Kirkjublaðið - 02.09.1894, Side 1

Kirkjublaðið - 02.09.1894, Side 1
mánaðarrit handa íslenzkri alþýöu. IV. RVIK, SEPT., (B,) 1894. 11. Vers. Að lifa lífi mínu, sem líkar, Drottinn, þjer og vera’ í verki þínu, það veiti náð þin mjer. Þá verða blessuð verkin mín og fylgja mjer í friði, ó, faðir, heim til þín. B. II. Kirkjufrumvörpin. Þessi frumvörp voru eigi útrædd á aukaþinginu nú í sumar, má því búast við, að þau verði borin upp að nýju á næsta þingi. Tilhlýðilegt virðist því, að þau sjeu íhug- uð einnig frá leikmanna sjónarmiði, og með því að jeg í þessu efni sjer í lagi mun eiga orðastað við presta, þvi frá þeim er aldan runnin, bið jeg yður, herra ritstjóri, að taka athugasemdir mínar í »Kirkjublaðið«, sem fiestir prestar munu lesa. I fyrsta lagi er það einkennilegt við frumvörp þessi, að fiutningsmenn beggja voru prestar, enginn leikmaður var þar við riðinn, í annan stað sátu i neðri deildar nefnd- inni, sem um þau fjallaði, tveir prestar, sjálfir fiutnings- mennirnir að öðru þeirra, ásamt einum lögfræðingi, sem þá einnig, eins og við mátti búast, gjörði ágreining i báð-

x

Kirkjublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.