringlu 28,17 m,, og
Flegia 57 metra. Grikkir köst-
uðu hins vegar spóti ekki vfir
45 metra á fyrstu olympíuleik-
unum, en olympíumet Norð-
mannsins Eigils Daníelsens er
nú 85,71 m.
Hornspyrnuna á eftir slær
hann einnig frá. Rétt fyrir leiks-
lok, eða á 43. mín. sækja Ak-
urnesingar fram, Hinrik bak-
vörður rr*issir af innherjank
um, sem fser sent til Ingvars,
er hleypur hratt á ská inn
að markinu og skapar sér gott
skotfæri. Geir kemur út og
fór sem í fyrra skiptið, Ingvar
skaut framhjá honum og skor-
aði þriðja mark IA í hálfleikn
um. '
GRETARI VIKIÐ ÚR
LEIK.
Á 44. mín skeður það, þegar
Fram er í sókn, að Gretar
miðherji kemst í kast við
Helga markvörð. Dómarinn,
Baldur Þórðarson, taldi hann
hafa brotið svo mikið af sér í
þeim viðskiptum, að hann vís-
ar Gretari út af. Aðspurður í
leikhléi, kvað hann Gretar
hafa rekið hnefa í Helga og
þar sem hann hafi áður í leikn
um fengið áminningu, hafi
hann vísað honum úr leik. —
Gretar segist hins vegar ekki
hafa fengið áminningu fyrr í
leiknum. Svo þar stendur stað
hæfing gegn staðhæfingu. —
Hins vegar yfirgaf Gretar leik
völlinn og Fram lék með 10
menn, það sem eftir var leiks-
ins. Rétt fyrir leikhlé átti svo
Guðmundur Óskarsson hörku-
£kot í slá.
SÍÐARI HÁLFLEIKUR
2 : 1.
Akurnesingar sækja þegar
fast á, en sókn þeirra er hrund-
ið í fyrstu lotu. Aftur skellur
þung sóknaralda á Framvörn-
inni. Markið í yfirvofandi
hættu og er varið með hönd-
i!m bakvarðar. Vítaspyrna er
dæmd, svo sem lög* standa til.
Þórður Jónsson skýtur, skotið
er heldur laust og auk þess
nær beint á markvörðinn, sem
ver auðveldlega. Skömmu síð-
ar kemst Ingvar enn einu
sinni inn fyrir, en Geir tekst
nú að verja með úthlaupi. Á
15. mínútu er Fram í góðri
sókn. Helgi hyggst grípa inn í
með úthlaupi, missir knattar-
ins og Baldur skallar vel að
mannlausu markinu, en þá er
gripið til þess fangaráðs, svo
svo áður við Fram-markið, að
annar bakvörður nær að slá
knöttinn frá með hendi. Víta-
spyrna. Guðmundur Óskars-
son tekur hana en „brennir
af.“
FRAM SKORAR.
Tíu mínútum síðar skora
svo Framarar, Björgvin Árna
son skallar örugglega inn. —
Helgi kemur engum vörnum
við. Standa nú leikar um skeið
3:1. Markið lyfti sýnilega
nokkuð undir Framarana, sem
herða sóknina, en þrátt fyrir
allt tekst þó ekki að skapa sér
aðstöðu til að minnka bilið
meira. Þetta mark si'tt skora
Frammarar er 25 mínútur eru
liðnar af hálfleiknum. En tíu
mínútum síðar bætir Þórður
Jónsson fjórða marki Akurnes
inga við, með hörku skoti og
Framhald á 14. síðu.
OVEN
Svartsýni í Soviet.
— Bandaríkjamenn eru ör-
uggir sigurvegarar í Róm, seg
ir Gabriel Korobkov, aðal-
þjálfari Rússa.
Við eigum enga í karla-
greinunum, sem líklegir eru
til að hljóta gull. Bandaríkja-
menn eru mun betri nú er í
Helsingfors 1952 eða Mel-
bourne 1956. Gegn hlaupurum
þeirra, Calhoun, Glenn Davis,
Thomas o. s. frv. höfum við
engum að tefla (þetta var þó
sagt áður en rússinn Brumel
stökk í hástökki 2,17).
— Vonir okkar eru bundnar
við kvenfólkið, bætti Korob-
kov við. Press-systurnar geta
sigrað í kúluvarpi og grinda-
hlaupi, Elvira Osolína í
spjótkasti, og kvennaflokkur-
inn í 4x100 er mjög sterkur.
Moens trúir á 1.45.0
í 800.
— Roger Moens hinn 31 árs
gamli belgiski leynilögreglu-
maður, sem á heimsmetið í 800
metr. hlaupi, 1.45.7, reiknar
með að hann bæti það í Róm.
— Eg hefi hlaupið mörgum
sinnum undir 1.47.00 undan-
farið, og ég er sannfærður um
að ég get gert betur. Þjálfun-
in fer batnandi, svo ég yrði
ekkert undrandi þó mér tækist
að hlaupa á 1-45.
— Skæðustu keppinautarnir
eru sennilega þeir Kerr frá
Jamaila og Murphy, Banda-
ríkjunum.
Framhald af-10. síðu.
Metcalfe. Mörgum er ekki
Ijóst, að Ralph hafði sigrað mig
eins oft og ég hafði borið sig-
urorð af honum fyrir olympíu-
leikana í Berlín, og ég viídi
sigra í þessari keppni í eitt
skipti fyrir öll. Nú, mér tókst
að sigra Ralph í 100 metrunum,
og það veitti mér í sjálfu sér
mikla ánægju. Ég vann 200
metrana líka, og ég mundi
ljúga, ef ég héldi því fram, að
það hefði ekki glatt mig, alveg
eins og þegar ég hjálpaði banda
rísku boðhlaupssveitinni í 4x
100 m. til sigurs. Sjáið þið til,
maður æfir og æfir og neitar
sér um fjölda hluta. sem aðrir
veita sér daglega árum saman,
og svo virðist þetta skyndilega
allt krystallast í einu augna-
gegna einræðisherra. Haxn
hafði neitað að leyfa nokkrum
negra að sitja í einkastúku
sinni, og hann hafði gert heim-
inum það lióst, að hann teldi í-
þróttamenn sína eins mikið
,,æðri“ og hermenn sína. Flest-
um okkar frá Bandaríkjunum
(eins og öllum öðrum) var ílla
við þessar hugmyndir, og þetta
var dálítið erfiðara fyrir mig
en marga aðra, þar eð ég var
negri. Það var því dálítið erf-
itt að keppa aðeins til að gera
sitt bezta og fylgja t.il fulln-
ustu markmiði Olympiuleik-
anna um alþjóðlega vináttú
„ekki gegnum sigur, heldur
góða baráttu“, eins og stofn-
andi hinna nýju olympíuleika
crðaði það.
En Luz gerði mér það kleift
bliki. Oll hlaupin, sem maður j að vinna þá baráttu. Hann
hefur tapað eða unnið til þessa, | horfði fram hjá Ivtarhætti og
aliur svitinn og tognanirnar og ! stjórnmálum til þess hvernig
Steingrímur og Hörður í sfeallaeinvígi. (Ljósm.: B.B.).
Giftar konur
fengu ekki
aðgang oð OL
FYSTU olympíuleikarnir voru
haldnir fyrir 2736 árum, er Iþ-
hitus konungur skipulagði þá
til að halda upp á vopnahlé í
stríði. Þá voru haldnir 292 leik-
ir í röð. Þeim var hætt aftur
árið 393 eftir Krist samkvæmt
skipun Theodosíusar keisara,
sem lét þá eftir þvingunum ka-
þólska erkibiskupsins í Milanó.
VIÐ hina mifelu sléttu, þar
sem leikarnir fóru fram í gamla
daga, var rúm fyrir 40.000 á-
horfendur. Giftar konur fengu
alls ekki aðgang og ógiftar kon-
ur hættu sér sjaldan þangað.
FYRSTA hlaup á olympíu-
leikum var svokallað „stadium11
er var 192 metra langt, og á 14.
olympíuleikunum var einnig
.,dalium“, sem var 384 metrar.
Síðar var bætt við „dolicum“,
hlaupi, sem svarar til 1500 og
5000 metra.
Á 18. olympíuleikunum voru
tekin upp glíma og fimmtar-
þraut, sem samanstóð af há-
stökki, hlaupi, kringlukasti,
spótkasti og glímu. Síðar komu
líka hnefaleikar og „pancrati-
um“, eins konar sambland af
hnefaleikum og glímu.
lungnasviðinn, allt — allt er
komið undir einu góðu starti,
eða einu slæmu þjófstarti. Mað
u.r er þarna, bíður með þandar
taugar í startblökkunum, og
allt í einu glymur byssan og
maður skilur, að maður er að
hlaupa síðasta stórhlaupið sitt,
og það virðist veigameira að
vinna þetta hlaup en öll hin
samanlögð. Bláu böndin í
menntaskólunum, nafnið í
metabókunum, boð á landsmót
— allt hverfur og virðist hjóm,
því að þetta eru Olympíuleik-
arnir.
Það gæti því virzt, sem ég
hefði getað farið himinlifandi
heim af olympíuleikunum með
verðlaunin í 100, 200 og 4x100
metrum í töskunni. En sann-
leikurinn er sá, að reynsla mín
í langstökkinu var langsam-
lega hæsti punkturinn á ol-
ympíuleikunum 1936 fyrir mér.
Ég vann það, en það var ekki
ástæðan.
Ég setti met, sem ég er svo
heppinn að stendur enn — en
það er ekki heldur þess vegna,
sem langstökkið var mér svo
mikilvægt.
Ástæðan fyrir því, að þessT
grein var mér Svo mikils virði,
Var sú, að maðurinn, sem ég
keppti á móti var nazisti, og
þó var hann einnig vinur minn.
Ef þið munið baksvið þessara
olympíuleika 1936, þá munið
þið, að Hitlers-Þýzkaland, með
hugmyndir hans um „arísk-yf-
irráð“, var að byrja að þramma
yfir Evrópu. Olympíuleikarnir
höfðu verið gerðir að pólitísk-
um fótbolta af hinum æðis-
maður var sem maður, og hann
baðst einskis annars á móti.
'Við urðum traustir vinir á með
an á leikunum stóð.
Hann veitti mér einhverja
hörðustu keppni, sem ég hef
nokkurn tíma fengið í nokkurri
keppni, 0g hann neyddi mig’ tii
c.ð neyta ítrustu krafta til' að
sigra. Þegar ég stökk metstökk-
ið, var Luz Long fyrstur til að
hlaupa til mín og óska mér til
hamingju. Og það var ekki
stutt og óeinlægt handtak. Luz
meinti það.
Jafnvel sigur minn vfir
Ralnh Metcalfe og hin tvö gull-
verðlaunin mín gætu varla
iafnazt á við það, sem það þýddi
fyrir mig að keppa á móti þess-
um Þjóðverja. Það varð mér
fordæmi, sem hefur enzt mér
allt lífið. Mér varð vegna þess-
ar^r keppni ljósari tilgangur
Olympíuleikanna en vegna
nokkurs annars: að frjj.s
keppni meðal frjálsra manna
elur ekki á hatri, heldur vin-
áttu, skilningi og uppfyllingu
beztu tilrauna manns.
RÓM, 19. ág. (NTB). — Hin
ýmsu olympíulið hakla áfram
að streyma íil Rómar og í
tilkynnti blaðaskrifstofa leikj-
anna, að nú væru komnir í-
þróttamenn frá 59 þeirra rúm-
Iega 80 landa, sem þátt munu
taka í 17. olympíuleikunum.
í olympíuþorpinu búa nú þeg-
ar um 2000 manns, og í sigl-
ingaþorpinu í Napolí eru nú 234
siglingamenn. Fínt veður er í
Róm, glaðasólskin en nokkuð
Bæjarkeppni Hafn-
arfjörður-Kópavogur
í KVÖLD og annað kvöld
verður háð bæjakeppni í frjáls-
um íþróttum milli Hafnfirð-
inga og Kópavogsbúa. Keppnin
fer fram á Hörðuvöllum og
hefst kl. 8 bæði kvöldin. Keppt
vérður í 11 - greinum, tveir
kcppcndur frá hvoruni bæ, og
er búizt við mjög hz
jafnri keppni.
Greinarnar, sem kep
1 eru: 100 m. hlaup, 400 ir
4x100 m. boðhlaup, 1
langstökk, þrístökk, :
stökk, kúluvarp, krin
sleggjukast og spjótkasi
Alþýðublaðið — 23. ágúst 1960 %%