Kirkjublaðið - 02.09.1894, Qupperneq 6

Kirkjublaðið - 02.09.1894, Qupperneq 6
hafa lög 12. maí 1882, sem halda fram samkomulags- stefnunni, ekki þegar borið árangur? Frá 1882 til 1894 eru 52 af hjer um bil 290 kirkjum landsins komnar und- ir umsjón safnaðanna, og má því ætla, að líkt muni smámsaman með góðu fara eptirleiðis, eða er svo bráð þörf á, að allar kirkjur landsins komi í safnaða hend- ur, og hefir sú stutta reynsla sýnt að þeim sje betur borg- ið hjá söfnuðunum, en bændum og prestum? Árið 1887 voru 26 kirkjur komnar í hendur safnaðanna, af þeim voru þrjár, eða hjer um bil 12°/o, í »laklegu« ástandi, en 4, eða 16°/o í »ágætu« standi; af 119 prestakirkjum voru 17, eða rúmlega 14°/o í »laklegu« standi, en 15, eða tæp- lega 13°/o i »ágætu« standi; af 145 bændakirkjum voru 12, eða hjer um bil 8°/o »laklegar», en 22, eða hjer um bil 15°/o í »ágætu« standi. Reynsla er því eigi fyrir því, að meðferð safnaðanna á kirkjunum taki meðferð presta, og því síður eigenda stórum fram, enn sem komið er. Eru nú vorra tíma Staða-Árnar svo vissir um, að einstökum bændum sje ekki eins vel trúandi fyrir kirkjum, eins og söfnuðum. Munu margir söfnuðir, sem ekki hafa annað við að styðjast, en þær tekjur, sem hið fyrra frumvarp ætlar þeim — því kirkjujörðunum halda klerkar — ráð- ast í að byggja steinkirkjur, eins og Ásgeir heitinn á Þingeyrum, Pjetur Jónsson í Reykjahlíð og Jón sál Jóa- kimsson á Þverá? Og ætli söfnuðir að byggja kirkjur með landssjóðs lánum, eins og prestar geta og hafa gjört, skyldi það eigi reynast erfiðara eptirleiðis, þegar Oarðs- söfnuður i Kelduhverfi er búinn að sýna, hvernig hann hefir það? Þessi söfnuður fjekk, 1888, 600 kr. lán gegn vöxtum Qg afborgunum, til að byggja G-arðskirkju. Hann borgaði skilvfslega fyrstu tvö árin, en síðan ekkert í þrjú, og er búið að segja honum upp láninu, hver sem borgar, því það er ávallt erfitt, að koma ábyrgð fram við marga, sem eru í söm-u skuld. Afleiðingin mun því verða sú, að söfnuðir fá ekki lán til kirkjubygginga og kirkjuaðgjörða, nema einstakir menn taki upp á sig á- byrgðina, sem ástundum mun reynast hæpið, að fáist. Þá eru þær greinar frumvarpsins, 1. og 2., sem vald- bjóða prestum og eigendum að láta af hendi kirkjur sínar,

x

Kirkjublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.