Kirkjublaðið - 01.08.1895, Side 8

Kirkjublaðið - 01.08.1895, Side 8
m œikil likamlog áreynsla, sem þreytir manninn mikið, sljóvgi andlega hæfileika mannsins, og er því varhuga- vert fyrir þá, sem þurfa að hafa mikla andlega áreynslu, að þreyta sig til muna með líkamlegri vinnu, ef hjá því verður komist. Sjerstaklega ættu þeir prestar, sem hafa mikil og erflð ferðalög, alls ekki að leggja að sjer líkam* lega vinnu, sem og ekki heldur þeir, sem hafa veiklaða heilsu eða farnir eru að eldast til muna. Búskapur. Af öllum þeim störfum, sem prest- ar hafa á hendi, tekur búskapurinn upp langmestan tima fyrir þeim, ef þeir stunda hann rækilega, og það opt svo mikinn tima, að prestskapurinn sjálfur hlýtur stundum að verða á hakanum. Búskapurinn hjer á landi er svo erflður og umsvifamikill, að ekki veitir fullkomlega af meðalmannskröptum til hans, eins og reynslan sýnir daglega; og það þó að menn hafl vanizt við búskaparstörf frá barnæsku, hvað þá, ef menn koma að þeim flestum ókunnugir. Það virðist að vissu leyti vera mjög óheppileg tilhögun, að prestum sje gjört að skyldu að búa, eins og kalla má að þeim sje gjört, 3jer- staklega ef þeir ekki vilja lifa einhleypir. En það er ekki svo auðvelt að komast hjá þessu, eins og hjer til hagar. Þjóðin er efnalítil og getur átt erfitt með að sjá prestum fyrir nægilegu kaupi, til þcss að þeir komizt vel af með fjölskyldu, nema því að eins að þeir stundi aðra atvinnu meðfram, og þá liggur búskapurinn optast næst. Vitanlega eru ýmsir prestar engir búmenn, en búskapurinn fleytir þeim þó all-flestum áfram betur en tekjurnar einar mundu gjöra; og illa gengur búskapurinn þá, ef tekjur þeirra af búinu i meðalári ekki verða nota- drýgri en reitings-tekjur af embættinu. Raunar er það enn leiðinlegra fyrir embættismerm en aðra að búa illa, með því að það ber enn meira á þvi, og hætt er við, að það geti nokkuð rýrt virðingu þá, sem þeim er nauð- synlegt að njóta, ef þeir eru ekki því meiri afburðamenn að öðru leyti. 0g það er meira að segja hættulegt fyrir stöðu prestsins, ef hann þarf að vera háður söfnuðum sínum um skör fram, eða kominn upp á hjáip annara, frekara en mcnn eru almennt hver upp á annan komnir

x

Kirkjublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.