Lýður - 17.04.1889, Blaðsíða 4

Lýður - 17.04.1889, Blaðsíða 4
— 60 íl Ivi-ists eptirbreytni og sameining, en mest ú guðsmeð- vitund mannsins og bænina. Bænin er Monráði eitt sem ullt, og pað er eins og hans seinasta orð til sinnar samtíðar se petta: „Trú og kristindómur stendur og fell- ur með guðsmeðvitund og bæn. í pessu tvennu, og engu öðru, hvíla tilveru vorrar mótsagnir (líf og hel, forlög og frívilji) og allar ráðgátur, ef eigi ráðnar, pá samt í ró, en ella er friðurinn farinn, og líf og vitund lendir í upp- námi og yztu myrkrum!“ — llitið er snildarvel pýtt og prentað. ______________________________ FKÉTTIK. Einstök blíða hefir gengið yfir allt land síðan með Góu- lcomu, enda heíir vetrarfarið verið milt hvervetua, pótt frem- ur gjaffellt hafi víðast hvar verið og snjóasamt. Með póstum berast nú fá uýmæli, og engin stórtíðindi frá útlöndum. Hin helztu tíðindi hér næst oss bárust pessa daga með Trvggva frá Látrum, er kom hingað inn úr sinni priðju farð utan úr hafi með góðan lifrarafla. Hann segir lltinn hafíshroða úti fyr- Grímsey. Td hans heíir einnig lítið sézt bæði eystra og vestra síðan leið á veturinn, en hvergi hefir hann komið mjög nærri fjörðum. Fiskiafli var fremur rýr ú Suðurlandi, töluverður við ísafjarðardjúp, pegar gaf á sjó, beztur undir Snæfellsjökli. Hér við Hrísey atiast reytingur af smáfiski, en hafslld er kom- in til inuna hingað inn á Poll. Póstskipið rLaura ‘ komst ekki frá Höfn út um Eyrar- sund fyr en hinn 13 f. m. sekir ísa. Hin miklu frost, er fyr I vetur geysuðu austur i alfuuni, sóttu vestur yfii, svo vetrarfar gjörði hvervetua hart. í Norður-Amerlku var vetr- arfar með allra mildasta inóti. Af dánuin merkismönnum erlendis, er oss næst að nefna liinn nafnkunna landa vorn, Dr. Guðbrand Vigfússon, háskólakennaia I Oxford áEnglandi Hanu andaðist 31. jan. p. á. og mun hafa orðið nærfellt sex- tugur. Hinn ramvopnaði veraldarfriður stendur við sama, en pó pylcir honum poka heldur nær ófriðaráttinni, en sá loptkaldi stendur aí hinu svonefnda austræna máíi, eða úr Svípjóð liinni köldu (Rússlandi), paðan sein frost og fjúk færðist vestur yfir í vetur. Englendingar auka flota sinn og liervarnir með ógrynni fjárframlögum. Parnellsmálið hefir verið sótt með miklu kappi, og var honum talin viss hinn mesti sigur; hefir maður sá, Pigott, er framseldi bréfin, sem honum voru kennd, játað að pau liaíi fölsuð verið. Eptir pað strauk liann til Spánar og réð sér par bana, en blaðstjóri Times“, er málið sótti, helir beðið hina mestu hneysu. Er pað ætlun manna, að ráðaneyti Salisburys muni bráðum verða lokið, en Glaðstone, eða haus sinnar, taki aptur við, og verði pá ofsóknarmálið geng Parnell ný hjálparhvöt í frelsismáli Iranna. A Prakklandi er ráðaneyti Eloquets fallið, en nýtt komið (Tirardi; Boulanger háði mikinn signr við kostning- arnar og varð fulltrúi Parísbúa með 80,000 atkv. um fram meðbiðil sinn. Stendur hann með mikluin æsingarher önd- verður lýöveldi landsins, og dylzt engnm að hann hyggur á hina mestu stjórnbyltingu. í Noregi heldur Jolian Sverdrup enn völdum með styrk hægri manna, sinna fyrri óvina. í Danmörku stóð pingið yíir, og voru fjárlögin í fólkspinginu komin langt á leið til liinna gömlu úrslita, valdboðsins. Valtýr Guðmundsson, einn af vorum gáfaðri yngri námsmönnum frá háskólanum, er nýorðinn doktor I heim speki. Hann hafði samið all-skarpt rit um húsaskipan forn- manna á íslandi. Hryggilegt sjálfsmorð gjörðist I Vínarborg í vetur, er Eudolph rikiseriinginn, skaut sig til bana, Hann var ríthöf- undur og liinn efnilegasti maður, en lenti í raunum miklum, að sögn út úr ástum. Alexander af Battenberg, fyrv. Bolgarafursti, er nýkvong- aður söngkonu einni, pykir pvi setn lítið ætli úr honum að verða, par sem áður stóð til að hann fengi dóttur Friðriks keisara, og að hann myndi eiga mikla framtið fyrir höndum, sem stórhetja í austræua málinu gegn Rússum. I sumar stendur til allsherjarsýning í París, mun pað iví vera alhugaósk allra betri manna á Frakklandi að lands- friðurinn megi haldast með einhverju móti fram yfir pann tíma. Járnturninn mikli er nú langt kominn; áhannaðverða nál. 1000 teta hár (hálfu hærri en nokkur bygging önnur , og máske enn pá hærri en turninn Babel) og á hann bæði að gefa útsýni og lýsa hinn mikla sýningarmarkað. Er mælt að uppi á honurn skuli, pegar fer að skyggja, brenna rafblys með 19 rniljón kerta birtu. Upp í topp á turninum verður mönnum sveiflað á lyptipöllum. Turniu á að kosta hálfa fimmtu millíón. — Skipkomur. „Rósa“ kom til Siglufjarðar fyrra priðju- dag eptir 14 daga ferð frá Khöfn, hún kom síðan liingað á laugardaginn var. J>ann dag kom skíp til Húsavíkur. Engan ís urðu skip pessi var við. F R Æ fráhinuíslenzka garðyrkjufélagi hefi eg nú fengið margar tegundir af til útsölu. Eræ petta hefir reynst ágætis vel að undanförnu, og pola sumar teg- undirnar, t. d. turnips, talsvert frost, svo lítil hætta er á að uppskera bregðist pó illa láti í ári. Leiðarvísir til að rækta garðaávexti eptir landlæknir Schierbeck, hefi eg sömuleiðis til útsölu, og vil eg leyfa mér að livetja sem ílesta bændur til að kynna sér ritling penna og hinar ágætu ritgjörðir landlæknisins í blöðunum, um garð- rækt. Reynslan mun sanna mönnum að öll viðleitni, þar að lútandi horgar sig vel. Akureyri 3. apríl 1889. Eggert Laxdal. Fuglaegg Hérnefndar eggjategundir kaupi eg und- irskrifaður með liœðsta verði: Arnar, Yals, Hrafns, Selnings, Rauðbrystings, Hymbrims, Haftirðils, Tjaldar, Snjótitlings, Auðnutitlings, Músabróð- urs og Skógarprastar; með hinum síðastnefndu 4 tegundum verða hreiðrin að fylgja. Ennfremur kaupi eg flestar aðrar eggjategundir. Oddeyri 16. apríl 1889. J. Y. Havsteen. Til vesturfara. Jpeir sem ætla sér að fá far með Anchor-Línuni eða Dominion-Línunni fyrri hluta sumars p. á. vcrða að innskriía sig fyrir miðjan næsta mánuð, pví ella get eg ekki ábirgst peim að peir geti fengið far héðan til Englands í júnímán. með póstskipiuu „Tbyra“. Akureyri 15. apríl 1889. Jakob Gíslason. Nýtt fjármark Jónatans Davíðssonar á Reykjum í Pnjóskadal: sýlt í stúf hægra, sneitt apt. gagnb. vinstra. gjggT" Til sölu hjá ritst. Lýðs eru ágæt kvennreiðtýi, með niðursettu verði. — Kvittanir fyrir borgun á 1 ári „Lýðs“. Sv. Ólafsson Firði 2 kr. Jóhann Ytra-Lóni 4kr. 50 a. J. Jasonsson Borð- eyri 4kr. 80 a. Jónas Jprastarhóli 2 kr. Einar Hraunum 1 kr. Arnljótur Gíslason 2 kr. síra Jónas Hrafnag. 2 kr. Gunnar Torfum 2 kr. Jónatan fórðarstöðum 2 kr BenediktBakka2kr. Jóhann Illugastöðum 2 kr. Bjavni Etstalandi 2 kr. Halldór Vík í Mýdal 2 kr. sýslum. Sigurður Olafsson 2 kr. Magnús Grund 2 kr. síra Eiríkur Breiðabólsstað 2 kr. Jónas Lund- arbrekku 2 kr. Jpórariim Núpum 2 kr. Guðlaugur Hyammi 2kr. Guðjón Asi 2 kr. Jón Myrká 150 au. síra J. Kolfreyjust. 2 kr. Ritstjóri: Mattli. Joclmmsson. Prentsraiðja: Björns Jónssonar.

x

Lýður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lýður
https://timarit.is/publication/133

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.