Kirkjublaðið - 02.09.1894, Qupperneq 11

Kirkjublaðið - 02.09.1894, Qupperneq 11
171 prjedikun skirarans eptir að hann hafði sjeð Jesús og skirt hann. Frá þessari stundu fær ræða hans annan blæ, eins og sjálfur skirarinn breytist. Aður hafði hann verið harður og ógnandi, og ekkert sjeð nema synd og spillingu, bæði hjá sjálfum sjer og öðrum, og yfir vofandi dóm, ef menn ekki iðrist og taki sinnaskiptum. Nú er rödd hans blíðari og ástúðlegri, hann er glaður í auðmýkt; því í stað hins stranga dómara, sem með varpskúflu í hendi hreinsar láfa sinn, sjer hann frelsarann sem auð- mjúkt og litillátt fórnarlamb og gleðin skin út úr augum skírarans, er hanu bendir á Jesús og segir: »Sjá það Guðs lamb, sem ber heimsins synd!« Sem vinur brúðgum- ans gleðst Jóhannes nú við rödd brúðgumans og gleði hans er fullkomin (Jóh. 1; 29). — Nú sjer Jóhannes ekki fram- ar ríki himnanna sem hinn mikla og ógurlega dag Drott- ins, heldur sem velþóknanlegt náðarár frá Drottni. Aður hafði skírarinn einblínt á hina heilögu reiði, nú gleðst hann yfir hinum heilaga kærleika. Þess vegna gremst honum það ekld, að annar kemur, sem skyggir á hann, heldur játar f glaðri auðmýkt: Hann á að vaxa, en jeg að minnka! VI. Þýðing sMrnar Jesú. Það getur varla hjá því farið, að sú spurning komi upp í brjósti hvers hugsandi lesara, er dvelur við æfi- feril skírarans: Hvers vegna og í hvaða tilgangi tók Jesús skirn af Jóhannesi? Vjer viljum því heldur ekki leiða þessa spurningu hjá oss, heldur leitast við að svara henni og með svari voru gjöra grein fyrir þýðingu skírnar Jesú. Þegar vjer virðum fyrir oss skírn Jesú og hins veg- ar höfum hugfasta þýðingu vatnsskírnar Jóhannesar, sem var iðrunarskírn til syndanna fyrirgefningar, er óhjá- kvæmilegt, að sú hugsun vakni hjá oss: Hvernig gat Jesús, hinn heilagi og syndlausi Guðs son, sem »ekki þekkti synd« (2. Kor. 5,21) og »svik voru ekki fundin i lians munni« (1. Pjet. 2,19.), tekið iðrunarskírn til synd- anna fyrirgefningar? Hvernig gat Jesús iðrast, sem ekk- ert brot hafði drýgt? Hvernig þurfti hann fyrirgcfningar,

x

Kirkjublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.