Lýður - 28.08.1889, Blaðsíða 4
— 92
urværi hafa, en sem sannreynt er að bezt viðhald og endur-
næringu hafa af kaffinu. Nú er og þess utan kaffið i afar-
háu verði, og haldist verð þess auk tollsins nálægt 1 kr.
pundið, má gjöre ráð fyrir að pundið verði á 1 kr. og 20 a.
þegar tollurinn bætist við. Er það þá orðin ókaupandi vara
fátækum mönnum.
Séra Jón Bjarnason frá Winnipeg er mælt að sé á leið-
inni til laudsins, ásamt konu sinni. Er sagt að honum muni
vera falið það umboð af löndum í Vesturheimi, að útvega
nokkur prestaefni handa hinum nýju söfnuðum þar.
Að þeim lijónum verði vel fagnað þar sem þau koma og
allur sómi sýndur, þorum vér því fremur að gjöra ráð fyrir,
sem það er í flestnm héruðum kunnugt, hve mikla hjálp og
drengskap þau hjón hafa jaínan sýnt fátækum löndum, sem
vestur hafa flutt.
Frú Torfhildur Holm, skáldsagnahöfundurinn, er aptur
kominn til landsins og dvelur um stund að Höskuldsstöðum
hjá systur sinni. Hún hefir enn samið allmikla skáldsögu,
sem byrjað er að prenta. Óskandi væri að alþýða vor vildi
keppast við að sýna þessari gáíuðu konu, og fyrsta íslenzka
rithöfundi hennar kyns, jallan sóma og velvild — m e ð a n
h ú n 1 i f i r. Margir menn og konur fá fulla viðurkenning.
en heldur seint. Margir af vorum andans möunum hafa orð-
ið að lifa sem beiningamenn.
báða með 5^-7 hestum, meir en 5 kr. Ver ætlum og að
5 kr. sé full borgun, eða 2—3 kr. fyrir einn mann með 2
—3 hesta. Fylgdarmenn láta túristar venjulega halda sér
sjálfum kost. Ættu landar vorir sem bezt að gceta hófs
og fornrar hæversku við erlenda gesti, og heldur veita
þeim af skornum skamti, nefnil. ðbreyttan mat, en vera
þeim dýrseldir. J>að er þjóðarminnkun að krenkja fornan
feðrasið í því efni, en að taka fullt fyrir sitt, er öllum
heimilt. Hreinlæti allt gagnvart slikum mönnum er og
mjög áríðandi; sé matur og annað hreint, er öllu borgið.
— J>að er stórfé sem Englendingar færa árlega nálega
hverju landi í Evrópu með þeirra sífelda og ótakmarkaða
ferðalagi.
Margir Englendingar þykja sérlundaðir menn, stundum
líka aðsjálir og tortryggnir (sem annars verður opt þeim,
sem víða fara); venjulegast eru þeir áreiðanlegir menn,
óbreyttir í háttum og mjög óvandfæddir, svo þeim má bera
flestan islenzkan hversdagsmat. Eflaust fjölga þeir meir
og meir komum sínum og ferðum hjá oss bæði á sjó og
landi, einkum ef ísleysið mætti haldast og bærileg tið.
Eitt væri mjög æskilegt, og það er það að víðar en í
höfuðstaðnum, væru til taks fararskjötar og rei&týgi fyrir
túrista. Hér á Akureyri væri nauðsynlegt að slíkir blutir
væri fyrir hendi ef ferðamenn bera hér að, fremur en nú
á sér stað. J>eir sem t. d. lerðast með strandferðaskipum,
mundu opt þiggja hér hosta og taka fylgdarmenn, ef þeir
vissi að allt væri til taks, sem þyrftí.
— Merkur Íslendíngur í Winnipeg skrifar þannig:
„Mér telst svo til, að í Ameriku séu nú um 12,000 íslend.
að þeim börnum meðtöldum,sem hér hafa fæðst. Afþeim
munu nál. 8.000 eiga bólfestu í Canada, og þar af 2,500
í höfuðborg vorri Winnipeg, en það er nál. Vio- Afþess-
um 8000 búa hér um bil 4500 úti á landinu, en 3500 í
bæjum. Öllu þessu fólki ætla ég að í heild sinni líði frem-
ur rel, en þó að jafnaði langt um betur þeim, sem úti á
landsbyggðum lifa.“
Túrístar. Óðara en hiu batnandi tíð spurðist til út-
landa, tók aptur að aukast tala ferðamanna, og töluvert
fleiri gestir hafa heimsótt land vort i sumar en mörg
ár undanfarin, og ekki svo fáir af þeim hafa ferðast á
landi, en hin siðastliðnu sumur komu sárfáir túristar hing-
að norður landveg. Af merkum gestum frá útlöndum í
sumar má nefna hinn duglega kaupmann og konsúl, R e g i n a 1 d
Oeström frá Færeyjum, sem kom til suðurlandsins á-
samt hóp af Englendingum. Um sama leyti var þar á
ferð Miss Cameron frá Sunderland, er kom í kynnis-
ferð til |>orl. kaupm. Johnsens í Rvík. Hún er málari og
tók margar myndir af ýmsu, er henni þótti merkilegt. J>á
má nefna systkynin Millais, tvo bræður og systur, börn
hins fræga lista- málara Sir John E. Millais i London.
J>au ferðuðust norður um land og víðar og tóku fjölda
mynda, drátt- og ljósmynda, Með þeim var hr. J>orgrímur
Guðmnndsen. Með Thyru ferðaðist hér lika prússneskur
hershöfðingi, W u 1 f, roskinn maður en vasklegur. Hann
kvaðst hafa verið fyrir stórskotaliði Prússa í öllum meg-
orustum þeirra bæði við Austurrikismenn 1866 og Frakka
1870, og kunni því frá mörgum tíðindum að segja. Loks
má nefna presta tvo, Dr. Walker (sá sami er embætt-
aði í Rvík á ensku); hans erindi var annars að fanga
flugur og fiðrildi; hinn presturinn hét John Hoskyn
A b r a h a 11, hinn lærðasti maður og latínaskáld mikið.
Hann er enn að ferðast hér norð-austur um með syni sín-
um, barnungum doktor í heimspeki.
Flestir túristar hafa á orði, hve dýrt þeim þyki að
ferðast hjá oss, og þó svo afar seinlegt. J>eim þykir t. d.
of dýrt ef tveir eru látnir borga næturgreiða óvalinn
JL
T
Þann 19. þessa mánaðar burtkallaðist eptír langa
sjúkdómslegu, húsfrú Anna Havsteen á Oddeyri,
Jarbarfö'r hennar á a& framfara þann 3.september næst-
komandi um hádegi.
Nýsáluð er húsfrú Sólveig iónsdóttir á Gautlöndum,
ekkja Jóns sál. Sigurðssonar.
I Auglýsingar. J
— Andarnefjulýsi, nýtt og vel vandað, fæst hjá undir-
rituðum.
Akureyri 23. ágúst 1889.
E. E. M ö 11 e r.
Litunarefni
vor sem á nokkrum árum eru
orðin alþekkt sem hin beztu bæði
utanlands og innan og sem voru sæmd hæðstu verðlaunum
á sýningunni í Kaupmannahöfn árið sem leið fást með
minu verksmiðjuverði hjá herra konsul J. V. Havsteen á
Oddeyri.
Studiestræde 32 Kaupmannahöfn í júní 1889.
C. Buchs litarverksmiðju
Borgað hafa 1. ár „Lýðs“.
Finsen póstmeistari Kvik. 16 kr., Hafliði Svefneyjum 10
kr., H. S. Blöndal Blönduósi 23 kr., Sira Jón Tjörn 4 kr.,
Cand. Grímur Jónsson ísafirði 2 kr., J>orsteinn Öxnafelli
2 kr., Sigurgeir óngulstöðum. 2 kr.
Ititatjóri: Milttli. Jochuuisson.
Prentsmiðja Björus Jónssonar.