Kirkjublaðið - 02.09.1894, Page 13

Kirkjublaðið - 02.09.1894, Page 13
r?3 viU eicici gjöra undantekningu, j)vi hlýðni hans er tak. markalaus. Til þess að fullnœgja öllu rjettlœti lætur Jesús skírast. Aðal-áherzlan við skírn Jesú liggur ékki á því, sem Jó- hannes gjörði er hann skírði Jesús, heldur á því, sem Jesús gjörði, er hann tók skírn aí' Jóhannesi, án þess sjálfs sín vegna að þarfnast hennar, eða með öðrum orðum: aðal-áherzlan liggur á hlýðni þeirri við öil hoð Giuðs til mannanna, sem Jesús sýndi með því jafnvel að láta skír- ast með skírn, er var ætluð syndugum mönnum. Skírn Jesú var þannig hátíðlegt loforð frá hans hálfu um hlýðni við öll Gtuðs boð og skipanir; hann lofar ekki að eins fyrii sjálfan sig að breyta í öllum greinum Guði velþókn- anlega, heldur lofar hann einnig að uppfylla allar kröfur hins guðlega lögmáls til mannanna í mannanna stað, svo að hlýðni hans geti orðið tileinkuð mönnunum, þ. e. þeim, sem vilja trúa á hann. En þetta er að eins önnur hlið málsins. Hin hliðin er þetta: með því að láta sldr- ast þeirri skírn, sem ætluð var syndugum mönnum, tjáir Jesús sig fúsan til þess að láta telja sig meðal syndugra manna, þótt hann sje heilagur og fiekklaus; en um leið og hann tjáir sig fúsan til þess að láta telja sig meðal syndugra manna, tjáir hann sig jafnframt fúsan til þess, að þola þá hegningu, sem mannkynið liafði tilunnið, að líða einn íyrir alla. Jesús lofar þannig í skirninni þeirri hlýðni við vilja föðursins, er auðsýndi sig í öllu lífi hans og náði sínu hæzta stigi á krossinum á Golgata; — hann lofar annarsvegar: að gjöra allt, sem Guðs vilja sje sam- kvæmt og hins vegar: að þola allt, sem Guði þóknist að láta fram við hann koma; — hann lofar með öðrum orð- um annarsvegar: verkhlýðni, hins vegar : þolhlýðni í öllu lífi sinu, en í þessari tvenns konar hlýðni er einmitt endurlausnarverkið fólgið. Vjer sögðum áður, að í skírn Jesú hafi aðal-áherzlan legið, ekki á því sem Jóhannes, heldur því, sem Jesús og — vjer bætum því nú við — á þvi, sem faðirinn gjörði. Faðirinn tekur sjálfur þátt í athöfninni, þegar sonurinn lætur skírast. Og hluttaka hans var bæði fólgin í því, sem augað sá og eyraðheyrði: anda-niðurstigningunni og

x

Kirkjublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.