Kirkjublaðið - 02.09.1894, Qupperneq 4

Kirkjublaðið - 02.09.1894, Qupperneq 4
tæklingar, mundu einnig aukast á pappirnum, en í sveit- um, þar sem hávaði bænda tíundar nokkuð, þvert á móti mundu þær rýrna frá því sem nú er, jafnvel með hinum hærra nefskatti. Mig vantar eðlilega næg gögn til að sýna þetta reikningslega með ákveðnum dæmum, en reikn- ingshaldarar kirknanna geta bezt sjálfir sjeð það fyrir sínar eigin kirkjur, hver hjá sjer, og mun þá reynast svo, að tekjur sumra kirkna til sveita fara niður um allt að þriðjungi, en tekjur sumra kirkna í hinum fjölbyggð- ustu sjávarsveitum vaxa allt að helmingi, setji maður gjaidið 85 a., sem fer meðalveg hins hæsta og lægsta takmarks, er frumv. nefnir, og allra áþreifanlegastur er ójöfnuðurinn við það, að hin gamla skylduvinna, kostnað- urinn við aðflutning byggingarefnis, sem eptir frumv. á að greiðast beint úr sjóði kirkjunnar, kemur lang-þyngst niður á kirkjunum, sem mest missa í af tekjum sínum. Sje því frumv. þetta, sem jeg hygg, þarflaust, ósann- gjarnt við gjaldendur og gagnslaust, ef ekki skaðlegt fyrir kirkjur landsins yfir höfuð, þá fylgir engin blessun ræktarleysi við langfeðga og lagasetningar þeirra, og heitir slíkt eptir ómenntaðri þjóð, sem eigi varð langvinn, (Vandölum), vandalismus, en tvær aðar þjóðir þekkjum vjer, aðra í fornöld, aðra nú, Rómverja og Breta, sem fastheldnir voru og eru við fornar venjur, lög og siðu, og sem entust og endast vel. Hjer á landi virðist stefn- an nú vera sú, að sá þykist mestur maðurinn, sem hrist- ir flest lagafrumvörp úr erminni, þó hann aldrei nema þykist íhuga þau »alvarlega« (en ekki vandlega), og um- turnar sem mest því forna, en: »Polypragmosyne prjállegt heflr trýni« sagði Eggert Olafsson, og »pessimœ reipublicæplurimœ leges« (þ. e. því verra sem ástandið er í einu landi þess fleiri lög hefir það) sögðu Rómverjar. Það er betra að láta hið gamla kyrrt, »quieta non movere«, en spilla því með fljóthugsuðum lagasetningum. En þó er það verst við þetta frumv., að það innleiðir hjer öfugan »communismus«r það ljettir á þeim ríkari og þyngir á þeim snauðari. I Reykjavfk t. d. og þar sem nú er goldiun húsaskattur til

x

Kirkjublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.