Kirkjublaðið - 02.09.1894, Side 10

Kirkjublaðið - 02.09.1894, Side 10
170 skírast. Jóhannesi mun hafa orðið starsýnt á hinn ó- kunna mann, því slíkan svip, slikt augnaráð hafði hann aldrei fyrri sjeð og heilagur alvörublær hvíldi yíir hinni hreinu og björtu ásjónu; hann var svo ólíkur öllum þeim, er hingað til höfðu komið og beiðst skírnar. Þegar svo .Tóhannes að vanda sínum lagði fyrir hann spurningarnar um iðrun og apturhvarf og hinn ókunni maður að líkind- um svaraði: »Jeg þekki enga synd!« þá mun nýtt ljós hafa tendrazt í hjarta skírarans og sú hugsun flogið hon- um í brjóst: Það er hannl þaðerhann! þessi er Messías, sem jeg hefl greitt veg! — Honum fórst þó ekki eins og Pjetri síðar, að hann segði: »Vik burtu frá mjer, herra! því jeg er maður syndugur*, heldur mun Jóhannes hafa hugsað svo: nú er minu starfi lokið, því nú er hann kom- inn, sem mjer er meiri, hann, sem skírir með heilögum anda; jeg vil verða fyrstur til þess að taka skírn af hon- um! — Jóhannes færðist því undan að skíra hann og mælti: »Mjer er þörf, að jeg skírist af þjer og þú kem- ur til mín«. Jesús bar ekki á móti því, að svo væri, en svaraði að eins: »Veittu mjer þetta, því þannig ber okkur að fullnægja öllu rjettlæti*, og þá Ijet Jóhannes það eptir honum, og jafnskjótt sem Jesús stje upp úr vatninu, sá Jóhannes teiknið, sem Guð hafði lofað honum: andann í dúfulíki koma frá himnum og staðnæmast yfir honum. Aldrei hafði Jóhannes lifað sælli stund á æfi sinni! Hann hafði sjeð Messías, eptirvæntingu alls Israels um margar aldir; hann hafði nú sjeð hann augliti til auglit- is, sem spámennirnir höfðu spáð um og hann sjálfur prje- dikað, þótt hann þekkti hann ekki; hann hafði heyrt hina blíðu og hreinu raust hans og heyrt föðurröddina vitna um hann: »Þessi er sonur minn elskulegur, sem jeg hefi velþóknun á!« Nú opnuðust augu skírarans til fulls: Messías átti ekki að birtasf sem voldugur dómari, heldur sem ljúfur friðarhöfðingi; hann var ekki kominn ti! þess að láta lýðinn þola hegningu fyrir syndir sinar, heldur til þess sjálfur að líða saklaus fyrir syndir alls heimsins. Vjer höfum áður minnzt á breytingu þá, er varð á

x

Kirkjublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.