Kirkjublaðið - 01.08.1895, Qupperneq 12
140
Ein af nefndunum heflr á hendi umsjónina með
drengjadeildinni, og langar mig til að fara nokkrum orð-
um um þau störf, með því að jeg er þeim kunnastur og
ann þeim mest.
Menn hafa hjer á landi (Islandi), heyrt talað um og
þekkja nokkuð til sunnudagaskóla-hreyfingarinnar. Sunnu-
dagaskólarnir eru fyrir börn til fermingaraldurs, og er
eingöngu barnaguðsþjónusta með biflíuútskýringu. Þegar
drengirnir fara úr sunnudagaskólunum, taka unglingafje-
lögin við og byggja ofan á það sem þeir hafa lagt.
Drengjadeildirnar taka að sjer drengi frá 14—17
ára, og þá fara þeir upp í ungmennadeildina eða höf'uð-
fjelagið. Þannig leitast fjeiagið við að vernda trú og sið-
gæði hjá æskulýðnum á öllum aldri og sporna við að
þeir falli í tálsnörur ljettúðarinnar. Við ferminguna eru
drengir optast viðkvæmastir og móttækilegastir fyrir góð
áhrif, en jafnframt því er þetta þó hættu-aldur fyrir þá,
4)ví nú eru þeir komnir í mannatölu og þurfa að láta
það sjást t. a. m. með því að reykja og fl. þessháttar.
Sömuleiðis eru þeir hróðugir af að vera sloppnir viðlær-
dómspressuna. Þá kemur drengjadeildin og býður þeim
í flokk sinn, þar sem þeir geta fundið kristilega glaðværð,
alúðlega vini, er leiðbeina þeim, tala við þá og reyna að
laða þá með írjálsum kærleika til Krists, svo aðþeirgeti
orðið uppbyggilegir meðlimir safnaðarins. Það er opt
erfltt hlutverk og þarf hjer á mikilli lægni og þolinmæði
að halda. Nef'ndarmenn drengjadeildarinnar veiða sjálf-
ir að vera vel trúaðir menn, kærleiksríkir, hreinskilnir
og varkárir í orði og verki. Hjer þarf umframallt stöð-
ug bæn ura blessun Guðs að eiga sjer stað, því eigi
gagnar að sá og vökva, ef'Guð eigi gefur ávöxtinn. Hjer
í Höfn er fyrirkomulagið þannig, að bænum er skipt nið-
ur i 20 verksvið (hringi) og einn nefndarmaður fyrir
hverju. Hann á að hafa sjorstaka umsjón með drengj-
unum í verksviði sfnu, vera ráðanautur þeirra, útvega
þeim samastað og atvinnu ef þess þarf með, heimsækja
þá sem eigi koma að minnsta kosti einu sinni á mánuði
og vitja þeirra sem sjúkir eru. Asunnudagskvöldin korna
drengirnir hjer saman kl, 6 e. h., skemmta sjer við tafl,