Kirkjublaðið - 01.03.1897, Side 12

Kirkjublaðið - 01.03.1897, Side 12
44 þó að vakandi auga var haft á. mjer. En jeg verð að segja eins og er, mjer datt ekki í hug að neitt óleyfi- legt væri i þessu; jeg hjelt að þetta væri »all rigth«. En það var nú öðru nær; úr þessu varð all-langt raál. Sýslumaður kærði málið fyrir amtmanni. Amtmað- ur virðist af brjefi hans að dæma, sem jeg fjekk að sjá, hafa álitið málið litilfjörlegt og ekki saknæmt, en lætur það þó ganga til landshöfðingja. Landshöfðingi sendir svo brjef beina leið til mín og spyr, hvort jeg hafi byggt hjónaband á þessari 2. lýs ingu sem fullgildri. Jeg svara, að úr þvi jeg hafi látið manninn prjedika fyrir mig, þá hafi jeg beðið hann að lýsa um leið og sje nú búinn að gefa saman hjónin, með því mjer hafi ekki getað dottið í hug annað, en að lýs- ingarformúlan hefði sama krapt og gildi, þó hana mælti hana fram fyrir mína hönd, eins og jeg hefði gjört það sjálfur. Nú bjelt jeg að málið mundi ætla að komast« útyfir pollinn», en það varð þó ekki. Landshöfðingi hefir ekki álitið það þess vert, og mjer er nær að halda að hann hafi álitið frá veraldlegu sjónarmiði ekkert við það að gjöra. Virðist hann svo hafa falið biskupi á hendur að ráða málinu til Ivkta á þann hátt, sem honum þætti við eiga; þvi að frá biskupi kom á endanum, rjett að segja ári síðar en brotið var framið, sá skellur, sem jeg hafði átt von á úr anuari átt. Hvað biskupi kom málið við, er ekki gott að segja; hann er þó ekki biskup utanþjóð- kirkjumanna. En þetta stórmál endaði með áminningar- orðum frá biskupi í gegnurn prófastinn f Suðurmúlapró- f'atsdæmi. Ef prestur þessa safnaðar, sem stendur að öllu leyti utan þjóðkirkjunnar, þarf að standa yfirboðurutn hennar reikning fyrir það, að hann lætur óvígðan mann prje- dika (og lýsa!) í kirkju þeirri, sem söfnuðurinn hefir byggt sjer af eigin ramleik, og sem hvorki biskup nje prótastur nje nokkur þjóðkirkjuprestur hefir átt þátt í að vígja, þá mú geta nærri, hvílikt frelsið er i þessari grein í þjóðkirkjunni; enda segir biskup að þessiaðferð mundi ekki

x

Kirkjublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.