Kirkjublaðið - 01.08.1895, Page 10
188
höfundur fjelagsins hafði forsætið og er hann í miklum
hávegum hafðnr og hefir þáð sæmdir stórar.
Þegar lýsa á fjelagi þessu, verður víst fyrst spurt
að, hvað fjelagið sje, að hverju það stefni og hvernig
því sje fyrirkomið. Nokkuð af svörunum liggur í nafn-
inu sjálfu, sem sje að safna undir merki Krists hinni
uppvaxandi kynslóð ungra raanna, efla og styðja hjá
henni sannan og persónulegan kristindóm, glæða og vekja
fjörugt og fagurt lifandi trúarlíf, verja unglingana fyrir
vantrú og doða aldarandans og mynda eitt sterkt bræðra-
samfjelag innan safnaðar Jesú Krists hjer á jörðunni,
þar sem einkum er ástundaður kristilegur kærleiki inn-
byrðis, samkvæmt boði Drottins vors og frelsara, og
guðsorð og bænin látin búa ríkulega meðal vor. Að
þetta verði sem fullkomnast er aðaltakmark fjelagsins og
með bæn og innilegum áhuga má komast langt þegar
Guð er í verki með. Það sem fjelagið gjörir til þess að
ná tilgangi sínum er í stuttu máli þetta: Fjelagið sjer
um að stofnað sje heimili þar sem allir fjelagar eiga að-
göngu að og þar sem þeir geta verið eins og heima.
Fyrirkomulag þessara heimila er mjög mismunandi eptir
því sem tilhagar á hverjum stað, eptir efnum og ástæð-
um. Þegar ein fjelagsdeild getur, kemur hún sjer upp
eigin húsi, en leigir þangað til. Hjer i Khöfn er heimil-
inu þannig háttað, að i sambandi við það er góður mat-
reiðslustaður, þar sem fjelagsmenn geta tengið kröptugt
og ódýrt viðurværi; svo höfum vjer einnig tvær lestrar-
stofur, er önnur fyrir þá sem reykja og hin fyrir þá, er
lausir vilja vera við tóbaksreyk. Á lestrarstofunum er'u
framlögð blöð bæði kristilegs og veraldlegs efnis, ýmis-
konar töfl eru handa taflmönnum og ritföng handa þeim,
er þess þurfa. Þá höfum vjer kontór, bókhlöðu, 2 fund-
arsali, kennslu-herbergi o. s. frv. Á heimilinu njóta
menn margra góðra stunda; þar kynnast menn hver öðr-
um, tala saman, spiia á hljóðfæri og annað þvilikt. Vjer
höfum 2 harmónía og eitt fortepíano. Á sunnudagskvöld-
um safnast menn saman og ræða um eitthvað uppbyggi-
legt og eru slikar stundir blessunarríkar mörgum manni.
Fjelagið býður meðlimuro sínum kennslu í ýmsum grein-