Kirkjublaðið - 01.08.1895, Side 4

Kirkjublaðið - 01.08.1895, Side 4
ÍS2 aldrei neítt og venjist aldrei á neitt, þar sem prestarnir gjöri það fyrir hana, sem hún ætti sjálf að geta gjört. Vera kann og, að sumir kasti þessari skoðun fram at- hugalaust, án þess að gjöra sjer nokkra hugmynd um, hvort nokkur ástæða er til hennar; en til þeirra þarf ekki tillit að taka. Þá er að athuga ástæður hinna, að hvað miklu leyti þær eru gildar. Fyrst er þá það, að prestar með því að stunda annað en prestskap eyði ot-miklum tíma frá hon- um og hugir þeirra hneigist of rajög í veraldlega átt við það að fást við veraldleg störf. Þessi ástæða heíir efa- laust við talsverð rök að styðjast, og hætt er við, að af- skipti þeirra af veraldlegum málum nái stundum allt o£ langt, beint af þeirri ástæðu, sem hjer hefir verið talin. En hins vegar geta þeir' líka gengið of langt í hina átt- jna, of langt í því, að hafna sem mest öllum veraldlegum sýslunum. Ef einhver prestur tæki upp á því, að loka sig inni allan daginn, dag eptir dag að staðaldri, og lesa guðfræði, semja ræður, biðjast fyrir eða vera eingöngu í andlegum hugleiðingum, þá yrði sá hinn sami með tíman- um lítt hæfur til prestskapar, einmitt fyrir það, að hann samlagaði sig ekki öðru fólki, og vissi ekkert hvað frarn færi í kring um hann. Hann gæti sjálfsagt flutt svo og svo »lærðar« kenningar, og ef til vill haldið svo og svo mælskar tölur, ef hann er vel máli fariiin; en það er hætt við því, að kenningar hans yrðu of lærðar fyrir al- þýðu manna og utan við lifið, yrðu mestmegnis guðfræðis- legar setningar, sem ólærðir menn skildu lítið í og litla þýðingu hefðu fyrir líflð, þótt þær gætu haft þýðingu fyr- ir guðfræðina, eða þær yrðu tóm andvörp og »upp- hrópanir«, sem að eins fjellu í góðan akur hjá æstum mönnum og trúvinglurum. Það væri því hjer um bil sama sem hann talaði á því tungumáli, sem alþýða manna ekki skildi. 0g þó mundi enn ver fara, þegar hann ætti að koma fram sem sálusorgari í söfnuði sínum. Þá strandaði allt á því, að hann hefði ekki næga mannþekk- ingu og ekki næga lítsreynslu; en slíkt er þó i þeim efnum heilladrjúgara en hvað mikill lærdómur sem vera skal. Það er því í þessu sem öðru, að hóf er bezt

x

Kirkjublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.