Kirkjublaðið - 02.09.1894, Page 15
að Jóliannes því hefði ekki starfað til einkis eða misskilíð
köllunarverk sitt, að greiða Messíasi veg.
(Framh.).
Stjarnan.
Blessaða stjarna á himninum háa
hýrt sem að leiptrar í fjarskanum bláa!
Líttu nú á mig, æ, lof mjer að sjá þig!
:,:Blessað litla ljós:,:
Jeg átti himin, sem heiður var áður,
hreinum og blikandi vonstjörnum fáður.
Líttu nú á mig, æ, lof mjer að sjá þig!
:,:Blessað litla Ijós:,:
Aptur af hjarta jeg óska að sjá hann
æskunnar sakleysis himininn bláan.
Líttu nú á mig, æ, lof mjer að sjá þig!
:,: Blessað litla ljós :,:
Lengi’ hef jeg syrgt hann, og sárt hef jeg grátið,
í svartnætti geng jeg, því hann hef jeg látið.
Líttu nú á mig, æ, lof mjer að sjá þig!
:,: Blessað litla ljós:,:
Æ, reyndu’ að skapa mjer aptur í lijarta
ástfagran himin með vonarljós bjarta.
Littu nú á mig, æ, lof mjer að sjá þig!
:,:Blessað litla ljós:,:
■JÓNATAN ÞORSTEINSSON.
Höf. þessa kvæðis er nýlátinn af holdsveiki. fertugur að aldri.
Hann var hættur búskap, og dvaldi nú síðast hjá móður sinni og
stjúpföður á Hæli í Flókadal í Borgaríirði.
Frá hjeraösfundum 1894.
4. Hjeraðsf. K,jalarnessl)ings var 12. þ. m. Við voru 4
prestar og 8 fulltrúar.
Samþykkt var, að Brautarholtskirkja kæmi í umsjón safnaðar.
Viðstaddir prestar gál'u til prestaekknasjóðsins.