Kirkjublaðið - 02.09.1894, Qupperneq 8

Kirkjublaðið - 02.09.1894, Qupperneq 8
168 sínum, t. d., eins og skjdda þeirra er til, sporna við hneykslanlegri sambúð milli ógiptra persóna, sem um of og óátalið viðgengst sjer í lagi í sjávarhreppunum, held- ur en mæða og tefja hvort þingið eptir annað með undirstöðulausum og viðvæningslegum frumvörpum um tekjur kirkna og presta. Þesskonar nýmæli hafa ein- hvern síngirndar keim, sem skeð gæti að þing og þjóð yrðu leið á með tímanum, og það ræki að þvf, að menn hjer eins og á Englandi tæki kjörgengi af prestum, en ljetu sjer nægja, að eiga biskupinn í efri deild. Þessum báðum frumvörpum ætti þvl, eins og Þórður bóndi á Rauðkollsstöðum einu sinni stakk upp á um annað frum- varp, að vísa á sinn fæðingarhrepp. Allir vita hvar hann er. Bessastöðum í septembermánuði 1894. GRÍMUR THOMSEN. Grein kirkjubóndans á Bessastöðum verður svarað næst. Ritstj. K Jóhannes skírari. Eptir prestaskólakennara Jón Helgason. (Framh.). V. Jesiís lœtur slcírast. Þannig hjelt Jóhannes áfratn hinu tvenns kortar starfi sínu um hrið og prjedikaði ýmist eða skírði. Aðsóknin varmikilog mannfjöldinn fór dagvaxandi umhverfis hann. Auðvitað hefir Jóhannes sjeð margan manninn hverfa burtu, án þess að láta skírast; en hin mikla aðsókn var honum þó hins vegar lifandi vottur þess, að Messíasar- þráin hefði aldrei náð hærra stigi í Israel en nú, og það var honum ný staðfesting þeirrar sannfæringar hans, að þess væri ekki langt að bfða, að Kristur kæmi opinber- lega fram. Þess vegna starfaði Jóhannes með óbifanlegri trúmennsku i köllun sinni. • Það er engum efa bundið, að Jóhannes hefði getað, ef hann hefði viljað, fengið lýð- inn á sitt vald í þeirri trú, að hann væri Messias, því sú skoðun var undir niðri hjá þorra manna og jafnvel ráðið í Jerúsalem var ekki fjarri því að vera sömu skoð- unar. Og þegar því sendiherrar ráðsins í Jerúsalem

x

Kirkjublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.